Morgunblaðið - 16.12.1997, Page 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BÆKUR
ARIÐ 1927 birti Sigurður Nordal hug-
leiðingu í tímaritinu Vöku þar sem
hann sagði frá ferð sem hann fór
austur í Öræfasveit (greinin er í
III. bindi síðasta flokksins í ritsafninu, „Saga
og samtíð“, bls. 211-224). Þótt inntak grein-
arinnar sé um margt dæmigert fyrir þá stefnu
sem marka má í skrifum hans frá þessum
tíma stendur hún samt sem áður stök í höfund-
arverki hans, höfundarverki sem spratt frem-
ur af túlkun ritaðra texta en lifaðrar menning-
ar. Sigurður birti ekki mikið af hugleiðingum
um dægurmál eða stjómmálaviðburði um sína
daga en það sem liggur eftir hann á því sviði
sýnir glöggt hve einstæður túlkunarfræðingur
hann var, hve mikill kraftur bjó í vilja hans
til að skilja umhverfið og fella það inn í yfir-
gripsmeira samhengi sögu og heimspeki.
Mannfræði á heimaslóð
Ferð hans austur um sanda verður því að
miklu meira en venjulegum reiðtúr, venjulegu
landshomaslarki með innblásnum lýsingum á
skyrinu sem reitt var fram á Skringistöðum
eða silungnum sem verkaður var í Furðuvik.
Öll hefðbundin ritklif íslenska ferðaþáttarins
eru í orlofi og þeirra sér hvergi stað. Þama
er enga persónulýsingu að fínna, enga svip-
mynd af forkostulegum sérvitring eða ógnar-
smárri konu sem þó rak höfuðið í bita í lág-
reistri baðstofu né heldur langar tölur um jám-
ingar og skrínukost. Þess í stað leitar Sigurður
þess stóra og almenna. Öræfingar koma lesand-
anum fýrir sjónir sem eins konar hetjuþjóð-
flokkur sem hefur stækkað og eflst af hættun-
um sem fylgdu því að búa á þessum slóðum,
og sem fylgja því enn eins og nýleg eldsumbrot
í Vatnajökli hafa sannað. Auðvitað er þetta
ídealíseruð óskamynd. Þetta er mynd sem ekki
hefur verið létt að koma heim og saman við
hold og blóð þeirra sem héraðið byggðu en
enginn hefur vitað það betur en Sigurður sjálf-
ur. Hann máir vísvitandi út ummerki um allt
það sem gæti truflað hana, stækkar og miklar
andstæður þeirra sem eflast af sífelldum átök-
um við náttúruöflin og hinna sem húka í mak-
ræðinu í stássstofunum á mölinni. Greinin er
innlegg í menningarbaráttu en það væri mikil
einföldun að segja að hún sé einungis áróður
fyrir bændasamfélaginu eða samvirku samfé-
lagi ættarhöfðingja og mikilmenna í skauti
háleitrar náttúru. Til þess var Sigurður einfald-
lega of góður túlkandi.
Að vísu var hann eins og aðrir sem rituðu
í Vöku á þriðja áratugnum að upphefja hug-
myndafræði sem ætlað var að Iægja rísandi
bárur stéttarátaka og milda áhrif fjöldamenn-
ingar og nútímavæðingar. En um leið las
hann í menninguna með það fyrir að augum
að ala á raunverulegri fjölbreytni innan henn-
ar sjálfrar. Hann var ekki einungis að sækja
sér fýrirframgefnar hugmyndir austur í
Skaftafell. Hann var að ferðast, að koma í
fyrsta skipti á stað sem hann fram að þessu
hafði einungis haft af spurnir í frásögnum
annarra. Það sem hann upplifir er í raun eitt-
hvað áþekkt því sem mannfræðingur í frum-
skógum Papúa Nýju-Gíneu myndi skynja nú.
Hann sveiflast á milli löghyggju hinnar vest-
rænu framfarahugsunar sem lítur á það sem
nánst sem náttúrulögmál að allar menningar-
heildir sem komast í snertingu við tæknimenn-
ingu Vesturlanda fallerist og missi meydóminn
í miðjum
straumi
menningar
Nú er loksins fyrirliggjandi allt ritsafn Sigurðar Nor-
dals, alls 12 bindi. Þar gefur að líta starf þess manns
------------------5-"
sem öðrum fremur mótaði hugmyndir Islendinga um
menningarsögu sína á þessari öld og var einn áhrifa-
mesti skýrandi íslenskra bókmennta bæði fyrr og síðar.
