Morgunblaðið - 25.11.1997, Blaðsíða 16
16 D ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Stórbygg-
ingar við
Skúlagötu
Hafnar eru framkvæmdír vlð 63 íbúðir og
3.500 ferm. skrifstofu- og þjónustubygg-
inffu við Skúlagötu. Þar er að verki bygg-
ingarfyrirtækið Viðar hf. Magnús Sigurðs-
son kynnti sér framkvæmdirnar.
BYGGINGARNAR munu rísa á horni Snorrabrautar og Skúlagötu. Þar verða byggð þrjú 6-8 hæða fjölbýlis-
hús með 63 íbúðum á lóð sunnan Skúlagötu en á lóðinni fyrir norðan götuna reisir Viðar hf. þar að auki 3.500
ferm. skrifstofu- og þjónustubyggingu, sem verður á fjórum hæðum og með tveimur stigahúsum fyrir utan
bðakjallara. Hönnuðir bygginganna eru arkitektarnir Ævar Harðarsson, Ólöf Flygenring og Jon Nordstein
hjá teiknistofunni Þrír arkitektar ehf.
SKÚLAGATAN í Reykja-
vík er stöðugt að breyta
um svip. Á undanfornum
árum hafa risið þar vold-
ugar byggingar, sem setja mikinn
svip á umhverfí sitt. Og enn er þar
verið að byggja. Á horni Skúlagötu
og Snorrabrautar, þar sem Málning-
arverksmiðjan Harpa stóð áður, hef-
ur byggingarfyrirtækið Viðar hf.
hafið miklar framkvæmdir, en þar
eiga að rísa þrjú glæsileg 6-8 hæða
fjölbýlishús fyrir utan ris og stór 4ra
hæða skrifstofu- og þjónustubygg-
ing.
I fyrsta áfanga verða byggð tvö
fjölbýlishús og er annað með 19 íbúð-
um, en hitt með 21 íbúð. Gert er ráð
fyrir, að þær verði tilbúnar til af-
hendingar í nóvember á næsta ári,
en þeim verður skilað fúllbúnum.
Þriðja fjölbýlishúsið verður svo
byggt síðar á sömu lóð, en í því verða
23 íbúðir. Samtals eru þetta því 63
íbúðir.
íbúðarbyggingarnar standa á lóð
sunnan Skúlagötu en á annarri lóð
fyrir norðan götuna reisir Viðar hf.
þar að auki 3.500 ferm. skrifstofu- og
þjónustubyggingu, sem verður á
fjórum hæðum og með tveimur
stigahúsum fyrir utan bílakjallara og
öll hin vandaðasta. Byrjað verður að
grafa fyrir þessari byggingu eftir
áramót.
>H®tlunin er að ljúka við þá bygg-
ingu seinni hluta næsta sumars, en
húsnæði í henni verður selt klætt og
einangrað að utan en fullbúið til inn-
réttinga að innan,“ segir Viðar Daní-
elsson, byggingameistari og fram-
kvæmdastjóri Viðars hf.
Framkvæmdir upp
á 900 millj. kr.
Viðar Daníelsson er enginn ný-
græðingur í byggingastarfsemi.
Hann stofnaði byggingafyrirtækið
Viðar hf. fyrir fimmtán árum og hef-
ur rekið það síðan, en áður hafði
hann dvalizt í fjórtán ár í Svíþjóð,
þar sem hann vann við húsbygging-
ar, þar af sjálfstætt í tólf ár.
Heildarkostnaður við fyrirhugaðar
byggingaframkvæmdir við Skúla-
götu nemur um 900 millj. kr. að sögn
Viðars. „Byggingarnar rísa á mjög
áberandi stað og eiga vafalítið eftir
að setja mikinn svip á umhverfi sitt,“
segir hann. „Útlit þeirra skiptir því
miklu máli. Sjálfur tel ég, að útlits-
hönnun þeirra og öll hönnun í heild
hafi tekizt mjög vel, en hönnuðir eru
arkitektamir Ævar Harðarsson,
Ólöf Flygenring og Jon Nordstein
hjá teiknistofúnni Þrír arkitektar
ehf. Þetta er líka mikill útsýnisstað-
ur. Útsýnið yfir sundin og til Esj-
unnar er einstakt og gefur staðnum
mikið gildi.
