Morgunblaðið - 16.12.1997, Page 6

Morgunblaðið - 16.12.1997, Page 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Nýjar bækur • RÆTUR MÁLSINS, föst orða- sambönd, orðatiltæki og máls- hættir úr íslensku biblíumáli er eftir Jón G. Frið- jónsson, prófess- or. Þetta er sjálf- stætt framhald bókarinnar Mergur málsins sem hlaut ís- lensku bók- menntaverð- launin 1993. í kynningu segir m.a.: „Það má telja einstakt að Islendingar geta lesið það og skilið sem skrifað var á Íslandi fyr- ir liðlega átta öldum og síðar. Með- al elstu heimilda um íslenskt mál eru rit biblíulegs efnis og er Biblían um margt einstök heimild um sögu íslenskrar tungu ... í Rótum málsins er fjallað um föst orðasambönd, orðatiltæki og málshætti í íslensku biblíumáli. Sú afmörkun felur í sér að ekki er einungis fjallað um bibl- íuleg orðasambönd heldur einnig fjölmörg önnur sem eru hluti af íslenskri biblíumálshefð þótt uppr- uni þeirra sé ekki biblíulegur. Þess eru mörg dæmi að túlkun verald- legra orðatiltækja hafi breyst þann- ig að þau séu skilin kristnum skiln- ingi... Enn fremur er algengt að orðatiltæki og málshættir af verald- legum rótum séu notuð í biblíumáli og verði þannig hluti af íslenskri biblíumálshefð." Rætur málsins eru eitt stærsta og viðamesta safn orðatiltækja og málshátta sem sett hefur verið sam- an á íslandi. „Bókin er einnig ómet- anleg málsöguleg heimild sem á erindi við allar kynslóðir. Hún nýt- ist sem uppflettirit fyrir þá sem vinna með og vilja forvitnast um íslenska tungu en um leið er bókin afþreyingar- og skemmtilestur. Rætur málsins eru prýddar hundruðum teikninga eftir lista- manninn Freydísi Kristjánsdóttur. Myndimar varpa skemmtilegu ljósi á þær líkingar sem liggja að baki málsháttunum og orðatiltækjunum." Útgefandi erlslenska bókaútgáf- an. Bókin erprentuð hjá Féiags- prentsmiðjunni Gutenberg og bund- in inn hjá Félagsbókbandinu - Bók- felli. Bókin er 608 bls. Leiðbeinandi verð: kr. 7.980. • KÚGUN kvenna er eftir John Stuart Mill í þýðingu Sigurðar Jóns- sonar frá Eyjólfsstöðum í Vatnsdal. Einnig em í bók- inni ritgerðir Bríetar Bjam- héðinsdóttur og Páls Briem um kvenfrelsi. Inn- gang skrifar Auður Styrkárs- dóttir. Bókin kom fyrst út árið 1900 á kostnað Hins íslenska kvenfélags. Mill segist einkum leitast við að sýna fram á tvennt í riti sínu. Ann- ars vegar að þau rök sem notuð eru gegn réttindum kvenna séu haldlaus. Hins vegar að aukið frelsi kvenna og þátttaka þeirra í starf- semi samfélagsins myndi bæta al- mannahag. Fyrirlestur Páls Briem Um frelsi ogmenntun kvenna var fluttur 19. júlí 1885 og var gefínn út í Reykja- vík hjá Sigurði Kristjánssyni, bók- sala, síðar sama ár. Páll kallar er- indi sitt „sögulegan fyrirlestur“, enda leitast hann við að gera grein fyrir sögu kvenfrelsismála. Bríet Bjamhéðinsdóttir flutti Fyrirlestur um hagi ogréttindi kvenna 30. desember 1887 í Bár- unni í Reykjavík. Fyrirlesturinn var auglýstur sem fyrsti opinberi fyrir- lestur konu á íslandi. Sigurður Kristjánsson gaf fyrirlesturinn út árið eftir. Útgefahdi er Hið íslenska bók- menntafélag. Bókin er 33. Lær- dómsrit Bókmenntafélagsins og er 376 bls. Ritstjóri: Vilhjálmur Arna- son. Leiðbeinandi verð: 2.990 og 2.392 kr. fyrir félagsmenn. John Stuart Mill Jón G. Fridjónsson BÆKUR Uppsláttarrit um börn BÆKUR Uppsláttarrit BÓKIN UM BARNIÐ eftir Vibeke Manniche. Þýðandi Jó- hanna G. Erlingson. Útgefin af Skjaldborg 1997. BÓKIN um bamið tekst á við með- göngu og fæðingu bams og lýsir síð- an þroska þess fram að sex ára aldri. Á síðustu ámm hafa þó nokkrar slík- ar bækur verið þýddar á íslenzku, og einnig hafa komið út frumsamdar