Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Einar Einarsson þjálfari Hauka eftirsigurá Njarðvíkingum í„Ljónagryfjunni“
„Alltaf góð tilfinning"
Njarðvíkingar máttu játa sig
sigraða í annað sinn í röð í
Njarðvík á sunnudagskvöldið þegar
þeir mættu Hafnar-
fjarðarliði Hauka í
Blöndal miklum baráttuleik.
skrifar Njarðvíkingar töp-
uðu fyrir KR-ingum
á dögunum og eins og í þeim leik
voru það illa ígrunduð skot á loka-
mínútunum sem urðu þeim að falli.
Lokatölur urðu 69:66 fyrir Hauka
sem börðust vei og voru vel að sigr-
inum komnir. I hálfleik var staðan
39:38 fyrir Njarðvík.
Leikurinn bar keim af mikilli
baráttu og þá sérstaklega í fyrri
hálfleik og bæði lið voru komin með
skotrétt áður en hálfleikurinn var
hálfnaður. 14 villur voru dæmdar á
Njarðvíkinga í fyrri hálfleik og 16
á Hauka sem segir sína sögu. Njarð-
víkingar réðu lengstum ferðinni í
fyrri hálfleik en til þess síðari komu
Haukar mjög ákveðnir og áður en
heimamenn vissu af voru þeir komn-
ir 10 stigum undir, 59:49. Þeim
tókst þó að jafna og komast yfir
aftur 66:64 á lokamínútunum, en
Haukarnir sögðu þá hingað og ekki
lengra - þeir gerðu síðustu 5 stigin
og var sigur þeirra sanngjarn.
Njarðvíkingar fóru illa að ráði sínu
á lokamínútunum þegar óreyndir
leikmenn reyndu skot í stað þess
að leika uppá reyndari og öruggari
leikmenn.
„Þetta var harður leikur þar sem
bæði lið léku góða vörn og hann
gat farið á hvorn veginn sem var.
Eg er afar ósáttur við dómarana
sem dæmdu allt of mikið og illa.
Þeir hreinlega eyðilögðu leikinn,“
sagði Friðrik Rúnarsson þjálfari
Njarðvíkinga.
„Það er alltaf góð tilfinning að
sigra Njarðvíkinga heima. Við hitt-
um illa í fyrri hálfleik, en tókum
okkur á í þeim síðari bæði í vörn
og sókn og uppskárum eftir því,“
sagði Einar Einarsson þjálfari
Hauka sem var að vonum ánægður
með sigurinn.
Teitur Örlygsson var yfirburða-
maður í liði Njarðvíkinga. Hvar
væri liðið án hans?! Aðrir náðu aldr-
ei að sýna sínar betri hliðar. Hjá
Haukum var Sherrick Simpson
bestur ásamt Sigfúsi Gizurarsyni,
Pétri og Jóni Arnari Ingvarssonum.
Góðir sprettir
dugðu gegn ÍR
Tindastóll þurfti ekki neinn
stjörnuleik til að sigra ÍR-inga
í Seljaskóla með 22 stigamun,
66:88, á sunnudag-
SkúliUnnar j™; gMjr sprettir
Svemsson Sauðkrækmga
skrifar dugðu fylhlega.
Jafnt var í leikhléi
38:38, en gestirnir gerðu fyrstu tíu
stigin eftir hlé og hélst sá munur
meira og minna allt þar til á loka-
sprettinum. Þegar sex mínútur
voru eftir var staðan 66:73 en til
loka gerðu heimamenn aðeins þrjú
stig, Culver með þriggja stiga
skoti, en leikmenn Tindastólls léku
á als oddi og gerðu 19 stig.
ÍR á greinilega erfiðan vetur
fyrir höndum. Aðeins níu leikmenn
mættu til leiks og breiddin því
ekki mikil. Það endurspeglast einn-
ig á vellinum því þar mæðir allt
of mikið á tveimur mönnum, Eiríki
Önundarsyni og Lawrence Culver,
sem báðir áttu ágætan leik. Aðrir
áttu þokkalega kafla en hurfu þess
á milli. Guðni Einarsson, sem er
góður varnarmaður, verður til
dæmis að skjóta meira, eða altént
að ógna meira þannig að hann
haldi einum varnarmanni upptekn-
um. Tindastólsmenn náði knettin-
um 22 sinnum af ÍR en heimamenn
aðeins 11 sinnum af Sauðkræking-
um og þessar tölur segja mikið um
gang leiksins.
