Morgunblaðið - 21.10.1997, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Ahorfendum fjölgaði
á leikina í efstu deildinnl
í knattspyrnu
i sumar
Þróunin síðustu 10 ár
? I I '■? I
| co
cn Bin |co
Lf> I I r-
n id Icq
(fi 1(0 lco
1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997
1997 Allir leikir liðsins Meðaltal áalla leikl Heima- lelklr liðsins Meðalt. áhelma- lelki Úti- lelkir liðslns Meðalt 1 á Ótk > leikl
KR 19.228 1.068 12.128 1.348 7.100 789
ÍA 15.767 876 8.126 903 7.641 849
ÍBV 13.502 750 7.343 816 6.159 684
Keflavík 12.706 706 6.030 670 6.676 742
Fram 12.138 674 6.939 771 5.199 578
Valur 9.557 531 4.607 512 4.950 550
Grindavík 9.164 509 4.107 456 5.057 562
Leiftur 8.599 478 3.408 379 5.191 577
Stjarnan 7.762 431 2.405 267 5.357 595
Skallagr. 7.173 399 3.005 334 4.768 530
Flestir áhorfendur á leik: I Fæstir á leik
KR-fA
KR - Stjarnan
Fram - KR
KR - Skallagr.
ÍA - Keflavík
KR - ÍBV
Valur - Fram
KR - Keflavík
2.835
1.783
1.652
1.415
1.329
1.287
1.224
1.218
Grindavík - KR
KR - Lelftur
ÍA - ÍBV
ÍBV-Lelftur
Keflavík - ÍBV
KR - Grindavík
ÍBV - Keflavík
ÍA - Lelftur
1.197
1.130
1.121
1.066
1.059
1.050
1.026
1.016
Grindavík - Fram 159
Stjarnan - Fram 159
Grindav.- Skallagr. 138
Stjarnan - Skallagr. 120
Skallagr.-Fram 104
Skallagr.-Grindav. 100
Stjarnan - Lelftur 82
Valur - Stjarnan 68
■ ÓLAFUR Nielsen karatemaður
varð í þriðja sæti á Opna norræna
unglingamótinu sem fram fór á
Álandseyjum um helgina. Ólafur
keppti í -80 kg flokki.
■ BÓLIVÍSKI knattspyrnumað-
urinn Ramiro Castillo eða Choco-
latin eins og hann var oft kallaður
framdi sjálfsmorð á laugardaginn,
aðeins nokkrum mánuðum eftir að
elsti sonur hans lést af lifrarveiki.
Castillo , sem var 31 árs, lék á
miðjunni í landsliði Bóliviu og var
meðal annars valinn knattspyrnu-
maður landsins árið 1986.
■ JANSHER Khan, besti skvass-
spilari í heimi verður ekki meðal
keppenda á heimsmeistaramótinu
og mun því ekki veija titilinn. Það
eru persónulegar ástæður fyrir því.
Hann ætlar þó að sýna áður en
HM hefst að hann er enn bestur.
Um helgina sigraði hann á opnu
móti í Egyptalandi, lagði Jonat-
hon Power 15:5, 15:11 og 15:7.
■ SARAH Fitz-Gerald náði á
sunnudaginn loksins að leggja
löndu sína frá Ástrlíu, Michellu
Martin á stórmóti í skvassi. Sú
fyrrnefnda hafði sigrað í fimm af
síðustu sex viðureignum þeirra, en
Martin sigraði á Opna breska
FOLK
meistaramótinu. Um helgina komst
Martin í 5:0 í fyrstu lotu en Fitz-
Gerald gafst ekki upp, sigraði 9:5
og 5:9, 6:9, 9:2 og 9:3.
■ MICHELE Bartoli hjólreiða-
kappi frá Italí varð um helgina
heimsbikarmeistari, en hann varð í
4. sæti á móti á Italíu, tíunda og
síðasta mótinu í mótaröðinni.
■ BO Jiang hlaupakona frá Kína
hjó nærri heimsmetinu í 1.500 m
hlaupi þegar hún sigraði í greininni
á kínverska meistaramótinu um
helgina. Jiang hljóp á 3.50,98 mín.
sem er besti tími ársins í greininni
en heimsmetið er 3.50,46.
■ QU Yunxia heimsmethafi í
greininni varð í 8. sæti á 3.57,83
mín., en hún hefur nýlega hafið
æfingar af fullum krafti á ný eftir
hlé vegna veikinda.
■ LANG Yinglai setti heimsmet
unglinga í umræddu 1.500 m hlaupi
er hún hreppti annað sætið á
3.51,34 mín. Uinglai er 18 ára.
