Morgunblaðið - 21.10.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 B 5
Reuters
Öruggt hjá Bulls
toóm
FOLK
■ SIG URGANGA íslendingaliðs-
ins í dönsku úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik heldur áfram. Um helgina
lagði BK Odense lið BMS 100:96
og sagði Valur Ingimundarson
þjálfari að allir leikir liðsins virtust
þurfa að vera svona spennandi.
■ VALUR sagði að landinn hefði
staðið sig vel. Kristinn Friðriksson
gerði 21 stig, Valur var með 18,
Henning Henningsson 7 og Pétur
Vopni Sigurðsson 4, en hann átti
stórleik í vörninni að sögn Vals og
var valinn maður leiksins.
■ HERBERT Arnarsoa og félagar
hans í MP Antwerpen í belgísku
1. deildinni lögðu Leuven 110:78
um helgina. Herbert gerði 15 stig
í leiknum og sagði að sigurinn hefði
verið öruggur þó svo aðeins munaði
9 stigum í leikhléi. „Við rúlluðum
yfir þá í síðari hálfleik," sagði Her-
bert, sem lék tæpar 30 mínútur.
■ GUÐMUNDUR Bragason og
félagar hjá BCJ Hamburg í þýsku
2. deildinni, sigruðu Hannover
83:68 og eru í efsta sæti norðurrið-
ilsins ásamt Oldenburg. Guðmund-
ur var stigahæstur, gerði 20 stig
og tók auk þess 12 fráköst. „Við
vorum miklu betri og eftir að hafa
náð 18 stiga forystu um miðjan síð-
ari hálfleikinn setti þjálfarinn ungl-
inga inná og þeir kláruðu leikinn,"
sagði Guðmundur.
■ BAYREUTH, liðið sem Jónatan
Bow leikur með í þýsku 1. deild-
inni, lagði um helgina Trier 74:58
og gerði Bow 4 stig í leiknum og
tók 2 fráköst en hann lék í 13 mín-
útur. Roney Eford lék í 27 mínút-
ur, gerði 15 stig og tók 6 fráköst.
■ BOW og félagar töpuðu í vikunni
fyrir Alba Berlin 90:63 og er liðið
nú í næstneðsta sæti, hefur aðeins
sigrað í tveimur leikjum.
■ RÓBERT Julian Duranona og
samheijar hjá Eisenach sigruðu
Patrek Jóhannesson og félaga í
Essen 26:23 á útivelli á sunnudag-
inn. Duranona skoraði 2 mörk.
■ PATREKUR var rekinn af leik-
velli með rautt spjald á upphafsmín-
útum leiksins.
■ ESSEN er í neðsta sæti þýsku
1. deildarinnar að loknum fimm
umferðum með 2 stig ásamt Ham-
eln sem Alfreð Gíslason þjálfar,
en Hameln á leik til góða.
■ ÓLAFUR Stefánsson skoraði 4
mörk, þar af 2 út vítaköstum er
Wuppertal gerði 21:21 jafntefli við
Róbert Sighvatsson og samheija
hans í Bayer Dormagen á heima-
velli Wuppertal. Dagur Sigurðs-
son gerði 3 mörk og Geir Sveinsson
1 mark fyrir heimamenn, en Róbert
gerði 1 mark fyrir gestina.
■ KONRÁÐ Olavson skoraði eitt
mark í 25:22 tapi Niederwurzbach
á heimavelli fyrir Kiel, sem eitt liða
hefur ekki tapað stigi.
■ FANNEY Rúnarsdóttir og lið
hennar Tertnes sigraði Sjetne
38:28 á útivelli á sunnudaginn. Með
sigrinum færðist Ternes upp í 7.
sæti deildarinnar af 12 liðum.
BANDARÍSKU meistararnir í
körfuknattleik, Chicago Bulls,
lentu ekki í teljandi vandræðum
á hinu óopinbera heimsmeistara-
móti félagsliða sem lauk í París
um helgina. Chicago lék til úr-
slita við Olympiakos frá Grikk-
landi og sigraði 104:78. Mót
þetta, sem kennt er við McDon-
ald’s, hefur verið haldið í tíu ár
og hafa bandarísk lið ávallt sigr-
að. Michael Jordan fór fyrir sín-
um mönnum og gerði 30 stig í
leiknum, þar af 20 í fyrri hálf-
leik. Denis Rodman og Scottie
Pippen léku ekki með en Luc
Longley reyndi að halda uppi
merki Rodmans með þvi að taka
ógrynni frákasta og Steve Kerr
lék sem hægri hönd Jordans, en
það hlutverk hefur Pippen oftast
leikið. Arturas Karnishovas, sem
var valinn besti leikmaður Evr-
ópu á síðasta tímabili, gerði 19
stig fyrir Olympiakos og Dragan
Tarlac 14.
Á myndinni að ofan smeygir
Michael Jordan sér framhjá
Dragan Tarlac í liði Olympiakos,
i úrslitaleiknum.
SNOKER
Kristján
sigraði
Jóhannes
Kristján Helgason sigraði í for-
gjafarmóti í snóker sem fram
fór um helgina. Kristján lagði Jó-
hannes B. Jóhannesson 3:2 í úr-
slitaleik en þeir tveir eru þeir einu
sem eru með núll í forgjöf.
í átta manna úrslitum vann
Kristján Ásgeir Ásgeirsson 3:0 en
Ásgeir fékk 10 í forgjöf. Jóhannes
B. vann Alvin Orra Gíslason 3:2
en sá síðarnefndi hafði 70 í forg-
jöf. Kristján lagði Magnús Jóhans-
son 3:1 í undanúrslitum og Jóhann-
es B. nafna sinn Viðarsson 3:0.
