Morgunblaðið - 20.12.1997, Side 1
Valur Fannar Gíslason er að pakka niður í London og hefur tekið stefnuna á Noreg
Stefán gerir
þriggja ára
samning við
Strömsgodset
Leikur
fyrst
með
KR
næsta
tímabil
STEFÁN Gíslason, bróðir
Vals Fannars, hefur gert
þriggja ára samning við
norska 1. deildarliðið
Strömsgodset. „Ég fer þó
ekki tii Noregs fyrr en eft-
ir ár - Ieik næsta keppnis-
timabil með KR,“ sagði
Stefán, sem lék með KVA í
2. deild sl. keppnistímabil,
en var sl. vetur lyá Ar-
senal.
„Ég er ekki nema
sautján ára og því mjög
dýrmætt fyrir mig að fá að
spreyta mig í úrvalsdeild-
inni hér heima áður en
haldið verður út. Ég hef
mikla trú á Atla Eðvalds-
syni sem þjálfara og það
verður gaman að vera und-
ir hans stjórn hjá KR,“
sagði Stefán, en árið
sem hann verður hjá KR er
hann á fyrsta samningsári
þjá Strömsgodset, þannig
að þegar hann kemur
til Noregs á hann eftir
tvö ár af sanmingi við
liðið.
Þess má geta að þeir
bræður Stefán og Valur
Fannar léku nokkra leiki
saman með varaliði
Arsenal sl. keppnistfmabil
- Stefán lék þá með ung-
lingaliði Arsenal.
BRÆÐURNIR frá Esklflrðl, Valur Fannar og Stefán Gíslasynir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá Arsenal til
Strömsgodset
Eg sé ekki eftir þeim tíma sem
ég hef verið hjá Arsenal - ég
hef gengið í gegnum góðan skóla.
Möguleikamir að ná lengra hér eru
ekki miklir, þar sem leikmanna-
hópur liðsins er of stór og það eru
sex leikmenn á undan mér í þeirri
stöðu sem ég hef verið að leika.
Þar í hópi eru leikmenn eins og
Tony Adams, Martin Keown, Steve
Bould og Scott Marshall,“ sagði
Valur Fannar Gíslason, sem er að
pakka niður þessa dagana. Hann
hefur tekið stefnuna á Noreg, hef-
ur átt í viðræðum við Óslóarliðið
Strömsgodset.
„Ég hef verið að ganga frá mín-
um málum hér hjá Arsenal og hef
fengið mig lausan frá liðinu. Samn-
ingaviðræður hafa staðið yfir við
Strömsgodset og ég vona að endar
nái saman í byrjun janúar,“ sagði
Valur Fannar, sem hefur verið hjá
Arsenal síðan sumarið 1996. „Það
er ekki hægt að bera Arsenal sam-
an við önnur lið, en með því að fara
til Noregs fæ ég tækifæri til að
leika og sýna mig,“ sagði Valur
Fannar, sem kemur heim í jólafrí.
„Ef allt gengur eftir fer ég til Nor-
egs flótlega eftir áramót.“
Valur Fannar mun hitta fyrir
annan íslending hjá Strömsgodset,
KR-inginn Óskar Hrafn Þorvalds-
son, sem gekk til liðs við liðið á
haustdögum. Með liðinu leikur
einnig Marko Tanasic, fyrrum leik-
maður Keflavíkurliðsins.
Valur Fannar verður tólfti ís-
lenski knattspymumaðurinn til að
gera samning við norskt 1. deildar-
Uð.
f Noregi
Stór hópur íslenskra
knattspymumanna leikur
með norskum 1. deildar-
liðum næsta keppnis-
tímabil.
Brann
Ágúst Gylfason
Molde
Bjarki Gunnlaugsson
Lilleström
Rúnar Kristinsson
Heiðar Sigurjónsson
Strömsgodset
Óskar Hrafti Þorvaldsson
Valur Fannar Gíslason
Stefán Gíslason
• Stefán fer til liðsins
eftir ár.
Stabæk
Helgi Sigurðsson
Víking
Ríkharður Daðason
Tromsö
Tryggvi Guðmundsson
Válerenga
Brynjar Bjöm
Gunnarsson
Rosenborg
Ámi Gautur Arason.
SKfDI: KRISTINN BJÖRNSSON KEPPIR í AUSTURRÍKI OG Á ÍTALÍU / B4