Skrifstofu- og þjónustubyggingin
stendur á norðurhluta lóðarinnar til
þess að lóðin nýtist sem bezt og
jafnframt skapast aðkomusvæði og
bílastæði við Skúlagötu. Byggingin
er mynduð af fjórum einingum.
Gert er ráð fyrir tveimur aðalinn-
göngum og verður annar á miðri
suðurhlið og hinn á austurhlið. í
tengslum við innganga verða stiga-
hús og lyftur.
Við Sæbraut er gert ráð fyrir jarð-
vegsmön sem hlíf fyrir umferð-
arniðnum. Sú hlið byggingarinnar,
sem snýr að Sæbraut, verður með
bogadregnu formi. Byggingin verður
þeim mun meira áberandi sökum
þess, að hún verður eins konar út-
vörður Skúlagötusvæðisins í norðri.
Um leið myndar hún mótvægi við
háreistar íbúðarbyggingamar við
vesturenda svæðisins.
Vandað verður til byggingarinnar,
en hún verður einangruð að utan og
klædd með viðhaldsfríium múr-
klæðningum eða plötuklæðningum.
Þakið verður svo klætt læstum
málmklæðningum með lágmarks
þakhalla. Salarhæð í byggingunni
verður 3 til 3,2 metrar, en innveggir
að mestu léttir hljóðdeyfandi grind-
arveggir klæddir gifsplötum eða
spónaplötum, sem auðvelt og einfalt
er að breyta og færa til. Loft í skrif-
stofúherbergjum og og á miðsvæð-
um verða niðurtekin og klædd kerf-
isloftum, en gólf verða steinsteypt og
pússuð. í anddyrum eru flísar.
Inni í byggingunni er gert ráð fyr-
ir, að skrifstofúherbergi liggi að út-
vegg en á miðsvæði verða gangar og
þjónusturými. Þess vegna er bygg-
ingin 15-16 metra breið. Þetta fyrir-
komulag býður upp á hagkvæmt fyr-
irkomulag, en skrifstofuherbergin
verða að jafnaði 4,2 metrar á dýpt og
3 metrar á breidd eða um 12,5 ferm.
að stærð. Fyrirkomulagið gerir þó
ráð fyrir einkaskrifstofúm af
nokknim stærðum eftir óskum not-
enda.
Miðsvæðið verður um 6 metrar að
breidd. Þar er gert ráð fyrir tvöfoldu
gangasvæði, salernum, geymslum,
(f
Félag Fasthgnasala
Opið 9-18
jjf
FASTEIGNASALAISLANDS
—
Haukur Geir Garðarsson
viðskiptafræðingur og
löggiltur fasteignasali
SUPU RLAN DSBRAUT 12 • SIAAI 588 5060 • FAX 588 5066
Opið laugardag
kl. 12.00 - 14.00
Þjónustuíbúðir
SKÚLAGATA 40 - BÍLSK. Fai
leg 2ja herb. þjónustuíbúð fyrir eldri
borgara í þessu vinsæla lyftuhúsi. Góð
sameign með m.a. sauna. Bilskýli. Verð
7,3 millj.
2ja herbergja
MIÐBÆR - NY Vorum að fá í sölu
fallega 2ja herb. tbúð á 4. hæð í nýlegu
lyftuhúsi í miðbæ Reykjavíkur. Parket.
Fallegar innréttingar. Ib. er nýmáluð. Áhv.
um 4,4 millj. húsbréf m. 5% vöxtum.
LAUS FUÓTLEGA. Verð 6,7 millj.
