Morgunblaðið - 11.11.1997, Side 8

Morgunblaðið - 11.11.1997, Side 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR Blikk- trommu- barningur Hinn víðlesni en umdeildi rithöfundur Gúnter Grass hefur veríð mikið í fréttum undanfam- ar vikur í Þýskalandi. Hann varð sjötugur 16. október síðastliðinn en aldurinn aftrar honum ekki enn frá því að gera stjómmála- mönnum í æðstu stöðum gramt í geði. Harkaleg gagnrýni hans á afstöðu þýskra stjómvalda í málefnum pólitískra flótta- manna og innflytjenda hefur komið af stað umræðu. Rósa Erlingsdóttir kynnti sér bakgmnn litríks rithöfundar sem hikar ekki við að taka pólitíska afstöðu. BÓKAMESSUNNI í Frank- furt lauk fyrir ríflega tveimur vikum á afhend- ingu friðarverðlauna þýskra bóksala en þau komu að þessu sinni í hlut Yasar Kemal, 74 ára rithöfundar, frá Austur-Anatólíu í kúrdíska hluta Tyrklands. í þakkar- ræðu sinni varð rithöfundinum tíð- rætt um „hið skítuga, tilgangslausa stríð“ er Tyrkir heyja gegn Kúrdum í landi beggja en sjálfur hefur hann mátt þola pyntingar og fangelsisvist fyrir skrif sín og afskipti af stjóm- málum. Hann gagnrýndi jafnframt þýsk stjómvöld fyrir afskiptaleysi af mannréttindabrotum í Tyrklandi og fyrir það að koma fram við Tyrki búsetta í Þýskalandi sem þriðja flokks þegna. í ræðunni kom greini- lega í ljós að hann hefur misst trú á getu og vilja sljómmálamanna til að vinna að friði sem og gegn mann- réttindabrotum. Gunter Grass sem hélt hina hefð- bundnu lofræðu við þetta tækifæri tók í sama streng og sagðist skamm- ast sín fyrir land sitt og þjóð sem á tímum efnhagslegrar kreppu setji markaðshyggju ofar lýðraeðislegum gildum. Með því að leyfa vopnasend- ingar til stríðshijáðra héraða Kúrd- istan gefur Þýskaland þegjandi og hljóðalaust samþykki fyrir kúgun heillar þjóðar. A sama tíma sitja á annað þúsund Kúrdar í þýskum fangelsum vegna synjunar á umsókn um pólitískt hæli og bíða þess að verða sendir aftur „heim“. Grass talaði um ótrúlega villimennsku í þessu sambandi, villimennsku sem hefði hlotið blessun þýskrar stjóm- sýslu og velþóknun hægri öfgasinna og nýnasista. Hann sagði ennfremur að ef stjómvöld létu ekki til sín taka í réttindamálum Tyrkja hið bráðasta væm þau „einskis verð“. Viðbrögð við þessari hörðu gagn- rýni létu ekki á sér standa. Aðalrit- ari kristilegra demókrata (CDU), Peter Hintze, vísaði orðum Grass á bug og sagði hann endanlega hafa sagt sig úr hópi þeirra skálda sem verðskulduðu að vera tekin alvarlega í samfélagsgagnrýni sinni. Stjóm- málamenn sósíaldemókrata (SPD) og græningja fögnuðu hins vegar orðum Grass og sögðu þau tilefni til endurskoðunar á stöðu pólitískra flóttamanna í landinu. Talsmenn út- lendingasamtaka töldu hörð viðbrögð kristilegra demókrata afhjúpa veika stöðu stjómarinnar og getu- og vilja- leysi þeirra gagnvart óviðunandi réttarstöðu Tyrkja í Þýskalandi. Gunter Grass er fæddur 16. októ- ber 1927 í Danzig. í síðari heim- styijöld gegndi hann herskyldu sem vörður á vopnalager, og sat að stríði loknu eitt ár sem stríðsfangi í gæslu Bandaríkjamanna. Hann nam myndlist í Berlín og Dusseldorf og vann til ársins 1955 sem mynd- höggvari og grafíkmeistari. Sama ár sigraði hann