Morgunblaðið - 27.08.1997, Page 9

Morgunblaðið - 27.08.1997, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997 B 9 Islensk fyrirtæki náðu góðum árangri á AQUA NOR 9 7-fiskeldissýningnnni í Þrándheimi Góður árangfur á Aqua Nor sýningunni Alþjóðlega fískeldissýningin Aqua Nor var haldin í Þrándheimi í Noregi nú —--------—■ —— —--------------------- í ágúst. Kjartan Olafsson nemandi í sjávarútvegsfræði við háskólann í Tromso, Noregi, sótti sýninguna og rekur hér það helsta sem fyrir augu bar. Islensk fyrirtæki á sýningunni voru fá en náðu góðum árangri. ÍSLENSK fyrirtæki náðu góðum árangri á alþjóðlegu fiskeldissýn- ingunni Aqua Nor, sem haldin var í ágústmánuði í Þrándheimi í Nor- egi. Marel var áberandi á sýning- unni, en fyrirtækið kynnti vinnslu- línu fyrir lax og nýja skurðarvél á sýningunni auk fleiri tækja. Geng- ið var frá stórum samningi á sýn- ingunni og að henni lokinni var allt sem sýnt var á básnum selt. Vaki fiskeldiskerfi náði einnig góð- um árangri og efnablandan „Nat- ural White“, sem íslendingurinn Jóhannes Arason kynnti ásamt erlendum umboðsmönnum sínum, vakti einnig athygli. Aqua Nor-fiskeldissýningin, Aqua Nor 97, var haldin í Nidaro- höllinni í Þrándheimi dagana 13. til 16. ágúst. Sýningin var tíunda alþjóðlega fiskeldissýningin sem samtökin Nor-Fishing hafa staðið fyrir og sú stærsta sinnar tegund- ar í heiminum. Norski sjávarút- vegsráðherrann, Karl Eirik Schjott-Pedersen, setti ráðstefn- una og í ræðu sinni spáði hann því að fiskeldi yrði ráðandi þáttur í norsku efnahagslífi eftir að olía og óendurnýjanlegar auðlindir verða uppurnar. Mikil aukning í Noregi í Noregi hefur fiskeldi aukist stórlega á síðustu áratugum. Mest- ur hefur vöxturinn orðið í laxeldi. Um 1960 samanstóð fiskeldið aðal- lega af litlum fjölskyldufyrirtækj- um vid norðurströnd Noregs sem fetuðu sig áfram með misjöfnum árangri. í dag hafa hinsvegar myndast stórar samsteypur eins og Norsk Hydro og Stoltz Seafarm sem eru mjög afgerandi í norsku fiskeldi. Árið 1986 var verðmæti útflutn- ings á laxaafurðum 16 milljarðar króna en tíu árum síðar var verð- mætið 60 milljarðar eða um fjór- föld aukning í verðmæti. Magnið hefur á sama tíma aukist úr 45.000 tonnum í 300.000 tonn. Til þess að gera sér betur grein fyrir hve gríðarlegt magn hér er um að ræða má geta þess að 300.000 tonn af laxi er helmingi meira en allur íslenski togaraflot- inn veiðir af þorski í íslenskri lög- sögu. Það mætti því geta sér til um hversu afdrifaríkar afleiðingar það hefði fyrir litla fiskveiðiþjóð ef mönnum tækist að finna lykilinn að hagkvæmu þorskeldi. Gífurleg margfeldisáhrif Eins og gefur að skilja eru margfeldiáhrif fiskeldisins gífurleg og sást það vel á sýningunni á því hversu breiður hópur sýnenda var. Fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum kynntu framleiðslu sína: rör, dælur, vigtar, vélar, lyftara, fóður, merkimiða, netagerð, fatn- að, bækur og allt sem nöfnum tjá- ir að nefna - allt sérstaklega snið- ið að þörfum fiskeldisins. Mikla athygli vakti ný sjálfvirk aðgerðar- vél frá þýska fyrirtækinu Baader sem getur slægt og sogið innan úr allt að fimmtán löxum á mínútu með svokölluðum „prinsessu- skurði“. Vélin er ekki væntanleg á markaðinn fyrr en næsta haust en strax fimmtán mínútum eftir að sýningin opnaði var fyrsta vélin seld. Verðið er áætlað um 12 millj- ónir króna en framleiðslugeta fyr- irtækisins er 10 vélar á ári. Eldislaxinn þarf minna að éta en sá villti Fóðurfyrirtækið EWOS kynnti rannsóknir á fóðri sem rann- sóknarstofa þess hafði unnið. Nið- urstöður rannsókna benda til að tekist hafi að framleiða urriða með fóðurfaktor 0,42 sem þýðir að að- eins þurfi 0,42 kg af fóðri til að framleiða 1 kg af fiski. Til saman- burðar var tekið sem dæmi að