SELTJARNARNES Mjög góð og
björt 2ja herb. risíb. í fjórbýli við Mela-
braut. Suðursvalir. Áhv. 1,8 millj. langt.
lán. Verðtilboð.
HRAUNBÆR Góð 2ja herb. íb., 60
fm á 2. hæð í fjölbýli. Suðursvalir. Fallegt
útsýni. BEIN SALA EÐA SKIPTI Á 3JA
HERB.
VESTURBÆR - LAUS Fai-
leg 2ja herb. íb. í nýl. fjölbýli. Suð-
vestursvalir. Þvottah. á hæðinni.
Stæði í bílskýli. Áhv. 1,4 millj. byggsj.
LAUS STRAX. Verð 5,3 millj.
LYNGMÓAR Glæsileg 2ja herb.
íb. á 1. h. í litlu fjölbýli á þessum vin-
sæla stað. Fallegar innréttingar. Flís-
ar og parket. Góðar suðvestursvalir.
Hús og sameign í góðu ástandi. Ákv.
sala.
í HLÍÐUNUM Falleg 2ja herb.
íbúð, um 60 fm, á 1. hæð í fjölbýli á
þessum vinsæla stað. Vestursvalir.
Áhvíl. 2,8 millj. húsbr. Verð 5,6 miilj.
LYNGMÓAR - GBÆ Falleg 3-4ra
herb. íb. á 1. hæð í litlu fjölb. með innb.
bflskúr. Suðursvalir. Verð 7,8 millj.
AUSTURSTRÖND - BÍLSK.
Mjög falleg og vönduð 3ja herbergja
íbúð ofariega í lyftuhúsi. Parket. Útsýni.
Bílskýli. Verð 8,0 millj.
GERÐHAMRAR Falleg 3ja
herb. neðri sérhæð f tvíbýli í nýlegu
húsi. Sérgarður. Frábær staðsetning
i rólegu hverfi. Áhv. 4,4 millj. hús-
bróf. Verð 7,2 millj.
VALLARAS - LAUS Falleg 3ja
herb. íb. á 4. hæð í lyftuhúsi. Vestursval-
ir. fb. er nýmáluð. Laus. Verð 6,8 millj.
HRAUNBÆR Falleg 3ja herb. íbúð
á jarðhæð í litlu fjölbýli. Nýleg eldhúsinn-
rétting. Vesturverönd. Hús klætt að utan
að hluta. Áhv. 2,8 millj. Verð 6,3 millj.
LEIRUBAKKI Góð 3ja herb. íbúð á
1. hæð í fjölbýli. Þvottah. í íb. Suðursval-
ir. Áhv. 3,5 millj. húsbréf. Verð 6,4 millj.
KÓPAVOGUR Góð 98 fm,3 ja
herb. ib. á jarðh. með sórinngagni i þri-
býli. Failegt útsýni. Verð 6, 8 millj.
FELLSMÚLI Mjög góð 3ja herb. ib.
í góðu fjölbýli. Nýl. eldhúsinnrétting.
Parket. Verö 6,7 millj.
ÁSTÚN - KÓP. Glæsileg 2ja her-
bergja endaibúð á 3. hæð í nýlegu vin-
sælu fjölbýli. Vestursvalir. Fráb. útsýni.
Þvottah. á hæðinni. VÖNDUÐ fBÚÐ
FYRIR VANDLÁTA
BLÖNDUBAKKI Falleg 3ja
herb. Ib. á 1. hæð i góðu fjölbýli.
Góðar innréttingar. Parket á eldh. og
herb. Suðursvalir. Verð 6,5 millj.
VESTURBÆR Góð lítil 2ja herb.
íbúð á jarðhæð í steyptu fjórbýli. Sérinn-
gangur. Verð aðeins 2,7 millj.