Kristján B. Jónasson rýndi í þetta stóra höfundarverk.
snart en finnur um leið fyrir
melankólískri eftirsjá eftir því ein-
staka í lífi og starfi þessa fólks
sem á eftir að glatast við hina
óhjákvæmilegu innrás. Hann
skynjar djúpt þessa togstreitu og
reynir að sætta hana en þegar
upp er staðið verður sú sátt
óraunsæ draumamynd og maður
skynjar áð innst inni veit hann
það sjálfur. Sjarmi greiningar
Nordals er ekki fólginn í því að
hún geymi afdráttarlausa niður-
stöðu heldur í mætti höfundarins
til að sjá heildir og stærðir. Styrk-
ur hans liggur í hæfileikanum til
að sjá form og tjá þau á sannfær-
andi og áhrifamikinn hátt þannig
að innri brestir framsetningarinn-
ar komi ekki fram sem röklegir veikleikar
heldur sem listrænn styrkur. Þannig að túlkun
lesandans dýpki en þrengist ekki.
Menningarbaráttan
Sigurður stóð eins og sagt var að ofan í
menningarbaráttu þótt sjálfsagt hefði honum
sjálfum ekki líkað við þetta orð. Hann leit á
íslenska menningu ekki sem svið baráttu á
milli hópa sem sóttust eftir að „ráða yfir“
menningunni heldur sem grundvöll sjálfs-
myndar allra íslendinga og að allir þeir sem
ætluðu sér að afreka eitthvað hérlendis í listum
yrðu að standa á þeim grundvelli, gera sér
grein fyrir umfangi hans og auka við hann. í
ritsafni Sigurðar geyma einkum tveir flokkar,
annars vegar flokkurinn „Fomar menntir“ og
hins vegar „Saga og samtíð", þau rit sem
helguð eru þessu verkefni. Þar
rísa að sjálfsögðu einna hæst hin-
ar kunnu bækur hans um Völuspá
og Hrafnkels sögu Freysgoða sem
og náttúrulega íslensk menning,
hans „opus magnum". En til að
sjá hvernig Sigurður hugsaði sér
samband miðaldatextanna og
bókmenntatexta nýaldar, hvernig
hann rakti upp strenginn sem
batt íslenskar bókmenntir saman,
er gagnlegt að lesa fyrirlestra
hans um bókmenntasögu í
II. bindi „Sögu og samtíð-
sem hingað til hafa
ekki komist á prent. I
-t , , þeim birtist glöggt hvern-
Sigurður Nordal jg },ann hugsaði sér ólíkar
birtingarmyndir órofa
kvæða- og sagnahefðar. Hvernig skáld-
in varðveita arfinn öldum saman til
þess að rétta síðan 19. og 20. aldar
mönnum kyndilinn svo hann mætti skína
skærar en nokkru sinni fýrr. Margir
fræðimenn hafa að vísu gengið fram s
fyrir skjöldu nú á síðustu árum og
gagnrýnt þessa mynd bókmenntasög-
unnar og bent á margt henni
til leiðréttingar. Hún hefur þó
engu að síður reynst ótrúlega
lífseig og stjómar í raun því enn
hvernig þorri almennings hugsar
um viðgang^ íslenskra bókmennta og
menningar. í raun tókst Sigurði Nordal
ætlunarverk sitt. Hann ljáði þjóðinni sam-
hangandi skilning á sögu menningar sinnar
sem skólakerfið og aðrir fræðimenn tóku upp
á arma sína og báru áfram uns hún var orðin
hin sjálfsagða sýn á rás viðburðanna. Því
gleymist oft að þessi skilningur er í raun af-
rakstur túlkunar, niðurstaða langrar umhugs-
unar um samband texta og menningar.
