Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HIVIIAÞENU ’ 97
Dvorak vissi
ekki af Evr-
ópumetinu
Tomas Dvorak frá Tékklandi
sigraði örugglega í tugþraut-
arkeppninni og náði þriðja besta
árangri sem náðst hefur í greininni
frá upphafi, hlaut 8.837 stig, var
54 stigum frá heimsmeti Dan O’Bri-
ens, Bandaríkjunum, en aðeins 10
stigum frá 13 ára gömlu Evrópu-
meti Dailey Thompson frá Bret-
landi. Annar varð Finninn Eduard
Hámalaninen með Norðurlandamet,
8.730 stig og bætti eigið met um
117 stig. Silfurmaðurinn frá
Ólympíuleikunum í fyrra, Þjóðverj-
inn Frank Busemann varð þriðji
með 8.652 stig og bætti einnig sinn
fyrri árangur á árinu. Þess má geta
að íslandsmet Jóns Arnars Magnús-
sonar, 8.470 stig, hefði nægt til
fjórða sætis.
Dvorak tók forystuna að lokinni
áttundu grein, stangarstökki, og
gaf ekkert eftir. Bandaríkjamaður-
inn Chris Huffins, sem hafði for-
ystu lengi vel, heltist úr lestinni í
níundu greininni, spjótkasti, þar
sem hann átti þrjú ógild köst.
Sigur Dvoraks var verðskuldað-
urin og árangur hans glæsilegur.
Að keppni lokinni var hann spurður
af hveiju hann hefði ekki gert harð-
ari atlögu að Evrópumetiu og hálf-
gengið síðustu metrana í 1.500 m
hlaupinu er var síðast á dagskrá.
„Ég vissi ekki að Evrópumetið var
svo skammt undan og ég slakaði á
þegar mér var ljóst að möguleiki á
heimsmetinu var.ekki lengur fyrir
hendi.“
Dvorak, sem varð þriðji á Ólymp-
íuleikunum í fyrra, sagði sigur vera
kærkominn en um leið saknaði hann
þess að hafa ekki átt þess kost að
keppa við heimsmethafann og
heimsmeistarann frá síðustu þrem-
ur mótum, O’Brien, sem ekki var
með vegna meiðsla. „Mér finnst
fjarvera hans setja skugga á árang-
ur minn.“
Hámálainen, sem nú keppti í
annað sinn fyrir hönd Finnlands
eftir að hafa gerst finnskur ríkis-
borgari um síðustu áramót, bætti
Norðurlandamet sitt og var aðeins
5 stigum frá sínum besta árangri
í greininni, 8.735 stig frá 1994. Þá
keppti hann fyrir Hvíta-Rússland
þar sem hann er fæddur og uppal-
inn.
Morgunblaðið/Golli
KENÝAMENNIRNIR þrír á fullrl ferð ásamt Asmari frá Sádí-Arabíu er varð að gera sér 4.
sætið að góðu og Marokkómanninum Hicham Bouaouiche sem hreppti 5. sætið.
Samvinnan skilaði
þrennu til Kenýa
Kenýabúinn Wilson B. Kipketer
sigraði nokkuð örugglega í
3,000 metra hindrunarhlaupinu í
gær og landar hans tveir, Moses
Kiptanui og Bernard Barmasai,
komu næstir. Tími Kipketers var
ekkert sérstakur enda ekki við því
að búast á svo harðri braut sem
þeirri sem keppt er á í Aþenu, en
hann kom í mark á 8.05,84 mínút-
um en á best 8.02,77. Heimsmet-
hafinn og heimsmeistarinn, Kipt-
anui varð að játa sig sigraðan, en
lengi vel leit út fyrir að hann hefði
sigur. Það var ekki fyrr en síðustu
Kipketer
Fæddur: 10. júní 1973 í Kenýja.
Ferill: Vann nú í fyrsta sinn til
verðlauna í stórmóti í frjálsfþrótt-
um. Hefur tekið miklum framför-
um síðustu misseri og á síðasta
ári bætti hann árangur sinn í 3.000
m hindrunarhlaupi úr 8.27,90
mín., í 8.11,29.
Kipketer er stundum verið
ruglað saman við Danan Wilson
Kipketer heimsmethafa í 800 m
hlaupi sem er fyrrum Keyjubúi,
en þeir eru ekkert tengdir þrátt
fyrir að bera sama nafn.
50 metrana sem Kipketer brunaði
framúr. „Við komum sjálfum okk-
ur á óvart í kvöld. Ég átti ekki von
á að sigra því þetta er í fyrsta sinn
sem ég keppi á heimsmeistara-
móti,“ sagði sigurvegarinn og
bætti því við að Kiptanui væri enn
mjög góður hlaupari. Kiptanui var
með hálfgerða hálsbólgu og sagði
að það væri ekki það besta fyrir
svona hlaup. „Barmasai hljóp mjög
vei í kvöld og ég var ekki einu sinni
öruggur um annað sætið,“ sagði
Kiptanui.
Það var gaman að fylgjast með
Kenýabúunum þremur. Tveir
þeirra voru lengstum fremstir og
Kipketer aðeins þar fyrir aftan.
A1 Asmari frá Sádi-Arabíu hélt í
við þá þar til 250 metrar voru eft-
ir, þá hreinlega skildu þeir hann
eftir með geysigóðum endaspretti
þar sem samvinna þeirra félaga
kom í ljós. Þeir lokuðu Asmari af
og komu þannig í veg fyrir að
hann næði frumkvæðinu og her-
bragð þeirra gekk upp og skilað
fullnaðarsigri. Kipketer setti síðan
í fiuggírinn síðustu 50 metrana og
kom fyrstur í mark.
