Morgunblaðið - 09.11.1997, Síða 2

Morgunblaðið - 09.11.1997, Síða 2
2 C SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG Frá núllpunkti umhverfis miðju í HJARTA Parísar ber Vori-ar frú- ar kirkja, Notre Dame, gotneskum arkitektúr glæst vitni. A annarri eynni í Signu, Ile de la Cité, þar sem fyrstu íbúar borgarinnar settu sig niður á 3. öld fyrir Krist. Borg- in dregur nafn sitt af Paríseunum, ættbálki veiðimanna frá Galisíu. Þeir lutu í lægra haldi fyrir her- mönnum Sesars hálfri öld fyrir Krists burð og París varð höfuð- staður Lútesíu, hluti Rómaveldis í fjórar aldir. Snemma á 6. öld varð Clovis konungur Frakka og lét reisa sér kirkju við virkisvegg um- hverfís eyna. Hún var eyðilögð af Normönnum í lok 8. aldar, endur- byggð og rifín aftur til að rýma fyr- ir Notre Dame. Hornsteinn var lagður að dóm- kirkjunni árið 1163 og tvær aldir tók að ljúka byggingu hennai-. Lengur var unnið við framhliðina og enn verið að skreyta á 17. öld, með barokkstyttum eftir tísku þess tíma. Öldinni eftir lauk með bylt- ingu þar sem ekki dugði að höggva kónginn: höfuð forfeðra Loðvíks XVI voru líka látin fjúka af stytt- um á framhlið Notre Dame, sem nú hét Skynsemismusterið. Þau fundust ekki aftur fyrr en 1977, í kjallara banka í París, og voru þá sett á Cluny-safnið í Latínuhverf- inu. Leifar af skærlitri málningu benda til að miðaldir hafi ekki hvarvetna verið myrkar. í byltingunni var reynt að hylja trúartáknin nýklassískum gips- myndum. Þær voru síðar fjarlægð- ar, en dómkirkjan komin í niður- níðslu og notuð sem gripahús um tíma. Victor Hugo blés endurreisn- Notre Dome stendur á eynni sem París hringast um og þaðan má halda í margor áttir. Þérunn Þérsdóttir fer hér um borgareyna og yfir á hægri bakkann. aranda í brjóst konungs og borg- ara með sögunni um hringjarann í Notre Dame, sem út kom 1831. Mjög var deilt um viðbætur Viollet-le-Duc í kirkjunni, líkt og á öldinni eftir um Pompidou-menn- ingarmiðstöðina, Bastilluóperuna og síðast nýja landsbókasafnið. Þeii’ sem ekki hafa leiðsögn um Notre Dame (ókeypis á ensku nokkrum sinnum í viku, upplýsing- ar við innganginn) ættu helst að hafa í huga gluggana hátt á suður- og norðurveggjum. Útsýni er frá- bært yfír Latínuhverfið og Marais úr turnum kirkjunnar, en lítill frændi blaðamanns hyggst klífa stigana til að sjá klukkuna stóru, sem jafnvel Quasimodo megnaði ekki að hringja einn. Þegar niður kemur liggja leiðir til næstum allra átta, frá núllpunktinum framan við Notre Dame sem fjarlægðir á frönskum vegum miðast við. Borgareyjan Aftan við kirkjuna er lítill garður og handan hans, á árbakkanum, minnismerki um frönsk fórnarlömb nasista í stríðinu. Farið er niður þröngan stiga í hvelfíngu þar sem 200.000 dauf ljós vitna um þá sem létust og heiti útrýmingarbúða eru grafin í veggina. „Fyrirgefíð; gleymið ekki,“ er meðal annarra áletrana á þessum drungalega stað. Næst má halda til vesturs eftir Ile de la Cité, fram hjá spítalanum Hotel Dieu, sem byggður var á miðöldum og gefur þreyttum grið þótt ekki sé nema sest á bekk í garðinum. Þvínæst einum fárra markaða með blóm og fugla sem eftir eru í borginni, þá lögreglu- stöðinni, og dómhúsinu þar sem hægt er að fylgjast með framgangi réttvísinnar og helst að mæla með sakadómi sem þingar frá hálftvö til fjögur. María Antoinette hírðist ásamt hátt í 3.000 öðrum byltingar- föngum í Conciergeríinu í kjallara næstu byggingar. I garði dómhússins er St. Chapelle, sem Proust kallaði „perluna meðal þeiiTa allra.“ Hún er eins og Notre Dame í gotnesk- um stíl, byggð yfír þyrnikórónu Krists, sem keisarinn í Konstant- ínópel gaf Loðvík IX í skiptum fyr- ir bækur og meira fé en kostaði að byggja kapelluna. Þeim dýrgrip var seinna komið fyrir í Notre Dame, en enginn verður svikinn af kirkjunni, með sína sérstöku birtu innum elstu steinglerglugga París- ar. Munaður handan við Nýjubrú Að svo búnu er gengið um elstu brú Parísar sem gefíð var nafnið Nýjabrú eða Pont Neuf við vígsl- una 1607. Annað hvort til vinstri inn í Latínuhverfið eða yfir á hægri Minnislisti mínus turn og bogi NÁGRANNI blaðamanns fer helst ekki út fyrir sitt hverfi, fædd, gift og orðin ekkja, allt innan sömu veggja. Hana rámar samt í að hafa einhverntúna á árunum áttatíu komið á þá staði sem hér eru nefndir, nema það sem nýjast er. Líkt er um fleiri borgarbúa, þeir halda sig við heimili og vinnu með- an ferðafólk slítur gólfum safna og endasendist um borgina. Það hef- ur ærna ástæðu til, Eiffelturn og Sigurbogi eru bara byrjunin. Heimamenn láta sér fátt um þær