Morgunblaðið - 28.10.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.10.1997, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR Hermann í góðum félagsskap Hern 0aWstogson Steve Ogrizovic Coventry Hermann Hreiðarsson var valinn í lið vikunnar hjá Daily Mirror eftir góðan leik með Crystal Palace gegn Sheffield Wed. Einkunnagjöf nokkurra blaða Sunday Mirror 7] Sunday People 7 News of the World 8 Sun 9 Daily Mirror 8 Daily Star 9 Chris Perry Gary Neville Man. Utd. Hermann Wimbledon Dean Biackwell Wimbledon Hreiðarsson Crystal Palace Jamie Redknapp Liverpool Steve McManaman Liverpool Ryan Giggs Man. Utd. © Robbie Fowler Liverpool Andy Cole Man. Utd. Chris Sutton Blackburn ■ BJARKI Sigvrðsson var marka- hæstur í liði Drammen í 23:21 sigri á Elverum í norska handboltanum um helgina. Hann gerði átta mörk þrátt fyrir að vera tekinn úr umferð nær allan leikinn. Drammen er nú í 4. sæti deildarinnar með 10 stig eftir 7 umferðir. Sandefjord er efst með 12 stig. ■ HELGI Kolviðsson lék með Lustenau sem gerði jafntefli, 1:1, við Admira/Wacker á útivelli í austurrísku 1. deildinni. Lustanau er nú í næstneðsta sæti deildarinnar með 15 stig, en Admira/Wacker er neðst með 8 stig. ■ LÁRUS Orri Sigurðsson og fé- lagar hans í Stoke töpuðu fyrir Sunderland 2:1 á heimavelli og lék Lárus Orri allan leikinn. ■ VALUR Fannar Gíslason lék með Brighton sem gerði markalaust jafntefli við Hull í 3. deild. Hann fékk góða dóma fyrir leikinn. ■ ÞORVALDUR Örlygsson lék ekki með Oldham á móti Southend í 2. deild. Leiknum lauk með jafn- tefli, 1:1. ■ HARALDUR Ingólfsson, leik- maður Skagamanna, er nú í Sví- þjóð þar sem hann skoðar aðstæður hjá Elfsborg. FOLX ■ VÁLERENGA, sem Brynjar Gunnarsson úr KR leikur með á næstu leiktíð, varð norskur bikar- meistari um helgina. Válerenga, sem sigraði í 2. deild, vann 1. deildarliðið Strömsgodset 4:2. Marco Tanasic, sem lék nokkur ár með Keflavík, gerði bæði mörk Strömsgodset. ■ PAUL Gascoigne hefur skrifað undir þriggja ára samning við Glasgow Rangers. Hann hafði ver- ið orðaður við Aston Villa. ■ D.C. United varði bandaríska meistaratitilinn í knattspyrnu um helgina með því að vinna Colorado Rapids 2:1 í úrslitaleik á sunnudag. Jaime Moreno, landsliðsmaður Bolivíu, gerði fyrra markið og Tony Sanneh það síðara. Mark Rapids gerði Adrian Paz. ■ PAUL McGinley frá írlandi sigraði í annað sinn á sex árum á Evróuputúr hálf-atvinnumanna í golfi sem fram fór í Madríd á Spáni um helgina. Hann lék á 266 högg- um, eða 22 höggum undir pari. Englendingurinn Iain Pyman varð annar, fórum höggum á eftir. ■ CHARLES Barkley, körfu- knattleiksmaður hjá Houston Roc- kets, var handtekinn á sunnudag fyrir að ráðast á tvítugan mann á næturklúbbi í Orlando og fleygt honum í gegnum glervegg. Barkley þurfti að dúsa í fangelsi í fjórar klukkustundir en fékk að fara eftir að hafa greitt 6 þúsund dollara í tryggingarfé. Hann sagði að mað- urinn hafí kastað í sig ísmolum og sagt eitthvað niðrandi um sig. ■ ASTRID Kumbernuss, heims- og ólympíumeistari í kúluvarpi kvenna frá Þýskalandi, þarf að gangast undir uppskurð á hné og verður frá keppni í nokkra mánuði. Hún vonast þó til að geta keppt á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Búdapest