Það er erfitt fyrir okkur sem erum fædd
um það leyti að ævi Sigurðar var að ljúka að
átta okkur fyllilega á hve mikilvæg þessi túlk-
un var í augum hans og þeirra sem hann
studdu. Á þröskuldi íslensks nútímasamfélags
tókust á ólík viðhorf um hver ætti að vera
hugmyndalegur grundvöllur hinnar nýju þjóð-
félagsmyndar sem iðnvæðing og innlend fjár-
magnsmyndun var að skapa og Sigurður hafði
af því stórar áhyggjur að allt það sem prýddi
íslenska menningu mynda fara forgörðum í
þeim átökum. í hans augum gat ekki verið
um það að ræða að rás viðburðanna ætti ein-
ungis að ráðast af núningi ólíkra stétta eða
af nýrri tækni. Þess í stað vildi hann leita út
fyrir ramma samtímaumræðunnar og skyggn-
ast eftir frumformum þess sem var sannan-
lega íslenskt. Grunninn að þeim fann hann í
miðaldabókmenntunum og túlkun þeirra var
í hans augum lykill að mótun nútímasam-
félags á íslandi. Bak við allt það sem íslensk-
ir menn og íslenskar konur hugsuðu og sögðu
lá órofa arfleið sem hafði ljáð íslendingum
þann einstaka kjarna sem greindi þá frá öllum
öðrum þjóðum og sem var um leið sá kraftur
sem skóp verkum þeirra tilgang og stefnu.
Túlkun miðaldabókmennta var engin þurrp-
umpuleg fílólógía, hún var í raun og veru bilbl-
íutúlkun: Opinberun dýpstu sanninda um þenn-
an heim og annan.
Það er að vísu efamál hvort Sigurður ætlaði
sér þá dul að skilgreina íslenska menningu í
eitt skipi fýrir öll en hann ætlaði sér vissulega
að draga fram þann frumspekilega grunn sem
hún hvíldi á og gera öllum hann ljósan. Þótt
þessi grunnur lægi fyrst og fremst í rituðum
heimildum, í bókmenntaverkum miðalda, vissi
hann einnig, líkt og kemur fram í áðumefndri
grein um Oræfinga, að óendanleg verðmæti
lágu í því sem ekki hafði verið fært í letur og
sem aðeins varð lifað og skynjað. Hann var
hins vegar ætíð hikandi við að færa menningar-
hugtak sitt út fyrir svið bókmenntanna, út fyr-
ir svið textans, kannski vegna þess að á því
sviði vora fáir honum fremri í að gefa
hugmyndum sínum sannfæringarmátt
og ljá þeim form. Hvað sem manni
finnst til að mynda um túlkun hans á
Völuspá er ekki annað en hægt að
hrífast af innblásnum skýringum
hans á sálarlifi höfundarins og þeim
átökum og samþættingu ólíkra
heimsmynda sem í kvæðinu er fólgin
að hans mati. Þar fer saman annars
vegar skáldleg innsýn mikils túlkunar-
fræðings og einstakur hæfileiki rithöf-
undar til að miðla þeirri sýn til les-
enda. Enda er það þetta tvennt sem
heillar við Sigurð Nordal þegar upp
. _ er staðið: Annars vegar geta hans
til að greina grannform og grunn-
stærðir í hveiju máli og hins veg-
ar hæfileikar hans til að setja þessa
l|g§| v sýn fram í áhrifamiklum búningi.
® Ásamt þeim Halldóri frá Laxnesi og
Þórbergi frá Hala var hann áhrifamesti
rithöfundur íslendinga á þessari öld, mað-
ur sem hver ný kynslóð verður að glíma
við á sína vísu.
I örmum kolkrabbans
BÆKUR
U m ræða
FALID VALD EITUR-
LYFJAKOLKRABBANS
eftir Jóhannes Bjöm. íslenska
bókaútgáfan, 1997 - 188 bls.
EITURLYFJAVANDI er hvorki
staðbundið né einangrað vandamál.
Það er tekinn af allur vafi um það
í þessari bók. Farið er um nánast
allan heiminn og lýst þróun síðustu
áratuga í framleiðslu, neyslu og
útbreiðslu. Ferlið frá ræktun til
neyslu er efnahagslega ábatasamt
fyrir þá sem að því koma, en það
hefur ýmsa ókosti líka. Peningar
gefa völd, alveg sama hvemig
þeirra er aflað. Allar þjóðir heims
keppast við að ná efnahagsbata og
þegar miklir peningar streyma inn
á stuttum tíma er ekki spurt um
hvaðan þeir koma eða hugsanleg
langtímaáhrif.
Samhengi pólitískra átaka og
eiturlyfja er sterkt. Eiturlyf eru
notuð til að fjármagna átök en
notkun þeirra er þó ekki bundin
við átakasvæðið. Þau geta þó verið
þáttur í að brjóta óvininn niður. í
pólitískri refskák þjóða heims, ekki
síst „siðmenntaðra“ Vesturlanda,
geta vinir í dag verið óvinir á
morgun - og öfugt. Vesturlönd
hafa hjálpað eiturlyfjabarónum að
komast til valda, beint og óbeint
og í kjölfarið streyma eiturlyf um
allt. Opinberar stofnanir eru í sam-
starfi við eiturlyfjabaróna.
