Morgunblaðið - 11.11.1997, Page 8
8 C ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Gott hjá KFI
á Króknum
KFÍ gerði góða ferð til Sauðár-
króks á sunnudagskvöldið og
sótti þangað dýrmæt stig, en fyrir-
hafnarlaust var það
Bjöm ekki- Við upphaf
Björnsson leiksins va'r ljóst að
skrífar Tindastólsmenn
mundu leika án
Torrey John, Ómars Sigmarssonar
og Lárusar D. Pálssonar, sem allir
voru meiddir, svo og var óvíst hvort
Sverrir Þór Sverrisson yrði með
vegna veikinda, og munar um
minna, þar sem hér er um að ræða
fjóra lykilmenn í liðinu.
ísfirðingar hafa vafalítið, í ljósi
þessa og eftir stórsigur á Tinda-
stóli fyrir nokkrum dögum, talið
það nánast formsatriði að ljúka
þessum leik, en annað kom á dag-
inn.
Tindastólsmenn byrjuðu mun
betur og skoruðu fyrstu 6 stigin,
og virtust með því slá gestina
nokkuð út af laginu, spiluðu sterka
vörn og yfirvegaðar sóknir, sem
skilaði forskoti sem jókst jafnt og
þétt, á meðan ísfirðingar náðu
Grindvík-
ingar
ósigraðir
Annað toppliðanna
í erfiðleikum með ÍR
ÞAÐ var ekki að sjá á ieik lið-
anna á sunnudagskvöld að
þarna væru að spila tvö lið á
sitthvorum enda stigatöflunn-
ar. Lið ÍR kom ákveðið til leiks
og ætlaðu leikmenn liðsins
greinilega að selja sig dýrt í
þessum leik. Leikmenn
Grindavíkur virkuðu lengst af
fyrri hálfleik áhugalausir, en
tóku við sér í seinni hálfleik.
Það var ekki fyrr en á síðustu
mínútum að Grindvíkingar
tóku fram úrfrískum liðs-
mönnum ÍR.
Það var reiknað með miklum
yfirburðum heimamanna
þegar lið ÍR kom í heimsókn
til Grindavíkur. Gestimir voru þó
á öðru máli o g
Garöar Páll leiddu meirihluta
Vignisson fyrri hálfleiks. Lið
skrífar ÍR komst mest 9
stig yfir í fyrri hálfleik í stöðunni
25:34. Þá voru rúmar 4 mínútur
eftir af fyrri hálfleik. Staðan í
hálfleik var 40 stig heimamanna
gegn 43 stigum gestanna.
Það voru einungis Darryl J.
Wilson og Helgi Jónas sem héldu
heimamönnum á floti í fyrri hálf-
leik. Þeir gerðu 37 af 40 stigum
heimamanna í fyrri hálfleik og alls
70 stig í leiknum öllum. í byrjun
seinni hálfleiks tóku Grindvíkingar
við sér og náðu að komast 4 stigum
yfir um miðjan seinni hálfleik.
Bæði lið spiluðu vel á þessum tíma
og mátti vart á milli liða sjá. Þeg-
ar sex mínútur voru til loka leiks
komust Grindvíkingar sjö stigum
yfir og héldu því forskoti til leiks
loka.
Helgi Jónas og töframaðurinn
Darryl J. Wilson voru allt í öllu
hjá Grindvíkingum en í liði ÍR var
Lawrence Culver bestur ásamt
Márusi Arnarsyni.
ekki saman og áttu í verulegum
erfiðleikum með hittnina.
í þessum hluta leiksins hélt
David Bevis gestunum á floti og
bjargaði því sem bjargað varð, og
skoraði meirihluta þeirra stiga sem
þeir gerðu í fyrri hluta leiksins.
Mestur varð munur liðanna 13
stig, en ísfirðingar náðu að minnka
þann mun í 11 og leiddu heima-
menn með 37 gegn 26 stigum í
hálfleik.
Til síðari hálfleiks komu KFI-
menn sem allt annað lið, og á fyrstu
3 mínútunum náðu þeir að snúa
vöm í sókn og skoruðu 10 stig á
móti 2 heimamanna. Var nú allt
annar bragur á liðinu, og smám
saman söxuðu þeir niður forskot
heimamanna og eftir 12 mínútur
náðu þeir loks að jafna og komast
yfir í fyrsta sinn, og var það einkum
fyrir harðfylgi Davids Bevis, sem
enn sem fyrr var langatkvæðamest-
ur í liði KFÍ-manna.
Heimamenn börðust þó vel og
náðu einu sinni að jafna og kom-
ast yfir þegar rúmar 6 mínútur
voru eftir, en á lokamínútunum
tókst gestunum að ná yfirhöndinni
og knýja fram sigur.
í liði Tindastóls voru Amar og
Jose Maria bestir, Hinrik hirti
fjölda frákasta, Halldór Halldórs-
son, Skarphéðinn Ingason, ísak
Einarsson og Óli Barðdal áttu góð-
ar innkomur. Sverrir Þór gekk
greinilega ekki heill til skógar og
var ekki svipur hjá sjón.
