Morgunblaðið - 10.08.1997, Síða 1
Samvinnuferðir-Landsýn
Fjöldi golfferða með haustinu
NÚ fara kylfíngar að huga að því
hvemig þeir geti lengt golftímabil-
ið í ár. Samvinnuferðir-Landsýn
eru með fjölbreyttar golfferðir í
boði fyrir kylfinga og fjölskyldur
þeirra. Farið verður til Irlands,
Spánar, Mæjorka, Portúgal,
Flórída og Tælands.
Hinn 4.-7. september verður far-
ið til írlands og dvalið í
Enniscorthy, í um tveggja tíma
akstur frá Dublin.
Á sama tíma, 4.-7. september
verður farið til Villamartin á Spáni
| þar sem fjöldi fallegra golfvalla er
steinsnar frá gististaðnum.
Hinn 30. september til 7. októ-
ber verður farið til Mallorca. Gist
verður á íbúðarhóteli í Cala d’Or
og leikið golf á völlum í nágrenn-
inu.
Hinn 30 sept.-7 okt. verður líka
farið til Albufeira í Portúgal.
Skemmtisigling
Þrjár ferðir eru í boði til Flórída
í haust. Fyrsta ferðin er í þrjár
vikur, frá 12. október til 3. nóvem-
ber, og verður dvalið á Poinciana
golfsvæðinu fyrstu vikuna, en
seinni tvær vikurnar í Bradenton
sem stendur við Mexíkóflóann.
í annarri ferðinni, dagana 20.
október til 3. nóvember, verður
leikið golf í nágrenni Bradenton og
í þeirri þriðju og síðustu, 3.-17. nóv-
ember, verður m.a. farið í skemmti-
siglingu. Fyrst verður dvalið í sex
daga við Álþjóðlega golfvöliinn í
Orlando. Síðan verður farið í sigl-
inguna og farið í land m.a á Ba-
hama eyjum. Að siglingunni lokinni
verður farið aftur til Orlando.
Golfferð Samvinnuferða/Land-
sýnar til Tælands verður í upphafi
næsta árs, 9.-31. janúar. Ferða-
skrifstofan hefur boðið uppá ferðir
til Tælands undanfarin tvö ár og
verður þessi með svipuðu sniði.
Verðið á golfferðunum er mjög
mismunandi, frá 23.500-148.600 kr.
Hámarksfjöldi í þær er 30-40
manns að undanskildum ferðunum
til Mæjorka og Portúgal.
SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1997 BLAÐ C
Vinsælar haustferðir til heimsborga í Evrópu og Bandaríkjunum
Góðar viðtökur
enda kjörin freistandi
SÍMALÍNUR hafa verið rauðglóandi hjá
ferðaskrifstofum undanfarna daga en um síð-
ustu helgi var hafist handa við að auglýsa
stuttar haustferðir til ýmissa stórborga í Evr-
ópu og Bandaríkjunum. Talsmenn ferðaskrif-
stofa segja viðbrögð við auglýsingunum hafa
verið mjög góð en mun meira sé um fyrir-
spurnir og bókanir miðað við sama tíma í fyrra.
Algengt virðist vera að starfsmenn fyrirtækja
taki höndum saman og skelli sér í skemmti- og
verslunarferðir á haustin en vinsælastar eru
helgarrispurnar, frá fimmtudegi til sunnudags.
Borgir á Bretlandi eru enn sem fyrr best
sóttu áfangastaðir haustferðalanga en þar sem
pundið hefur hækkað um 15% gagnvart krón-
unni frá því í fyrra, virðist sem aukinn fjöldi
fólks hafi hug á að íeggja leið sína til borga á
meginlandi Evrópu, m.a. til Barcelona, Am-
sterdam, Lúxemborgar og Parísar.
Verð á haustferðum er hjá flestum ferða-
skrifstofum svipað og í fyrra, í sumum tilfellum
hefur það staðið í stað en hjá.öðrum nemur
hækkunin um 5-10%.
