Morgunblaðið - 27.08.1997, Blaðsíða 10
10 B MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MARKAÐIR
Fiskverð heima
Faxamarkaður
Fiskmarkaður
Hafnarfjarðar
Fiskmarkaður
Suðurnesja
Hh
IðTOM 32.v; 33.vjlÁvl
Karfi
Krikg
— 80
Alls fóru 38,3 tonn af þorski um fiskmarkaðina þrjá hér syðra
í síðustu viku. Um Fiskmarkað Hafnarfjarðar fóru 12,0 tonn á
65,92 kr./kg. Um Faxamarkað fóru 9,6 tonn á 83,58 kr./kg
og um Fiskmarkað Suðurnesja fóru 16,7 tonn á 110,69 kr./kg.
Af karfa voru seld 70,9 tonn. í Hafnarfirði á 66,67 kr/kg (0,61),
á Faxamarkaði á 69,72 kr. (3,81) og á Fiskm. Suðurnesja á
48,30 kr./kg (66,51). Af ufsa voru seld 65,2 tonn. í Hafnarfirði
á 39,93 kr. (29,51), á 63,75 kr. (10,41) á Faxam. og á 52,78
kr./kg (25,31) á Suðurnesjum. Af ýsu voru seld 33,2 tonn á
mörkuðunum þremur hér syðra og meðalverðið 99,57 kr./kg.
Kc/kg
60
30.v| 31.VÍ 32.VI 33.v| 34.v|
Fiskverð ytra
Þorskur «-------» Karfi mmmamm Ufsi
Ekki bárust upplýsingar um sölur í Þýskalandi.
Eingöngu var seldur
fiskur úr gámum í
Bretlandi í síðustu
viku, samtals 324,0
tonn á 119,07 kr./kg.
Þar af voru seld
88,8 tonn af þorski
á 135,07 kr./kg.
Af karfa voru seld
9,3tonn á 115,18
kr./kg, 20,4 tonn af
kola á 192,10 kr./kg,
1,0 tonn af ufsa á
54,32 kr./kg og
160,7 tonn af ýsu
á 91,34 kr./kg.
Fiskeldi skilaði fimmtungi
heildarfiskafla árið 1995
Lúðueldið ofarlega á
baugi um þessar mundir
HLUTUR fiskeldis í
heimsafla hefur aukist
gríðarlega á síðustu
árum. Arið 1995 var
heildarafli úr heims-
höfunum 92 milljónir tonna og sama ár gaf fiskeldið af sér um 21 millj-
ón tonna eða um 20%. Sama hlutfall var 13,5% árið 1994. Fiskeldið er
sá matvælaiðnaður sem mestur vöxtur er í um þessar mundir og ekk-
ert bendir til annars en að hlutfall eldis aukist á komandi árum sérlega
ef spár manna um 100 milljón tonna hámarksafla úr heimshöfunum
ganga eftir. í dag er fiskeldi mest í Asíu, 87%, en Evrópa framleiðir
næst mest eða um 1,4 milljón tonn. Fiskeldissýningin Aqua Nor var
haldin í Þrándheimi í Noregi nú í ágúst og samhliða henni mikil ráð-
stefna um horfurnar í fiskeldi. Kjartan Ólafsson, nemi í sjávarútvegsfræð-
um við Háskólann í Tromsö, sótti ráðstefnuna og rekur hér það helsta
sem bar á góma.
Þrándheimur minnist á þessu ári
að 1000 ár eru liðin siðan Ólafur
Tryggvason settist þar að með her
sinn og byggði sér bæ, eftir því
er Snorri Sturluson skrifaði 200
árum síðar. Athygli Evrópubúa á
Niðarósi, eins og Þrándheimur var
fyrst nefndur, vaknaði um 1030
þegar Ólafur Haraldsson kóngur
var drepinn í Stiklastaðarorrustu.
Skömmu eftir að lík hans var graf-
ið urðu menn varir við undur og
stórmerki umhverfis gröfina. Ólaf-
ur var því tekinn í heilagra manna
tölu og pílagrímar víðsvegar úr
Evrópu tóku að streyma til bæjar-
ins.
