Morgunblaðið - 16.12.1997, Side 4

Morgunblaðið - 16.12.1997, Side 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 BÆKUR MORGUNBLAÐIÐ -r Heimildir úr fortíð Bókin Listmálaraþankar (útg. Mál og menn- ing, 1997) geymir minningabrot Hjörleifs Sig- urðssonar listmálara. í bókinni eru það árín um og eftir miðbik aldarinnar sem höfundurinn hugleiðir einkum, en meðal þeirra sem þá létu að sér kveða var Bragi Ásgeirsson listmálari og gagnrýnandi, enda getur Hjörleifur þáttar hans. Bragi las bókina og hefur sitt að segja ÞAÐ má sjá greinilegan skyldleika milli hlutbundnu myndarinnar „Frá Úlfljótsvatni" 1950 og þeirrar óhlutlægu „Hrókur" frá 1952. um tímabilið sem Hjörleifur lýsir. ÞAÐ var ekki vonum fyrr að ein- hver myndlistarmaður kveddi sér hljóðs á ritvellinum og sendi frá sér hugleiðingar um árin um og eftir miðbik aldarinnar. Er fréttist að í vændum væri á bók frá hendi Hjör- leifs Sigurðssonar, sem var einn af róttækustu núlistamönnum tímanna listrýnir um skeið og vel virkur í félagsmálum, biðu margir með eftir- vætningu eftir henni. Einkum þótti forvitnilegt er sagt var að hann myndi greina frá Haustsýningm FIM, sem menn héldu nær glatað tímabil fyrir heimilda- og upplýs- ingaskort, metnaðarleysi og hand- vömm. Biðin varð löng enda hefur Hjörleifur ekki gengið heill til skóg- ar um árabil, en nú er bókin komin út og inniheldur margan og mikils- verðan fróðleik. Einkenni kynslóðar eftirstríðsár- anna teljast einkum, hve ósýnt henni var um skipulag og reglufestu ásamt varðveislu heimilda um athafnasemi félagsins í sýningarmálum. Yfirleitt fór allt eftir hendinni á þessum árum og kemur spánskt fyrir sjónir á síð- ustu tímum er ungir ljósmynda svo að segja hveija athöfn sína og færa til bókar. Það hófst með tilkomu Súm-hópsins 1969 er hafði blaða- fulltrúa og áróðursmeistara á sínum snærum. Greinarbestu heimildirnar fram að þeim vatnaskilum verður að telja sýningarskrár September- sýninganna, undanfara Haustsýninganna, en varla er til blaðsnepill um þær frá miðbiki aldarinn- ar og fram á áttunda ára- tuginn. Reyndi skrifari allt sem hann gat að vekja menn til dáða í þessu efni er hann var formaður sýningamefdnar í upp- hafi áttunda áratugarins, en án árangurs. Hafði afdrifaríkar afleiðingar, þar sem fáar heimildir eru til um blómaskeið þeirra 1968-1976, jafnvel ekki hvað varðar tvær risasýn- ingar á Kjarvalsstöðum, en hins vegar yfrið nóg um athafnasemi Súm-félaganna þennan áratug. Skráðar heimildir gefa því alls ekki rétta mynd af tímabilinu. Slá má föstu, að Haust- sýningarnar mörkuðu landslag þess framsæknasta sem var að gerast á höfuðborgarsvæðinu um árabil og væri afar fróðlegt að hafa ljósmynd- ir, skrár og fleiri upplýsingar um sýningarnar milli handanna, allt þar til þær voru lagðar niður. Það hefur eðlilega lengi verið von manna að einhver kunnugur tæki sig til og safnaði saman brotabrotunum, en hér er um mikla eyðu í íslenzkri myndlist að ræða og afleiðingarnar löngu komnar fram. Og hvað Sept- emberssýningarnar snerti, skrifaði rýnirinn tvær greinar um þær á ald- arfjórðungsafmælinu, en þegar kom að þeirri þriðju sem skyldi vera prýdd lit- myndum rakst hann á vegg, þar sem enginn vissi hvar myndverkin voru niðurkomin, þ.e. þau sem ekki hefur verið málað yfir eða voru hréinlega glötuð! Yngri kynslóðum er hollt að líta til þessa er þeir eru að tala um seinni tíma eyður og eiga við það sem þeir og félagar eiga til á vinnustofunum. Það munu einmitt ýmsar rangheimildir sem voru