Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR Gagnmerk ferðabók Konrad Maurer. BOKMENNTIR Þjóðfræði KONRAD MAURER ÍSLANDSFERÐ 1858 Þýðandi Baldur Hafstað. Ferðafé- lag íslands 1997, LI + 453 bls. ÞAÐ eru ár og dagar síðan þeim sem þetta ritar hefur borist álíka gersemi í hendur og þessi bók. Lestur hennar hefur veitt ómælda ánægju og mikla fræðslu. Margir rosknir íslendingar kannast sjálfsagt við nafnið Konrad Maurer. Alkunnugt er að hann var Þjóðverji, skrifaði sitthvað um norræna réttarsögu, safnaði íslenskum þjóðsögum, var mikil hjálparhella Jóns Arna- sonar um útgáfu þjóðsagnasafns hans og var mikill íslandsvinur. Hitt vissi ég a.m.k ekki fyrr en ég las þessa ferðabók hvílíkum feikna lærdómi sá maður bjó yfir um allt sem íslenskt var frá fyrstu tíð til nútímans og hversu einlægur stuðningsmaður í sjálf- stæðisbaráttunni hann var. Á undan sjálfri ferðasögunni fara fjórir formálar. Þann fyrsta ritar fv. forseti Ferðafélags ís- lands, Páll Sigurðsson prófessor. Ferðasaga þessi er gefin út í til- efni af sjötíu ára afmæli félags- ins. Lætur Páll m.a. svo um mælt: „Með þessum hætti minnumst við afmælisins með varanlegum hætti en höldum um leið á loft minningu þess manns sem átti mestan þátt allra erlendra manna í sókn og sigrum sjálfstæðisbar- áttu okkar á öldinni sem leið, var frumkvöðull og aflvaki vísinda- legrar þjóðsagnasöfnunar hér á landi, einn helsti brautryðjandi nútímalegra rannsókna á íslensk- um fomsögum og jafnframt hinn mikilvirkasti og vandaðasti fræði- maður er nokkru sinni hefur helg- að sig íslenskri réttarsögu á grundvelli samanburðarrann- sókna á fomum rétti annarra germanskra þjóða. Við heiðrum einnig minningu góðs ferða- manns, sem nú gefur okkur með riti sínu hlutdeild í ferð sinni ásamt reynslu og þekkingu á hög- um forfeðra okkar og formæðra." Allt er þetta með vissu satt og rétt og því full ástæða til að heiðra minningu dr. Maurers með þessum hætti þó að seint sé að vísu. Næst ritar dr. Kurt Schier prófessor í Múnchen 20 bls. rit- gerð, Konrad Maurer, ævi hans og störf. Það er ágæta vel skrif- uð og ítarleg ritgerð og nauðsyn- leg kynning í upphafi bókar. Þar er fyrst í greininni sagt frá þess- ari ferðasögu. Enginn virtist um hana vita fyrr en höfundi ásamt samverkamanni sínum Kládíu Róbertsdóttur tókst að hafa uppi á handritinu. Þá hafði það legið gleymt og grafið í „meira en hundrað ár“. Upphaflega mun dr. Maurer hafa haft útgáfu í huga, en af einhveijum ástæðum sem enginn þekkir nú varð ekki af því. Raunar Iauk dr. Maurer ekki við ferðasöguna, þó að varla hafi mikið á vantað. Dr. Maurer var fæddur árið 1823. Hann varð stúdent 16 ára gamall og orðinn lagaprófessor í Múnchen 24 ára. Það varð hið opinbera ævistarf hans. Hann lést árið 1902, saddur lífdaga að því er hermt er. Dr. Árni Björnsson, þjóðhátta- fræðingur, ritar hina ágætustu grein (17. bls.) er nefnist Konrad Maurer og Islendingar. Þar kynn- ir hann helstu fræðastörf dr. Maurers sem snerta Island og fjallar um samskipti hans við fjöl- marga málsmetandi íslendinga og ýmis afskipti hans af íslensk- um málefnum. Loks er stutt greinargerð frá þýðanda