Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.11.1997, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA É $ iíffi iaílf bn ni'<; islð: 6iv *quuiHfifrife C faaz ÞRIÐJUDAGUR 11. NOVEMBER 1997 BLAÐ KNATTSPYRNA Pétur hjá Middlesbrough Pétur Marteinsson, knatt- spyrnumaður hjá Hammarby í Svíþjóð, var í Englandi um helg- ina að skoða aðstæður hjá 1. deild- ar liði Middlesbrough. Pétur fór á tvær æfingar hjá félaginu og búist var við að hann fengi tilboð í fram- haldi af því. Pétur skrifaði undir áframhaldandi samning við Hammarby áður en hann hélt til Englands enda taldi hann sig ekki geta tafið það lengur þar sem for- ráðamenn félagsins lögðu hart að honum að skrifa undir, en Pétur hafði sagt að tilboð sænska liðsins væri hagstætt. Pétur, sem er 24 ára gamall, hefur leikið með Hammarby undanfarin tvö ár við góðan orð- stír og liðið vann sig upp í úrvals- deildina sænsku á haustdögum og vildu forráðamenn þess endilega halda í varnarmanninn sterka. Ekki náðist í Pétur í gær en hann er væntanlegur til Svíþjóðar í dag og þá ætti að skýrast hvort og þá hversu gott tilboð Middles- brough hefur gert honum. Middles- brough féll úr úrvalsdeildinni í fyrra og er um þessar mundir í fimmta sæti í fyrstu deild. Guðmund- urViðartil Malmö GUÐMUNDUR Viðar Mete, 16 ára drengjalandsliðsmað- ur, skrifaði um helgina und- ir þriggja ára samning við sænska liðið Malmö. Guð- mundur Viðar er fædur og uppalinn á Eskifirði og lék með yngri flokkum Austra áður en hann fluttist með foreldrum sínum til Sviþjóð- ar þar sem hann hefur búið undanfarin ár. Forráða- menn Malmö telja Guðmund Viðar mikið efni og telja ekki ólíklegt að hann verði í 18 manna leikmannahópi félagsins á næsta keppnis- tímabili. Guðmundur Viðar lék með landsliði skipuðum leik- mönnum 16 ára og yngri í sumar og skoraði meðal ann- ars annað mark íslands gegn Póllandi er þjóðirnar gerðu 2:2 jafntefli í septem- ber. Morgunblaðið/Kristján Einar Þór til OFI Einar Þór Daníelsson, vinstri út- herji KR-inga í knattspyrnu, er að öllum líkindum á leið til OFI frá Krít, sem leikur í grísku 1. deild- inni. Um yrði að ræða leigusamning fram á vor, en allt bendir til þess að Einar Þór skrifi undir nýjan samning við KR á næstu dögum. Forráðamenn OFI hrifust af Ein- ari Þór þegar félögin mættust í Evrópukeppninni í haust, og sýndu þá strax áhuga á að fá hann til félagsins. Málið lenti síðan í bið- stöðu eftir að þjálfari liðsins veikt- ist alvarlega, en Grikkirnir höfðu samband við forráðamenn knatt- spyrnudeildar KR aftur um helgina og fóru fram á að fá Einar Þór til vorsins. Basimtil KR Miðvallarleikmaður frá Júgó- slavíu, Basim að nafni, hefur átt í viðræðum við forráðamenn knattspyrnudeildar síðustu daga og allar líkur eru á að hann gangi til liðs við félagið. Samningur er raunar tilbúinn og aðeins forms- atriði eftir. Basim hefur æft með KR-ingum síðustu daga, og fór einnig á æfingar hjá Val. Hann er sagður sókndjarfur miðvallar- leikmaður. KR-ingar hafa einnig átt í við- ræðum við Guðmund Benediktsson og Þorstein Jónsson síðustu daga og þeir verða líklega báðir áfram hjá félaginu. Guðmundur fékk til- boð frá Bodö/Glimt í Noregi fyrir skömmu, fór utan og ræddi við for- jáðamenn félagsins en fer ekki ut- án. KA og Aftur- elding töpuðu KA tapaði á heimavelli, 23:26, fyrir Celje Pivovama Lasko frá Slóveníu í fyrsta leik sínum í Meistaradeild Evrópukeppninnar á Akureyri á laugardag. Á myndinni er Sverrir Björnsson, einn ungu mannanna í liði íslandsmeistaranna, með knött- inn við vítateig andstæðinganna. Leó Om Þorleifsson er til vinstri og hægra megin Halldór Sigfússon. Aftureiding var einnig í eldlínunni í Evrópukeppninni um helgina; tap- aði með fimm marka mun gegn Runar í Noregi, í fyrri ieik liðanna. ■ Leikirnir / C6 KÖRFUBOLTI: GRIIMDAVÍK OG HAUKAR SIGRUÐU ENIM / C8 VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN 8.11.1997 VINNINGSTÖLUR MIÐVIKUDAGINN 05.11.1997 Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð Vinningar 5 af 6 ♦ bónus Á ÍSLANDI: 2.222.285 • Lottómiðinn með bónus- vinningnum sl. laugar- dag var keyptur í K. Videói við Hringbraut í Keflavík i* Tölurnar í aukaútdrætt- inum í Víkingalottói sl. miðvikudag voru 7-10- 36-38-44 og 48. Fjórir voru með 6 réttar tölur, einn í Danmörku og þrír í Noregi. • Aukaútdráttur verður SÍMAR: UPPLÝSINGAR ISÍMA: 568-1511 GRÆNTNÚMER: 800-6511 TEXTAVARP: 451 OG 453 AÐALTOLUR BONUSTOLUR Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö 1.5*,s 0 6.994.953 O 4 af 5 ^ phís ^ 550.030 3.4“<5 87 10.900 4. 3 af 5 3.336 660 Samtals: 4.585 7.556.543 HEILDARVINNING 10.695.1 SUPPHÆÐ: 343

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.