Eiturlyf eru samtvinnuð efna-
hags- og stjómmálum. Viðhorf til
þriðja heimsins em ekki til að auka
sjálfstæði ríkja hans. Skuldir fá-
tækra ríkja til hinna ríku valda
upplausn, atvinnuleysi og fátækt.
Þær grafa undan sjálfsþurftarbú-
skap og persónulegu sjálfstæði.
Þetta em kjöraðstæður fyrir eitur-
lyf. Sama má segja um stórborgir
allra ríkja. Auður sem safnast á
fáar hendur grefur undan sjálf-
stæði og áhrifamætti almennings.
Þeir sem sjá engan tilgang í lífinu
hafa engu að tapa.
Verkið lýsir orsökum og afleið-
ingum á trúverðugan hátt, lýsir
ástandinu hér og nú og hvemig
það gæti breyst til hins verra. Til
dæmis er íslenskur markaður enn
sem komið er vanþróaður en hann
fylgir meir og meir sveiflum og
fyrirmyndum annars staðar og því
er meiri nauðsyn nú en áður að
bregðast við. Ábyrgðin er allra.
Það er áhugavert að skoða eitur-
lyf og áhrif þeirra í víðu samhengi
en um leið er hætta á að manni
fallist hendur. Er eitthvað hægt
að gera til að spoma við eiturlyfja-
vandanum? Er það orðið of seint?
Höfundur sýnir þróun og áhrifa-
valda útbreiðslu fíkniefna og í
framhaldi af því kemur hann fram
með mögulegar leiðir til að leysa
vandann.
Mikil heimildarvinna liggur að
baki verkinu og einmitt þess vegna
hefði verið gott að hafa efnisyfírlit
og atriðisorðaskrá svo hægt væri
að fletta upp í henni eftir lestur.
Bókin hefði nýst betur þannig.
Kristín Ólafs
Skáld les ljóð sín
HLJOÐBÆKUR
Ljóð
SAFN LESINNA LJÓÐA
eftir Jón úr Vör. Ein snæida.
Hljóðbókaklúbburínn.
ÁRIÐ sem óðum er að líða og
síðasta ár eru tímamótaár í lífi
skádsins Jóns úr Vör. í fyrra var
hálf öld frá útkomu Þorpsins, fyrstu
ljóðabókar á íslensku sem eingöngu
hafði að geyma óbundin ljóð, í ár
varð skáldið áttrætt og jafnframt
eru sextíu ár frá þvi fyrsta bók
þess, Ég ber að dyrum, kom út.
Af þessu tilefni meðal annars gefur
Hljóðbókaklúbburinn út úrval ljóða
úr öllum tólf bókum skáldsins í
lestri þess sjálfs. Upptökur eru
flestar nýjar, fáeinar úr hljóðrita-
safni útvarpsins frá því fyrir þijátíu
áram og er það mjög við hæfi tilefn-
isins. Aðalsteinn Asberg Sigurðsson
valdi ljóðin og flytur eftirmála.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um ljóð Jóns úr Vör á umliðnum
sextíu árum. En hvað sem segja
má, tala ljóðin sjálf sínu máli. Á
þessum árstíma er ljóðið Jól úr
Þorpinu, sem skáldið les fimmtugt
Jól,
kertaljós í btáum fjarska,
bak við ár,
æskuminning um fegurð.
Stíg ég hreinn upp úr bala
á eldhúsgólfinu,
sipdur af þreyttri móður,
færður í nýja skyrtu.
Jól,
fagnaðartár
fátæks bams -
á snældunni, einkar hæfilegt:
Einfaldleiki hversdagsins er eitt
af einkennum þessa ljóðs einsog
fleiri ljóða Jóns úr Vör. En aðrir
tónar eru þar leiknir, t.a.m. sá hlý-
legi, jafnvel sá bjarti sem dregur
skuggana enn skarpari dráttum.
Vinnsla bókarinnar er með mestu
ágætum, svo og hljómgæði - mis-
munur á styrk eldri og yngri upp-
taka er í jafnvægi.
Þegar á heildina er litið verður
ekki annað sagt en hið fornkveðna:
Það er fengur að þessari bók.
Kjartan Árnason