ferðasögunnar, Baldri Hafstað. Þessir formálar sem losa hálft hundrað blaðsíðna búa lesandann vel undir lestur þessarar ferða- sögu. Dr. Maurer var hálffertugur þegar hann hóf hina miklu ís- landsferð sína. Sumarið áður hafði hann dvalist í Kaupmanna- höfn, notið kennslu í íslensku hjá Guðbrandi Vigfússyni og Gísla Brynjulfssyni, grúskað í handritum Árnasafns og fræðst um ótalmargt af vini sínum Jóni Sigurðssyni. Hann var því vel undir ferðina búinn. Hann var þegar þaulkunnugur íslendinga sögunum og mælandi á íslenska tungu. Hingað til lands kom hann 27. apríl 1858, en landið yfirgaf hann 17. október sama ár. Sjálf ferðin um landið utan Reykjavíkur stóð frá 20. júní til 10. september. Lengst af voru þeir fjórir á ferðalaginu: ferðafé- lagi hans, dr. Winkler, prest- lærður maður, en áhugamaður um jarð- og steinafræði (Maurer hafði talsverða raun af honum, en losnaði þó stundum við hann og var því næsta feginn), leið- sögumaðurinn Ólafur fagri og hestasveinninn Pétur. Utbúnað- ur þeirra var minni en ætla skyldi. Þeir höfðu alls ellefu hesta, þar af fjóra undir klyfjum. Farangur var eins lítill og hugs- ast gat, nesti sáralítið og Maur- er var í sömu fötunum allan tím- ann. Vegalengdin var þó ekkert smáræði: Reykjavík - Þingvöll- ur - Geysir - Skógar - Fljóts- hlíð - Stóri-Núpur - Sprengi- sandsleið - Bárðardalur - Eyja- fjörður - Skagafjörður - Húna- vatnssýslur - Dalir - Skarðs- strönd — Fellsströnd - Mýrar - Borgarfjörður - Reykjavík. Við þetta bættust svo fjöldamargir útúrkrókar til skoðunar og rann- sókna, s.s. Stykkishólmur, Flat- ey, Akureyjar, Staður á Reykja- nesi o.fl. Og hvað er svo af þessu ferða- lagi að frétta? Að líkum lætur að það sem ferðamaðurinn þurfti 386 þéttprentaðar blaðsíður (og þar af mikið smáletur) undir frá- sögn sína verður ekki endursagt í fáum orðum. Það verður ekki reynt hér. Menn verða að sjálf- sögðu að lesa. Og því má lofa að sá lestur svíkur engan. Hér get ég aðeins frá því greint hvað mér er efst í huga að loknum hröðum lestri. En til þessar- ar bókar verður áreiðanlega oftar gripið. Lesi maður bókina sem áhuga- maður um ferðalög hér á landi rekur hann kannski einna fyrst augun í það hversu dr. Maurer er umhugað um að lýsa vel því sem fyr- ir augu ber. Fáir Islendingar hygg ég að myndu lýsa landinu nákvæmar. Fjöll eru nefnd með nöfnum og vantar fátt sem sjáanlegt er frá hveijum stað, landslag er tíundað af undraverðri ná- kvæmni, vegum og vegleysum er lýst, vötnum, ám og vöð- um. Maður ferðast í raun með honum, fylgist með lengd dagleiða, áningarstöðum og ástandi hestanna og ferðafé- lagarnir, einkum Ólafur og Pét- ur, koma mjög við sögu. Allt er þetta óvenjulegt í ferðabókum erlendra manna. Ég held að ég hafi aldrei fengið eins sterka til- finningu fyrir því hvernig það var í raun og veru að ferðast langleiðir á hestum um miðja nítjándu öld. Eftirtektarvert er hversu annt hann lætur sér um hestana. Þeir eru nefndir með nöfnum. Maður veit hvenær hver heltist, hversu úthaldsgóðir og ásetugóðir þeir eru o.s.frv. Maurer gerði sér far um að gista á bæjum. Tjaldið notaði hann varla. Hann borðaði með fólkinu þann mat sem