Morgunblaðið - 21.10.1997, Page 3

Morgunblaðið - 21.10.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 B 3 ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA Atli þjálfar KRnæstu tvö tímabil Atli Eðvaldsson var í gær ráðinn þjálfari KR-inga og gildir samningur hans við félagið til næstu tveggja ára. Atli tekur við þjálfun meistaraflokks af Haraldi Haralds- syni, sem tók við liðinu á miðju sumri af Lúkasi Kostic, sem var sagt upp störfum. Atli verður einnig áfram þjálfari íslenska ungmennaliðsins, 21 árs og yngri. Björgólfur Guðmundsson, for- maður knattspyrnudeildar KR, sagð- ist á blaðamannafundi í gær vera ánægður með að hafa fengið Atla til starfa í Vesturbæinn. „Atli þekk- ir félagið mjög vel, enda lék hann með liðinu fyrir nokkrum árum. Það má því segja að hann sé nú kominn heim aftur eftir að hafa þjálfað önn- ur lið í sjö ár. Við væntum góðs samstarfs við Atla. Eigum við ekki að segja að nú séu að renna upp nýir tímar hjá KR með ráðningu hans,“ sagði Björgólfur. Atli sagðist hlakka til að takast á við verkefnið hjá KR. „Ég mun reyna að byggja upp sterka liðsheild og koma á ró í félaginu. Ég tel að það sé nægur efniviður fyrir hjá KR þannig að ekki þurfi að fara út fyr- ir félagið til að við eignumst öflugt lið. Ég þekki vel til hjá KR og veit því að hveiju ég geng. Væntingarn- ar eru miklar en ég er tilbúinn að standa undir þeim. Eg tel raunhæft að stefna að því að tryggja okkur sæti í Evrópukeppninni, ef það tekst ekki er eitthvað að,“ sagði Atli. Björgólfur sagði að nú eftir að þjálfari hefði verið ráðinn væri hægt að ganga í haustverkin, þ.e.a.s. ganga frá leikmannahópnum fyrir næsta tímabil. Nokkrir leikmenn hafa þegar yfirgefið félagið en form- aðurinn sagðist vera stoltur af því að leikmenn KR-inga væru eftirsótt- ir. „Við vorum með stóran hóp í sumar og það sér ekki högg á vatni þó nokkrir hafi yfirgefið félagið. Við sem erum í stjóm deildarinnar teljum það hrós að við skulum vera með leikmenn sem eru eftirsóttir annars staðar. Það hlýtur að vera afskap- lega leiðinlegt að vera í félagi þar sem enginn hefur áhuga á leikmönn- um þess. Það sýnir að við höfum verið með mjög góða einstaklinga. Við eigum ekki von á því að það fari fleiri, en við samgleðjumst þeim sem hafa farið á ný mið og óskum þeim góðs gengis," sagði Björgólfur. Hann sagði að stjórnin hefði verið að vinna að ýmsum breytingum varðandi uppbyggingu knattspyrn- unnar hjá félaginu í heild sinni. „Fé- lagið verður að geta boðið upp á góða aðstöðu fyrir leikmenn og áhorfendur. Við erum að endurskoða allan rekstur deildarinnar og ýmis- legt annað,“ sagði formaðurinn og upplýsti að hagnaður hefði verið af rekstrinum á yfirstandandi ári. Hann sagði að margir leikmenn annarra liða hefðu haft samband við KR og sýnt áhuga á skipta yfir í Vesturbæ- jarliðið. „Það hafa aldrei áður eins margir leikmenn haft samband við okkur að fyrra bragði. Þannig að menn sjá að það er eftirsótt að leika fyrir KR.