Morgunblaðið - 25.11.1997, Side 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
JttorgunMaMii
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 25. nóvember 1997
Blað d
markaður
FASTEIGNAVIÐSKIPTI eru
nú lífleg, segir Grétar J. Guð-
mundsson í þættinum Markað-
urinn. Það er mikilvægt fyrir
markaðinn, að áfram verði boð-
ið upp á jafn góða lánamögu-
leika og í boði hafa verið að
undanförnu. / 4 ►
Stjórn
hitakerfa
LAGNAFÉLAG ÍSLANDS efnir
til ráðstefnu í Perlunni nk.
fímmtudag, en þar verður m. a.
fjallað um stjórntæki fyrir hita-
kerfí og í kjallara Perlunnar
verður sýning. I þættinum
Lagnafréttir er fjallað um
þessa ráðstefnu. / 28 ►
Ú T T E K T
Skúlagata
breytir
um svip
AHORNI Skúlagötu og
Snorrabrautar, þar sem
Málningarverksmiðjan
Harpa stóð áður, hefur bygg-
ingafyrirtækið Viðar hf. hafið
miklar framkvæmdir, en þar
eiga að rísa þrjú 6-8 hæða fjöl-
býlishús og stór skrifstofu- og
þjónustubygging.
I fyrsta áfanga verða byggð
tvö fjölbýlishús, annað með 19
fbúðum en hitt með 21 íbúð.
Gert er ráð fyrir, að þær verði
tilbúnar til afhendingar í nóv-
ember á næsta ári, en þeim
verður skilað fullbúnum. Skrif-
stofubyggingin verður á íjór-
um hæðum og með tveimur
stigahúsum fyrir utan bíla-
kjallara og öll hin vandaðasta.
Byrjað verður að grafa fyrir
þessari byggingu eftir áramót.
Hver hæð hennar er um 860
ferm., nema efsta hæðin, sem
er um 650 ferm., en hún er
inndregin og með geysilegu
útsýni. AIIs er stærð bygging-
arinnar um 3.200 ferm. Undir
henni er þar að auki gert ráð
fyrir bílakjallara og geymsl-
um. Vandað verður til bygg-
ingarinnar, en hún verður ein-
angruð að utan og klædd með
viðhaldsfríium múrklæðning-
um eða plötuklæðningum.
Að sögn Viðars Daníelsson-
ar, framkvæmdastjóra Viðars
hf., nemur heildarkostnaður
við þessar byggingafram-
kvæmdir um 900 millj. kr.
/ 16 ►
Fleiri sækja um hús-
bréfalán til endurbóta
í LOK október voru innkomnar
umsóknir um húsbréf mun meiri
en á sama tíma í fyrra, bæði að því
er varðar notað íbúðarhúsnæði og
nýbyggingar. Þetta gefur mikla
vísbendingu um umsvifín á fast-
eignamarkaðnum á þessu ári.
Mest er aukningin í umsóknum
vegna nýbygginga einstaklinga,
sem stafar sennilega af því, að
byggingaraðilarnir eru að skila af
sér íbúðum í fjölbýli, sem kaup-
endurnir taka sjálfír húsbréfalán
út á.
Þetta kann líka að benda til
meiri áhuga á nýju sérbýli, eink-
um raðhúsum, sem mikil eftir-
spurn er eftir nú, en þau eru að
verulegu leyti byggð á vegum ein-
staklinga.
Atvinnuástand í byggingariðn-
aði er nú gott og jafnvel vöntun á
mönnum. Auk meiri nýbygginga
eru umsvif í endurbótum og við-
haldsverkefnum nú greinilega
meiri en áður. Þannig var 17%
aukning í októberlok í umsóknum
um húsbréfalán vegna endurbóta
miðað við sama tímabil í fyrra.
Þetta kann vel að eiga rót sína að
rekja til batnandi efnahags en
einnig til vaxandi vitundar fólks
um, að nauðsynlegt er að halda
húseignunum við.
Samþykkt skuldabréfaskipti
vegna viðhalds og endurbóta voru
aftur á móti 11% minni. Skýringin
er sú, að þessar umsóknir eru þá
fyrst samþykktar, þegar 80% af
framkvæmdunum er lokið.
Þrátt fyrir meiri umsvif á mark-
aðnum er húsbréfaútgáfan nánast
sú sama og í fyrra. Sennilegasta
skýringin er sú, að þeim íbúðum
og húseignum fer nú stöðugt fjölg-
andi, sem búið er að taka hús-
bréfalán út og við eigendaskipti
yfirtekur kaupandinn lánin.
Athygli vekur, að vanskil í hús-
bréfakerfinu hafa minnkað. Fjöldi
lántakenda í vanskilum var 5.395
hinn 1. júlí sl. eða um 9,1% lántak-
enda, en um 9,6% lántakenda voru
í vanskilum um síðustu áramót.
Afgreiðslur í húsbréfakerfinu
í jan.- okt. 1997
breyting frá sama
tímabili 1996
Innkomnar umsóknir
Notað húsnæði
Breyting
jan.-okt.
1997/1996
+10,81%
Endurbætur +17,09%
Nýbyggingar einstaklinga +27,69%
Nýbyggingar byggingaraðila +8,77%
Samþykkt skuldabréfaskipti
Notað húsnæði - fjöldi +8,27%
Notað húsnæði - upphæðir +6,06%
Endurbætur - fjöldi -11,11%
Endurbætur - upphæðir +1,27%
Nýbyggingar einstaklinga - fjöldi +15,00%
Nýbyggingar einstaklinga - upphæðir +23,49%
Nýbyggingar byggingaraðila - fjöldi +1,95%
Nýbyggingar byggingaraðila - upphæðir +5,39%
Samþykkt skuldabréfaskipti alls - upphæð +10,93%
Útgefin húsbréf
Reiknað verð +0,78%
Fasteiginatón
F^árvangs
Dæmi um mánaðariegar afboiganir af
1.000.000 kr. Fasteignaláni Fjárvangs*
\fortir(%) 10 ár 15 ár 25 ár
7,0 11.610 8.990 7.070
7,5 11.900 9.270 7.500
8,0 12.100 9.560 7.700
Miðað er við jafngreiðslulán.
*Auk verðbóta
[TF’’
FJÁRVANGUR
LOGGIIT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI
Laugavegi 170,105 Reykjavík, sími 540 50 60, símbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is
Kynntu þér kosti
Fasteignalána
Fjárvangs hjá
ráðgjöfum Fjárvangs
ísima 5 40 50 60