Morgunblaðið - 07.08.1997, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1997
JBó vgmtlrifofrft
■ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST
BLAÐ
Andri Sigþórs-
son með marka-
met hjá KR
ANDRI Sigþórsson, hinn ungi og marksækni
leikmaður KR-liðsins, setti liðsmet er hann
skoraði fimm mörk fyrir KR í Borgarnesi í
gærkvöldi, 6:2. Aðeins tveir aðrir leikmenn
hafa skorað fimm mörk í leik í 1. deild frá
deildaskiptingu 1955 - Halldór Áskelsson
skoraði fimm mörk fyrir Þór gegn FH-ingum
á Akureyri 1985,6:1. Sumarliði Arnasson,
ÍBV, endurtók afrekið í leik 1994, er hann
skoraði fimm mörk gegn Þór.
Sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk
í leik í 1. deild er Teitur Þórðarson. Hann
skoraði sex mörk þegar Skagamenn unnu
stórsigur á Breiðabliki á Akranesi 1973,10:1.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR / HM í AÞENU
Morgunblaðið/Golli
GUÐRÚN Arnardóttir ásamt rússnesku stúlkunnl Ann Knoroz í hlauplnu i gær. Guðrún var nálægt sfnum besta tíma og hljóp á
54,93 sekúndum, sem er 0,12 sek. frá Islandsmeti hennar.
Guðrún Arnardóttir endaði í níunda sæti í 400 metra grindahlaupi
Er mjög vonsvikin
Guðrún Arnardóttir varð fímmta
í sínum riðli í undanúrslitum
400 metra grindahlaupsins á heims-
meistaramótinu í
Skúli U. frjálsíþróttum í
Sveinsson Aþenu í gærkvöldi.
skrifar frá Hún var aðeins einu
Aþenu sæti frá því að kom-
ast úrslit og hefði þurft að bæta
íslandsmetið til að ná þangað. Hún
hljóp á 54,93 sekúndum en næsta
stúlka á undan henni, Andrea Black-
ett frá Barbados, hljóp á 54,74 sek-
úndum. Islandsmet hennar er 54,81
sekúndur. „Það er kannske of mikið
að segja að þetta hafí allt breyst í
martröð, en ég er mjög vonsvikin,"
sagði Guðrún í samtali við Morgun-
blaðð eftir hlaupið.
Hún sagði að nú yrði hún og
Norbert Elliott þjálfarinn hennar
að fara yfír undirbúninginn. „Ég
geri mér ekki alveg grein fyrir hvað
hefur mistekist hjá okkur, kannski
eitthvað í vetur eða í sumar, en ég
hef verið að bæta mig bæði í 200
og 400 metra hlaupi. Ég veit ekki
hvað það er sem þarf til að bæta
mig í grindinni fyrst það gerðist
ekki núna. Ég hef þann galla að
mér líður best þegar ég er með ein-
hvern fyrir framan mig til að elta.
Ég þyrfti að athuga hvort ekki
megi vera með gulrót þannig að ég
geti elt hana. Flestum finnst vont
að hlaupa á innstu braut en ég vildi
frekar vera þar en á þeim ystu,“
sagði hún.
■ Get betur... / C8
Jón Arnar
á bata-
vegi
JÓN Arnar Magnússon, tug-
þrautarkappi úr Tindastóli,
er á góðum batavegi eftir að
hann meiddist í fyrrakvöld í
hástökkskeppni tugþrautar-
innar á heimsmeistaramótinu
í Aþenu. í gær var hann á
hótelherbergi sínu „með löpp-
ina uppí loft,“ eins og Gísli
Sigurðsson þjálfari hans orð-
aði það. „Hann er miklu betri
en í gær og getur gengið um
allt. Það verður svo bara að
koma í Jjós þegar við komum
heim hversu alvarleg meiðsl
hans eru. En þetta lítur miklu
betur út í dag en í gær. Hann
er auðvitað ekki farinn að
æfa, en við vorum að gantast
með það að ef honum fer
jafnmikið fram á hverjum
degi og hingað til gæti hann
kannski náð æfingu áður en
hann fer heim,“ sagði Gisli í
gærkvöldi.
Matar-
lykt hjá
Guðrúnu
ÍSLENSKU keppendurnir á
heimsmeistaramótinu I
Aþenu, þau Jón Arnar Magn-
ússon og Guðrún Arnardóttir,
eru ekki ánægð með hótel
Stanley þar sem þau búa. Sér-
staklega er herbergi Guðrún-
ar slæmt því með loftkæling-
unni gýs upp mikil matarlykt
og ætlaði hún að skipta um
herbergi. „Ég hætti við það,
nennti því ekki því ég er með
svo mikið drasl. Þetta var í
lagi á þriðjudagsmorguninn
því ég vaknaði klukkan fímm
og þá voru þeir ekki byijaðir
að elda. Þegar ég lagði mig
um miðjan daginn varð ég að
fá lánað herbergið þjá Jóni
og Gísla (Sigurðssyni þjálfara
Jóns) því það var mikil steik-
arlykt í minu herbergi. Svo
þegar ég kom heim um kvöld-
ið var aftur allt komið í lag
- þeir voru hættir að elda,“
sagði Guðrún í gær.
EYÐIMERKURPRINSINN KREFST KONUNGSTIGNAR / C3