í upphafi eldis í Noregi þurfti 3 kg af fóðri fyrir 1 kg af físki. Sama fyrirtæki lagði fram niðurstöður rannsókna þar sem eldislaxinn er sagður mun um- hverfisvænni en sá villti þar sem eldislax þarf aðeins 2 kg af nátt- úrulegri fæðu en sá villti þarf 10 kg til að vaxa um eitt kg. Þökk sé samspili bætts fóðurs og erfða- bóta. Marel vekur athygll Á stórum og myndarlegum bás miðsvæðis í höllinni hitti blaðamað- ur fyrir þá Geir A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóra Marel, og Kristján Davíðsson, sölustjóra í Noregi. Marel kynnti framleiðslu sína með nýtt flæðilínukerfi fyrir laxavinnslu og skurðarvél í broddi fylkingar. Flæðilínukerfið var ný- verið sett upp í einu af stærri laxa- vinnslum Noregs og hefur reynst vel. Hinsvegar var skurðarvélin kynnt í fyrsta sinn og getur hún þverskorið heilan fisk auk sneiða með fastri vigt. Vélin vakti mikla athygli og höfðu starfsmenn í nógu að snúast við að svara spurningum og útskýra vinnslu vélarinnar. Noregur stœrstl markaðurlnn Noregur er nú orðinn stærsti markaður Marel en þar á eftir fylgja ísland, Bandaríkin og Kanada. Aðspurður um hversu mikla þýðingu svona sýning hefði fyrir fyrirtækið sagði Geir að í seinni tíð væru það ekki stórir land- vinningar sem fyrirtækið vænti heldur væri veigamikið atriði að hitta viðskiptaaðila og treysta böndin. Það fór þó svo að Marel seldi sérstaklega vel og sagði Kristján að ekkert hafi komið aftur heim nema timbrið í básnum. Lífmassamælar frá Vaka Annað íslenskt fyrirtæki fann blaðamaður í D-álmu hallarinnar. Þar voru komnir þeir Hermann Kristjánsson, framkvæmdastjóri Vaka fiskeldiskerfa, og Benedikt Hálfdánarson, markaðsstjóri. Aðalframleiðsla fyrirtækisins eru lífmassamælar og teljarar sem Hermann þróaði í framhaldi af lokaverkefni sínu í rafmagnsverk- fræði. Teljararnir og lífmassamæl- arnir gera fiskframleiðendum auð- veldara um vik að framkvæma nákvæmt eftirlit og fylgjast náið með gæðum fisksins. Vaki fiskeldiskerfi hefur stækk- að mjög ört á undanförnum árum og um þessar mundir er verið að stofna dótturfyrirtæki í Bergen. Fyrirtækið hefur selt framleiðslu sína víða um heim en helstu mark- aðir eru Noregur, Skotland, írland, Chile, Tasmanía og Miðjarðarhafs- löndin. Fyrr á árinu vann Vaki fisk- eldiskerfi til verðlauna í hönnun- arsamkeppni í París. Geymsluþolið aukið Norske Saltkompagni kynnti Natural White-kryddblönduna í umboði fyrir íslendinginn Jóhann- es Arason. En kryddblandan eyk- ur geymsluþol fisks og hægir á bakteríuvexti. Sé hún notuð við forvinnu á reyktum laxi eykst geymsluþol um 1-2 vikur í kæli. Blandan hefur hlotið samþykki norska matvælaeftirlitsins og ný- lega var birt niðurstaða rannsókn- ar sem staðfestir ágæti blöndunn- ar. Jóhannes sagði að Natural White væri unnið úr blöðum rós- marínplöntunnar og blandað í létta saltlausn. Hann var ánægður með viðtökurnar og sagði kynninguna ganga vel. Með kyrkislöngu á básnum Margskonar uppákomur voru á ráðstefnunni og kynningar af ýmsu tagi. Havbruksstasjonen norska bauð gestum upp á ígulkerahrogn og kynnti niðurstöður þriggja ára skosks samvinnuverkefnis. Þar kom í ljós að ígulker vaxa mun betur af laxafóðri en þeirra nátt- úrulegu fæðu, brúnþörungum. Fyrirtæki eitt sem selur vatns- slöngur og þessháttar búnað brá á það ráð að stilla upp stærðarinnar lifandi Tiger Python-kyrkislöngu til að fanga athygli gestanna og lukkaðist það vel. Það lá þó í loft- inu að stærð bása og auglýsinga- skilta væru ekki það sem mestu máli skipti heldur lægi leyndarmál- ið í því að skála við rétta menn á réttum stöðum að kveldi. Talsverðir mögulelkar Það þarf ekki mikinn spámann til þess að sjá fyrir vöxt í fiskeldi á næstu árum og næsta víst að þær þjóðir sem þegar hafa tileinkað sér þessa skemmtilegu