í liði KFÍ var David Bevis lang-
bestur, raunar eini maðurinn sem
lék vel og barðist allan tímann, en
í síðari hálfleik hrukku Baldur Jón-
asson, Friðrik Stefánsson og Marc-
os Salas í gang og náðu þessir að
innbyrða sigurinn á síðustu mínút-
unum.
Borgar Þór
Einarsson
skrífar
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
SIGFÚS Gizurarson, leikmaður Hauka, nær knettinum undir
kðrfu liðsins. Óskar Kristjánsson, KR-ingur, grípur í tómt.
Taugar
Hauka
sterkarl
Sigurganga Hauka í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik heldur
áfram. Þeir sigruðu þeir KR-inga í
fyrrakvöld eftir
hörkuleik og fram-
lengingu, 85:78.
Hetja Hauka í leikn-
um var Ingvar Guð-
jónsson, sem jafnaði
leikinn á síðustu stundu með ævin-
týralegri þriggja stiga körfu.
KR-ingar komu ákveðnari til leiks
og höfðu undirtökin framan af. Lyk-
ilmenn Hauka virtust ekki ná sér á
strik og náðu KR-ingar átta stiga
forystu, 10:18, En Haukamir náðu
þó að rétta úr kútnum og var það
fyrst og fremst góður leikur Péturs
Ingvarsson og Sherricks Simpsons,
sem hélt Haukum inni í leiknum. í
síðari hálfleik skiptust liðin á að
hafa forystu og leikurinn var algjör-
lega í járnum. Haukar lentu í mikium
villuvandræðum og misstu tvo leik-
menn af velli með fimm villur.
A síðustu mínútu leiksins stigu
leikmenn hinn alkunna darraðar-
dans og virtist sigurinn geta fallið
hvorum megin sem var. KR-ingar
höfðu þriggja stiga forystu fimm
sekúndum fyrir leikslok þegar hinn
ungi Ingvar Guðjónsson tók lang-
skot úr mjög erfiðri stöðu og allt
ætlaði um koll að keyra í íþróttahús-
inu þegar knötturinn smaug í gegn-
um körfuhringinn. í framlenging-
unni voru taugar Hauka sterkari
og KR-ingar sáu aldrei til sólar,
lokatölur 85:78.
Þrátt fyrir sigurinn var frammi-
staða Hauka ekki góð lengi leiks.
En liðið virtist ná saman á ögur-
stundu í lokin. KR-ingar léku afar
skynsamlega framan af og virtust
hafa góð tök á leiknum. En þeir stóð-
ust ekki álagið undir lokin og köst-
uðu frá sér sigrinum. Bestir í liði
KR voru þeir Ingvar Ormarsson og
Kevin Tuckson.
Sætur sigur Borgnesinga
Ingimundur
Ingimundarson
skrífar
LEIKUR Borgnesinga og ná-
granna þeirra af Skipaskaga í
úrvalsdeildinni hafa yfirleitt
verið jafnir og spennandi. Leik-
urinn á sunnudaginn var þar
engin undantekning. Mikil bar-
átta var allan tímann en undir
lokin tókst heimamönnum að
vinna upp forskot ÍA og knýja
fram sigur91:89.
Fyrstu sóknimar voru ómarkviss-
ar og rannu út í sandinn en
gestimir vora fyrri til að skora.
Heimamenn vora of
ákafír, óöraggir og
hittu illa. Skaga-
menn léku vel saman
og vörn þeirra var
sterk. Bernards Gamer í liði Skalla-
gríms var vel gætt og oft brotið illa
á honum en ekkert dæmt. Gestimir
vora alltaf undan að skora. Komust
þeir mest sjö stig yfir. Staðan í
hálfleik var 41:48.
Allt annað var að sjá til liðs Skal-
lagríms eftir hlé. Tómas Holton
þjálfari og leikstjómandi róaði sína
menn. Meiri þolinmæði gætti í sókn-
arleiknum en hægt gekk lengi vel.
Um miðjan síðari hálfleikinn höfðu
gestirnir náð 10 stiga forystu, 55:65
og útlitið að dökkna fyrir Skalla-
grím. Þegar sjö mínútur vora eftir
hafði staðan enn versnað í 61:73.
En þá kom góður kafli hjá heima-
mönnum. Gretar Guðlaugsson kom
Skallagrími í fyrsta sinn yfir þegar
rúmar þijár mín. voru eftir í 76:75.
Baráttan var ógnþrungin síðustu
mínúturnar. Leikmenn ÍA léku
vörnina út um allan völl og fengu
á sig fjölda villna. En vítahittni
heimamanna var í lágmarki. Bragi
Magnússon fór af leikvelli með
fimm villur er tvær mín. lifðu af
leik. Tómas Holton fékk víti þegar
ellefu sek. voru eftir. Hann hitti
úr þeim báðum og gestunum tókst
ekki að skora áður en leiktíminn
rann út og Skallagrímsmenn unnu
Ieikinn. Var það sætur sigur því
síðast þegar liðin léku í Borgarnesi
unnu Skagamenn.