Um næstu helgi verður keppt í
meistaraflokki, 1. flokki og 2.
flokki á Ingólfsbilliard, Klöpp og í
Kjuðanum.
BLAK
Stjarnan
vann íjöfn-
um leik
Leikmenn Stjörnunnar úr
Garðabæ sóttu lið ÍS heim í
Hagaskólann á sunnudagskvöldið
í 1. deild karla í blaki og höfðu
sigur, 3:0. Leikurinn varð mjög
jafn og lítið skildi að í fyrstu hrin-
unni en hún endaði 16:14 fyrir
aðkomuliðið eftir að ÍS hafði verið
yfir framan af. Það var fyrst og
fremst móttakan sem brást hjá ÍS
á lokasprettinum.
Emil Gunnarsson sem lék með
Þrótti í Neskaupstað í fyrra var
bestur í liði Stjömunnar og það
má segja að hann og Gissur Þor-
valdsson hafí dregið sitt lið að landi
í leiknum með sterkum uppgjöfum
sem rnóttaka ÍS réð ekki við.
Lið ÍS skartaði nýjum erlendum
leikmanni, Ismar Hadzirepovic frá
Bosníu, en hann mætti í leikinn
án þess að hafa æft nokkuð með
liðinu. Ismar, sem er tæplega tveir
metrar á hæð, leikur sem miðju-
maður. Hann lék með Dobijina í
heimalandinu ásamt því að vera í
unglingalandsliði Bosníu og hefur
verið valinn í úrvalshóp leikmanna
Bosníu sem til greina koma á
Ólympíuleikana í Sydney árið
2000. Hann á án efa eftir að setja
mark sitt á leik ÍS í vetur.
Fyrsti heimaleikur
Völsungs í tíu ár
Völsungsstúlkur unnu lið KA í
uppgjöri norðanliðanna á Húsavík
á laugardaginn. Leikurinn var
jafnframt sögulegur fyrir þær sak-
ir að hann var fyrsti heimaleikur
Völsungs í 1. deild kvenna í 10
ár. KA stúlkur mættu grimmar til
leiksins og höfðu sigur í fyrstu
hrinunni, 15:12 en í annarri og
þriðju hrinu tók heimaliðið leikinn
í sínar hendur og þar fór fremst í
flokki Helga Eyrún Sveinsdóttir,
sem var iðin við að skora. í fjórðu
hrinunni tók síðan við nokkur
spenna en það var vel stutt heima-
lið sem vann naumt, 17:15. Birna
Baldursdóttir lék best í liði KA en
móttaka KA stúlkna var slök á
köflum, sérstaklega í annarri og
þriðju hrinunni og það gerði útslag-
ið í leiknum.
Stúdínur fengu Víkingsstúlkur
í heimsókn í Hagaskólann á sunnu-
dagskvöldið, en það var aðeins í
fyrstu hrinu, sem endaði 15:12,
sem Víkingsstúlkur veittu ein-
hveija mótspymu. Dagbjört Víg-
lundsdóttir var iðin við kolann fyr-
ir stúdínur og það var fátt sem
stoppaði hana í sókninni eða úr
uppgjafareitnum. Ingibjörg Gunn-
arsdóttir lék einnig vel fyrir stúdín-
ur. Lið Víkings á eftir að styrkjast
þar sem enn vantar Oddnýju Er-
lendsdóttur og Raghildi Einars-
dóttur í liðið.
Morgunblaðið/Þorkell
Útilrf styrkir SKÍ
ÚTILÍF, umboðsaðili UVEX á íslandi, og Skíðasamband íslands hafa
gert með sér styrktarsamning. Samningurinn felur í sér að næstu þijú
árin mun Útilíf sjá skíðalandsliðum íslands fyrir skíðahjálmum, skíðagler-
augum, gönguskíðagleraugum og sólgleraugum og er samningurinn met-
inn á um 1,3 milljónir króna. Á myndinni eru Tómas Bjarnason frá Útilífi
(til vinstri) og Kristinn Svanbergsson, framkvæmdastjóri Skíðasambands
Islands, eftir að samningurinn var undirritaður í gær.
VÍð þuRfuM MANN Me6 REVNslu í boRGARSTÍÓRN
Prófkjör sjálfstæðismannq í Reykjavík er daganaz4.-25. október
Snorri Hjaltason
..verðugur fulltrúi
íþróttafólks í Reykjavík
Snorri Hjaltason hefur lengi verið formaður
Fjölnis, eins stærsta iþróttafélags landsins. Hann
hefur einnig setið í fjölda nefhda á vegum ÍSÍ,
UMFÍ og ÍBR. Snorri Hjaltason er verðugur
fulltrúi íþróttafólks í borgarstjóm Reykjvíkur.
Maður með reynslu
..úr íþróttastarfi
••úr atvinnulífinu
••úr stjórnmálum
..af félagsmálum
..aff verkalýðsmálum
v :
-
' n
xS
Sceti
Snorri Hjaltason óskar
eftir þínum stuðnlngi
í 5. sœti í prófkjöri
sjálfstœðismanna
í Reykjavík 1997
Kosningaskrifstofa í Templarahöllinni, Eiriksgötu 5, símar561 4848 og 5614850, fax 5614854 - Opin virka daga kl. 17-21 og um helgar kl. 14-19