Norðanmenn gerðu það sem þeir
þurftu. Voru slakir í fyrri hálfleik
en komu síðan af fítonskrafti til
þess síðari og var barátta þeirra
til fyrirmyndar. Hún bar árangur
og tíu stiga forskot hélst allt þar
til í lokin að annar og ekki síðri
kafli kom. Arnar Kárason var best-
ur í liði UMFT, snöggur, fljótur
og stöðugt á fullri ferð og hann
stal knettinum oft í vörninni. Torr-
ey John átti einnig ágætan dag og
Sverrir Þór Sverrisson var sterkur.
Spánveijinn José Maria Narang lét
lítið fara fyrir sér framan af leik
og sat mikið á bekknum, en hann
sýndi undir lokin að hann getur
ýmislegt.
Miklar sveiflur
Grindvíkingar unnu baráttuglaða
Borgnesinga 91:85 í skemmti-
legum en mjög sveiflukenndum leik
í Borgarnesi á
sunnudagskvöldið,
Þó^öarson Þafr fm “J? ^
skrifar ust á um að hafa 10
til 15 stiga forystu.
„Hann var sætur þessi, það er sko
ekkert smá ljúft að vinna hér í Borg-
arnesi," sagði Benedikt Guðmunds-
son þjálfari Grindvíkinga eftir leik-
inn. „Við vorum arfaslakir í upphafí
og vorum varla með í byijun en um
leið og við fórum að taka á og spila
eins og við eigum að okkar fóru
hlutimir að ganga,“ sagði Benedikt.
„Fyrri hálfleikurinn var mjög góð-
ur hjá okkur en síðan bytjuðum við
mjög illa í þeim seinni, þó við næðum
okkur aftur á strik undir lokin“,
sagði Tómas Holton þjálfari og besti
leikmaður Skallagríms í þessum leik.
„Það sem réð úrslitum í leiknum var
frammistaða erlenda leikmannsins
hjá Grindvíkingum, við réðum hrein-
lega ekkert við hann á tímabili c)g
það var allt ofaní hjá honum. Eg
er annars mjög ánægður með
frammistöðu liðsins og tel að hún
hefði nægt til að vinna mörg önnur
lið.“
Liðin vom mjög jöfn fyrstu mín-
útumar en síðan tóku heimamenn
leikinn í sínar hendur. Liðið var
sjálfsöryggið uppmálað og allt small
saman í vörn og sókn. Liðsmenn
Grindvíkinga virtust slegnir út af
laginu um stund og heimamenn
komust í 15 stiga forystu 34:19.
Grindvíkingar tóku svo við sér og
Gamalkunnir taktar
Keflvíkingar sýndu gamalkunna
takta þegar þeir mættu vest-
urbæjarliði KR í Keflavík á laugar-
dagskvöldið og þá
Björn þiirfti varla að spyija
Blöndal að leikslokum
skrifar Heimamenn sigruðu
ömgglega 105:87
eftir að staðan í hálfleik hafði verið
49:47. Laugardagskvöld hafa ekki
verið leikkvöld fyrr og var þetta gert
í tilraunaskyni. Um 200 áhorfendur
vom á leiknum sem telja verður slaka
aðsókn miðað við að þarna vom tvö
af bestu liðum deildarinnar að leika.
Leikurinn var hvorki spennandi né
skemmtilegur. Keflvíkingar vom
greinilega ekki á þeim buxunum að
tapa þriðja leiknum í röð á heima-
velli og guldu KR-ingar þess að þessu
sinni. Þeir vom raunar ákaflega slak-
ir og náðu aldrei að ógna sigri Kefl-
víkinga.
Keflvíkingar tóku strax forystuna
í leiknum og héldu henni allt til loka.
Fyrri hálfleikur var þó nokkuð jafn
og munurinn í hálfleik var aðeins 2
stig 49:47. í síðari hálfleik voru
KR-ingar lengstum yfírspilaðir og
þegar flautað var til leiksloka var
munurinn 18 stig þó svo að varaliðið
hefði leikið síðustu mínúturnar fyrir
heimamenn. „Miðað við hvernig við
lékum þá sýndu þessi úrslit muninn
á liðunum. Við vorum áhugalausir
og alla baráttu vantaði í mína menn
að þessu sinni og því fór sem fór,“
sagði Hrannar Hólm, þjálfari KR.
„Nú kannaðist ég við mína menn
og liðið lék af eðlilegri getu og þá
sérstaklega í síðari hálfleik. Ég vona
að við séum búnir að finna taktinn
aftur,“ sagði Sigurður Ingimundar-
son þjálfari Keflvíkinga.