„Við vorum ekki nógu þolinmóðir
í fyrri hálfleik og lengi vel í síðari.
Skagamenn spila mjög agaðan bolta
og góða vörn. En þetta kom þegar
við lékum betur saman í sókninni
og lögðum okkur fram í vörninni,"
sagði Tómas Holton glaður að leik
loknum.
Hjá heimamönnum fór Bragi
Magnússon á kostum, sérstaklega í
fyrri hálfleik. Hlynur Lind Leifsson
átti góða spretti. Tómas Holton
brást ekki og stjórnaði liðinu af ör-
yggi þegar mest á reyndi. Bemard
Gamer fékk lítinn frið en gerði góða
hluti og Gretar Guðlaugsson gefst
aldrei upp.
Alexander Ermolinskij stjórnaði
lið sínu eins og herforingi. Damon
Johnson er frábær leikmaður og
gerði fallega hluti. Dagur Þórisson
átti góðan leik sérstaklega í fyrri
hálfleik. Þá sýndi Sigurður Elvar
Þórólfsson gamalkunna spretti.
Njarðvíkursigur fyrir norðan
Þórsarar veittu Njarðvíkingum
allnokkra mótspyrnu í leik lið-
anna á Akureyri. Vissulega hafa
Njarðvíkingar yfirleitt verið með
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
sterkari hóp en nú í vetur en Þórsar-
ar sýndu líka batamerki frá síðasta
leik. Þeir höfðu framkvæði í leiknum
lengst áf í fyrri hálf-
leik en þeir réðu ekk-
ert við Petey Sess-
oms sem skoraði 42
stig fyrir UMFN og
var maðurinn á bak við sigur þeirra.
Lokatölumar fyrir norðan urðu
86:102.
Það hefur verið sagt um Þórsara
að ef 3-4 lykilmenn liðsins ná sér
vel á strik geti þeir velgt hvaða liði
sem er undir uggum. Iðulega hafa
aðeins tveir verið áberandi í einu í
vetur en nú vora það þrír sem náðu
sér á strik, Hafsteinn Lúðvíksson,
Sigurður Sigurðsson og Jo Jo Cham-
bers. Reyndar skoraði Jo Jo lítið
undir körfunni, stig hans komu úr
teignum og fyrir utan þriggja stiga
línuna. Þórsarar höfðu forystu
fyrstu 12 mínútumar en þá jöfnuðu
Njarðvíkingar og mjökuðust fram
úr með Sessoms og Jón Júlíus Árna-
son í broddi fylkingar.
Þórsarar hófu síðari hálfieik af-
leitlega og staðan breyttist fljótlega
úr 37:44 í 41:57. Mikil orka fór í
það að vinna upp 16 stiga forskot
en með baráttu tókst Þórsuram að
skera það niður í 7 stig, 59:66. Eft-
ir það skildu leiðir, aðallega fyrir
tilverknað Sessoms, og munurinn í
lokin var 16 stig. Njarðvíkingar
þokast því aðeins upp á við en með-
an menn á borð við Teit Orlygsson
og Friðrik Ragnarsson leika ekki
betur getur liðið ekki gert sér vonir
um að vera í toppbaráttunni. Þór
heldur áfram að kljást við Val og
ÍR á botninum.
Edwin
Rögnvaldsson
skrifar
„Stigin vaxa ekki á trjám“
Sigur íslandsmeistaranna úr
Keflavík á nýliðum Vals í lé-
legum leik var öruggur. Lokatölur
urðu 93:76, en þær
segja ekki alla sög-
una. Er gengið var
til búningsherbergja
í leikhléi höfðu
heimamenn eins stigs forskot, en
það hvarf nær jafnóðum og blásið
var til leiks að nýju eftir hlé.
„Sigurður [Ingimundarson, þjálf-
ari] tók þá ákvörðun að leyfa vara-
mönnunum að spila meira en venju-
lega í þessum leik. Einhvern tíma
verða þeir að byija á því. Það var
gott að fá stigin, því við höfum tap-
að nokkram leikjum upp á síðkast-
ið. Stigin vaxa ekki á tijám,“ sagði
Falur Harðarson, leikstjórnandi
meistaranna.
Valsmenn höfðu í fullu tré við
einkar mistækt lið Keflavíkur fyrir
hlé. í síðari hálfleik kom getumunur
liðanna í ljós. Keflvíkingar eru ein-
faldlega með betra lið en Valur, á
öllum sviðum. Valsmönnum tókst
ekki að skora í tæpar fimm mínútur
og meistararnir sigldu framúr fyrir
vikið. Hafði varnarleikur Keflvík-
inga þar nokkur áhrif, en gestimir
beittu á köflum pressuvöm allan
völlinn - í bland við hefðbundna
vöm maður gegn manni.
Frammistaða Keflvíkinga var
ekki minnisstæð. Kristján Guð-
laugsson og Dana Dingle voru einna
skástir, en Guðjón Skúlason átti
ágætan síðari hálfleik. í liði Vals
vora þeir Warren Peebles og Brynj-
ar Karl Sigurðsson bestir.