í ágúst á næsta ári. ■ PETR Korda frá Tékklandi sigraði Richard Krajicek frá Hol- landi í úrslitum á opna tennismótinu í Stuttgart á sunnudag. Korda vann 7-6 (8-6) 6-2 og 6-4. Þetta var fyrsti sigur Tékkans á stórmóti í tvö ár. MILUON Mörgum líkar lífið hvað best á knattspyrnuvelli. Því fylgir sælutilfinning að plata sam- heija, spyrna knettinum og horfa á eftir honum þenja netmöskvana á marki andstæðingsins. Það er líka ákveðin sæla að ____ geta haft áhugamálið að BHH atvinnu. Og ekki þykir slæmt að fá vel greitt fyrir. Fjörutíu íslenskir standa á svo veikum grunni að þau geta ekki haldið áfram upp- byggingu sinni fáú þau ekki ein- hvetjar greiðslur fyrir þá leikmenn sem fara utan. Hvað er til ráða? Knattspymu- Undrast elnhver þótt ungir knattspymu- knáttspyrnumenn eiru nú menH flytjÍSt Úr landÍ? á mála hjá erlendum fé- lagsliðum, eins og kom fram hér forystan hér á landi verður að í blaðinu á dögunum, og fleiri á leiðinni utan. Straumurinn virðist liggja til Noregs. Þarlend félög hafa boðið íslenskum leikmönnum mjög góð laun, miðað við það sem þekkist hérlendis. Fram kom hér í blaðinu fyrir skömmu að algeng mánaðarlaun knattspyrnumanna í Noregi væru 600-800 þúsund krónur. Einhveijir fá um eina milljón á mánuði og sá launa- hæsti fær andvirði 20 milljóna ís- lenskra króna á ári. Góðir leik- menn í Englandi og á meginland- inu eru hins vegar með margfalt hærri laun. Það er ekki undarlegt þótt ís- lenskir knattspymumenn flykkist utan. Aðstæður til æfínga eru betri en á íslandi og keppnistfma- bilið lengra þannig að ætla mætti að þeir gætu orðið betri leikmenn en hér. Og góð laun eru í boði, sem ekki spillir. Margir sem farið hafa utan upp á síðkastið, eða ætla sér að fara, eru ekki samningsbundnir íslensk- um félögum og þau fá því ekki krónu fyrir leikmennina. Það er áhyggjuefni. Niðurstaða f Bos- man-málinu svokailaða var á þann veg að samningslaus maður getur farið til hvaða félags sem hann vill án þess að greiðsla komi fyrir til gamlafélagsins en íslensk félög ræða þetta mál ítarlega. Er hægt að semja til lengri tíma við leik- menn en gert hefur verið? Er mögulegt að búa þannig um hnúta að leikmenn séu ætíð samningsbundnir? Til dæmis að gerður sé tveggja ára samningur, sem framlengist alltaf um eitt ár að fyrra árinu loknu, segji annar hvor honum ekki upp á ákveðnu tímabili? Hugsanlegt er að leikmönnum þætti slíkt fyrirkomulag óhent- ugt. Því má hins vegar ekki gleyma að sé knattspyrnumaður eftirsóttur á það ekki að skipta sköpum hvort hann sé samnings- bundinn eður ei. Vilji „alvöru" erlent félag næla í leikmann kaupir það hann. Crystal Palace greiddi 58 milljónir króna fyrir Hermann Hreiðarsson, leikmann ÍBVf sumar - mun hærri upphæð en félagið var tilbúið að greiða í fyrstu, og eflaust mun hærri upp- hæð en áður hefur verið greidd fyrir íslenskan knattspyrnumann. Forráðamenn Palace hafa e.t.v. verið tvístígandi yfir verðinu fyrst í stað en Hermann hefur þegar slegið í gegn ytra og þeir telja áðumefndri fjárhæð örugglega vel varið nú. Skapti Hallgnmsson Átti Skagamaðurinn GUNNLAUGUR JÓNSSON von á að spila með Motherwell? Þekktiekki samherjana GUNNLAUGUR Jónsson, varnarmaður frá Akranesi, spilaði með