Morgunblaðið - 16.12.1997, Side 8

Morgunblaðið - 16.12.1997, Side 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR ARIÐ 1927 birti Sigurður Nordal hug- leiðingu í tímaritinu Vöku þar sem hann sagði frá ferð sem hann fór austur í Öræfasveit (greinin er í III. bindi síðasta flokksins í ritsafninu, „Saga og samtíð“, bls. 211-224). Þótt inntak grein- arinnar sé um margt dæmigert fyrir þá stefnu sem marka má í skrifum hans frá þessum tíma stendur hún samt sem áður stök í höfund- arverki hans, höfundarverki sem spratt frem- ur af túlkun ritaðra texta en lifaðrar menning- ar. Sigurður birti ekki mikið af hugleiðingum um dægurmál eða stjómmálaviðburði um sína daga en það sem liggur eftir hann á því sviði sýnir glöggt hve einstæður túlkunarfræðingur hann var, hve mikill kraftur bjó í vilja hans til að skilja umhverfið og fella það inn í yfir- gripsmeira samhengi sögu og heimspeki. Mannfræði á heimaslóð Ferð hans austur um sanda verður því að miklu meira en venjulegum reiðtúr, venjulegu landshomaslarki með innblásnum lýsingum á skyrinu sem reitt var fram á Skringistöðum eða silungnum sem verkaður var í Furðuvik. Öll hefðbundin ritklif íslenska ferðaþáttarins eru í orlofi og þeirra sér hvergi stað. Þama er enga persónulýsingu að fínna, enga svip- mynd af forkostulegum sérvitring eða ógnar- smárri konu sem þó rak höfuðið í bita í lág- reistri baðstofu né heldur langar tölur um jám- ingar og skrínukost. Þess í stað leitar Sigurður þess stóra og almenna. Öræfingar koma lesand- anum fýrir sjónir sem eins konar hetjuþjóð- flokkur sem hefur stækkað og eflst af hættun- um sem fylgdu því að búa á þessum slóðum, og sem fylgja því enn eins og nýleg eldsumbrot í Vatnajökli hafa sannað. Auðvitað er þetta ídealíseruð óskamynd. Þetta er mynd sem ekki hefur verið létt að koma heim og saman við hold og blóð þeirra sem héraðið byggðu en enginn hefur vitað það betur en Sigurður sjálf- ur. Hann máir vísvitandi út ummerki um allt það sem gæti truflað hana, stækkar og miklar andstæður þeirra sem eflast af sífelldum átök- um við náttúruöflin og hinna sem húka í mak- ræðinu í stássstofunum á mölinni. Greinin er innlegg í menningarbaráttu en það væri mikil einföldun að segja að hún sé einungis áróður fyrir bændasamfélaginu eða samvirku samfé- lagi ættarhöfðingja og mikilmenna í skauti háleitrar náttúru. Til þess var Sigurður einfald- lega of góður túlkandi. Að vísu var hann eins og aðrir sem rituðu í Vöku á þriðja áratugnum að upphefja hug- myndafræði sem ætlað var að Iægja rísandi bárur stéttarátaka og milda áhrif fjöldamenn- ingar og nútímavæðingar. En um leið las hann í menninguna með það fyrir að augum að ala á raunverulegri fjölbreytni innan henn- ar sjálfrar. Hann var ekki einungis að sækja sér fýrirframgefnar hugmyndir austur í Skaftafell. Hann var að ferðast, að koma í fyrsta skipti á stað sem hann fram að þessu hafði einungis haft af spurnir í frásögnum annarra. Það sem hann upplifir er í raun eitt- hvað áþekkt því sem mannfræðingur í frum- skógum Papúa Nýju-Gíneu myndi skynja nú. Hann sveiflast á milli löghyggju hinnar vest- rænu framfarahugsunar sem lítur á það sem nánst sem náttúrulögmál að allar menningar- heildir sem komast í snertingu við tæknimenn- ingu Vesturlanda fallerist og missi meydóminn í miðjum straumi menningar Nú er loksins fyrirliggjandi allt ritsafn Sigurðar Nor- dals, alls 12 