Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 1

Morgunblaðið - 15.08.1997, Page 1
m 1997 John Barnes: Nægilega góðurtil að spila með Newcastle JOHN Bames, leikmaður Liv- erpool, sem gerði tveggja ára samning við Newcastle á mið- vikudag segist vera nægilega góður til að leika í hvaða liði ensku úrvalsdeildarinnar sem er. „Ég þarf ekki að sanna það fyr- ir sjálfum mér að ég geti spilað með hvaða liði sem er í úrvals- deildinni, en kannski fyrir öðr- um. Af þeirri ástæðu valdi ég Newcastle sem er einnig í Evr- ópukeppninni," sagði Barnes. Harry Redknapp, knatt- spyrnustjóri West Ham, var hinn versti er fréttist að Barnes hefði valið Newcastle og sagði að hann hefði verið svikinn enda nánast frágengið að Barnes kæmi á Upton Park. „Mér þykir miður að svona fór og bið Redknapp afsökunar og vona að hann erfi þetta ekki við mig. Ég gerði það sem mér þótti skynsamlegast í stöðunni fyrir mig,“ sagði Barnes. Barnes er nú aftur undir stjórn Kennys Dalglish sem keypti hann á sínum tíma frá Watford á 900 þúsund pund fyrir tíu árum. Barnes, sem hef- ur leikið 73 landsleiki fyrir Eng- land, gæti spilað fyrsta leik sinn með Newcastle á móti Aston Villa 23. ágúst og síðan á móti gamla félaginu, Liverpool, á Anfield 31. ágúst. Celtic hefur áhuga á Golz SKOSKA liðið Celtic, sem er að leita að markverði, hefur nú mestan áhuga á Þjóðverjanum Richard Golz, sem leikur með Hamburger. Golz, sem hefur verið hjá Ham- burgerliðinu síðan 1985, hefur misst sæti sitt til Hans-Jörg Butt, sem var keyptur til liðsins í sumar. Celtic verður að ganga frá samn- ingi við liðið í dag, sem er síðasti dagurinn fyrir lið að kaupa leik- menn til að þeir verði löglegir í Evrópukeppni. Celtic er tilbúið að borga 205 millj. ísl. kr. fyrir Golz, sem er samningsbundinn Hamburg- er til ársins 2000. FOSTUDAGUR 15. ÁGÚST FRJALSIÞROTTIR BLAÐ Morgunblaðið/Golli GUÐRÚIM Arnardóttir hefur verið á ferð of flugi að undanförnu - keppt í Aþenu, Ziirich og um helgina keppir hún í Monte Carlo í Mónakó. DANSKA landsliðið í handknattleik kemur til íslands í byijun september og leikur tvo vináttu- landsleiki í Laugardalshöllinni - laugardaginn 6. september og síðan á sunnudegi. Leikirnir gegn Dönum eru liður í 40 ára afmæli Hand- knattleikssambands íslands. „Ég sé ekki annað en flestir leikmenn okkar sem leika úti geti komið til að leika gegn Dönum. Það er stefnt á að landsliðshópurinn sem náði flmmta sætinu á HM í Kumamoto taki hér á móti Dönum, en leikirnir verða fyrstu leikir okkar eftir HM,“ sagði Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálfari. Þorbjörn sagði að leikirnir gegnti Dönum væru liður í und- irbúningi landsliðsins fyrir sex leiki í undankeppni Evr- ópukeppni landsliða, en lands- liðið er í riðli með Sviss, Lithá- en og Júgóslavíu. Landsliðið leikur fyrsta leikinn heima 24. september, í Sviss 28. septem- ber. Leikið verður úti gegn Litháen 29. október og heima 2. nóvember. Síðustu leikirnir verða gegn Júgóslaviu - fyrst heima 26. nóvember og síðan úti 29. eða 30. nóvember. Wels varð fyrsti Evrópu- meistarinn ÞJÓÐVERJINN Andreas Wels varð fyrsti Evrópu- meistarinn er hann sigraði í dýfíngum af stökkbretti á Evrópumótinu í Sevilla í gær. Annar Þjóðverji, Holger Schlepps, varð annar eftir að hafa átt frábært stökk í sið- ustu umferð og fór þá upp fyrir Spánverjann Rafael AI- varez, sem varð að gera sér bronsverðlaunin að góðu. Wels, sem var fjórði á síðasta Evrópumóti í Vín fyrir tveim- ur árum, hlaut samtals 362.10 stig úr sex stökkum sínum í úrslitunum í gær. Schlepps hlaut 357,12 stig og Alvarez 355,56 stig. Guðrún Arnardóttir setti glæsilegt íslandsmet í 400 m grindahlaupi íZurich Aldrei upplifað aðra eins stemmningu Guðrún Arnardóttir úr Ármanni bætti eigið íslandsmet í 400 metra grindahlaupi á gullamóti Al- þjóða fijálsíþróttasambandsins í Zúrich í Sviss í fyrrakvöld eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær. Hún hljóp á 54,79 sekúndum og bætti eigið met um 2/100 úr sek- úndu sem hún setti á Ólympíuleik- unum í Atlanta í fyrra. Hún keppir aftur annað kvöld, á stigamótinu í Monte Carlo og ætlar að freista þess að bæta metið enn frekar. „Ég hef aldrei upplifað aðra eins stemmningu og var á vellinum í Zúrich," sagði Guðrún við Morgun- blaðið. „Áhorfendur eru alveg ofan í manni og hávaðinn því gríðarleg- ur. Ég fann mig vel í hlaupinu en veit að ég get gert enn betur. Ég átti aiveg eins von á því að bæta íslandsmetið því æfingarnar í sumar hafa miðast við að vera á toppnum á þessum tíma. Reyndar átti ég að toppa á HM í Aþenu en er eitthvað aðeins á eftir áætlun.“ Guðrún keppir í Monte Carlo ann- að kvöld og verður því ekki með í bikarkeppni FRÍ um helgina. „Það hefði verið gaman að koma heim í bikarkeppnina, en 400 metra grinda- hlaupið er mín aðalgrein og ég verð að einbeita mér að henni. Það var því ekki hægt að sleppa því að keppa í Monte Carlo fyrst mér tókst að tryggja mér þátttökurétt þar. Það verða sömu keppendur í Monte Carlo og voru i Zúrich og því spennandi að sjá hvernig mér gengur þar. Ég mun auðvitað reyna að bæta metið enn frekar," sagði hún. Peningaverðlaun voru veitt fyrir hvert sæti í Zúrich, sigurvegarinn í hverri grein fékk 10 þúsund dollara eða um 730 þúsund krónur. Guðrún sagði að fimmta sætið hefði gefið sér nokkur hundruð dollara, en vildi ekki fara nánar út í það. Þrír hlaup- arar settu heimsmet á mótinu og fékk hver þeirra 50 þúsund dollara (3,6 milljónir króna) í bónus og auk þess eitt kíló af gulli. Tveir afmæl- isleikir gegn Dönum í Reykjavík KBATTSPYRIMA: FYRSTISIGUR ÍBV í EVRÓPUKEPPIMI / B1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.