Öflugasti vaxtarbroddurinn í
norsku efnahagslífi
í ár streymir fólk hvaðanæva úr
heiminum til Þrándheims á afmæl-
isári borgarinnar þó ekki til að
næra andann, eins og áður fyrr,
heldur til að kynna sér framleiðslu
á líkamlegri næringu. Vikan 10. til
17. ágúst var nefnilega tileinkuð
fiskeldi, öflugasta vaxtarbroddi í
norsku efnahagslífi. Byijað var á
ráðstefnu European Aquaculture
Society (EAS) um rannsóknir og
tæknilega möguleika fiskeldis í
framtíðinni. í kjölfarið kom sjálf
Aqua Nor-sýningin og fjöldinn allur
af minni ráðstefnum um markaðs-
mál og stöðu fiskeldisins. Um
20.000 manns sóttu sýningxina í
blíðskaparveðri og voru öll hótelher-
bergi bæjarins lögð undir sýningar-
gesti. Aðstandendur búast við að
gestirnir hafi skilið eftir sig um
milljarð íslenskra króna á hótelum,
veitingahúsum og í annarri þjón-
ustu heimamanna.
Ráðstefna EAS
Patrick Lavens, forseti EAS, opn-
aði ráðstefnuna að viðstöddu fjöl-
menni og í ræðu sinni talaði hann
um mikilvægi fiskeldisins og vitnaði
þar í tölur FAO. Hann benti á hve
hlutur fiskeldis í heimsafla hefur
aukist gríðarlega á síðustu árum.
Árið 1995 var heildarafli úr heims-
höfunum 92 milljónir tonna og sama
ár gaf fiskeldið af sér um 21 millj-
ón tonna eða um 20%. Sama hlut-
fall var 13,5% árið 1994. Fiskeldið
er sá matvælaiðnaður sem mestur
vöxtur er í um þessar mundir og
ekkert bendir til annars en að hlut-
fall eldis aukist á komandi árum
sérlega ef spár manna um 100 millj-
ón tonna hámarksafla úr heimshöf-
unum ganga eftir. í dag er fiskeldi
mest í Asíu, 87%, en Evrópa fram-
leiðir næst mest eða um 1,4 milljón
tonn.
Þema ráðstefnunnar var eldi
kaldsjávartegunda og fjölluðu flest-
ir fyrirlestranna um möguleika í
lúðueldi. Nokkur erindi voru flutt
um næringargildi fóðurs og mögu-
leika á að ala fisk á sojafóðri. Einn-
ig voru lagðar fram skýrslur um
tilraunir sem gerðar hafa verið á
þorsk og laxaseiðum. Starfræktir
voru umræðuhópar um endurnýt-
ingu vatns og möguleika í þeim
efnum.
Blaðamaður spurði Patrick Lav-
ens hvort skilja mætti þá athygli
sem lúðurannsóknir fengu á ráð-
stefnunni sem svo að EAS áætlaði
lúðueldi sem næsta fjörkipp innan
fiskeldisins. Hann svaraði því til að
margt benti til að talsverðir mögu-
leikar lægju í lúðueldi ef takast
myndi að yfirvinna þá byrjunarörð-
ugleika sem hijá menn um þessar
mundir. Lavens benti blaðamanni á
að landar hans virtust standa þar
framarlega og hafa náð mjög góð-
um árangri.
Nokkur leynd yfir lúðueldinu
Um eldi á öðrum kaldsjávarteg-
undum sagðist hann setja spurning-
armerki þar sem ýmist hefði mönn-
um ekki tekist að ráða fram úr líf-
fræðilegum vanda eða að eftirspurn
markaðarins væri ekki næg. Nokk-
ur leynd hvíldi yfir því hveijir væru
að framleiða lúðu í heiminum í dag
og í hve miklu magni en í einum
fyrirlestrinum var minnst á góðan
árangur Fiskeldis Eyjafjarðar við
að koma lúðuseiðum í gegnum
myndbreytingarskeiðið.
Ólafur Halldórsson, forstjóri
Fiskeldis Eyjaíjarðar, var á ráð-
stefnunni og sagði í viðtali við
blaðamann að flöskuhálsinn í lúðu-
eldi væri ennþá seiðaframleiðslan.
Helstu vandamálin væru næringar-
legs eðlis og tengdust löngu þrosk-
unarferli lúðulirfa. Lirfan nærist á
lifandi fóðri sem þarf að innihalda
nægileg næringarefni. Ólafur sagði
að þrátt fýrir að Fiskeldi Eyjafjarð-
ar hafi náð nokkuð góðum tökum
á seiðaframleiðslunni væru ýmis
vandamál sem tengdust seiðaeldinu
sem þyrfti að leysa.
500 krónur fyrir lúðuseiðið
Undir lok ráðstefnunnar var
mönnum bent á grein í norska dag-
blaðinu Dagens Næringsliv þar sem
fram kom að hjónum frá Larsnes í
Noregi tókst að koma 90.000 seið-
um gegnum myndbreytinguna.
