Morgunblaðið - 14.11.1997, Page 1

Morgunblaðið - 14.11.1997, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA ■ ) JRorjjimdMðíúi) c 1997 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 BLAÐ KtÉ>: £ mt Hilmar fer til Tromsö HILMAR Björnsson, knatt- spyrnumaður með KR, hefur ákveðið að ganga að tálboði norska félagsins Tromsö og Jeika með þvi næstu tvö árin. Frá þessu var gengið í gær, en Hilmar hefur undanfarnar vikur átt í samningaviðræðum við félagið. Hilmar er Qórði leikmaður úr byrjunarliði KRá sl. sumri sem gengur norsku Jiði á hönd. Hinir eru Bryiýar Björn Gunn- arsson, Óslsar Hrafn Þorvalds- son og Ríkharður Daðason. Hilmar hefur undanfarin tvö ár verið útsendingasljóri á Stöð 2 og sagðist hann liafa fengið tveggja ára leyfí frá því starfí á meðan á Noregsdvöl- inni stendur. Þorbjöm fylgist með Wuppertal-tríóinu ÞORBJÖRN Jensson, landsliðs- þjálfari í handknattleik, er nú staddur í Þýskalandi til að fylgj- ast með landsliðsmönnunum sem leika þar og þá sérstak- lega Wuppertal-tríóinu - Geir Sveinssyni, Ólafi Stefánssyni og Degi Sigurðssyni, sem eru lykilmenn landsliðsins. að má með sanni segja að ég sé að lengja undirbúninginn fyrir hina þýðingarmiklu leiki við Júgóslavíu í Evrópukeppninni, að vera með strákunum, ræða við þá, fylgjast með þeim á æfingum og í leikjum," sagði Þorbjörn, sem sá Wuppertal leika gegn Wallau-Mass- enheim. „Strákarnir stóðu sig vel, léku sterkan varnarleik. Þá lék Geir vel á línunni og Ólafur var ógnandi í sókninni, skoraði sjö mörk. Vöm Wuppertal var sterk í fyrri hálfleik og var liðið þá yfir, 10:8, en Wallau-Massenheim gerði út um leikinn á heimavelli í seinni hálfleik, 26:20,“ sagði Þorbjörn, sem er hrifmn af nýliðum Wupper- tal. „Liðið er sterkt, með marga góða einstaklinga. Það á eftir að styrkjast." Þorbjörn var í gærkvöldi á æf- ingu með Wuppertal-liðinu undir stjórn Viggós Sigurðssonar, einnig á fundi þar sem farið var yfir leik Essen-liðsins, sem Wuppertal mætir á laugardaginn. Með Essen leikur Patrekur Jóhannesson. Landsliðið mætir Júgóslavíu í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 26. nóvember og heldur síðan á föstudegi til Júgóslavíu og leikur í Padgrorica sunnudaginn 30. nóv- ember. „Við gerum okkur grein fyrir þýðingu leikjanna gegn Júgó- slavíu og erum ákveðnir i að ganga hreint til verks - ætlum okkur ekk- ert annað en sigur í Reykjavík og tryggja okkur rétt til að leika í loka- keppninni á Ítalíu,“ sagði Þorbjörn. Landsliðshópurinn kemur saman sunnudaginn 23. nóvember, en Pat- rekur daginn eftir. „Við fáum því þrjá daga til að gera okkur klára i slaginn og ætlum okkur að nýta þá vel,“ sagði Þorbjörn Jensson. Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson WUPPERTAL-tríólð Gelr Sveinsson, Dagur Slgurðsson og Ólafur Stefánsson, lykllmenn f lands- llðlnu, ásamt þjálfara sínum, Vlggó Slgurðssynl. Stoke villfá Kristján ENSKA 1. deildar liðið Stoke City vill fá Akureyringinn Kristján Sigurðsson i sínar herbúðir, en hann hefur stað- ið sig nyög vel í leikjum með unglingaliði liðsins að undan- förnu. Kristján, sem varð 17 ára 10. október, er bróðir Lárusar Orra Sigurðssonar, fyrirliða Stoke - og hann er varnarleikmaður eins og stóri bróðir. Pabbi þeirra, Sigurður Lárusson, var mið- vörður - lék með landsliðinu og var fyrirliði eins sigursæl- asta liðs ÍA. Morgunblaðið hefur áreiðanlegar heimildir fyrir þvi að Stoke hafi gert Krist- jáni átján mánaða tilboð og það tilboð er nú á leiðinni til KA, liðsins sem Kristján lék með sl. keppnistímabil. Chic Betes, knattspyrnu- stjóri Stoke, vonast eftir að Kristján skrifi undir samn- inginn fljótlega í næstu viku, en hann hefur verið nyög ánægður með framgöngu Kristjáns. HANDKNATTLEIKUR SJÓNVARPSÚTSENDINGAR: NBA FÆR UM 184 MILUARÐA KRÓNA / C4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.