Morgunblaðið - 10.08.1997, Qupperneq 2
2 C SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/hke
ÞÓRHILDUR Ingadóttir er starfsmaður verslunarminjasafnsins og
listasmiðjunnar Gallerí Bardúsa á Hvammstanga. Margt forvitnilegra
hluta er á verslunarminjasafninu.
Fjársjóður sem
fólki yfirsést
Vestur-HúnavatnssýslQ er með gróðursælustu svæðum
landsins og þar er jafnframt stærsta, ósnerta
mýrlendissvæði Evrópu. Helga Kristín Einarsdóttir
keyrði Vatnsneshringinn, datt af hestbaki og hlustaði á
húnvetnskar drauga-, morð-, og tröllasögur.
ALLTOF margir ferða-
menn stoppa bara í
sjoppum og bruna eftir
Norðurlandsvegi án þess
að gefa umhverfmu
gaum. Sannleikurinn er hins vegar
sá að Vestur-Húnavatnssýsla er
morandi af skemmtilegu fólki og
sögulegum og landfræðilegum ger-
semum, sem vert er að skoða.
Vestur-Húnavatnssýsla er vest-
asti hluti Norðurlands, um 2.580
km að flatarmáli, og afmarkast af
Hrútafírði og Hrútafjarðará að
vestan, Stórasandi og Gljúfurá að
austan og vatnaskilum Arnarvatns-
heiði og TVídægru að sunnan.
Héraðið liggur inn af Húnaflóa,
en inn af honum ganga þrír firðir,
það er Hrútafjörður vestast, Mið-
fjörður, og Húnafjörður austast.
Helstu þéttbýlisstaðir eru
Hvammstangi og Laugabakki en
einnig hafa myndast byggðar-
kjarnar við ýmsa þjónustustaði í
dreifbýlinu, svo sem Staðarskála,
þar sem er nýtt og þægilegt gisti-
hús, Reykjaskóla, Þorfinnsstaði og
Víðigerði. Áhugaverðar akst-
ursleiðir eru til dæmis Vatnsnes-
hringurinn, um 100 kílómetrar,
Miðfjarðarhringurinn, um 34 kíló-
metrar, og Víðidalshringurinn, sem
er um 10 kílómetrar.
Húnaþingi var skipt í Vestur- og
Austur-Húnavatnssýslu árið 1907
en telst þó eitt lögsagnarumdæmi.
Vesturhlutinn er eitt gróður-
sælasta svæði landsins og þar eru
grösugar engjar og vel gróin heiða-
lönd. Aðalbúskapur í sýslunni er
sauðfjár- og hrossarækt og því
ekki mikið um skóglendi, þótt
skógrækt á afmörkuðum svæðum
fari vaxandi. Ströndin er láglend
fyrir utan Vatnsnesið og hæstu
fjöll eru Þrælsfell, 908 metrar, og
Krossdalskúla, sem er 980 metrar.
Landið er mjög mótað af jöklum og
jökulruðningum ísaldar.
I sýslunni er einnig mikið vatna-
svæði og óvíða finnst eins mikið af
fengsælum veiðivötnum og ám.
Óteljandi vötn Amarvatnsheiði til-
heyra sýslunni og þá er fjöldi
stöðuvatna á heiðum og hálsum í
byggð. Helstu laxveiðiár eru
Hrútafjarðará, Síká, Miðfjarðará,
Fitjá og Víðidalsá og jarðhiti er
einnig mikill við hveraborg á Tví-
dægru, Reykjaskóla í Hrútafirði,
Reyki og Laugabakka í Miðfirði og
Skarð á Vatnsnesi.
Greiðasamir, gestrisnir, sjálf-
bjarga og þjófóttir
Húnvetningar voru álitnir bæði
greiðasamir og gestrisnir í fyrnd-
inni en að sama skapi þjófóttir og
ekki mjög hallir undir yfirvald.
„Aljiekktur er húnvetnski sauða-
þjófurinn," segir i samantekt Sig-
ríðar Gróu Þórarinsdóttur, „og all-
víða var stundað heimabrugg á
bannárunum. » Einhverju sinni
gagnrýndi dómsmálaráðuneytið
Boga Brynjólfsson sýslumann fyrir
linkind við bruggara og vildi að
þeir yrðu allir sendir suður í tukt-
húsið. „Getið þið tekið við öllum
Húnvetningum?" spurði sýslumað-
ur þá.“
Sigríður heldur áfram og segir
að skýringin á þessari „glæpa-
FERÐALÖG
HINDISVIK á norðurtá V
Grettir sterki á
JÓN Haukdal Krisfjánsson safnvörður við há-
karlaskipið Ófeig í athyglisverðu byggðasafni
á Reykjum. Skipið er hið eina sinnar tegund-
ar sem varðveist hefur á landinu.
VÖTN og ár á Arnarvatnsheiði eru full af silungi.
SKOÐANIR manna á
Gretti sterka Ás-
mundssyni eru misjafn-
ar og til eru þeir sem
telja hann með verstu
Qöldamorðingjum Is-
landssögunnar. Einnig
er talið hugsanlegt að
hann hafi þjáðst af
geðklofa.
Bærinn Bjarg í Mið-
firði er tengdur Grett-
issögu órjúfanlegum
böndum því þar fædd-
ist Grettir og ólst upp.
Ofan túns á Bjargi er
Grettistak, stór steinn
sem hvflir á klöpp en
íjöldi örnefna í Húna-
þingi og Skagafirði
minnir á tilvist hans.
Fleiri dæmi nefnir Karl
Sigurgeirsson, sem líka
fæddist á Bjargi, svo
sem Grettishaf, stóran
stein á Ilrútafjarðar-
hálsi, Grettistanga við
Arnarvatn, Grettis-
höfða, skammt norðan
tangans, Grettishæð á
Stórasandi, Grettisbæli
á suðurenda Drangeyj-
ar, Grettisbrunn, vatns-
ból í bergi Drangeyjar
og Grettislaug að
Reykjum á Reykja-
strönd.
Sakamenn lögðust út
á Arnarvatnsheiði á
tímum Grettis og sjálf-
ur dvaldist Grettir þar
í mörg ár, eins og sag-
an segir. Ljóst er að
Grettir hefur að
minnsta kosti talist
ódæll mjög og um síðir
náðu óvildarmenn til
hans. Segir sagan að
höfuð Grettis hafi ver-
ið höggvið af og það
MINNISVARÐI um Grei
var afhjúpaður á Bergi
fært móður hans Ás-
dfsi, sem harmi slegin
á að hafa grafíð það í
túninu heima á Bjargi.
Þúfa sú er friðlýst og
kallast Grettisþúfa.
QrettishátfA
Skammt frá Bjargi
er Bergið þar sem
reistur var ferstrendur
stuðlabergsdrangur til
minnis um Ásdísi.
Minnisvarðinn var af-
hjúpaður á þjóðhátíð
1974 og á hlið hans eru
lágmyndir eftir Hall-