í ljóðasamkeppni rithöfunda sem kölluðu sig „Grappe 47“ en margir af þekktari höfundum eftirstríðsáranna tengdust þessum hópi. Bókmenntir eftirstríðáranna í Þýskalandi einkennast af ný-raun- sæi, sem fjallar um raunveruleg vandamál samtímans. Samkvæmt þessari stefnu eiga bókmenntir að vera rannsóknarmiðill sem beitir tungumálinu til að lýsa veraleikan- um en kaffærir hann ekki í ljóðrænu myndmáli. Heinrich Böll sem var meðlimur „Grappe 47“ skrifaði eitt sinn: „Rithöfundar geta einungis valið sér það viðfangsefni, sem þjóð- félagið hefur þá þegar dæmt úr- gang.“ Verkefni rithöfunda sé því að hefja hið óverðuga til virðuleika. A hápunkti ferils síns þrítugur að aldri Fyrsta skáldsaga Gunter Grass, „Blikktromman", kom út 1959. Bókinni var fagnað sem tímamóta- verki og margir gagnrýnendur eru enn á því máli að með henni hafi Grass, þrítugur að aldri, skrifað sitt meistaraverk. Á þessum tímum var staða skáldsögunnar í deiglunni eins og svo oft síðan, og hún af mörgum talin úrelt frásagnarform. Grass lét þessar vangaveltur ekki hafa áhrif á sig og skrifaði nútímalega skáld- sögu með sterkar rætur í klassískri frásagnarhefð. Bækurnar „Köttur og mús“ (1961) og „Hundaár" (1963) mynda Danzig-trílógíuna ásamt „Blikktrommunni". Sögusvið bókanna er umhverfi og umgjörð smáborgarans í Danzig frá aldamót- um, fram á fímmta áratuginn. Hetja „Blikktrommunnar" er Óskar sem situr á geðveikrahæli og skrifar ævisögu sína og leiðir les- andann um sögu Danzig 1933-1945. Óskar á sér sem bam þá ósk heit- asta að snúa aftur í móðurkvið en að því er ekki hlaupið og því ákveð- ur hann á þriggja ára afmæli sínu að hætta að stækka. Það gengur eftir líkamlega en andlega þroskast hann hraðar en aðrir (að eigin sögn) og sér heiminn frá öðra sjón- arhomi; að neðan. Þetta sjónarhorn afklæðir hina fullorðnu öllum virðu- leika sem er viðeigandi því Óskar kemst að því að óréttlæti heimsins orsakast jú af gjörðum hinna full- orðnu. Þjóðfélagið einkennist af smáborgaralegum fáránleika á tím- um stríðs og eymdar, en í þeim veruleika vill hann ekki og getur ekki verið þátttakandi. Óskar eign- ast trommu sem hann notar til að tryggja hæfilega fjarlægð á milli sín og hinna fullorðnu; hann trommar þau (og veraleikann) í burtu. Seinni bækur rithöfundarins einkennast í auknum mæli af pólitískum atburð- um í Þýskalandi. Skáldsagan „Stað- bundin deyfing" eða „Örtlich be- taubt“ (1969), snýst um hugmynda- fræði ’68 kynslóðarinnar. Grass er í bókinni maður málamiðlunar og hann hafnar öfgakenndum kröfum róttæklinga, kallar þær hugsjóna- lausa útópíu. í Die Plebejer proben den Auf- stand (1966) fjallar hann um kröfu- göngu verkamanna í Berlín þann 17. júní 1953, en skáldsaga þessi hefur verið nefnd „þýsk harmsaga". Sögusviðið er uppsetning leikritsins Coriolanus eftir Shakespeare en þar segir frá baráttu rómverskra borg- ara (plebeja) gegn patríörkum. Æfingar á verkinu era traflaðar af verkamönnum nútímans sem biðja leikstjórann um liðsstyrk í pólitískri baráttu sinni. Leikstjórinn notfærir sér atburðina sem innblástur í upp- færslunni en hafnar allri aðstoð og neitar að horfast í augu við samfé- lagslegar afieiðingar hegðunar sinnar. Verkið