að festast í Hjörleifur Sigurðsson listasöguna sem urðu hvati þess að Hjörleifur réðst í það þarfa verk að rifja upp eitt og annað markvert frá þessu glataða tímabili. Hins vegar verður maður fyrir vonbrigðum hvað Haustsýningarnar snertir en hann rekur í engu sögu þeirra en flytur hins vegar ýmis mikilsverð tíðindi af hræringunum um og eftir 1950. Bókin hefur þróast í þá átt að vera ágripskennt ævisögurit, og skiptist í nær 30 kafla, samtíningur úr mörg- um áttum, þar sem listamaðurinn minnist ýmissa tímamóta og sam- ferðamanna í myndlistinni. Enn- fremur frá starfsvettvangi árin sem hann var forstöðumaður Listasafns ASÍ, frumkvöðull safnakennslu, og seinna formaður FÍM, auk vina og velunnara. Lætur hann yfirleitt vel af samferðamönnum sínum, en nefn- ir ekki suma eins og Einar Hákonar- son og Erró, sem má vera gleymska. Þá segir hann frá mikilvægu tíma- bili sínu sem listrýni, upphaflega tengdum Tímanum og Morgunblað- inu uppúr 1950 ásamt nokkrum umsögnum í Ftjálsri Þjóð 1963. Þarnæst tvo samfelldari kafla tengd- um Birtingi 1955-56 og Vísi 1966-70. Þótt skrif hans skiptust þannig á milli blaða og tímarita telst hann einn mikilvirkasti og mikilvæg- asti rýnir þessa tímaskeiðs. Um- deildur þótt menn tækju mark á skrifum hans, og að venju öllu meira en þeir gangast við í daglegri sam- ræðu. Myndlistarmenn voru fírna óvægir í dómum á verk félaganna, þótt hinir sömu umturnuðust við gagnrýni á eigin verk. Aðrir voru vægast sagt vafasamir heimildar- menn og vont að henda reiður á sannleiksgildi orðræðu þeirra, sem skipti lit frá degi til dags. Eðlilega fylgir sérstakur kafli um Rómarsýninguna margfrægu 1955 og þær illvígu deilur er upp spunn- ust, en mikilvægi hennar og afrakst- ur reyndist minni en menn hugðu, eins og svo oft áður. Norræna lista- bandalaginu var alla tíð ósýnt um framkvæmd og markaðssetningu listsýninga. Þetta reyndist líka brotakennt samsafn sem vakti minni athygli en skyldi. Umræðan og svipt- ingarnar fóru þannig helst fram í Reykjavík en minnst í Róm, þar sem formlegheit og skálaræður tóku við. Það er auðvelt að staðfesta það álit Hjörleifs, að strangflatalistin leið ekki undir lok 1957 (!) hvorki hér heima né erlendis, hún á sér ekki aðeins langa sögu heldur eru ýmsir sporgöngumenn höfuðpauranna enn á fullu. í því sambandi er rétt að tæpa enn einu sinni á því, að samheij- ar Svavars Guðnasonar í Danmörku hafa alla tíð haldið tryggð við þau grunnmál sem þeir lögðu út af og vegur þeirra sem enn lifa hefur aldrei verið meiri. Með það og fleira í huga eru myndir Hjörleifs og félaga fyrir og eftir 1957 lifandi og ferskur þáttur íslenzkrar samtímalistar engu síður en það helsta sem gert hefur verið á síðustu áratugum. Undarleg hefur mér löngum þótt sú árátta norrænna myndlistar- manna að vera hveiju sinni samstiga því nýjasta í útlandinu og sækja andagift sína þangað, einkum í ljósi hinnar fornu menningar sem þeir hafa í næsta nágrenni og er um margt einstök í heiminum. Það hefur öðru fremur valdið því að stóru þjóð- irnar skilgreina norræna yfirleitt sem litla bróður í listinni sbr. upp- sláttarrit. Hér skal sérstaklega litið til þess, að þeir sem voru í nánustu tengslum við uppruna sinn en stóðu þó báðum fótum í nútímanum, eins og Edvard Munch og Asger Jorn, eru nafnkenndastir í dag. Engir voru jafn ákafir að hafna fyrri gildum á Morgunblaðið/Þorkell SIGTRYGGUR Magnason, Auja, Björgvin ívar og Bergsveinn Birgisson. Ekki vaxinn BÓKAFORLAGIÐ Nykur heldur upp á tveggja ára