“ Morgunblaðið/Ámi Sæberg ATLI Eðvaldsson skrlfaði í gær undlr tveggja ára samning vlð KR-inga. Hér er hann ásamt Björgólfl Guðmundssyni, formannl knattspyrnudeildar KR, á blaðamannafundl þar sem KR-ing- ar tllkynntu um ráðnlngu Atla. Páll ráðinn þjálfari Leifturs Páll Guðlaugsson, fyrrum lands- liðsþjálfari Færeyinga og nú þjálfari Götu í Færeyjum, skrifaði á laugardaginn undir tveggja ára samning sem þjálfari Leifturs frá Ólafsfirði. Samningurinn tekur gildi 1. nóvember. Hann tekur við þjálfun liðsins af Kristni Bjömssyni sem verður þjálfari Vals næsta sumar. Þorsteinn Þorvaldsson, formaður knattspyrnudeildar Leifturs, sagð- ist ánægður með nýja þjálfarann. „Páll hefur mikla reynslu enda fengist við knattspyrnuþjálfun í 19 ár og þjálfaði m.a. færeyska lands- liðið í sjö ár. Við vomm með nokkra þjálfara í sigtinu en niðurstaðan var að prófa eitthvað nýtt með því að ráða Pál. Hann mun hafa aðsetur í Reykjavík í vetur enda flestir leik- manna liðsins staddir þar yfir vetr- armánuðina," sagði Þorsteinn. Um leikmannamálin sagði hann: „Við reiknum ekki með miklum breytingum á leikmannahópnum frá því sem var i sumar. Það er þó ljóst að Ragnar Gíslason leikur ekki með okkur vegna vinnu í Reykja- vík. Eins er óvíst með Gunnar Má Másson og Þorvald Makan, sem eru með lausan samning," sagði for- maðurinn. Arnór frestadi krýn- ingu meistaranna Arnór Guðjohnsen skoraði sigur- mark Orebro í 2:1 sigri á Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og kom þar með í veg fyrir að Halmstad gæti fagnað meistaratitlinum í ár. Halmstad náði forystunni í leiknum á 38. mínútu með marki Ljungbergs en Tjernström jafnaði fyrir Örebro með marki beint úr aukaspyrnu hálfri mínútu fyrir leikhlé. Halm- stad sótti nær látlaust allan síðari hálfleikinn, en án árangurs. Arnór tók til sinna ráða, gerði sigurmark Örebro á 73. mínútu og kom þann- ig í veg fyrir að Halmstad yrði meistari, altént frestaði því um sex daga. Hann fékk boltann á miðri vítateigslínu, snéri á einn leikmann til að búa til pláss áður en hann hamraði boltann í bláhornið vinstra megin. Eftir sigurinn er Örebro í 3.-4. sæti ásamt Malmö FF þegar ein umferð er eftir. En þessi tvö lið beijast um þriðja sætið sem gefur rétt til þátttöku í Evrópukeppninni á næsta ári. Halmstad hefði með sigri tryggt sér meistaratitilinn því liðið hafði fyrir leikinn eins stigs forskot á Gautaborg sem tapaði óvænt fyrir Trelleborg um helgina. Það ræðst því ekki fyrr en um næstu helgi hvort það.verður Gautaborg eða Halmstad sem verður meistari - þökk sé Am- óri. Halmstad mætir Ljungskile í síð- ustu umferð og Gautaborg fær Hels- ingborg í heimsókn. Örebro leikur úti við Vesterás og Malmö FF við AIK á heimavelli. Það er einnig mikil spenna á botni deildarinnar. Þegar ein umferð er eftir er ekkert lið fallið en fjögur lið beijast um að lenda ekki í tveimur neðstu sætunum. BADMINTON Brynja og Tryggvi sigruðu Tryggvi Nielsen, íslandsmeistari í badminton, sigraði í einliðaleik karla á fyrsta opna badmintonmótinu í haust, en einliðaleiksmót TBR var haldið í TBR húsinu nú um helgina. Tryggvi byijaði