■ LI Xuemi setti Asíumet í 100
m hlaupi kvenna er hún kom í
mark á 10,79 sek. Aðeins banda-
ríska stúlkan Marion Jones hefur
hlaupið á betri tíma á þessu ári.
■ XIAO Yanling náði lengsta
kringlukasti kvenna í heiminum í
ár er hún kastaði 70 m á kínverska
meistaramótinu á laugardaginn.
■ WU Yanyan sundkona frá Kína
stórbætti heimsmeitið í 200 m fjór-
sundi á kínverska meistaramótinu
um helgina. Hún synti á 2.09,72
mín. Gamia metið átti landi hennar
Lin Li 2.11,65 sem hún setti á
Ólympíuleikunum í Barcelona
1992v
■ JÓNAS Egilsson, formaður
Frjálsíþróttasambandsins (FRÍ) var
kosinn varaformaður Samtaka
fijálsíþróttasambanda evrópskra
smáþjóða á dögunum á aðalfundi
þeirra, sem fram fór samhliða þingi
Fijálsíþróttasambands Evrópu
(EAA) í Búdapest. í samtökunum
eru níu ríki, eða fimmtungur evr-
ópskra fijálsíþróttasambanda. Hef-
ur formaður þeirra frá upphafi ver-
ið Marie-Paula Thoma frá Lúx-
emborg.
0LÆTI
Sem betur fer er það sjald- þrír, sem misstu stjórn á skapi
gæft hér á landi að tii óláta sínu á miðvikudaginn, greiða leið
komi á íþróttaviðburðum. Það í Digranesið og kemur þá bannið
urðu þó ryskingar eftir leik HK fyrir lítið.
og KA á miðvikudagskvöldið í Það er ekki óaigengt að uppúr
Digranesi þegar nokkr-
ir óánægðir stuðnings-
menn HK gátu ekki
unnt glöðum stuðn-
ingsmönnum KA þess
að fagna sigri. Einnig
voru margir krakkar
úr Kópavoginum sem
hentu flöskum inn á leikvöllinn sjóði meðal stuðningsmanna er-
eftir að leik lauk og forráðamenn lendra liða og alþekkt eru dæmin
hússins verða að gera eitthvað til um hinar svokölluðu knattspyrnu-
að koma í veg fyrir að svona bullur sem ferðast á milli knatt-
nokkuð endurtaki sig. spymuvalla með það eitt að leið-
Kópavogsbúar mega vel við arljósi að eyðileggja þá skemmtun
una að eiga tvö lið í efstu deild sem flestir áhorfendur hafa af
karla í handknattleik og gott því að horfa á ieiki. Siíkir áhorf-
gengi HK virðist laða að fleiri endur eru ekki hér á landi, að
áhorfendur í Digranesið en oft minnsta kosti ekki ennþá. En þó
áður. Vonandi hafa atburðimir á svo forráðamenn Handknattleiks-
miðvikudaginn aðeins verið byij- sambandsins segi atvikið á mið-
unarörðugleikar. Félagið og for- vikudaginn einstakt þá verða
ráðamenn íþróttahússins verða menn að vera á varðbergi.
að hafa menn sem sjá um gæslu Það em ekki mörg ár síðan
þó svo menn voni að svona lagað körfuknattleiksdómarar gátu
endurtaki sig ekki. Það er misjafn varla farið á eigin bílum til að
sauður í mörgu fé og því er allur dæma leiki því óánægðir áhorf-
varinn góður. Þetta á ekki aðeins endur gerðu sér það að leik að
um við íþróttahúsið í Digranesi, skemma bíla þeirra. Enn styttra
heldur alla staði þar sem íþrótta- er síðan ráðist var á handknatt-
kappleikir fara fram. leiksdómara í Garðabæ og í vor
Sem betur fer slasaðist enginn endurtók leikurinn sig í Hafnar-
alvarlega í ryskingunum, en það firði. Þá var einnig talað um ein-
er ekki æstum stuðningsmönnum stakt atvik. Þjóðfélagið hefur
HK að þakka. Meðal áhorfenda breyst mikið og hvort sem mönn-
og stuðningsmanna KA var fólk um líkar það betur eða verr verð-
með böm og því hin mesta mildi um v'ð að horfast í augu við það
að enginn slasaðist alvarlega þó alþjóðlegur borgarbragur, með
svo segja megi að það sé meira öllu sem honum fylgir, er kominn
en nóg að einn stuðningsmanna hingað til lands. Það má ekki loka
KA hafi rifbeinsbrotnað. augunum fyrir því sem hefur
HK hefur bmgðist við með því f?er?t og telja sjálfuin sér trú um
að setja þrjá stuðningsmenn sína að Það Kenst ekki aftur.