Verðlaun
Þær þjóðir sem hafa fengið
flest verðiaun:
(gull, silfur og brons)
Bandaríkin...3 3 4
Kenýja.......2 2 1
Þýskaland....2 0 2
Kúba.........2 0 0
Tékkland.....2 0 0
Úkraína......1 2 1
Portúgal.....1 1 0
S-Afríka.....1 1 0
Ástralía.....1 0 1
Marokkó......1 0 1
Eþíópía......1 0 0
Frakkland....1 0 0
Mexíkó.......1 0 0
Bretland.....0 2 0
Rússland.....0 1 2
Reuter
HAILE Gebrselassie fagnar
sigri í Aþenu.
Morgunblaðið/Golli
HEIMSMEISTARINN, Tomas Dvroak, kemur inn
á beinu brautina í 1.500 m hlaupinu.
Tomas Dvorak
Fæddur: 11. maí 1972, í Dúkla Prag í fyrrum
Tékkóslóvakíu, nú Tékklandi.
Ferill: Varð Evrópumeistari í tugþraut í Helsinki
ppw'pw jg95 jjafnagj [ 3 sæti í tugþrautarkeppni
* Ólympíuleikanna í Atlanta á síðasta ári. Árangur
hans í tugþraut á heimsmeistaramótinu að þessu
sinni, 8.837 stig skipa hann í 3. sæti á heimsaf-
rekalistanum frá upphafi. Dvorak er hermaður
að atvinnu og eiginkona hans Gabriela Vanova,
er dóttir þjálfara hans.
Haile Gebrselassie
Fæddur: 18. apríl 1973, í Assela í Eþí-
ópíu.
Ferill: Heimsmethafi í 5 km hlaupi,
12.44,39 mín., heimsmethafi í 10 km
hlaupi, 26.31,32 mín. Hefur unnið 10
km hiaup á tveimur síðustu heimsmeist-
aramótum og er auk þess Ólympíumeist-
ari í 10 km hiaupi. Ætlaði einnig að
sigra í 5 km hlaupi á síðustu Ólympíu-
leikum en dró þátttöku sína til baka í
greininni vegna sára á fótum eftir 10
km hlaupið.
Óbreytt frá
Atlanta
Röð þriggja fyrstu í 10.000 m
hlaupinu á heimsmeistaramót-
inu var sú sama og á Ólympíuleikun-
um í Atlanta á síðasta ári. Heims-
methafinn í greininni Haile Gebrse-
lassie frá Eþíópíu varð öruggur sig-
urvegari iíkt og þá og kom fáum á
óvart. Hann hafði örugga forystu
síðustu 600 m hlaupsins og kom í
mark á 27.24,58 mín., 55 sekúndum
frá heimsmeti sínu. Annar varð
Kenýumaðurinn Paul Tergat á
27.25,62 og Salah Hissou, Ma-
rokkó, varð þriðji 27.28,67. Með
sigrinum varð Gebrselassie heims-
meistari í greininni í þriðja sinn í röð.
Eþíópíumaðurinn hafði hótað að
mæta ekki til leiks til þess að veija
tign sína sökum þess að hlaupa-
brautin væri of hörð og hann vildi
ekki eiga það á hættu að meiðast
líkt og á ólympíuleikunum í fyrra,
er einnig var hlaupið á harðri braut.
Vildi hann láta vökva brautina með
vatni fyrir hlaupið til þess að mýkja
hana, sú ósk hans var hunsuð og
er hann kom í mark sem sigurveg-
ari sagði hann brautina ekki hafa
verið eins slæma og búist hefði ver-
ið við. „Brautin var skárri en í Atl-
anta,“ sagði Gebrselassie.
Hlaupið var taktískt og dæmigert
fyrir úrslitahlaup á stórmóti þar sem
þeir bestu hugsá fremur um sæti
en tíma. Útfærsla heimsmeistarans
á því var ákaflega góð og bar öll
merki vandaðs undirbúnings þar
sem hinn 24 ára gamli meistari
undirstrikaði styrk sinn. Lengi vel
hljóp hann á hæla Kenýamönnunum
Dominic Kirui og Paul Koech en
fyrrverandi heimsmethafinn Hissou
tók forystuna þegar rúmir 3 km
voru eftir. Koech tók forystuna á
ný en Gebrselassie var ævinlega
rétt á eftir og tók síðan af skarið
þegar hálfur annar hringur var eft-
ir eins og fyrr greinir. Enginn þeirra
sem fylgdu honum eftir megnaði
að ógna sigri hans.
„Eg er stoltur af því að hafa
unnið þijá heimsmeistaratitla,"
sagði heimsmethafinn og bætti við
að hann teldi sig ekki þurfa að
sanna neitt á heimsmeistara-
mótum í framtíðinni, en Hissou
keppinautur hans fullvissaði
Gerbselassie um að hann myndi
fá ýmislegt til að hugsa um á
næstu vikum. „Ég ætla að reyna
við heimsmetið í 10.000 m í
Brussel 22. ágúst,“ bætti Ma-
rokkómaðurinn við. Það virtist
ekki raska ró hins brosmilda og
dagfarsprúða heimsmethafa og
heimsmeistara. „Þá geri ég bara
enn betur.“