fjallar því öðram þræði um pólítíska ábyrgð lista- manna. - Stuðningsmaður Willy Brandt Gúnter Grass hóf snemma af- skipti af stjórnmálum og þau hafa mótað öll stærri verk hans. Það er því ekki að undra að fyrir utan að vera í hópi mest lesnu höfunda Þýskalands er hann sennilega um- deildastur þeirra. Hann var um ára- tuga skeið eða frá 1960 flokksbund- inn sósíaldemókrati (SPD) og jafn- framt dyggur stuðningsmaður Willy Brandts fyrir bættri utanríkisstefnu gagnvart Austur- Þýskalandi. Hann starfaði fyrir flokkinn sem ræðu- maður í kosningabaráttu Willy Brandts 1969, þegar Brandt hlaut kosningu sem kanslari. 1972 gaf Grass út nokkurs konar samantekt um kosningabaráttuna og myndun samsteypustjórnar vinstri- og miðjuflokka. Bókina kallaði hann „Dagbók snigils" og skírskotar titill- inn til öfga umbótasinna ’68 kyn- slóðarinnar: Grass er talsmaður raunsærra pólitískra markmiða, að hans mati þarf mörg lítil skref að stærra takmarki. Grass sagði skilið við SPD 1993 í mótmælaskyni vegna afstöðu frammámanna flokksins í málefnum pólitískra flóttamanna. Undir áhrifum kvenna- og friðarhreyfingarinnar Með útgáfu skáldsögunnar „Lúð- an“ (1977) segir Grass tímabundið skilið við vettvang stjórnmála. Bók- in fjallar um sögu mannkyns; hina óhagstæðu þróun frá mæðra- til feðraveldis. Ástandið í heiminum, náttúraspjöll og spilling, er óræk sönnun þess að feðraveldið hefur brugðist. Það eina sem við höfum varðveitt frá náttúranni er hinn kvenlegi kraftur að varðveita og gefa af sér líf. Lúðan í bókinni er talandi, ódauðlegur fiskur sem segir veiðimanni sögur sem spanna þús- undir ára og biður hann um að veij- ast valdi kvenna. í lok bókarinnar telst hins vegar sannað að hug- myndafræði karlaveldis sé dæmd til að mistakast. Hópur femínista veið- ir lúðuna og sendir hana fyrir dóm- stól sinn (sem ber nafnið „feminal") þar sem lúðan er þvinguð til að taka málstað þeirra. Skáldsagan ein- kennist af mikilli íróníu, frásagnar- og lífsgleði en er samt alvarleg áminning um mistök karlaveldis. Á áttunda áratugnum var Grass meðlimur í friðarhreyfingu. Á þeim áram skrifaði hann „Rottuna" en í henni er fjallað um náttúraspjöll á liðinni tíð. Aðalpersóna sögunnar fínnur rottu, í stað bangsa, undir jólatrénu og rottan segir henni til syndanna, að mannkynið geti átt sitt sjálfskaparvíti. Draumsýn rott- unnar er mannlaus veröld með him- inháum ruslahaugum. Draumurinn breytist í rás sögunnar: rottan vill fá manneskjuna aftur en vonar að í þetta sinn geti allir lifað saman í friði og spekt. Gúnter Grass reynir einnig í nokkram bókum að vinna úr örlögum þýsku þjóðarinnar á þessari öld. I nýjasta verki sínu „Ein weites Feld“ eða „Breitt engi“ (1995), sem er jafnframt umdeildast allra verka hans, beinir hann sjónum sínum að sameiningu Þýskalands. Sú skoðun hans að menning og bókmenntir séu sameiningartákn hins almenna borgara í Þýskalandi samtímans, sem og sögulega séð, kemur glögglega í ljós. Gtinter Grass hefur haldið uppi gagniýni í anda lýðræðis og félags- hyggju alla tíð frá byggingu Berlín- armúrsins 1961. Það er ekki hægt að mæla hvaða áhrif hann kann að hafa haft en hann hefur aldrei hikað við að láta skoðanir