Áætlað markaðsverð fyrir lúðuseiði
er um 500 íslenskar krónur. Fyrstu
lúðulirfurnar sem klakið var út í
rannsóknarstöð voru sýndar í
Þrándheimi fyrir 10 árum og bjugg-
ust menn þá þegar við stórtækri
framleiðslu. En ýmiskonar vanda-
mál komu í ljós og hafa menn bar-
ist við þau síðan.
Einn íslenskur fyrirlesari
Eini íslenski fyrirlesarinn á ráð-
stefnunni, Benedikt Hálfdánarson,
markaðsstjóri hjá Vaka Fiskeldis-
kerfi, hélt áhugavert erindi sem
íjallaði um rannsóknir á lífmassa-
mæli sem fyrirtækið framleiðir.
Lífmassamælirinn getur áætlað
fjölda, meðalþyngd og stærðardreif-
ingu fiska í kví án þess að skemma
eða áreita fiskinn. Tækið er þegar
komið í notkun hjá nokkrum fram-
leiðendum og reynslan gefur góða
von.
Boðið tll velslu
Nokkuð var um íslendinga á ráð-
stefnunni sem kynntu sér ýmsar
hliðar fiskeldisins. Mjöl- og fóður-
framleiðendur, menn innan fisk-
eldisins, kennarar og áhugamenn.
Að ráðstefnu lokinni blésu íslenskir
mjölframleiðendur til alíslenskrar
veislu á þriðju hæð Radison SAS
Royal Garden þar sem Síldarvinnsl-
an veitti öl og SR-mjöl bauð klak-
ann. Fjölmargir tóku til máls og
var veislan vel heppnuð.
Annar freðfiskur
Skelfiskur
(unninn og niðursoðinn)
Unnar
fiskafurðir
Innfluttur fiskur og afurðir til Bretlands, maí 1995 til maí '97
(hlutfall af heildarverðmæti í hverjum mánuði) -------------------------------^-----20
- Frosin flök
I---------------------1---------------------1---------------------1---------------------1---------------------1---------------------1----------------------1----------------------1---------------------1---------------------1---------------------1----------------------1---------------------1----------------------1---------------------1---------------------1---------------------1---------------------1---------------------1 I i i i-------------------------------------------------------------------------------------------------------1 i-----------------------------------------! I i i i i---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1 i i i i i
MAI '93
JAN. 95
JAN. 96
JAN. 97
JAN. 94
Mjöl og lýsi
Innflutningur á mjöli og lýsi
til Bretlands jan.-maí 1997
Perú
41.990 tonn
ísland
40.339 tonn
Chile
23.039 tonn
Noregur 20.316 tonn
Aðrir 27.948 tonn
Bretar flytja
meiri fisk inn
BRETAR hafa aukið innflutning
á fiskimjöli og lýsi á fyrrihluta
þessa árs. Að loknum maimánuði
höfðu þeir flutt inn um 153.600
tonn af þessum afurðum, en á
sama tíma í fyrra nam þessi inn-
flutningur tæpum 144.000 tonn-
um. Mest af þessum afurðum
kaupa þeir frá Perú, um 42.000
tonn en 40.300 tonn héðan frá
íslandi. Chile er í þriðja sæti með
23.000 tonn og Noregur í því
fjórða með 20.300 tonn. Hlutur
annarra þjóða er mun minni. Á
sama tíma í fyrra höfðu Bretar
keypt um 59.400 tonn af mjöli
og lýsi héðan og 30.000 frá Nor-
egi en aðeins 13.350 frá Perú.
Búast má við því að hlutur okkar
fari vaxandi þegar líður á árið
vegna mikillar framleiðslu hér
en veiðibanns i Suður-Ameriku.
Þorskur
Þorkinnflutningur til
Bretlands jan.-apríl 1997
ferskt og afurðir
Noregur
13.274 tonn
Færeyjar
12.646 tonn
ísland
6.810 tonn
Danmörk 5.9741.
Rússland 5.8231.
Aðrir 4.1251.
FYRSTU fimm mánuði ársins
höfðu Bretar flutt inn tæplega
49.000 tonn af þorski, en um
46.100 á sama tíma í fyrra. Þarna
er um að ræða bæði frystan
þorsk og ferskan. Mest kaupa
Bretar af Norðmönnum, 13.300
tonn, 12.650 tonn frá Færeyjum
og 6.800 tonn héðan frá íslandi.
Norðmenn auka sinn hlut um 800
tonn, en Færeyingar um 4.700
tonn, en hlutur okkar lækkar um
300 tonn. Næstir koma svo Rúss-
ar og Danir með tæp 6.000 tonn
hvor þjóð og fer hlutur Rússa
minnkandi.