á borð var borinn og ræddi við heimamenn eins og gamalreyndur sveita- maður. Þetta Iítillæti fannst fólki mikið til um og tók honum opn- um örmum eins og gömlum vini. Oftast gisti hann raunar hjá embættismönnum enda þurfti hann um margt að fræðast af þeim. Raunar er það alveg með ólíkindum hversu eljusamur hann var að fræðast: um lög- fræðileg efni, sögu og sagnir, einkum þjóðsögur og kvæði, en einnig eitt og annað sem nútím- ann varðaði, s.s. sveitarstjórnar- mál, stjórnsýslu, fjárkláða, sjálf- stæðismál og ótalmargt fleira. Eiginlega lét hann sér fátt óvið- komandi. Heilar og hálfar næt- urnar sat hann við að skrifa í dagbækur sínar og það þó að hann ætti erfiðan ferðadag að baki. Auðfundið er hversu mikill aufúsugestur hann var flestum. Menn riðu á móti honum þegar þeir vissu hans von í sveitinni til að vera vissir um að hann færi ekki framhjá, gerðu honum veislur, riðu stundum heilu dag- leiðirnar með honum er hann fór- og létu einatt undir hann bestu gæðinga sína. Bókamenn sem annars lágu eins og ormur á gulli á bókum sínum og handrit- um, leiddu hann að gersemum sínum og leystu hann út með dýrmætum gjöfum, s.s. síra Benedikt á Hólum og síra Frið- rik Eggerz í Akureyjum. Dr. Maurer sat sig auðvitað ekki úr færi um að skoða sögu- staði. í ferðabókinni er víða vikið að fomsögum, oft í löngu máli. Þeim fræðum var hann flestum kunnugri. Einn mikilsverður kostur þessarar ferðabókar er hversu mikið er þar af mannlýsingum, sumum bráðsnjöllum. Hygg ég að þar bætist íslenskri mann- fræði dijúgur skerfur. Yfirleitt liggur honum einkar gott orð til íslendinga. Samt leynir sér ekki að honum ofbýður stundum drykkjuskapur embættismann- anna og var hann þó ekki bind- indismaður sjálfur. Ótalmargt fleira mætti frá þessari bók segja, en einhvers staðar verður að láta staðar num- ið. Hún skilur eftir mynd af fjölg- áfuðum manni, einkar aðlaðandi og hlýjum, sem greinilega vildi unna íslandi og íslendingum sannmælis, því að honum þótti vænt um hvort tveggja. Bók þessi er prýðilega útgefin. Allmargar myndir manna og staða eru til augnayndis og fróð- leiks. Textinn hefur verið gerður læsilegri með millifyrirsögnum og spássíuklausum sem vísa til innihalds textans. Þýðingin er mætavel gerð. Manni dettur varla í hug að bók þessi sé rituð á erlendu máli, svo vel hefur þýðandinn unnið sitt verk. Ekki hefur það verið fljót- unnið. Á Baldur Hafstað mikið hrós fyrir það skilið. Víða hefur þýðandinn bætt við skýringar- greinum neðanmáls. Full spar- samur finnst mér þó hann hafa verið þar. Innan á kápu er íslandskort og er þar merkt sú leið sem dr. Maurer fór. Að því er gott hag- ræði. í bókarlok er Heimildaskrá, Nafnaskrá (menn, dýr, vættir, hlutir), Staðanafnaskrá og Myndaskrá. Fremst í bók er heillaóskaskrá, þar sem bókin er afmælisrit Ferðafélags íslands. Það var vissulega vegleg afmæl- Sigurjón Björnsson Alveg nóg að lifa GUÐRÚN Jónsdóttir, sögu- hetja nýrrar skáldsögu Þór- unnar Valdimarsdóttur, Alveg nóg, „hefur fengið alveg nóg af basli. Hún er einstæð móðir með tvö börn úr tveimur sam- böndum þegar hún verður ást- fangin af ríkum Dana. Hún ákveður að flytja til