Morgunblaðið - 16.12.1997, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 16.12.1997, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 B 3 BÆKUR í gamla daga var lífið svona BÆKUR Fræðirit MENNTUN,ÁST & SORG eftir Sigurð Gylfa Magnússon. Sagn- fræðistofnun Háskóla Islands og Háskólaútgáfan 1997,339 bls. BRÆÐUR AF STRONDUM Dagbækur, bréf, sjálfsævisaga o Jl. í samantekt Sigurðar Gylfa Magnússon- ar. Háskólaútgáfan 1997,323 bls. NOKKUÐ virðist útgáfa á bókum eftir íslenska fræðimenn vera að glæðast eftir margra ára ládeyðu, enda sífellt að verða auðveldara og ódýrara að koma fræðiritum á prent, sem betur fer. Það mun þó ekki vera algengt að einn og sami fræðimaður gefi út tvær bækur á sama árinu, en það hefur Sigurður Gylfi Magnús- son sagnfræðingur gert á þessu ári. Fyrri bókin sem hér um ræðir er rannsókn höfundar á íslensku sveitasamfélagi 19. og 20. aldar, sem hann kall- ar: Menntun, ást og sorg. Aðferð Sigurðar Gylfa kallast einsögu- rannsókn, en það heiti vísar til þess að hann vinnur með persónulegar heimildir einstaklinga og dregur út frá þeim álykt- anir um líf og samfélag á þeim tíma sem heimild- imar ná yfir. Seinni bókin tengist svo þeirri fyrri því þar er gefið út úrval þeirra heimilda sem höfundur notaði í fyrmefnda rannsókn sína. Bókin Bræður af Ströndum geymir dagbæk- ur, ástarbréf, almenn bréf, sjálfsævi- sögu, minnisbækur og samtíning úr fómm fjögurra bræðra sem fæddir em á tímabilinu 1870-1876 við Stein- grímsfjörð á Ströndum. Aðallega er þó um að ræða verk tveggja bræðr- anna: Níelsar og Halldórs Jónssona, sjálfmenntaðra alþýðumanna sem héldu dagbækur og skrifuðu bréf og ýmislegt fleira af miklum dugnaði og metnaði ámm saman. Bræður af Ströndum mun vera fyrsta bókin í fyrirhugaðri ritröð sem kallast Sýnisbók íslenskrar alþýðu- menningar. í ritröðinni er ætlunin að birta sýnishom valin úr þeim fjár- sjóði sem geymdur er í Handrita- deild Landsbókasafns íslands - Há- skólabókasafns og samanstendur af persónulegum heimildum úr fórum alþýðu manna um margra alda skeið. Ef vel gengur mun önnur bók ritrað- arinnar innihalda dagbækur Magn- úsar Hj. Magnússonar, fyrirmyndar Ólafs Kárasonar ljósvíkings, en þar er að finna margan kostulegan text- ann sem gaman verður að eiga greið- an aðgang að. Það sama má reyndar segja um texta bræðranna af Ströndum. Það er bæði áhugavert og skemmtilegt að lesa um líf alþýðumanna á Is- landi fyrir heilli öld; að kynnast því beint og milliliðalaust í gegnum per- sónulegar heimildir eins og dagbæk- ur og bréf. Nú kynnu einhveijir að vera á þeirri skoðun að vafamál sé hvort persónuleg bréf (þ.á m. ástar- bréf) og dagbækur eigi nokkurt er- indi fyrir sjónir almennings; að út- gáfa á slíku efni nálgist hnýsni og svik við höfundana sem skráðu hugs- anir sínar grunlausir um opinberun þeirra í framtíðinni. Við því er helst að svara að lítt gætum við nútíma- menn fræðst um fortíðina og lifnað- arhætti fyrr á öldum ef slíkar heim- ildir væru okkur ætíð lokaðar, og einnig má benda á að engan skaða bera höfundar þessa texta af birt- ingu þeirra, þvert á móti mun minn- ing þeirra lengi lifa. Með útgáfu þessara heimilda er reyndar á nokk- urn hátt uppfyllt ein af „lífsreglum“ Sigurður Gylfi Magnússon þeim er Halldór Jónsson setti sér: „Reyna af fremsta megni að gjöra eitthvað það, sem getur orðið eptir- komendum að liði.