Nýlr áfangastaðlr
Töluvert er um nýja áfangastaði en m.a.
bjóða Heimsferðir í fyrsta sinn þriggja nátta
ferðir til Parísar frá 25.000 krónum, miðað við
manninn í tvíbýli. Á sama verði og í fyrra bjóða
Heimsferðir ferðir til London. Þriggja nátta
ferð í miðri viku kostar um 25.000 kr. á mann í
tvíbýli en helgarferð er um 5.000 krónum dýr-
ari. Verðin eru með flugvallarsköttum.
Hjá Flugleiðum eru vinsælustu haustferð-
irnar enn sem fyrr til Glasgow og London en
salan hefur einnig gengið vel tíl borga á megin-
landinu. „í stað þess að fara til Bretlands,
hyggja fleiri á ferðir til meginlandsins meðal
annars til Lúxemborgar og Amsterdam,“ segir
Jóhann Gísli Jóhannsson hjá markaðsdeild
Flugleiða. Ferðir þangað kosta með flugvallar-
skatti frá um 30.000 kr. á mann, sé miðað við
tvær nætur í tvíbýli. Sams konar ferð til Glas-
gow kostar um 25.000 kr., um 33.000 kr. til
London en um 35.000 kr. til Barcelona.
„Breska pundið er hærra en í fyrra svo hót-
elgisting á mann hefur hækkað að meðaltali
um 500 krónur fyrir nóttina í Glasgow en um
800 krónur í London,“ segir Jóhann Gísli.
í haust bjóða Flugleiðir pakkaferðir til
Brussel en þriggja daga ferð þangað kostar um
40.000 krónur. Flogið er til Amsterdam og það-
an tekin lest til Brussel. Einnig kynna Flug-
leiðir í fyrsta sinn í samvinnu við bandarísk
flugfélög, vikuferðir til Las Vegas og New Or-
leans í Bandaríkjunum. Ferðin kostar með
flugvallarskatti frá 75.000 krónum á manninn í
tvíbýli.
Tilboðsferðir Flugleiða tíl fimm borga í
Bandaríkjunum; New York, Baltimore, Fort
MorgunblaðWÁmi Sæberg
ÍSLENSKIR ferðalangar leggja m.a. leið sfna til Edinborgar á haustin.
Lauderdale, Orlando og Boston, hafa notið
mikiila vinsælda en unnt hefur verið að fá flug-
ferðir frá um 25.000 krónum.
Úrval-Útsýn selur í fyrsta sinn vikuferðir til
Sevilla á Spáni á um 50.000 kr. en eins og fyrri
ár hefur Edinborg verið sett í öndvegi hjá
þeim. Tveggja nátta ferð þangað með flugvall-
arskatti kostar um 26.000 kr. fyrir manninn
en helgarferð í þrjár nætur kostar um 30.000
kr. sem er um 2.000 króna hækkun frá því í
fyrra.
Samvinnuferðir/Landsýn hafa lagt höfuðá-
herslu á að selja haustferðir til Dyflinnar og að
sögn Helga Péturssonar markaðsstjóra hafa
bókanir gengið vel en seld hafa verið á þriðja
þúsund sæti. Helgarferðin, sem er þriggja
nátta, kostar um 30.000 krónur miðað við
manninn í tvíbýli en það er um 2.000 króna
hækkun frá því í fyrra. Að auki bjóða Sam-
vinnuferðir/Landsýn ferðir til Amsterdam í
samvinnu við Flugleiðir.
Plúsferðir hefja ferðir til Newcastle í október
en þriggja nátta ferð á manninn í tvíbýli með
flugvallarsköttum kostar um 29.000 krónur.
Hjá Guðmundi Jónassyni er í boði vikuferð
til Prag 21. ágúst og kostar ferðin um 49.000
krónur miðað við manninn í tvíbýli. Sams kon-
ar ferð býðst síðan tíl Búdapest 20. september.