bindi. Þar gefur að líta starf þess manns ------------------5-" sem öðrum fremur mótaði hugmyndir Islendinga um menningarsögu sína á þessari öld og var einn áhrifa- mesti skýrandi íslenskra bókmennta bæði fyrr og síðar. Kristján B. Jónasson rýndi í þetta stóra höfundarverk. snart en finnur um leið fyrir melankólískri eftirsjá eftir því ein- staka í lífi og starfi þessa fólks sem á eftir að glatast við hina óhjákvæmilegu innrás. Hann skynjar djúpt þessa togstreitu og reynir að sætta hana en þegar upp er staðið verður sú sátt óraunsæ draumamynd og maður skynjar áð innst inni veit hann það sjálfur. Sjarmi greiningar Nordals er ekki fólginn í því að hún geymi afdráttarlausa niður- stöðu heldur í mætti höfundarins til að sjá heildir og stærðir. Styrk- ur hans liggur í hæfileikanum til að sjá form og tjá þau á sannfær- andi og áhrifamikinn hátt þannig að innri brestir framsetningarinn- ar komi ekki fram sem röklegir veikleikar heldur sem listrænn styrkur. Þannig að túlkun lesandans dýpki en þrengist ekki. Menningarbaráttan Sigurður stóð eins og sagt var að ofan í menningarbaráttu þótt sjálfsagt hefði honum sjálfum ekki líkað við þetta orð. Hann leit á íslenska menningu ekki sem svið baráttu á milli hópa sem sóttust eftir að „ráða yfir“ menningunni heldur sem grundvöll sjálfs- myndar allra íslendinga og að allir þeir sem ætluðu sér að afreka eitthvað hérlendis í listum yrðu að standa á þeim grundvelli, gera sér grein fyrir umfangi hans og auka við hann. í ritsafni Sigurðar geyma einkum tveir flokkar, annars vegar flokkurinn „Fomar menntir“ og hins vegar „Saga og samtíð", þau rit sem helguð eru þessu verkefni. Þar rísa að sjálfsögðu einna hæst hin- ar kunnu bækur hans um Völuspá og Hrafnkels sögu Freysgoða sem og náttúrulega íslensk menning, hans „opus magnum". En til að sjá hvernig Sigurður hugsaði sér samband miðaldatextanna og bókmenntatexta nýaldar, hvernig hann rakti upp strenginn sem batt íslenskar bókmenntir saman, er gagnlegt að lesa fyrirlestra hans um bókmenntasögu í II. bindi „Sögu og samtíð- sem hingað til hafa ekki komist á prent. I -t , , þeim birtist glöggt hvern- Sigurður Nordal jg },ann hugsaði sér ólíkar birtingarmyndir órofa kvæða- og sagnahefðar. Hvernig skáld- in varðveita arfinn öldum saman til þess að rétta síðan 19. og 20. aldar mönnum kyndilinn svo hann mætti skína skærar en nokkru sinni fýrr. Margir fræðimenn hafa að vísu gengið fram s fyrir skjöldu nú á síðustu árum og gagnrýnt þessa mynd bókmenntasög- unnar og bent á margt henni til leiðréttingar. Hún hefur þó engu að síður reynst ótrúlega lífseig og stjómar í raun því enn hvernig þorri almennings hugsar um viðgang^ íslenskra bókmennta og menningar. í raun tókst Sigurði Nordal ætlunarverk sitt. Hann ljáði þjóðinni sam- hangandi skilning á sögu menningar sinnar sem skólakerfið og aðrir fræðimenn tóku upp á arma sína og báru áfram uns hún var orðin hin sjálfsagða sýn á rás viðburðanna. Því gleymist oft að þessi skilningur er í raun af- rakstur túlkunar, niðurstaða langrar umhugs- unar um samband texta og menningar. Það er erfitt fyrir okkur sem erum fædd um það leyti að ævi Sigurðar var að ljúka að átta okkur fyllilega á hve mikilvæg þessi túlk- un var í augum hans og þeirra sem hann studdu. Á þröskuldi íslensks nútímasamfélags tókust á ólík viðhorf um hver ætti að vera hugmyndalegur grundvöllur hinnar nýju