“ Af vandvirkni þeirri og nákvæmni sem bræðurnir á Ströndum lögðu í skriftir sínar er einnig vel hægt að álykta að þeim hafi verið fullljóst það heimildagildi sem textarnir hefðu síðar meir. Þetta gildir m.a. um sjálfsævisögu Halldórs Jónsson- ar, þar sem hann lýsir af nákvæmni hýbýlum fjölskyldunnar og leikjum þeirra bræðra, svo nefnt sé fátt eitt. Athyglisvert er einnig að bera saman dagbækur bræðranna, annars vegar, og bréf, hins vegar. Það er Ijóst að tilgangurinn með dagbókunum var annað en helst þekkist í dag, þegar dagbækur eru e.k. „trúnaðarvinir“ höfunda sinna þar sem útmálun til- finninga fer fram. í dagbókum þeim sem hér um ræðir er ekki um slíkt að ræða heldur er fyrst og fremst um lýsingu á veðri, búskaparháttum og annarri vinnu, svo og sagt frá helstu við- burðum dagsins. Bréfa- formið leyfir hins vegar meiri umfjöllun um til- finningar og líðan fólks, bæði þegar sagt er frá gleði- og sorgaratburð- um. í bókinni Bræður á Ströndum geta lesend- ur, eins og áður er sagt, kynnst lífi þessara ein- staklinga milliliðalaust, en í Menntun, ást og sorg má hins vegar lesa um þær ályktanir sem Sigurður Gylfí dregur af þessum persónulegu heimildum um íslenskt sveitasamfélag 19. og 20. aldar, og með samanburði á bók- unum tveimur geta lesendur fengið góða innsýn í vinnubrögð sagnfræð- ings - svo og vegið og metið á sjálf- stæðan hátt réttmæti ályktana höf- undar og úrvinnslu hans á efninu. Eins og titill bókarinnar bendir til leggur Sigurður Gylfi megináherslu á að lýsa annars vegar hvaða mögu- leika alþýðumenn höfðu til að mennta sig á þessum tíma, og hins vegar tilfinningalífi þeirra. Þetta tvennt tengir hann síðan saman á nýstárleg- an hátt. Tilfinningar sínar varð fólk að temja eins og kostur var, er álykt- un Sigurðar Gylfa, þar sem dauðinn var stöðugur fylgifiskur lífs alþýðu manna á þessum tíma. (Bræðumir á Ströndum voru t.a.m. níu talsins, en fimm þeirra dóu í bamæsku.) „Áföll- in vom oft stórfelld, og eins og dæm- in sanna gátu þau riðið yfir ár eftir ár. Sú nauðsyn að fólk næði tökum á tilfinningum sínum hafði í langflest- um tilfellum mikil áhrif á viðhorf fólks til lífsins og mótaði skapgerð þess.“ (Menntun, ást og sorg, bls. 214). Meðal þeirra beinu áhrifa á viðhorf fólks og skapgerð sem stöðug nálægð dauðans hafði á menn, að mati Sigurðar Gylfa, var mikil og heit löngun til mennta og almennra framfara. Sú tamning tilfinninga sem nauðsynleg var - og þá einnig í sam- bandi við ástina - leiddi til þess að: „fólk þekkti ekki þá leið að beina tilfinningum sínum inn á við vegna þeirrar vamarstöðu sem hlaust af hinni stöðugu yfirvofandi sorg. Þeim var því beint út á við, í átt að fram- kvæmdum og framförum." (Mennt- un, ást og sorg, bls. 278). Þetta em athyglisverðar og frumlegar niður- stöður og verður gaman að sjá hvort þær eigi eftir að geta af sér fjörugar umræður og frekari rannsóknir. Sú aðferð sem Sigurður Gylfi Magnússon beitir í þessari rannsókn sinni, einsöguaðferðin, mun vera ný rannsóknaraðferð í sagnfræði hér- lendis. Einsagan beinir athyglinni að einstaklingum, úr hvaða stétt sem er, og persónulegri sögu hans. Þess- ari þróun innan sagnfræðirannsókna hljóta flestir að fagna. Mannkyns- sagan er sem sagt ekki lengur bara saga kónga og hershöfðingja, eða saga stríða, félagasamtaka og at- vinnureksturs. Hún er einnig saga karla og kvenna allra stétta - og með því að skrifa þá sögu hljóta sagnfræðingar nútímans einnig að ná til breiðari lesendahóps: til karla og kvenna allra stétta. Soffía Auður Birgisdóttir Mannlífsbrot úr horfnum heimi BÆKUR Minningabók SÖNGURLÝÐVELDIS eftir Indriða G. Þorsteinsson Skjald- borg, 201 bls. Prentun og bókband: Grafík. EINHVERN veginn er Seinni heimsstyrjöldin og vera erlends herliðs bundin fast við skáldskap Indriða G. Þorsteinssonar. Efnivið- ur í bestu sögum hans er einmitt sóttur í her- mang. Nefna má í þessu sambandi 79 af stöðinni og Norðan við stríð. Oft er talað um hve stríðið setti afgerandi mark á íslenska skáldsagnagerð um miðja öldina. Sambúð þjóðar og hers hefur sett einna sterkastan svip á verk Indriða af verkum þeirra höf- unda sem þetta á við. Stríðsárin eru mótun- arár Indriða, bæði sem manneskju og höfundar. Umbreytingar Indriði G. Þorsteinsson ákvörðun Hermanns Jónassonar að hafna beiðni Stórþýskalands um lendingarleyfi hér á landi fyr- ir Lufthansa er eins frásagnar- verð og þegar Steinn Steinarr og Halldór Laxness brugðu sér inn í verslun Haraldar Árnasonar til að kaupa frakka. Ekki er víst að sagnfræðin í bókinni sé hundrað prósent því Indriði gefur skáldinu í sér lausan tauminn. Sem betur fer. Fyrir vikið hefur bókin það fágæta yfirbragð sem laðar mann að henni fljótlega aftur eftir að hafa lagt hana frá sér. Stíllinn er svo blessunarlega fjarri steingeldu dæguituði að lesandinn límist við. Þessi bók er skrifuð af svipaðri tilfinningu og bestu skáldsögur Indriða. Stíllinn er seiðandi, fjölskrúðug- ur og svo yndislega fjarri því að vera jórt- urkenndur að manni hálfbregður við. Sjálft upphaf bókarinnar er afskaplega „indr- iðskt“: „Það sem í lífs- háttum og tækni gegnsýra sögur hans og þessi skyndilega umpólun á öllum aðstæðum gefur söguper- sónum hans áður óþekkta og harmræna vídd. Þetta er rifjað upp hér vegna þess að minningabókin Söngur lýðveldis er með rætur í svipuðum tíma og bestu skáldsögur Indriða. Lýst er persónum og atburðum um miðja öldina. Höfundur fjallar um Hermann Jónasson og Jónas frá Hriflu af miklu innsæi þannig að þeir spretta ljóslifandi fram. Höfundur rekur ýmsa frásagnar- verða atburði, bæði sögulega og sögufræga. Sú afdrifaríka stráka dreymdi gerði hann fullorð- inn maður. Hann tók mig með sér, ófermdan strákinn, á svifflugsæf- ingar—“ og svo rennur sagan áfram af Karli Magnússyni, járnsmíða- meistara frá Akureyri, sem dó langt um aldur fram. Söngur lýðveldis felur í sér at- hvarf frá ýmiss konar sjálfvirkri fjölföldun þar sem tilfinningin seg- ir manni að allir séu að segja það sama. Söngur lýðveldis er valkostur fyrir þá sem vilja skoða nýlega horfinn heim með augum þess sem lifði hann, mótaðist af honum og hefur aldrei komist undan áhrifum hans. Ingi Bogi Bogason Sendill án pitsu BÆKUR Ljðð INNRÁS LILJANNA eftir Bergsvein Birgisson. Nykur, 1997 - 71 bls. LAND, þjóð og tunga eru enn hljómmiklir strengir í ljóðhörpum ungra skálda. Innrás liljanna, ljóða- bók eftir Bergsvein Birgisson, er til marks um það. Í henni fléttar höfundur saman eddulist, dans- kvæðinu og vikivakanum í sjálfum sér, kenndum sínum og ást á landi, þjóð og tungu. Bókin skiptist í fimm hluta. í þremur hlutum, Úr Sökkdölum, Á baki Miðgarðsorms og Innrás lilj- anna eru fremur stutt kvæði sem Ijalla um tilveru guðs, vonina, ýmis samfélagsmál og ýmsa tilvistarlega þætti. En í tveimur Ijóðflokkum, Blýlundarkviðu og Odáinskviðu, kannar höfundur, eins og heiti þeirra gefa til kynna, innheima, tekst á við kenndir og tilfinningar, ekki síst þungann í hjarta sér og hefst úr þeim þungu hugsunum á talsvert flug. Bergsveinn er hagur á orð, myndir og hljóm. Allir þessir kostir kveðskapar hans sameinast í smá- kvæðinu Dans þar sem fjallað er í skýrri náttúruljóðmynd um efa- semdir skáldsins um guðdóminn: Sólin hamrar