HAFNARFJORÐUR - 5
HERB. Falleg 5-6 herb. endaíb. á
3. hæð í litlu fjölb. Stofa, 4 svefn-
herb. Þvottaherb. inn af eldh. Suður-
svalir. Góður endabílskúr. Verð að-
eins 8,3 millj.
FURUGRUND Falleg 2ja herb.
íbúð á 3. hæð í litlu fjölb. við Fossvogs-
dalinn. Góð lán. Verð 5,4 millj.
3ja herbergja
ENGIHJALLI - GÓÐ ÍBÚÐ
Mjög góð 3ja herb ib., 90 fm, á 3. hæð í
góðu fjölbýli. Suöur- og austursvalir.
Þvottahús á hæðinni. Hús endumýjað að
utan. Verð 6,3 millj.
LUNDARBREKKA
LÆKKAÐ VERÐ Falleg 4ra
herb. ib. á jarðhæð með sérinngangi
í litiu fjölb. Nýl. parket og flísar á
gólfi. Hús nýl. viðgert og málað.
LAUS STRAX. ÓTRÚLEGT VERÐ,
AÐEINS 6,5 millj.
VESTURBERG Góð 4ra herbergja
ibúð á 4. hæð i verðlaunahúsi. Nýl. eld-
húsinnr. og á baði. Vestursvalir. Glæsi-
legt útsýni m.a. Snæfellsjökull. Stutt í
skóla og þjón. Laus fljótlega. Verð 7,2
millj.
SELJAHVERFI - SKIPTI Á
2JA Góð 4ra herbergja íbúð, um 100
fm, á 1. hæð ásamt stæði í bílskýli.
Þvottaherbergi inn af eldhúsi. BEIN
SALA EÐA SKIPTI Á 2JA EÐA 3JA
HERB. LAUS STRAX. MJÖG GOTT
VERÐ: 6,9 millj.
HVASSALEITI - BÍLSKÚR
Góð 4ra herb. íb. á 3. hæð í fjölbýli
ásamt bílskúr. Góð staðsetning.
HRAUNBÆR Góð 4ra herb. íb. á 2.
hæð í fjölbýli sem nýl. er búið að taka i
gegn að utan. Þvottah. í íb. Suðursvalir.
Verð 6,8 millj.
HRÍSMÓAR - GBÆ Falleg 3-4
herb. íb. á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði
í bílskýli. Stórar svatir. Þvottahús á hæð-
inni. Hús nýl. tekið í gegn að utan. Áhv.
5,2 millj. langtl. Verð 7,8 millj.
GARÐABÆR - BÍLSKÚR
Glæsileg 4ra herb. íb. á 2. hæð ( litlu
qölb. Innb. bílskúr. Verð 9,5 millj.
FURURGRUND - KÓP. Falleg
3ja herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýli sem
nýlega er tekið í gegn aö utan. Áhvíl. 2,5
millj. byggsj. rik. Verð 6,5 millj.
4-6 herbergja
STELKSHÓLAR - LÍTIÐ
ÚT Falleg 5 herb. íbúð á 2. hæð í
litlu fjölb. Stofa m. stórum suð-
ursvölum, 4 svefnherbergi. Parket.
Bamvænt hverfi. Áhvíl. 5,6 millj. góð
langt. lán. Verð aðeins 7,5 millj.
Hæðir
HEIÐARHJALLI - KÓP.
Glæsileg 5 herb. efri sérhæð ásamt
bilskúr. Frábært útsýni. Afh. fljótlega
tilbúin til innréttinga að innan og
fullb. utan. Teikn. á skrifstofu.
Einbýli-parhús-raðhús
HÓLAR - BÍLSKÚR Góð 4ra
herb. íb. á 2. hæð m. sérinngangi af
svölum. Suðursvalir úr stofu. BILSKÚR.
Verð 7,5 millj.
VIÐ HÁALEITI - LAUS Falleg
4-5 herb. íbúð, 117 fm á 3. hæð í mjög
góðu fjölbýli sem er klætt að utan að
hluta. Stórar stofur, vestursvalir. LAUS
STRAX, LÆKKAÐ VERÐ.
