Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 8

Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 8
J3 B ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Gascoigne og Negri frábærir w Italski framheijinn Marco Negri gerði fjögur mörk og enski landsliðsmaðurinn Paul Gasco- igne tvö þegar meistarar Glasgow Rangers gjörsigruðu Dunfermline 7:0 í skosku úrvals- deildinni á laugardag og komust þar með upp í efsta sæti deildar- innar í fyrsta skipti í vetur. Danski snillingurinn Brian Laudrup gaf tóninn með fyrsta markinu á 16. mín. og þá var þegar ljóst að gestimir höfðu ekki roð við meisturunum. Negri hefur nú gert alls 22 mörk í vet- ur, þar af 11 í síðustu sex leikj- um. Hann var frábær í leiknum; fór hvað eftir annað illa með vamarmenn Dunfermline sem réðu ekkert við hraða hans og tækni. Gascoigne gerði tvö mörk sem fyrr segir, bæði stórglæsileg, og átti þátt í flestum hinna. Hann var valinn maður leiksins. Celtic sigraði Hearts 2:1 á útivelli, í Edinborg, og aðstoðaði þar með erkifjendurna í Rangers við að ná toppsætinu, en Hearts var efst fyrir umferðina. Sviss- neski landsliðsmaðurinn Marc Reiper skoraði fyrsta sinni fyrir Celtic og Svíinn Henrik Larsson bætti öðru marki við. Staðan var orðin 2:0 eftir 21 mín. en þrátt fyrir að Colin Cameron næði að minnka muninn fyrir Hearts um miðjan seinni hálfleikinn var sigri Celtic aldrei verulega ógnað. Fé- lagið hefur nú ekki tapað í síð- ustu 12 leikjum. Rangers hefur 20 stig eftir átta leiki en Celtic og Hearts eru jöfn í 2.-3. sæti með 18. Hibem- inan, sem Ólafur Gottskálksson og Bjamólfur Lámsson eru hjá, St Johnston og Dunfermline koma því næst með 12 stig hvert félag, en öll hafa þau lokið einum leik meira en toppliðin þijú. Nú þegar virðist ljóst að keppnin um meistaratign í Skotlandi verði milli tveggja eða þriggja liða, eins og svo oft áður. Reuters MIÐVALLARLEIKMAÐUR Fiorentina, Manuel Rul Costa, f baráttu vlð Carmine Gautlerl og Vlnc- ent Candela leikmenn Roma, í heldur bragðdaufum lelk llðanna sem enda 0:0. Infter halda engin bönd AC Milan tapaði enn einu sinni, nú gegn botnliði Lecce á heimavelli LEIKMÖNNUM Inter Milan halda engin bönd um þessar mundir og um helgina báru þeir sigurorð af Napoli sem á í mesta basli um þessar mundir, lokatölur 2:0. Þetta vartíundi sigurleikur liðs- ins í ellefu viðureignum á yfirstandandi leiktíð. Á sama tfma virð- ist alit ganga hinu Milan liðinu, AC Milan, í mót og um helgina tapaði það fyrir Lecce 2:1 á heimavelli þar sem leikmenn Lecce skoruðu öll mörk leiksins. Fabio Galante kom Inter yfir á 9. mínútu með skalla af stuttu færi eftir að Guiseppe Taglialatela markvörður Napoli hafði slegið knöttinn frá eftir skalla Argentínu- íném FOLX ■ DEJAN Savicevic leikmaður AC Milan var rekinn af leikvelli er dóm- arinn áleit að hann hefði gefið einum leikmanna Lecce olnbogaskot strax á þriðju mínútu. Myndbandsupptaka af leiknum hefur síðar staðfest að dómari leiksins hafði rangt fyrir sér og Savicevic var hafður fyrir rangri sök. ■ ROBERTO Donadoni hefur ver- ið kallaður heim til ítaliu eftir að hafa leikið í tvö ár með bandaríska liðinu New York Metrostars. Donadoni, sem er 34 ára gamall . og hefur m.a. unnið fímm meistar- atitla með AC Milan, lék með félag- inu að nýju á heimavelli er það tap- aði fyrir Lecce. Hann komst næst því aðsetja mark sitt á leikinn er þrumuskot hans fór í stöng á 20. mínútu. ■ ENSKI landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne hjá Glasgow Rangers, hefur verið