Morgunblaðið - 22.08.1997, Síða 1
■VEGAGERÐIN Á MIÐILSFUNDI/2 ■SÚREFNI TIL SÖLU í HANDHÆGUM
UMBÚÐUM/2 BHÚSIN SEM STINGA í AUGU/4 ■FYRIRSÆTA í FÝLUKASTI
Á MYND/4 ■ GARÐAHÖNNUN/6 ■ TRÖLLATRÚ Á TÓMÖTUM/7 ■
KOLSVARTIR hvarmar. Ragnheiður Boga- Morgunbiaðið/Amaidur
döttir hjá módelskrifstofunni Eskimó. HVASSAR brúnir Lovísu Maríu Emilsdóttur.
AUGNARÁÐ úr kínversku
leik- og óperuhúsi.
Haustaugun
tala ófegruð og umbúðalaust
ÖFGAKENND form og dökkir litir
eru aðal hausttískunnar kringum
augun. Pönkið er komið aftur, að
þessu sinni í úthverfin og með spari-
legri blæ. Skuggaformin eru þrí-
hyrnd og jakkafötin úr tvíd.
Förðunartískan hefur verið með
villtara móti undanfarin misseri,
fjörleg, glansandi, glysgjörn og gyllt.
Nanna Georgsdótth, förðunarfræð-
ingur hjá Face Stockholm, segir að
gullblærinn verði áfram við lýði, sem
og svart og hvítt. Nýjungin er rautt.
Ef sjónum er beint til útlanda með
fulltingi Vogue vhðast förðunar-
fræðingar helstu tískuhúsanna ótrú-
lega samstiga. Umgjörð haustfata
DKNY minnti til dæmis einna helst
á sviðsmynd úr „Blade Runner“ Ridl-
eys Seott og aðrh stigu pönk-ölduna
líka af móði.
„Fólk tengh- pönkið við svart,“
segh förðunar-
meistarinn Linda
Cantello, sem
breiddi bláa og
græna augn-
skuggatísku út
aftur vestan við
járntjald. „Svart
er svo takmarkað. Rauð þverrönd á
andlitið er fersk og ófyrhsjáanleg,“
segh hún. Andstæður eru lykilorðið
og andlitið að öðru leyti farðað með
Ijósum litum eða glossi. Helst til full-
tingis eru blýantur eða grannur
pensill í vatnslit. Pönkið er líka fyrir
fullorðna og formin eru fíngerð,
breið, þétt, gisin, marghymd, bogin
og bein. Sumh þræða hvarminn að
neðanverðu svo
línan danglar við
hárlínuna, líkt og
öryggisnæla. Síð-
pönkið, spari-
pönkið, kollvarp-
ar en fegrar ekki.
Greinarhöfund-
ur Vogue tekur nokkuð djúpt í árinni
og fullyrðir að komið sé að tímamót-
um í förðun.
„Svartur augnfarði einkennh okk-
ar daga á sama hátt og rauðar varh
sjötta áratuginn, gemaugnhár þann
sjöunda og brúnmattar varh hinn
áttunda," segh Vogue.
Linda Cantello segh einfaldlega
tímabært að leika sér með rúmmáls-
fleti í andlitinu. „Við prófum okkur
áfram í litum og áferð; möttu, glans-
andi, málmkenndu, en sjaldan með
staðsetningu og form. Petta eru nýj-
ar veiðilendur," segir hún.
Sem sagt snyrtilegt er gamaldags,
hörkulegt heillandi. Því til sönnunar
brugðu Nanna hjá Faee Stockholm
og Sigurbjörn hjá Hári og fórðun á
leik að beiðni Daglegs lífs.
Og eins og stúlka nokkur orðaði
það: „Mér finnst ég líta best út að
morgni efth partý, með úfið hár og
veðraða málningu."
NYSTARLEG flatarmálun.