skoska úrvalsdeildarliðinu Motherwell gegn Aberdeen á laugardaginn, án þess að vera á samningi við félagið. Hann hefur verið til reynslu hjá félaginu í viku og var kallaður óvænt inn í aðalliðið eftir æfingu kvöldið fyrir leikinn. Aberdeen sigr- aði, 2:1, og var sigurmarkið gert úr vítaspyrnu sem var dæmd á Gunnlaug á síðustu mfnútu leiksins. „Já, ég gaf víti ílokin og auðvitað var það ekki nógu gott. En ég held að ég hafi staðið mig ágætlega og var þjálfarinn altént ánægður með mig,“ sagði Gunnlaugur sem sagðist vongóður um að liðið myndi bjóða sér samning á allra næstu dögum. Eftir ValB. Jónatansson Gunnlaugur, sem er í sambúð með Sólrúnu Hjaltested, verður 23 ára í næsta mánuði og er kominn af knattspyrnu- mönnum. Hann er sonur Jóns Gunn- laugssonar, sem lengi lék með ÍA og móður afi hans er Einar Halldórsson, sem lék með Val á sínum yngri árum. Þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa leikið með landsliðinu. Móðir hans heitir Elín Einarsdótt- ir og á hann einn bróður, Stefán, sem er 16 ára. Gunnlaugur hefur leikið einn U-21 árs landsleik, sjö með 18 ára liðinu og 13 með 16 ára liðinu. Hann hefur Ieikið 99 leiki með meistaraflokki IA. Hvernig kom það til að þú fékkst tækifæri með Motherwell? „Eg spilaði með varaliðinu á miðvikudag í síðustu viku og æfði með liðinu alla vikuna. Eft- ir æfingu á föstudag kom Alex McLeish, þjálfari, til mín og sagðist ætla að nota mig í leikn- um vegna þess að margir leik- menn liðsins væru meiddir. Ég ætlaði að fara á föstudagskvöld til Newcastle til að hitta Bjarna Guðjónsson og átti því ekki von á þessu.“ Hvernig var svo að spila á móti Aberdeen? „Það var svolítið sérstakt að koma svona nýr inn í liðið. Ég held þó að mér hafi gengið vel ef frá er talið vítið sem ég gaf HHHHHHHHHHHDI Morgunblaðið/Kristinn GUNNLAUGUR Jónsson lék með Motherwell í skosku úrvals- deildinni um helgina. Lfklegt er að honum verði boðinn samn- ingur við félagið í vikunnf. í lokin. Leikurinn var nokkuð jafn, Aberdeen ívið betra í fyrri hálfleik en við í síðari. Þessi Dean Windass, sem skoraði bæði mörkin fyrir Aberdeen, var nokk- uð erfiður viðureignar. Hann átti reyndar að fá rauða spjaldið í leiknum er hann sparkaði í and- litið á mér eftir að ég hafði „tæklað“ hann. En dómarinn sá það ekki og gaf mér gula spjald- ið.“ Þekktir þú nöfnin á leikmönn- unum í liðinu? „Nei, ég þekkti ekki nöfnin á öllum leikmönnunum og það var svolítið erfitt. En ég var búinn að kynnast nokkrum á æfingun- um undanfarna daga. Ég þekkti hins vegar tvo leikmenn Aber- deen frá því ég lék með unglinga- liði félagsins fyrir fimm árum.“ Hefur þú alltaf haft áhuga á knattspyrnu og hvenær byrjaðir þú að æfa? „Já, ég fór snemma að leika mér í fótbolta — fór fyrst með pabba á æfingar fjögurra eða fimm ára. Ég hef líka prófað handbolta og körfubolta en knatt- spyrnan hefur alltaf heillað mig. Það blundaði alltaf í mér sá draumur að komast í atvinnu- mennsku og kannski er sá draum- ur að rætast.“ Hefur þú alltaf leikið í vörn- inni? „Nei þegar ég var í 3. og 4. flokki ÍA var ávallt ég framheiji. En eftir að ég kom upp í 2. flokk var ég færður aftar og kann vel við þá stöðu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.