ís- lenzkar bækur sem foreldrar ungra bama geta stuðzt við. Skemmst er að minnast stóru Sálfræðibókarinnar, sem gefín var út fyrir nokkram áram og skrifuð var af fjölda höfunda (og rann út eins og heitar lummur) og þá ekki síður mjög góðrar bókar um bamasálarfræði eftir sálfræðingana Álfheiði Steinþórsdóttur og Guðfínnu Eydal. Ekki kemur neitt það fram í Bók- inni um barnið sem skýrt gæti hver Vibeke Manniche er, en bókin virðist hafa verið gefin fyrst út í Danmörku og er því líklega þýdd úr dönsku. Hins vegar hefur hún verið staðfærð meira en títt er um slíkar bækur þannig að um allt aðra bók hlýtur í raun að vera að ræða. Maður spyr sig því hvort þýðandinn hefði ekki átt að láta slag standa og gefa út bók í eigin nafni. Vinnan þar að baki hefði líklega orðið talsvert meiri og tímafrekari og eigin þekking á málefninu þurft að vera enn víðtæk- ari. Gera þarf sömu kröfur til stað- færðra upplýsinga og til frumtext- ans. Þessi skil milli höfundar og þýðanda trufla mann við lesturinn. I bókinni er leitast við að vera já- kvæður og uppörvandi. Rætt er um vandamál sem upp geta komið, hvað megi teljast eðlilegt, og stálinu stappað í foreldra ungra barna. Víða finnst mér þó gæta nokkurrar óná- kvæmni og hlutunum vera lýst öðru- vísi en ég sé þá. Eitt mál má ég til með að drepa á, en það er sá (nýi) siður að kenna börn við móður sína við fæðingu. Án efa er það hugsað til þess að fírra karlmenn vandræðum af óskil- getnum börnum sem þeim kunna að verða kennd, en ég tel að breyting- in, sem er ættuð frá Hagstofunni, skapi fleiri og alvarlegri vandamál en þau sem henni var ætlað að leysa. Áður fyrr gaf móðir nýfædds barns upp nafn á barnsföður (hvort sem það reyndist síðan rétt eða rangt) og í stöku tilfellum voru börn svo gott sem eingetin. Þetta dró dilk á eftir sér eins og mörg dæmi sanna. Til þess að leysa þetta er nú viðtek- in venja að kenna barn við móður sína þar til faðirinn hefur formlega gengizt við skyldum sínum, sbr. bls. 8 í bókinni. Út úr þessu koma Önnudætur og Sigríðarsynir, og margar einstæðar mæður glepjast því miður til að halda slíku nafni áfram á barninu. Margra alda hefð er fyrir því að kenna böm til föður, og þótt lengi hafí verið heimild fyrir því að kenna sig við móður, hefur slíkt aldrei orðið vinsælt hér á landi. Réttur bams til þess að eiga bæði föður og móður er ótvíræður í ís- lenzkum lögum. Betra væri að gera foreldrum skylt að hafa ákveðið hvaða nafn barnið eigi að bera og að faðernið sé formlega staðfest strax í upphafi, jafnvel í mæðra- vemdinni, þannig að sem fæst böm þurfí að heita óskírður Jónuson langt fram á fyrsta æviár sitt. Bókin er sett upp á aðgengilegan hátt, með_ skýru letri og ágætu efn- isyfirliti. í bók af þessu tagi er það nauðsynlegt því að hún hlýtur að verða notuð fyrst og fremst sem uppsláttarrit. Þá er atriðisorðaskrá vel unnin, þó alltaf megi reka augun í eitthvað sem gleymzt hefur (til dæmis óværð?). Landlæknir skrifar nokkur orð á bókarkápu og vitnað er í bókarlok með þökk til fjölmargra sem hafa aðstoðað eða leiðbeint þýðanda. Ekki var þar að sjá að heilsugæzlan væri sett í öndvegi, þótt ungbamaeftirlit og mæðravernd sé samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu í hennar verkahring. Ég vil svo ítreka að mér fínnst þýðandi hafa tekið á sig tvíþætt hlut- verk sem hefði mátt höndla betur og öðruvísi. Katrín Fjeldsted „í LÍFAKRI er það bæði ég og skáldskapurinn sem ég er að fást við. Það er óhjákvæmilegt að ljóðið, sem slíkt, gangi nærri mér þar sem ljóð þurfa að miðla tilfinningum og ég legg mig fram um að tefla fram myndum úr sálar- lífí og náttúra. Það era og