skrautnálar finnast og fara annað til að bregða út af vananum. Gönguferðir Þessar slóðir eru nánar raktar í öðrum greinum um París, en hér eru lykilorð: Marais (3. og 4. hverfi) gyðingagatan Rosiers, Picasso-safn, tanngarður Robespi- erre á sögusafni og íbúð Victors Hugo við Place des Vosges. Gallerí og fatabúðir. Kvöldljós Bastillunnar austur af Vosges- torgi og Pompidou-miðstöðin vestan við hverfið; Grasagarður (5. hverfi) beinagrindur og upp- stoppuð dýr á söfnum, mintute í mosku. Rómverskar rústir, Mouffetard- markaður og Latínuhverfið með stúdentum og ferðamönnum. Sa- int Germain-des-Prés (6. hverfi) gallerí, skóbúðir og önnur tíska, gömul kaffihús spekinga. Orsay- safn spölkorn til vesturs, Mont- parnasse handan Lúxemborgar- garðs í suðurátt. Montmartre (18. hverfí) kirkjugarður, Sacre Coe- ur-kirkjan, klippimyndir ferða- fólks á Tertre-torgi og skelfiskur við Place de Clichy. Villette (19. hverfi) garðar, leikvellir og vís- indasafn við kanalinn. Belleville og Buttes Chaumont (20. og 19. hverfi) Asía og Afríka í Belleville, tilbúið landslag í garðinum. Landsbókasafn og kínabær (13. hverfi) Umdeildur arkitektúr og vel búnir lessalir nýja safnsins sem þekkist af turnunum fjórum (metró Quai de la Gare). Forvitni- legar skemmubúðir (t.d. Tang Fréres, Av. d’Ivry) og ódýr asíu- súpa (Av. de Choisy og nágrenni). Flær Við borgarmörkin eru flóa- markaðir um helgar, frá morgni fram á síðdegi. Vandlátir fara snemma til að hreppa gæðagripi, en auðveldara verður að prútta þegar á Iíður. Vanves (í suðri) bækur og hljómplötur, húsgögn, listmunir og samtíningur. Montreuil (í austri) nýr og gamall fatnaður, hjólbarðar, reiðhjól og annað, yfirleitt ódýrt, úr geymsl- unni. Clignancourt eða St. Ouen (í norðri) stærstur með rándýrum antíkbúðum og öllu hinu sem erfitt getur reynst að finna. Kræklingar og franskar í svang- inn, tónlist í markaðslok t.d. á La Chope de Puces (122 rue Rosiers). Stóru söfnin í miðborginni er risinn Louvre sem var virki frá upphafi 13. ald- ar, konungshöll í 400 ár og opnað almenningi eftir byltinguna í lok 18. aldar. Það var og er mál- verkasafn en geymir Iíka högg- myndir frá fjórtán öldum og forn- gripasjóði: austurlenska, egypska, gríska, etrúíska og rómverska. Napóleon var duglegur við að færa heim herfang sem fór á safn- ið, sumu þurfti að skila, en þetta var öflug byrjun á því sem verða vildi. Safnið er ef til vill hið stærsta í heimi og síðast var Richelieu-álma opnuð á ný með 39 sölum. Elstu munir safnsins eru 5.000 ára en málverk og liöggmyndir frá 19. öld næst okkur í tíma; nú- tímalistin er í góðu safni Pomp- idou- miðstöðvarinnar og svo borgarsafninu, Musée d’Art Moderne de la Ville. Undir Sully- álmu Louvre gefur að líta leifar upprunalegra mannvirkja, en of- anjarðar liggja önnur söfn að því: Arts Decoratifs (húsgögn, mál- verk, listmunir, leikföng, skart- gripir frá miðöldum til samtima. Þekkt fyrir Art Nouveau-Art Deco) og Arts de la Mode (gamlir búningar, glæsikjólar og tilheyr- andi). Orsay er annað aðalsafn, hin- um megin árinnar svolítið lengi’a til vesturs. Það er þekktast fyrir málverk impressjónista en hefur einnig aðra strauma í listum seinni hluta 19. aldar fram á ann- an áratug þessarar. Af götunni glittir í höggmyndir á jarðhæð og mann langar inn í þessa brautar- Morgunblaðið/Pórdís VIÐ gömlu Garnier-óperuna. NÝJA landsbókasafnið sem ýmist þykir fegurst bygginga stöð frá aldamótum, aflagða 1939 þegar lestir voru orðnar lengri en pallarnir. Safnið var opnað fyrir ellefu árum. Fleiri söfn Urmull annara áhugaverðra safna er í borginni: Carnavalet sögusafnið og Picasso-safnið í Marais, verkin eru erfðaskattur ættingja listamannsins. Cluny miðaldasafnið skammt frá Latínu- hverfinu; altaristöflur, góbelín og rómversk böð. Afríka og eyjaálfa fengu safn í tilefni af nýlendusýn- ingu 1931 (metró Porte Dorée). Byggingin er þyngslaleg, en veggskreytingar létta hana upp og svo skólabörn sem koma að skoða físka og krókódíla. Til stendur að færa safnið því Chirac vill sameina það Musée de l’homme í Palais de Chaillot. Austurlensk list er fyrst og fremst í Guimet-safni við Iena-torg og síðan Cernuschi framan við Monceau-garð. Hvort safnið um sig er nokkrar metróstöðvar frá Sigurboga og sama gildir um Petit Palais og Grand Palais . í fyrrnefndu byggingunni eru höggmyndir og málverk í eigu borgarinnar, stórsýningar og vís- indasafnið Palais de la découverte í hinni síðarnefndu. Sé fingri rennt yfír borgarkortið að Eif-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.