afmæli sitt um þessar mundir. „Þessi tvö ár eru aðeins inngangurinn að mjög langri sögu, Nykurinn er bara í startholunum. Hann er folald eða trippi en að sjálfsögðu með öfuga hófa og önnur einkenni alvöru fullvaxins Nykurs,“ segir Björg- vin ívar einn forsprakki útgáf- unnar og annar höfunda bókar- innar Litla gula hænan, sem hef- ur undirtitilinn Síðasta kvöld- máltíðin. Hinn höfundurinn er Auður Þórhallsdóttir. „Þetta er sjálfstætt framhald af Litlu gulu hænunni sem allir þekkja,“ segir Björgvin ívar þegar þau eru spurð um verkið. „Upphaflega skrifaði ég frumút- gáfu af því sem ég kýs að kalla ljóðræna sögu og með henni hófum við Auja samstarf sem var ekki átakalaust." „Það lá margoft við vinslit- um,“ segir Auja sem er höfundur full- Nykur blekteikninganna í bókinni sem sver sig í ætt við bækur eins og Siðasta blómið í dalnum. Þetta er ekki ljóðabók heldur ljóðræn og myndræn saga af ævistússi afturgenginnar goðsagnar í nýj- umheimi. A þessu ári koma einnig tvær aðrar (jóðabækur út hjá Nykri, Innrás liljanna eftir Bergsvein Birgisson og Ást á grimmum vetri eftir Sigtrygg Magnason. „Fyrsta ljóðabók mín kom út 1992 og efnið í þessa bók hefur safnast upp síðustu ár,“ segir Bergsveinn Birgisson. „Hún skipt- ist í fimm hluta, fyrstu þrír hlut- arnir eru sjálfstæð Ijóðabók og tveir síðustu hlutarnir eru kviður: Blýlundarkviða, sem ég yrki til hliðar við Sonatorrek Egils Skalla- grímssonar, og Ódáinskviða, sem ég orti nærri því fyrirvaralaust. Það tók mig eitt og hálft ár að vinna handritið og þar hjálpuð- rnnst við sem að Nykri stöndum að. Það er mikilsvert að standa ekki einn í þessu. Fá yfirlestur og gagnrýni frá hinum. Bókin fjallar svo m.a. um trú, trúarbrögð, efann og dauðann." „Bókin mín fjallar um ást, dauða og trú. Og það sem bjarg- ar okkur frá þessum öflum er húmorinn. Eg reyndi að hafa stígandi í bókinni. Hún byijar meinleysislega en verður ástríðu- full þegar frá líður. Mig langaði til að draga trúna og ástina niður á jörðina. Ástin verður holdleg, dálítið brútal, og svo kem ég Guði fyrir í gsm-síma.“ Sigtryggur heldur áfram: „Eg hef orðið var við það að fólk haldi að ljóðið sé dautt en ég held aftur á móti að það ríki samfélagslegur doði gagnvart því. Hver skynjar betur dauðann í hinu og þessu en einmitt sá sem þekkir bragðið af honum?“ „Ljóðalestur er sáluhjálparat- riði,“ segir Bergsveinn. „Eftir að rafræn viðskipti juk- ust og ávísanaheftin fóru að hverfa úr umferð,“ segir Björg- vin Ivar, „er orðið erfiðara að selja bækur sem ekki eru gefnar út af „stærri“ forlögunum ef ekki er hraðbanki í næsta húsi. Fólk segir við okkur: - Ó! Nei takk, ég er bara með kort! Og ef ekki er hægt að bjóðast til þess að ganga með því að næsta hraðbanka er ekkert keypt.“ „Það er þó mjög auðvelt að selja ljóðabækur úti á landi," segir Bergsveinn Birgisson. „Ég seldi nærri því upp í kostnað á Ströndunum þaðan sem ég er ættaður. Það þarf nefnilega ekki bara hraðbanka heldur þarf maður líka að eiga góða að ef dæmið á að ganga upp.“ „Ef fólk býr langt frá búðum, eins og oft úti á landi, þá á það yfirleitt reiðufé," segir Sigtrygg- ur sem einnig hefur leitað upp- runans úti á landi og selt þar bækurnar sínar. Auja: „Ég þarf að prófa að fara út á land og selja því ég hef alist upp í þremurlandshlutum." „Ég er úr Breiðholtinu,“ segir Björgvin ívar, „en sölusvæði mitt er hundrað og einn. Því meira sem maður hangir niðri í bæ því meira selur maður.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.