skýjasteðjann rauðan Hún er að smíða kistuna utan um guð sinn dauðan Andblær kvæðanna er gjarnan í danskvæðastíl og ljóðmálið mótast af eddufræðum. Því er orðaforðinn sums staðar nokkuð fyrndur. Eigi að síður eru ljóðin víðast auðskilin þótt ef til vill megi segja um kvið- urnar tvær í lokin að ekki hefði sakað að hafa merkingu þeirra skýrari og aðgengilegri. Málið á kvæðunum er allajafnan lipurt og hljómmikið. Bergsveinn gerir sér það gjarnan að leik að sprengja upp fyrnsku málsins með líkingum og vísunum í þætti sem við tengjum einungis nútímaveruleika þannig að út úr kemur eins konar anókrónismi eða tímavilla. Þannig tekst honum að framandgera málið enn frekar og það oft á kímilegan hátt og setja hugsun sína í nýstárlegt samhengi: „kom ljóðadís / með þitt lykla- borð“, segir í einu kvæði. í öðru ljóði segir: „Hvað er hjarta? / harða akarn / sem ólmast inní / afsteypu af mér / sendill án pitsu..." Um frelsara sinn segir hann svo í prósa- ljóðinu Endurlausnin: „Ég og lundin mín vorum hér í argasta basli með sjálf okkur í setustofunni þegar loft- ið hrannaðist birtu og helgri angan og frelsarinn kom. Samkvæmt aug- lýsingunni heldur hann sig nú á heiðum eða í eyðimörkinni áður en hann kemur til manna á sínum glansandi felgum." Að jafnaði nýtast eðliskostir höf- undar betur í hinum smærri kvæð- um en í lengri og óræðari kviðum. Margt er t.a.m. sagt um náttúrusýn Bergsveins í þessari litlu blómavísu: Ég er ekki fyrir þær freku rósir sem, fylla’ allt af ilmi um sinn, en augnfró í kaldri klettaskor kalla ég vininn minn. Innrás liljanna er að mörgu leyti vel gerð bók. Andblær danskvæðis- ins gerir hana heilsteypta og stíltil- raunir höfundar gera hana skemmtilega aflestrar. Þó finnst mér að Bergsveini takist að jafnaði betur upp í smákvæðum en lengri kviðum. Skafti Þ. Halldórsson Litla gnla hænan endurskoðuð BÆKUR Ljóð LITLA GULA HÆNAN - SÍÐASTA KVÖLDMÁL- TÍÐIN eftir Apju og Björgvin ívar. Nykur, 1997. ÞAÐ má virðast bífæfni af ung- um og óreyndum höfundum að gefa út í heilli bók stytta og afbakaða sögu litlu gulu hænunnar sem árum saman var það fyrsta sem ungir íslendingar lásu um ævina. Þannig er í stuttu máli texti bókar þeirra Björgvins ívars og Auju, Litla gula hænan - Síðasta kvöldmáltíð. Text- inn er eftir Björgvin ívar en blek- teikningar og bókarkápa eftir Auju. Björgvin Ivar velur þá leið að yrkja lítinn ljóðabálk og nota sög- una af litlu gulu hænunni sem uppi- stöðu í lýsingu á manninum. Breytni hænunnar er stillt upp andspænis breytni mannskepnunnar. Varla verður sagt að skepna sú fái háa einkunn fremur en önnur rándýr ljóðaflokksins. Texti ljóðsins er lipur og ljóst er að höfundur hefur ýmis- legt til brunns að bera. Auja mynd- skreytir ljóðin með einföldum og barnslegum pennateikningum sem ætlað er að styrkja textann þannig að úr verður eins konar myndasaga líkt og í frumgerðinni. Er samspil mynda og ljóða með ágætum. Ljóðabálkurinn er hvorki langur né efnismikill og skáldskapurinn er ekki ósvipaður því sem gengur og gerist með menntaskólaskáldum almennt. Hins vegar er æskuþokki og galsi yfir bókinni. Verkið er ögrandi í smæð sinni og einfaldleika og auk þess er einhver kaldhæðinn tónn í ljóðunum sem gerir það að verkum að lesandi leggur hana ekki frá sér án umhugsunar. Þótt höfundar séu ef til vill á einhvern hátt að spila með lesendur í þessu verki og hafi vafalaust ánægju af því verður að segja þeim til hróss að þeir hafa vandað vel til þess. Skafti Þ. Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.