þjóð- félagsmyndar sem iðnvæðing og innlend fjár- magnsmyndun var að skapa og Sigurður hafði af því stórar áhyggjur að allt það sem prýddi íslenska menningu mynda fara forgörðum í þeim átökum. í hans augum gat ekki verið um það að ræða að rás viðburðanna ætti ein- ungis að ráðast af núningi ólíkra stétta eða af nýrri tækni. Þess í stað vildi hann leita út fyrir ramma samtímaumræðunnar og skyggn- ast eftir frumformum þess sem var sannan- lega íslenskt. Grunninn að þeim fann hann í miðaldabókmenntunum og túlkun þeirra var í hans augum lykill að mótun nútímasam- félags á íslandi. Bak við allt það sem íslensk- ir menn og íslenskar konur hugsuðu og sögðu lá órofa arfleið sem hafði ljáð íslendingum þann einstaka kjarna sem greindi þá frá öllum öðrum þjóðum og sem var um leið sá kraftur sem skóp verkum þeirra tilgang og stefnu. Túlkun miðaldabókmennta var engin þurrp- umpuleg fílólógía, hún var í raun og veru bilbl- íutúlkun: Opinberun dýpstu sanninda um þenn- an heim og annan. Það er að vísu efamál hvort Sigurður ætlaði sér þá dul að skilgreina íslenska menningu í eitt skipi fýrir öll en hann ætlaði sér vissulega að draga fram þann frumspekilega grunn sem hún hvíldi á og gera öllum hann ljósan. Þótt þessi grunnur lægi fyrst og fremst í rituðum heimildum, í bókmenntaverkum miðalda, vissi hann einnig, líkt og kemur fram í áðumefndri grein um Oræfinga, að óendanleg verðmæti lágu í því sem ekki hafði verið fært í letur og sem aðeins varð lifað og skynjað. Hann var hins vegar ætíð hikandi við að færa menningar- hugtak sitt út fyrir svið bókmenntanna, út fyr- ir svið textans, kannski vegna þess að á því sviði vora fáir honum fremri í að gefa hugmyndum sínum sannfæringarmátt og ljá þeim form. Hvað sem manni finnst til að mynda um túlkun hans á Völuspá er ekki annað en hægt að hrífast af innblásnum skýringum hans á sálarlifi höfundarins og þeim átökum og samþættingu ólíkra heimsmynda sem í kvæðinu er fólgin að hans mati. Þar fer saman annars vegar skáldleg innsýn mikils túlkunar- fræðings og einstakur hæfileiki rithöf- undar til að miðla þeirri sýn til les- enda. Enda er það þetta tvennt sem heillar við Sigurð Nordal þegar upp . _ er staðið: Annars vegar geta hans til að greina grannform og grunn- stærðir í hveiju máli og hins veg- ar hæfileikar hans til að setja þessa l|g§| v sýn fram í áhrifamiklum búningi. ® Ásamt þeim Halldóri frá Laxnesi og Þórbergi frá Hala var hann áhrifamesti rithöfundur íslendinga á þessari öld, mað- ur sem hver ný kynslóð verður að glíma við á sína vísu. I örmum kolkrabbans BÆKUR U m ræða FALID VALD EITUR- LYFJAKOLKRABBANS eftir Jóhannes Bjöm. íslenska bókaútgáfan, 1997 - 188 bls. EITURLYFJAVANDI er hvorki staðbundið né einangrað vandamál. Það er tekinn af allur vafi um það í þessari bók. Farið er um nánast allan heiminn og lýst þróun síðustu áratuga í framleiðslu, neyslu og útbreiðslu. Ferlið frá ræktun til neyslu er efnahagslega ábatasamt fyrir þá sem að því koma, en það hefur ýmsa ókosti líka. Peningar gefa völd, alveg sama hvemig þeirra er aflað. Allar þjóðir heims keppast við að ná efnahagsbata og þegar miklir peningar streyma inn á stuttum tíma er ekki spurt um hvaðan þeir koma eða hugsanleg langtímaáhrif. Samhengi pólitískra átaka og eiturlyfja er sterkt. Eiturlyf eru notuð til að fjármagna átök en notkun þeirra er þó ekki bundin við átakasvæðið. Þau geta þó