verða alltaf tengsl á milli þessara þátta hjá okkur og einmitt þess vegna koma ljóðin okkur öllum við,“ segir Ágúst- ína Jónsdóttir, sem sent hefur frá sér sína fjórðu ljóðabók, Láfakur. Lífakur einkennist, líkt og fyrri bækur Ágústínu, af knöppum ljóð- stfl. „Ég gef mér að lesendur hafí gaman af að glíma við sjálft ljóðið, orð þess og hugblæ og þar með einn- ig það sem skynja má á milli orða og lína. Þar af leiðandi vil ég ekki taka af þeim ánægjuna með því að segja of mikið. Frelsi ljóðsins og les- andans felst í margræðninni og ég vil hvorki hefta það né hugmyndaflug njótandans, því það er áreiðanlega ekki minna en mitt. Þess vegna njörva ég ljóðin mín ekki niður - vængstífí þau ekki. Ljóð verða að hafa frelsi til að svífa.“ Að áliti Ágústínu má ekki heldur svipta ljóð dulúð sinni. Ljóð sé í eðli sínu „mystík". „Lesandinn verður allt- af að geta skynjað eitthvað nýtt þegar hann les ljóð, jafnvel skilið það öðra- visi en síðast. Ef ljóð er nakið hefur lesandinn ekkert að hlakka til þegar hann hefur lesið það einu sinni.“ Þar fyrir utan segir Ágústína það að mörgu leyti henta sér vel að glíma við eitt og eitt orð í einu, „þangað til það er orðið á við tíu orð“. Leit- ast hún líka annað slagið við að „detta niður á ný og hugguleg orð“ í skáldskap sínum. „Það hlýtur að vera í verkahring skáldsins að smíða ný orð. Þar fyrir utan er íslenskan ekki eins gagnsæ og við höldum og alltaf er hætta á að gagnsæi hennar fari forgörðum og þá er illa farið. En það er er alltaf skemmtilegt að verða til þess að ný orð fæðast inn í tungumálið okkar." Sem fyrr segir sækir Ágústína mikið til líf- ríkis náttúrannar við skáldskap sinn. Jörðin sem við lifum á - og verðum að lifa á - er í hennar huga merkilegt fyrirbæri og alveg þess virði að tengja „þann akur“ við ljóðagerðina. Tók hún meira að segja mið af móður jörð þegar hún setti bókina upp. „Það er nokkuð erfíð glíma að raða ljóðum saman í eina sterka heild. Þegar ég raðaði efninu í Líf- akri saman var ég hvað uppteknust af hrynjandinni og svo af ljósi og skuggum en þessir þættir skipta akur lífsins, það er jörðina, miklu máli, ekki síður en manninn sjálfan." Ágústína sækir jafnframt mikið í aðra listmiðla, svo sem sjónlistir. Sér þess ekki einungis merki í myndmáli hennar, sem er ríkt, heldur jajfnframt í útliti Lífakurs, sem listakonan hann- aði sjálf. Ljósmyndimar í bókinni vora unnar á sérstakan hátt og hugsaðar til þess að tengja saman ljóð og mynd án þess að skapa of mikla spennu þar á milli. Meginvinnan er þó alltaf bund- in Ijóðunum sjálfum. í ljóðum á sér stað einhver athyglisverður galdur sem erfitt er að lýsa en auðvelt að upplifa og njóta. Það er sá galdur sem á hug minn allan!“ Hún Eitthvað sárt í morgundeginum tár úr gleri? Eitthvað sterkt tönn úr rafi? Úr Lífakri. Frelsi til að svífa Ágústína Jónsdóttir Að halda tilfinningum sínum á lífi SKÁLDÆVISAGAN Faðir og móðir og dulmagn bernskunn- ar eftir Guðberg Bergsson er frásögn höfundar af bernsku sinni í Grindavík, fjöl- skyldu og forfeðrum og lífi þessara tíma. Minningunum lýsir hann sem sagnfræði- Iega röngum en til- finningalega réttum. Sagan gerist að mestu í huga drengsins Guð- bergs en inn á milli stígur skáldið fram og leggur mat á við- fangsefni. „Þessi bók varð til af ásettu ráði. Rétt eins og sumir rithöf- undar fara í stríð til að þess eins að geta skrifað um stríð, fór ég í hús foreldra minna í Grindavík til að geta skrifað um foreldra mína. Það liggur beint við að skrifa um foreldra sína því þeir eru fyrsta fólkið sem maður kynnist. Enginn dvelur nema einu sinni inni í annarri mann- eskju, í móðurkviði, en það sem ég reyni í skrifum mínum er að komast með huga minn inn í foreldra mína og sjálfan mig,“ segir Guðbergur. „Eg dreg gjarnan tíma og tilfinningar saman í einn atburð, t.d. varð móðir mín tvisvar sinnum ófrísk en í bókinni gerist það aðeins einu sinni vegna þess að út frá sjónarhóli fagurbók- menntanna þá skipt- ir það engu máli. Atburðunum sem gerðust í kringum þessar tvær þungan- ir þjappa ég því sam- an í eina í þágu list- rænnar tjáningar.