sínar í ljós. Þátt- taka hans og afskipti af stjórnmálum hafa þó einkennst af þymibraut fé- lagshyggjumannsins; Grass er ýmist gagnrýndur af félögum úr eigin röð- um fyrir að halda að sér höndum eða af andstæðingum fyrir að vera of róttækur. Hann hefur ætíð barist gegn öfgum til hægri og vinstri og bent á mikilvægi ríkisafskipta og sterks þegnasamfélags þar sem sam- spil þeirra festi lýðræðið í sessi og tryggi pólitískan stöðugleika. Stígum stoltar fram ÚLFABROS heitir fyrsta ljóða- bók Önnu Valdimarsdóttur sál- fræðings. Bókin er 156 bls. og inniheldur 92 ljóð er skiptast í fimm kafla. Það er Forlagið er gefur bókina út. Bókin fjallar um sársauka- fulla reynslu af skilnaði, svikum, vonbrigðum og reiði. Einnig seg- ir frá hvernig ljóðmælandi yfir- vinnur þessar erfiðu tilfinningar og tekur á móti ástinni á ný. Fyrsti kafli bókarinnar heitir Konur. Fjallar hann um stöðu kvenna í nútímaþjóðfélagi, litla sigra og ósigra. Höfundur hvet- ur konur til að standa saman og taka niður grímurnar. í öðrum kafla, Lífi og starfi, er ort um uppeldi, súperframhaldssjálfs- Systur Stígum stoltar fram og segjum hver annarri sögu okkar látum vera þótt molni upp úr fáeinum glansmynd- um í leiðinni. Eru ekki innviðirnir meira virði? Hertir í eldi reynslunnar. styrkingarhópinn. Um það að geta ekki Ijáð tilfinningar sínar og að kunna fótum sínum forráð. í kaflanum Tímamót er skiln- aðurinn í brennipunkti. Þung- lyndið fylgir skilnaðinum; bls. 70: „Hver sagði/að endurfæð- ingin yrði auðveld?” Uppgjör, næstsíðasti kaflinn, lýsir miklum sársauka tengdum skilnaði; hamingjumorði, framhjáhaldi og barneignum utan hjónabands. í lokakafla bókarinnar, Ástin, lýs- ir Anna að lokum endurkomunni til ástarinnar og traustsins. í stuttu viðtali við höfund bók- arinnar svaraði Anna játandi spurningunni um það hvort þetta væru fyrstu ljóðin hennar. Anna sagðist satt best að segja ekki hafa átt von á því að eiga það eftir að gefa út ljóðabók. Mega lesendur eiga von á fleiri bókum frá þér? „Já! Ég held áfram að skrifa, en býst alveg eins við því að það geti orðið eitthvað annað en Ijóð. Hvað það verður veit nú engin, eins og segir í jóla\jóðinu.“ Hvemig líður þér nú þegar bókin er komin fyrir almenn- ingssjónir? „Mér líður nýög vel, eiginlega furðuvel. Ég velti því mikið fyr- ir mér á meðan bókin var i geij- un og vinnslu hvemig mér myndi líða þegar og ef þetta yrði að bók. Þau viðbrögð sem ég hef fengið við útkomu bókar- innar em nyög jákvæð. Ég upp- lifi þetta sem sigur á sjálfri mér.“ Var það erfíð ákvörðun að koma Ijóðunum á prent? „Já! Það var erfið ákvörðun. Það var bæði erfitt að skrifa ljóðin, að leyfa þessu að koma á pappír og bar- átta við sjálfa mig. Hvort ég ætti að leyfa mér að skrifa þetta og að gefa ljóðin út á bók. Ég veit að einkareynsla er ekki bara okkar. Það kemur öðmm en sjálfum okkur við og gæti komið einhveijum að gagni að opna glugga og leyfa öðrum að líta inn. Það falla af manni fjötrar við það að leggja allt á borðið og segja frá. Við það að upplifa þá tilfinningu að þurfa ekki að skammast sín fyrir neitt öðlast maður yndislegt frelsi." Anna Valdimarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.