verið þáttur í að brjóta óvininn niður. í pólitískri refskák þjóða heims, ekki síst „siðmenntaðra“ Vesturlanda, geta vinir í dag verið óvinir á morgun - og öfugt. Vesturlönd hafa hjálpað eiturlyfjabarónum að komast til valda, beint og óbeint og í kjölfarið streyma eiturlyf um allt. Opinberar stofnanir eru í sam- starfi við eiturlyfjabaróna. Eiturlyf eru samtvinnuð efna- hags- og stjómmálum. Viðhorf til þriðja heimsins em ekki til að auka sjálfstæði ríkja hans. Skuldir fá- tækra ríkja til hinna ríku valda upplausn, atvinnuleysi og fátækt. Þær grafa undan sjálfsþurftarbú- skap og persónulegu sjálfstæði. Þetta em kjöraðstæður fyrir eitur- lyf. Sama má segja um stórborgir allra ríkja. Auður sem safnast á fáar hendur grefur undan sjálf- stæði og áhrifamætti almennings. Þeir sem sjá engan tilgang í lífinu hafa engu að tapa. Verkið lýsir orsökum og afleið- ingum á trúverðugan hátt, lýsir ástandinu hér og nú og hvemig það gæti breyst til hins verra. Til dæmis er íslenskur markaður enn sem komið er vanþróaður en hann fylgir meir og meir sveiflum og fyrirmyndum annars staðar og því er meiri nauðsyn nú en áður að bregðast við. Ábyrgðin er allra. Það er áhugavert að skoða eitur- lyf og áhrif þeirra í víðu samhengi en um leið er hætta á að manni fallist hendur. Er eitthvað hægt að gera til að spoma við eiturlyfja- vandanum? Er það orðið of seint? Höfundur sýnir þróun og áhrifa- valda útbreiðslu fíkniefna og í framhaldi af því kemur hann fram með mögulegar leiðir til að leysa vandann. Mikil heimildarvinna liggur að baki verkinu og einmitt þess vegna hefði verið gott að hafa efnisyfírlit og atriðisorðaskrá svo hægt væri að fletta upp í henni eftir lestur. Bókin hefði nýst betur þannig. Kristín Ólafs Skáld les ljóð sín HLJOÐBÆKUR Ljóð SAFN LESINNA LJÓÐA eftir Jón úr Vör. Ein snæida. Hljóðbókaklúbburínn. ÁRIÐ sem óðum er að líða og síðasta ár eru tímamótaár í lífi skádsins Jóns úr Vör. í fyrra var hálf öld frá útkomu Þorpsins, fyrstu ljóðabókar á íslensku sem eingöngu hafði að geyma óbundin ljóð, í ár varð skáldið áttrætt og jafnframt eru sextíu ár frá þvi fyrsta bók þess, Ég ber að dyrum, kom út. Af þessu tilefni meðal annars gefur Hljóðbókaklúbburinn út úrval ljóða úr öllum tólf bókum skáldsins í lestri þess sjálfs. Upptökur eru flestar nýjar, fáeinar úr hljóðrita- safni útvarpsins frá því fyrir þijátíu áram og er það mjög við hæfi tilefn- isins. Aðalsteinn Asberg Sigurðsson valdi ljóðin og flytur eftirmála. Mikið hefur verið rætt og ritað um ljóð Jóns úr Vör á umliðnum sextíu árum. En hvað sem segja má, tala ljóðin sjálf sínu máli. Á þessum árstíma er ljóðið Jól úr Þorpinu, sem skáldið les fimmtugt Jól, kertaljós í btáum fjarska, bak við ár, æskuminning um fegurð. Stíg ég hreinn upp úr bala á eldhúsgólfinu, sipdur af þreyttri móður, færður í nýja skyrtu. Jól, fagnaðartár fátæks bams - á snældunni, einkar hæfilegt: Einfaldleiki hversdagsins er eitt af einkennum þessa ljóðs einsog fleiri ljóða Jóns úr Vör. En aðrir tónar eru þar leiknir, t.a.m. sá hlý- legi, jafnvel sá bjarti sem dregur skuggana enn skarpari dráttum. Vinnsla bókarinnar er með mestu ágætum, svo og hljómgæði - mis- munur á styrk eldri og yngri upp- taka er í jafnvægi. Þegar á heildina er litið verður ekki annað sagt en hið fornkveðna: Það er fengur að þessari bók. Kjartan Árnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.