Verkefni í vistvænni ferðaþjónustu á vegum Iðntæknistofnunar
Ferðaþjónusta til framtíðar
2 GOTAS
„SKORTUR hefur verið á vistvæn-
um fyrirtækjum í ferðaþjónustunni
hér og þau sem til eru hafa ekki ver-
ið nógu sýnileg,“ segir Jón Ágúst
Reynisson, verkefnastjóri á fræðslu-
deild Iðntæknistofnunar, en stofnun-
in vinnur nú að vestnorrænu verk-
efni í vistvænni ferðaþjónustu.
Ferðaþjónusta til framtíðar er
heiti verkefnisins sem gengur út á að
aðstoða fyrirtæki í ferðaþjónustu á
íslandi og í Færeyjum við að breyta
starfsháttum þannig að tekið sé
meira tillit til umhverfis og menning-
ar. Að sögn Jóns Ágústs leita margir
útíendingar eftir vistvænum ferða-
þjónustufyrirtækjum og ljóst að
verkefnið gæti stuðlað að betri
markaðssetningu fyrirtækjanna.
Þeir aðilar sem standa að verkefn-
inu eru Iðntæknistofnun og Tækni-
skólinn í Þórshöfn í Færeyjum,
skrifstofa Ferðamálaráðs á Akur-
eyri, atvinnuþróunarfélög og ferða-
málafulltrúar á íslandi.
25 íslensk fyrirtæki taka þátt í
verkefninu, og komust færri að en
vildu. Um er að ræða fyrirtæki úr
ýmsum greinum ferðaþjónustunnar,
s.s. hestaleigur, fyrirtæki sem bjóða
siglingar og skoðunarferðir, jökla-
ferðir, hótel og gistiheimili.
Mlklll sparnaður
Að sögn Jóns Ágústs hefur reynsl-
an erlendis sýnt fram á að mikill
spamaður náist í rekstri fyrirtækja
sem hafi vistvæna ferðaþjónustu að
leiðarljósi og þá sérstaklega í hótel-
geiranum. „Fyrirtækin minnkuðu
umbúða-, vatns- og þvottaefnanotk-
un og gestir voru vinsamlega beðnir
að slökkva ljósin á eftir sér.
Við ætlum að taka saman verkefn-
isreglur fyrir fyrirtækin til að fara
eftir, svo þau geti unnið að því að
verða umhverfisvæn í starísemi
sinni. Við öflum gagna víða að, m.a
úr gildandi umhverfisstöðlum og
eins frá samtökum erlendis sem hafa
útbúið ýmsar leiðbeiningar sem við
nýtum okkur.“ Flest fyrirtækin sem
taka þátt í verkefninu eru af lands-
byggðinni. „Það lendir því á atvinnu-
og ferðamálaráðgjöfum þar að miðla
upplýsingum til fyrirtækjanna."
Jón Ágúst segir framtíðarmark-
miðið vera að ferðaþjónustan verði
öflug og sjálfbær atvinnugrein sem
taki tillit til viðkvæmrar náttúru
landsins og hvetji viðskiptavini til
ábyrgar afstöðu gagnvart auðlindum
þess.
Höfum opnað skrifstofuna 2 Gotas í Las Mimosas, á Spáni.
Eftirtalin þjónusta er f boði:
► Útleiga á húsum til skemmri eða lengri dvalar
► Viðhald húsa
► Eftirlit
► Ræstingar
► Upplýsingamiðlun
► Ráðgjöf
► Ýmsar útréttingar
► Ljósritunar- og faxþjónusta
Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 10-13 og 17-20.
Vinsamlega hafíð samband og leitið nánari upplýsinga.
Ágústa Pálsdóttir og Inga Hallgrímsdóttir
Síma- og faxnr.: 00 34 - 6 532 8711