orðaður við nokkur lið í ensku úrvalsdeildinni síðustu daga - og þijú þeirra raunar boðið í hann en umboðsmaður Gascoignes sagði í gær að leikmaðurinn myndi flýta sér hægt. ■ MEL Stein, umboðsmaður Gascoignes, staðfesti að Totten- ham, sem Gascoigne lék með áður en hann fór til Ítalíu á sínum tíma, Aston Villa og Crystal Palace, hefðu öll boðið í hann. Newcastle, sem Gascoigne lék með í upphafí ferilsins, hefur einnig verið nefnt í þessu sambandi en Stein sagði fé- lagið ekki hafa boðið í leikmanninn. mannsins Diego Simeoni. Skömmu eftir leikhlé skoraði Francesco Turr- ini sjálfsmark eftir að hann hafði breytt stefnu á skoti Arons Winters þannig að Taglialatela markvörður gat sig hvergi hreyft til varnar. Þetta var fjórði tapleikur Napoli í síðustu sex viðureignum. „Við verðum að gera okkur grein fyrir að þrátt fyrir að staðan sé vænleg þá er langur vegur frá að mótinu sé lokið,“ sagði Simoni þjálf- ari Inter að leikslokum. „Ég varð fyrir vonbrigðum með leik minna manna að þessu sinni og svo virðist sem skortur á einbeitingu sé nokk- ur. Þessi leikur sýndi að við getum gert betur.“ Leikmenn Lazio lutu í lægra haldi á heimavelli fyrir Atalanta, 2:0 og breytti engu þótt gestimir væru ein- um leikmanni færri síðasta hálftím- ann eftir að Paolo Foglio var vísað ef velli er hann fékk annað gult spjald sitt í leiknum. Meistarar Juventus unnu stórsig- ur á Bari 5:0 og halda þar með í við Inter í baráttu efstu liða. Það tók leikmenn Juventus hins vegar nær allan fyrri hálfleikinn að bijóta liðsmenn Bari á bak aftur. Rétt áður en flautað var til leikhlés gerði sænski miðvallarleikmaðurinn Klaus Ingeson sjálfsmark og kom meistumnum yfir. Á 10. mínútu sið- ari hálfleiks var vamarmaðurinn Neqrouz rekinn af leikvelli í liði Bari og þá bmstu allar flóðgáttir og Juventus sló upp veislu á vallar- helmingi andstæðingsins. Frakkinn Zinedine Zidane skoraði í tvígang og Alessandro Del Piero gerði eitt áður en leikmenn Bari luku leiknum með sjálfsmarki. Ekkert lát virðist á slæmu gengi AC Milan um þessar mundir og strax eftir fimm minútna leik við Lecce var ljóst að vart yrði breyting þar á. Júgóslavinn Dejan Govedarica kom Lecce yfir með skallamarki á 2. mínútu og áhorfendur á San Siro leikvanginum í Milano setti hljóða. Þeir höfðu vart jafnað sig þegar Dejan Savicevic var vísað af leik- velli fyrir að gefa einum leikmanna gestanna olnbogaskot. Leikmenn Lecce bættu síðar við öðm marki áður en þeir miskunnuðu sér yfír heimamenn með því að gera sjálfs- mark og minnka muninn í 2:1 á 74. mínútu og þar við sat og fyrsti sig- ur Lecce á leiktíðinni var staðreynd. Chiesa og Dino Baggio skomðu eitt mark hvor er Parma lagði Bol- ogna á heimavelli. Sandro Tovalieri skoraði tvö mörk í 3:1 sigri Samp- doria á Piacenza, en Tovalieri kom inn í liðið er Júrgen Klinsmann meiddist og hefur staðið sig vel. Reyndar var lið Piacenza orðið ein- um leikmanni færra er yfír lauk og ekki auðveldaði það baráttuna um stigin. Fiorentina og Roma gerðu markalaust jafntefli í frekar daufum leik þar sem það bar helst til tíðinda að Abel Balbo misnotaði vítaspyrnu á 33. mínútu og kom ekki einungis í veg fyrir sigur Rómarbúa heldur líka að hann jafnaði metin i keppni við Gabriel Batistuta í keppninni um markakóngstitilinn. Bæði Ron- aldo og Djorkaeff meiddust TVEIR af burðarásum efsta liðs ítölsku deildarinnar, Int- er Milano, Ronaldo og Djorka- eff, meiddust i 2:0 sigurleik liðsins gegn Napoii um helg- ina. Tvímenningarnir, sem hafa gert 13 mörk fyrir Milano-liðið á deildarkeppn- inni verða Kklega ekki með þegar Inter raætir franska félaginu Lyon í síðariyiður- eign liðanna I Evrópukeppni félagsliða í kvöid, að sögn Luigi Simoni þjálf ara Inter. Ronaldo meiddist á vinstri fæti en félagi hans á þeim hægri. „Ronaldo náði sér ekki á strik í leiknum enda varð hann snemma fyrir fyrir sparki andstæðings,“ sagði Simoni. „Ég spurði hvort hann vildi ekki skipta en hann sagðist geta haldið áfram.