á að sigra Njörð Ludvigsson TBR 15:8 og 15:6 og þar á eftir Guðmund Adolfsson TBR 15:6 og 15:13. Urslitaleikurinn var mun erfiðari, en þá mætti hann Árna Þór Hallgrímssyni TBR. Árni vann fyrstu lotuna 15:7, en Tryggvi gafst ekki upp og vann hinar tvær, 15:12 og 15:11. I keppni um þriðja sætið sigraði Sveinn Sölvason TBR Guð- mund Adolfsson TBR 15:8 og 15:14. Brynja Pétursdóttir TBR sigraði Rögnu Ingólfsdóttur TBR 11:6 og 11:3 í úrslitum í einliðaleik kvenna. Áður hafði hún lagt Elsu Nielsen TBR að velli 7:11, 11:2 og 11:8, og þar áður Söru Jónsdóttur TBR, 6:11, 11:6 og 11:0. í keppni um þriðja sæti vann Elsa Nielsen Söru Jóns- dóttur TBR 11:7 og 11:9. í A-flokki karla sigraði Helgi Jó- hannesson TBR Geir Svanbjörnsson TBR í úrslitum 15:3 og 15:8. í keppni um þriðja sæti vann Pétur Hjálmtýs- son TBR, Davíð Thor Guðmundsson TBR 15:3 og 15:1. í A flokki kvenna vann Eva Hrönn Petersen Unni Ylfu Magnúsdóttur TBR 3:11, 11:2 og 11:5. Ikvöld Körfuknattleikur 1. deild karla: Ásgarður: Sjaman - Selfoss.20.30 HANDKNATTLEIKUR Júlíus og félagar efstir Okkur hefur gengið ágætlega og eftir fimm leiki erum við í efsta sæti deildarinnar með tíu stig ásamt Pfadi Winterthur,“ sagði Júlíus Jónasson handknatt- leiksmaður með svissneska félag- inu St. Otmar í samtali við Morg- unblaðið. „Á laugardaginn lékum við gegn BSW Bem og sigruðum 39:18 eftir að staðan hafði verið 17:8 í hálfleik. Þetta var ákaflega i hraður leikur og eins og tölurnar gefa til kynna var þetta frekar létt.“ Júlíus sagðist hafa gert sjö mörk í leiknum. Hann væri ánægður með eigin frammistöðu til þessa á leiktíðinni. Hann léki mest á miðjunni og í hlutverki skyttu hægra megin þar sem örv- hent skytta liðsins hefði verið meidd upp á síðkastið. Þá stæði hann ætíð í vörninni. „Ég hef verið að gera fjögur til átta mörk í leik sem er ágætt.“ „Yfirhöfuð höfum við verið að leika vel það sem af er og þá er skiljanlega létt yfir hópnum, en þetta var það sem stefnt var að er lagt var af stað í haust. Vera í toppbaráttunni." IMasistagull gerir usla St. Otmar er komið í 16 liða úrslit í Evrópukeppni bikarhafa og dróst gegn ísraelska liðinu Tel Aviv Uni Sports og eiga Júlíus og félagar heimaleikinn fyrst. „Það hefur hins vegar ýmislegt gengið á síðustu daga eftir að við drógumst gegn þessu ísraelska liði. Vegna þess að svissneskir bankar tóku þátt í að geyma nas- istagull í síðari heimsstyrjöldinni ríkir mikið hatur í garð Svisslend- inga í ísrael og því reyndu for- ráðamenn St. Otmar að kaupa útileikinn heim, en því var neitað. Það síðasta sem gerðist í málinu er að sendiráð Sviss í ísrael hefur varað okkur við að ferðast til landsins fleiri en þrír saman og óskað hefur verið eftir því að við gistum aðeins tveir til þrír saman á hveiju hóteli. Þannig ríkir mikil spenna fyrir þessa ferð,“ sagði Júlíus. „Við verðum hins vegar að vona það besta þar sem við ætlum okk- ur langt í Evrópukeppninni að þessu sinni og vonandi slær þetta okkur ekki út af laginu.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.