hans þó kynnin hafi verið stutt og það eru ekki allir jafnhrifnir af ákvörðun hennar. Frelsið og örlögin takast á í nýjum heimi. Guðrún hefur tíma til að hugsa og leita og leitar þá oft langt yfir skammt. ímyndunaraflið ber skynjunina ofurliði og dregur hana af leið. Hvernig varð hugmyndin að sögunni til? „Ég hef gaman af hug- t, myndasögu og er hér að leika mér með þá hugmynd að í nú- inu ríki heiðið siðferði. Hin kristna hugmynd um eina ævi- langa ást gildir ekki lengur í praxís, alla vega ekki hjá fólki sem er fullt af óróa. Þetta er saga um það hvernig kona fer með ævibirgðir sínar af ást, kona sem er svo óþæg að geyma ekki hjartað alla ævi í sömu skúffu!“ „Ég skrifa af hugsjón!" segir Þórunn. „Skilnaðir eru gerðir allt of erfiðir, öll víxlspor for- dæmd, skyldur við aðra eru settar ofar en skyldur gagnvart okkur sjálfum. Sá sem hlítir ekki gömlum boðum og bönnum heldur er sjálfum sér hollur getur haft skelfileg áhrif á ör- lög sinna nánustu. Söguhetjan er að reyna að vera fijáls en gerir sig seka um fordóma og af því spretta óvæntir atburðir." Margar vísanir í verkinu eru beinar, það er vitnað í Lax- dælu, Nietzsche, Whitman og ísabellu Duncan. Hvers vegna samtal við þessa texta? „Ég gerði ekki mikið úr Laxdælu- líkingunni því fólk þekkir sög- una, en það er gaman að láta hana blunda undir. Ég er með ísabellu Duncan, Nietzsche og Whitman inn í til þess að benda fólki á höfundasöguna og hvernig hún virkar. Mér fannst heiðarlegra að láta frelsishetj- urnar Duncan, Whitman og Nietzsche tala beint til Guðrún- ar en að fela í textanum hug- myndir sem koma frá þeim, sem hafa síast i mig og inn i samtímann. Við þetta kemur viss dýpt í söguna... ég minni á að núna hundrað árum seinna er frelsið enn að stríða við að ná til almennings og margir eiga í miklu basli með að fara vel með sína byrði af þessu ægilega fyrir- bæri, ást.“ Verkið er í samtali við hugmyndasög- una, bókmennta- minni og líka við hjá- trú. Passar hjátrúin við hugmyndafræð- ina eða er hún mót- sögn? „Beinar vísanir eru meðvitaðar en aðrar ómeðvitaðar. Hjátrúin er líklega einhver sér íslensk vídd, ís- lenskar konur eru draumspak- ari en aðrar. Guðrún er ekki beint hjátrúarfull heldur skoðar hún hvernig tilviljanir úr lífínu tengjast táknmyndum úr draumi. Og tilviljanir tengjast líka sögu annarrar konu með sama nafni. Þar er bara allt ónotaða svæðið í hinum ótrú- lega heila okkar að verki.“ ÆTURNIR bera mig úr lestinni með allan minn ósýnilega farangur og ég geng rösklega í átt að gamla brúna vol- vónum. Það ískrar í rauðum vindhana og himinninn er rauður. Æði heim á nokkrum mínútum, heim í ég veit ekki hvað, þó orð- in miklu rólegri, róleg í gegn, gamli högg- deyfirinn er kominn á, ég hef áður þurft að rífa mig upp, kann að deyfa allt það, er bara svöl eins og í kvikmynd og á leið að leika aðalhlutverk uppljóstrara sem heimtar uppgjör. Renn heim tijá- göngin og held ég sé að koma með óveður í húsið, en út úr hús- inu koma þau þrjú, Úlla, Kjeld og Steina og ég sé strax á þeim að eitthvað miklu hræðilegra kom heim á undan. Úr Alveg nóg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.