“ Guðbergur segist alltaf skrifa út frá eigin tilfinningum og viðhorfi til lífsins og hann reyni að halda lífi í hverri tilfinn- ingpi eins lengi og hann lifi sjálfur en alitof sjald- gæft sé að fólk reyni að halda í allar þær tilfinningar sem kvikni innra með því á lífsleiðinni. „Ég skrifa yfirleitt um það sem hefur búið lengi innra með sjálfum mér og ég leita aldrei til annarra um efni, fer út á götu eða hlýði á samtal Jóns og Gunnu og færi þau síðan í skáldsagnabúning. Efnið þarf alltaf að vera vel melt innra með sjálfum mér áður en ég skrifa um það og ég reyni að vera eins gjöfull og ég get,“ segir Guðbergur. „Þær bók- menntir sem eru byggðar á hræi tilfinninganna þykja mér afskap- lega leiðinlegar bókmenntir. Ævisögur eru yfirleitt byggðar á ástarhræi sem lesandinn leggst síðan á eins og hrægammur. Þessi hrælykt virðist höfða til fólks vegna þess að fæstum tekst að halda tilfinningum sínum á lífi og þær deyja tiltölulega snemma." Sjálfur lýsir höfundur ánægju með bókina, segir hana heiðar- lega þó yfirleitt sé hann mjög gagnrýnin og lítt hrifinn af eigin skrifum. Annað bindi bernsku- minninganna er þegar tilbúið frá hendi höfundar og bíður útgáfu um næstu jól. Talið berst að ís- lenskum bókamarkaði sem er ríg- bundinn við árstíð jólanna. „Það er ekki hægt að segja að hér á landi sé raunverulegur bók- menntaáhugi. Utan við jólabóka- markaðinn liggur bókaútgáfa niðri og á því getur engin há- menning þrifist. Enda er íslensk menning ekki nema í meðallagi," segir Guðbergur. „Við eigum hvorki auðmenn andans né hug- ans til að skapa hámenningu. Það dapurlega er að cnginn skuli vilja svipta hulunni af þessu „sæmilega þokkalega" samfélagi og sjá veru- leikann. Við erum að vísu að byija að mynda innlendan borgaraleg- an kjarna, og þá á ég ekki við langskólagengið fólk sem við höf- um nóg af, heldur menntafólk. Þessi kjarni verður eflaust ein- hverntímann þroskaður en slíkt tekur langan tíma.“ Móðir mín var skyldu- rækin sem sýndi sig meðal annars í því að maturinn átti að komast heitur í munninn á manninum hennar í staðinn fyrir að kólna af því að strákar hlupu af stígnum út á klappirnar til að stríða afli sem var miklu sterkara en þeir. Við þrömmuðum yfir sanda og upp rofabörð, svo tóku við grýttar flat- ir kenndar við brunna, þótt enginn brunnur væri á þessum stað nema í óttanum við ógnvænlega botn- lausa gatið sem maður bjó til í huganum og hafði ofan af fyrir sér með því að eitthvert gin laukst skyndilega upp, gínandi undir fót- unum svo jörðin gleypti okkur með húð og hári. En í veruleikanum opnuðust hvorki brunnar né gin, og í þessu sem öðru urðum við að sætta okkur við atburðarleysið kryddað hugarburði. Éggerði það óspart, ekki vegna þarfar fyrir spennu heldur seiðmagn, þangað til við nálguðumst væntanlega húsið og heimilisföðurinn, lafmóð, og sáum hann standa í haugi af hefilspónum, útvaðandi í sagi á höndunum og í andliti. Við horfð- um á hann þannigtil reika, með vinnugrímu, og þekktum hann varla. Þá sagði hann: Já, þið gónið, en svona eiga sann- ir pabbar að vera. Úr Faðir og móðir og dul- magn bernskunnar. Guðbergur Bergsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.