“ Meiðsli Djorkaeffs komu til síðar í leiknum og einnig hann hélt áfram til leiksloka. Efstu liðin heppin Bæði Kaiserslautern og Bayem Múnchen, sem eru í tveimur efstu sætunum í þýsku 1. deildinni, máttu þakka fyrir eitt stig úr leikjum sínum um helgina. Kaiserslautem mætti Bayer Leverkusen og náði jafntelfí eftir að fyrirliðinn Markus Happe hafði komið heimamönnum yfir 1:0 á 72. mínútu. Leikmenn Kaiserslautem áttu lengstum í vök að veijast en fímm mínútum fyrir leikslok náði Júrgen Rische að jafna og þar við sat. „Þetta var lélegasti leikur sem lið- ið hefur átt síðan við komumst á flug,“ sagði Otto Rehhagel, þjálfari Kaiserslautem eftir leikinn. „Leik- menn mínir voru í rauninni ekkert að gera ef frá eru talin tvö vel út- færð skyndiupphlaup, meðal annars það sem gaf jöfnunarmarkið. Við vomm heppnir að ná einu stigi.“ Bayern Múnchen heimsótti Karlsruhe og leikurinn þar þróaðist um margt svipað leik Kaiserslautem og Leverkusen. Bæjarar lentu 1:0 undir fimm mínútum fyrir leikhlé með marki Markusar Schroths ungl- ingalandsliðsmanns. Á 78. mínútu tókst meisturunum að jafna og þar var að verki Michael Tamat, sem Bayern keypti fyrir þetta tímabil, einmitt frá Karlsruhe. Tamat skor- aði hjá fyrrverandi félögum sínum með góðu skoti af 25 metra færi. „Úrslitin endurspegla það sem var að gerast á vellinum," sagði Gio- vanni Trapattoni þjálfari Bayern eft- ir leikinn. „Karlsruhe lék mjög vel í fyrri hálfleik og hefði vel getað skor- að fleiri mörk, það hefði ekki verið ósanngjamt. En í síðari hálfleiknum sýndum við mátt okkar og megin og áttum leikinn," sagði Trapattoni. Það hvorki gengur né rekur hjá Evrópumeisturunum í Borussia Dort- mund og áður en leikmenn héldu til Duisborgar höfðu þeir tapað flórum deildarleikjum í röð. Að þessu sinni náðu þeir í stig þar sem liðin gerðu markalaust jafntefli og alveg ljóst að leikmenn Dortmund verða að gera bétur ætli þeir sér að veita Parma einhveija keppni í Evrópukeppninni á morgun. „Jafntefli er vissulega ekki það sem við ætluðum okkur og það sem við þurftum,“ sagði Nevio Scala þjálfari Dortmund. „Staða okkar er óneitanlega erfið,“ bætti hann við enda liðið í þriðja neðsta sætinu. Þau lið sem unnu stærstan sigur um helgina voru Stuttgart og Hansa Rostock en bæði unnu sína mótheija 4:1 og hefði sigur Rostock hæglega getað orðið mun stærri. í Stuttgart var Eyjólfur Sverrisson í heimsókn ásamt félögum í Herthu Berlin og riðu þeir ekki feitum hesti frá þeirri viðureign. Eyjólfur lék í framlínu Hertu og hafði ekki mikið að gera en hann hefði ef til vill betur verið í vörninni þvi hún var hreinlega ekki mætt í Stuttgart. Það var hræðilegt að horfa uppá vömina hjá Hertu og sóknarmenn Stuttgart léku lausum hala þegar þá langaði til. „Við áttum svo sannarlega skilið að sigra, og það með miklum mun,“ sagði Joachim Löv þjálfari Stuttgart ánægður með sigurinn og fjórða sætið í deildinni. „Ég og áhorfendur urðum vitni að góðri knattspyrnu og frábærum mörkum. Ég er mjög ánægður," sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.