atvinnugrein og menntað þegna sína innan hennar verða án efa leiðandi í framtíðinni. Því miður hefur þróunin hér á landi orðið sú að fiskeldi er allt að því blótsyrði og neikvætt viðhorf manna hefur rýrt tiltrú almennings á greininni. Þó gæti maður ætlað að möguleikar innan fískeldis í framtíðinni væru talsverðir hér á landi eftir því sem tækni í endumýt- ingu vatns fleygir fram. Margróm- aður jarðhiti ætti svo enn að auka á fjölda þeirra tegunda sem til greina koma. Það er annars merki- legt hvemig sumum þjóðum tekst að gera allt úr engu meðan aðrar gera allt að engu. LOÐNUBA TAR NYR PETUR JÓNSSOIM RE ,*# • SMÍÐI á nýjum Pétri Jóns- syni RE miðar vel og er áætl- að að skipið verði aflient 31. október nk. í Noregi, að sögn Péturs Stefánssonar útgerð- armanns. Skipið er því vænt- anlegt til íslands fyrstu vik- una í nóvenber. Skipið er í smíðum hjá skipasmíðastöð- inni Aukra Industrier A/S í Noregi en gamli Pétur Jóns- son RE, sem nú heitir Húsvík- ingur ÞH, var einnig smíð- aður þar árið 1994. Skipið er 63,40 metrar á lengd og 13 metra breitt. Á efri myndinni er skipið í skipasmíðinni í Aukra í Noregi og á þeirri neðri er brúin á frumstigi smíðinnar. Skoðunarstofurnar fá faggildingu Hagsmunaaðilar mega ekki vera beinir eigendur HAGSMUNA- AÐILAR í sjáv- arútvegi mega ekki vera beinir eignaraðilar skoðunarstofa, samkvæmt reglugerð sjávarútvegsráðuneytisins um starfsemi faggiltra óháðra skoðunarstofa í sjávarútvegi, en með henni er svarað breyttum kröfum um eftirlit í helstu viðskiptalöndum okkar. Sett eru fagleg skilyrði fyrir starfsemi skoðunarstofa, sem annast skoð- un á aðstöðu, hreinlæti og innra eftirliti framleiðenda sjávarafurða. Meðal annarra nýmæla eru að skoðunarstofur í sjávarútvegi verða framvegis að hafa hlotið faggildingu í samræmi við íslensk- an staðal, ÍST EN 45004. Skilið er á milli ráðgjafar og eftirlits. Þannig má skoðunarstofa ekki veita framleiðenda ráðgjöf eða að- stoð við markaðssetningu. Skilyrð- ið er sett til að koma í veg fyrir að niðurstöður skoðana sé ve- fengdar. Fiskistofa veitir skoðunarstofum starfsleyfi að uppfylltum skilyrð- um, sem fram koma í reglugerð- inni. Skoðunarstofum er gert að sanna hæfni sína með því að hafa faggildingu í samræmi við ÍST EN 45004. Reglugerðin tekur gildi þann 1. janúar 1998. Skoðunar- stofur geta þó fengið starfsleyfi hjá Fiskistofu í allt að sex mánuði *- án þess að hafa hlotið faggildingu uppfylli þær önnur skilyrði reglu- gerðarinnar og hafi sótt um fag- gildingu hjá Löggildingarstofu. LOÐNUBA TAR Nafn Staarö Afll Sjéf. Löndunarat. Nafn Staaré Afli SJÓf. Löndunarat. KAP II VE 444 402 756 1 Vestmannaeyjar ÞORSTEINN EA 810 794 1045 1 Neskaupstaöur KAP VE 4 714 1102 1 Vestmannaeyjar HÓLMABORG SU 11 1181 1235 1 Eskifjöröur FAXI R E 241 331 577 1 Reykjavík BERGUR VE 44 484 1263 2 Fóakniösflörður HÁKÖN ÞH 250 821 843 1 Reykjavik HÖFRUNGUR AK 91 445 1183 2 Akranes ' "VÍKÍNGUR ÁK IÖÖ 950 1060 ..... ^ Akranes CITCf CfCITD/ITAC > HÁBERG GK 299 366 644 1 Bolungarvík & mi JÓN SIGURÐSSON GK 62 OAGFARI GK 70 1013 299 673 116 1 J Bolungarvik Siglufjöröur Nafn " Staaró I Afll •jóf. Lóndunarst. ODDEYRIN EA 210 335 372 1 Siglufjöröur GRUNDFIRÐINGUR SH 12 103. 10$ T 6 Grundarfjöröur SIGURÐUR VE 16 914 1019 1 Siglufjöröur GRETTIR SH 104 148 48 4 Stykkishólmur ÍSLEIFUR VE 63 513 317 1 Siglufjöröur ÁRSÆLL SH $8 101 41 4 Stykkishólmur ÖRN KE 13 496 1106 1 Siglufjöröur ÁRNFIRÐÍNGUR BA 21 12 12 4 Bíldudalur ÞÓRSHAMAR GK 75 326 134 1 ' Ólafsfjöröur SIGURB. ÞORSTEINS BA 165 35 7 4 Bíidudalur SUNNUBERG NS 199 385 652 1 Vopnafjöröur ÁUÐBJÖRG HU 6^ 23 12 5 Skagaströnd BEITIR NK 123 ”756’ 1050 1 Neskaupstaöur I KRÍSTINN FRfÐRiKSSÖN $H i 104 57 4 Skagaströnd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.