FOSSVOGUR - SKIPTI
Fallegt raðhús á þessum eftirsótta
og vinsæla stað, 195 fm ásamt bíl-
skúr. Parket á gólfum. Sauna. Suð-
ursvalir. Hús nýiega málað að utan.
BEIN SALA EÐA SKIPTIÁ ÓDÝRARI
EIGN.
I smíðum
GRUNDARSMÁRI - KÓP.
Einbýli á 2 hæðum með mögul. á
séribúð á jarðhaeöinni. Afh. fljótl.
fokh. að innan og fullbúið að utan.
Teikningar á skrifst.
DOFRABORGIR Glæsileg raðhús
um 170 fm á 2 hæðum m. innb. bílskúr,
tengjast saman á skjólveggjum. Afh. fok-
helt að innan eða tilbúin til innréttinga.
Verð frá kr. 7.500.000.-
FLETTURIMI 3ja og 4ra herb. íb. á
jh., 1. og 2. hæð í nýju litlu fjölb. Afh.
strax tilbúnar til innr. og fullbúnar að ut-
an. Möguleiki á stæði í bílskýli. SKIPTI
MÖGULEG. Teikn. á skrifstofu.
Atvinnuhúsnæði
HERBERGI Til leigu strax 2
samliggjandi um 20 fm skrifstofu-
herbergi. Leigjast saman eða í sitt
hvoni lagi. Aðgangur að eldhúsi og
snyrtingu. Nýmálað, nýtt parket.
Uplpl. á skrifst.
MIÐBORGIN -TIL LEIGU ! r,i
leigu um 100 fm húsnæði á 1. hasð og
um 70 fm húsnæði á 2. hæð í góðu
steinhúsi miðsvæðis í Rvk. Sérbílastæði.
Laust fljótlega. Sanngjöm leiga. Hentugt
t.d. fyrir arkitekta, verkfræðinga, auglýs-
ingafólk eða smáheildsölu.
HAMRABORG - KÓP. Tii leigu
mjög gott skrifstofu eða þjónustuhús-
næði á 2. hæð í góðu húsi. Nánari uppl á
skrifstofu.
FYRIR HEILDSOLU Vorum
að fá í sölu mjög hentugt atvinnu-
húsnæði fyrir heildsölu við Dal-
brekku í Kópavogi. Um er að ræða
230 fm að grunnfleti ásamt 170 fm
millilofti sem nýtist að hluta til sem
skrifstofur. Innkeyrsluhurð rúmlr 4x4.
Ástand eignar er mjög gott. Nánari
uppl. og teikningar á skrifstofu. Laust
fljótlega. Verð 13,0 millj.
Fyrirtæki
BILLIARDSTOFA Vorum að fá í
sölu j>ekkta billiardstofu í Rvk. Stofan er í
fullum rekstri, vel staðsett og með góðan
viðskiptamannahóp. Skipti á fasteign
ath. Nánari uppl. á skrifstofu.
SKYNDIBITI Vorum að fá í sölu
góðan skyndibitastað við Laugaveg.
Rekstur á mikilli uppsveiflu, góður timi
framundan. Nánari uppl. á skrifstofu.
Landsbyggðin
NJARÐVÍK Stór, 117 fm íbúð, 4
herb. á 1. hæð í nýlegu fjölbýli ásamt 28
fm herb. í kjallara sem mögul. er að sam-
tengja ibúð. SKIPTl ATH. Á MINNI (BÚÐ,
ÓD. JÖRÐ, BÍL EÐA SUMARBÚSTAÐ.
HVERAGERÐI - SKIPTI Nýiegt
einbýli, hæð og ris um 153 fm á góðum
stað. SKIPTI ÆSKILEG A 3-4
HERBERGJA (BÚÐ í RVK. KÓP. EÐA
HAFNARF. Verð aðeins 7,5 millj.