Þeir Dana Dingle, Falur Harðarson
og Guðjón Skúlason voru bestir í liði
Keflvíkinga og saman gerðu þeir fé-
lagar 74 stig. Dana Dingle fellur
mjög vel inn í leik liðsins. Hann er
ekki mjög áberandi en eigi að síður
ákaflega dijúgur, bæði í að ná frá-
köstum og að skora. Kevin Tuchson
og Óskar Kristjánsson voru bestir í
liði KR.
náðu með mikilli baráttu að minnka
muninn í 6 stig 49:43 fýrir leikhlé.
Grindvíkingar mættu síðan eins
og grenjandi ljón til leiks eftir hlé
og komust fljótlega yfír. Þeir juku
hraðann og erlendi leikmaðurinn
þeirra Darryl Jerome Wilson raðaði
niður 3ja stiga körfunum og virtist
óstöðvandi. Heimamenn komust þó
aftur inn í leikinn undir lokin og
voru óheppnir að komast ekki yfír
á lokasekúndunum en aðeins 2 stig
skildu er 12 sekúndur voru eftir.
Heimamenn hittu ekki, brutu á Wil-
son sem hitti úr báðum vítaskot-
unum og gerði út um leikinn.
Morgunblaöið/Ásdís
LAWRENCE Culver í liði ÍR reynir hér að komast framhjá
Hinrikf Gunnarssynf úr Tindastóli.
Hraði og
skemmtun
er ÍA
vann Val
Leikur Skagamanna og Vals,
þar sem þeir fyrrnefndu sigr-
uðu 68:67, var fjörugur frá fyrstu
mínútu til þeirrar
1 síðustu og var eng-
0ttesen mn svikinn af þvi
skrifar að mæta og horfa
á hann. Gestirnir
byijuðu með miklum látum og
voru greinilega staðráðnir í að
gefa ekkert eftir í baráttunni. Það
tók heimamenn nokkra stund að
átta sig á látunum, en þegar það
tókst náðu þeir undurtökunum og
höfðu sjö stiga forystu í leikhléi.
Ekki var síðari hálfleikurinn síð-
ur spennandi. Valsmenn tóku
strax til við að saxa á forskot
heimamanna sem varð mest 11
stig og komust yfir þegar rúmar
fimm mínútur voru eftir, 59:60.
Síðustu mínúturnar voru æsi-
spennandi þar sem bæði lið léku
hratt og á köflum óagað, en þetta
var mikil skemmtun fyrir áhorf-
endur. Þegar tvær sekúndur voru
eftir var staðan jöfn, 67:67, og
brotið var á Degi Þórissyni. Hann
hitti ekki úr fyrra skotinu en það
síðara rataði rétta leið og tryggði
þar með Skagamönnum eins stigs
sigur því tíminn sem eftir var
dugði Valsmönnum ekki.
Sigurinn var nokkuð sanngjarn
þegar á heildina er litið. Hjá
heimamönnum var Damon John-
son bestur en einnig létu þeir Sig-
urður Elvar Þórólfsson og Dagur
Þórisson mikið að sér kveða.
Hjá yal var Warren Peebles
bestir. Óskar Fr. Pétursson var
öflugur í fyrri hálfleik en sást lítið
í þeim síðari. Þessu var öfugt far-
ið með Berg Emilsson, sem hafði
sig lítið í frammi í fyrri hálfleik
en stóð vel fyrir sínu eftir hlé.
Oruggt
hjá KFÍ
gegn Þór
Torfi
Jóhannsson
skrifar
Isfirðingar höfðu tögl og hagldir
í leiknum gegn Þór er liðin
mættust á ísafírði á sunnudaginn.
Gestirnir frá Akur-
eyri börðust þó vel
undir lokin, en allt
kom fýrir ekki og
KFÍ sigraði 87:70.
ísfirðingarnir byrjuðu ótrúlega
vel og gerðu fyrstu 16 stig leiks-
ins. Heimamenn skiptu þá óreynd-
ari mönnum inná og við það
jafnaðist leikurinn. Staðan í hálf-
leik var 54:36.
Seinni hálfleikur var frekar
bragðlaus, þó má segja að Þórsar-
ar hafi reynt hvað þeir gátu með
Jo Jo Chambers í fararbroddi en
hann og Hafsteinn Lúðvíksson
voru þeir sem héldu Þórsurum í
baráttunni.
David Bevis var besti maður
ísfirðinga ýn annars áttu allir leik-
menn KFÍ góðan leik. Þess má
geta að vítanýting KFÍ manna var
mjög góð, þeir hittu úr 21 skoti
af 22.
Það virðist sem KFÍ sé að gera
góða hluti í deildinni og menn
vestra geta verið ánægðir með lið
sitt. Guðjón Þorsteinsson, liðsstjóri
KFÍ orðaði það þannig: „Við erum
komnir til að standa okkur“.
.