í bann, en ef gæslan í húsinu Skuli Unnar
verður ekki bætt þá eiga þessir Sveínsson
Grípa þarf í taumana
áður en ölæti verða
daglegt brauð
Hvererhann þessi HALLPÓR SIGFÚSSON leikstjórnandi hjá meisturum KA?
Er uppalinn
KA-maður
HALLDÓR Jóhann Sigfússon leikmaður KA hefur vakið athygli
fyrir vaska framgöngu i fyrstu leikjum liðsins á keppnistímabil-
inu. Eftir að hafa verið með annan fótinn íliði meistaranna
sl. fjögur ár þá er það ekki fyrr en nú sem hann er kominn í
víglínuna og þá fremstu víglínu. Halldór er leikstjórnandi liðs-
ins og að auki markahæsti ieikmaður þess að loknum sex
umferðum með 42 mörk og sem leikstjórnandi leikur hann
ótvírætt eitt lykilhiutverka liðsins, sem mikið breytt frá síð-
asta ári freistar þess að verja íslandsmeistaratignina.
Halldór Jóhann er 19 ára nem-
andi á íþrótta- og félags-
fræðibraut Verkmenntaskóla Ak-
ureyrar. Hann er
yngstur þriggja
sona hjónanna Sig-
urveigar Sigvalda-
dóttur og Sigfúsar
Jónassonar. Hann býr í foreldra-
húsum og segist vera uppalinn
KA-maður enda verið búsettur í
næsta nágrenni KA-heimilisins
alla tíð. En hvað kom til að hann
fór að æfa íþróttir?
„Ég elti bræður mína á knatt-
spyrnuæfmgar hjá KA og byijaði
reyndar í knattspyrnu í sjöunda
flokki undir stjórn Njáls Eiðsson-
ar. Nokkru síðar fór ég einnig að
leggja stund á handknattleik hjá
félaginu. Síðan æfði ég báðar
íþróttagreinarnar þangað til í
fyrrasumar að ég gaf knattspym-
una upp á bátinn."
Hvað réð vali þínu?
„Það er engin launung að getan
réð öllu og valið var ekki erfitt."
Hvenær komstu inn í meistara-
flokk?
„Ég hef verið viðloðandi hann
í fjögur ár, en það var fyrst í fyrra
sem ég fékk tækifæri til að leika
eitthvað að ráði. Það var mjög
ánægjulegt að vera með þegar
fyrsti íslandsmeistaratitillinn
vannst.“
Hefur þú ekki orðið íslands-
meistari með yngri fiokkunum?
„Jú, tvisvar í 4. flokki, í tvígang
í 3. flokki og einu sinni í 2. flokki.“
Þú varst fyririiði í yngri fiokk-
unum, ekki satt?
„Rétt er það, ég var fyrirliði í
3. og 4. flokki þegar þeir sigruðu.
Þú hefur einnig verið í ungl-
ingalandsliðunum.
eftir
ívar
Benediktsson
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
HALLDÓR Jóhann Sigfússon, hinn 19 ára leikstjórnandi ís-
landsmeistara KA. „Við mætum óhræddir í hvern leik.“
„Ég hef farið í allar ferðir sem
landslið pilta fæddir 1978 og 1979
hefur farið í síðustu ár og verið
fyrirliði þess. Það hafa verið
skemmtileg verkefni og nær því
sami hópurinn sem er góður og
léttleikinn svífur yfir vötnum."
Er stefnan sett á aðallandsliðið?
„Auðvitað stefni ég á að kom-
ast í landsliðið og í framhaldinu
að í atvinnumennsku. Ég geri mér
hins vegar Ijóst að það er ekki
auðvelt og til þess þarf að leggja
á sig mikla vinnu. Kunningi minn
sagði eitt sinn við mig að það
væri auðvelt að vera efnilegur í
íþróttum en erfitt að verða góður
og það er mikið til í því.“
Attir þú von á að fá tækifæri
strax íhaust í fremstu víglínu liðs-
ins?
„Satt að segja átti ég von á
því. Þess vegna var um að gera
að nota tækifærið vel.“
Er ekki erfitt að vera strax
kominn út íhringiðuna með meist-
araliðinu?
„Það finnst mér ekki. Mikil end-
urnýjun hefur orðið á liðinu og
kröfumar til okkar eru ekki mjög
mikil þótt svo við ætlum að vera
í fremstu röð. Síðan er það keppn-
in í meistaradeild Evrópu. Þar er
spennandi verkefni og það verður
skemmtilegt að leika í Zagreb í
Króatíu við hluta af landsliði
Krótatíu."
Á að veija meistaratitilinn?
„Við ætlum ekkert að gefa eft-
ir, en liðið er mikið breytt og
árangurinn verður að ráðast. Við
mætum hins vegar óhræddir í
hvern leik.“