Morgunblaðið - 04.02.1998, Síða 3
++
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998 B (i
KÖRFUKNATTLEIKUR
ar brugðust
9- frestun leiks KFÍ við Keflavík tveimur
r- dögum áður vegna veikinda í herbúðum
u, KFÍ. Suðurnesjamenn vildu augljóslega
á ekki smitast, en gi-ímurnar dugðu ekki til,
>g því dæmi voru um veikindi einhverra
iu Njarðvíkinga er þeir voru komnir aftur til
ir síns heima.
„Stuðningur-
inn lygilegur“
STUDNINGSMENN KFÍ, „ísfólkið“, er liðinu nokkurra stiga virði í hverjum leik.
■ GIANFRANCO Zola og Roberto
Di Matteo, ítalir í liði Chelsea í
ensku úrvalsdeildinni í knattspymu,
hafa báðir framlengt samninga sína
við félagið til ársins 2002. Því er lík-
legt að hvor um sig ljúki ferlinum
hjá liðinu, en Zola verður 35 ára við
samningslok.
■ STEVE McManaman, leikmaður
Liverpool og enska landsliðsins, á--
við smávægileg meiðsl að stríða í
hnésbótarsin. Hann mun fá viðeig-
andi meðhöndlun af sjúkraþjálfara í
vikunni, en ef hann leikur ekki með
Liverpool gegn Southampton á
laugardag, verður hann að öllum
líkindum dreginn út úr landsliðs-
hópnum fyrir leik við Chile á
Wembley á miðvikudag eftir viku.
■ NEWCASTLE hefur fengið mikla
samkeppni í kapphlaupinu um
Markus Babbel, varnarmann Ba-
yern Miinchen, en Man. Utd.,
Liverpool og Tottenham hafa lýst
yfir áhuga sínum á leikmanninum.
Newcastle hafði boðið fimm milljón-
ir punda í hann.
■ JUPP Heynckes, knattspyrnu-
stjóri Real Madrid, þykir orðinn
valtur í sessi eftir slakt gengi liðsins
undanfarið. Nokkiúr aðrir stjórar í
Evrópu eru taldir á óskalista for-
ráðamanna spænska liðsins, t.d.
hinir ítölsku Marcelo Lippi, hjá Ju-
ventus, og Arrigo Sacchi, sem er
laus og liðugur.
■ ARSENE Wenger, knattspymu-
stjóri Arsenal, hafði einnig verið
orðaður við Real Madrid, en hann
sagðist sjálfur hafa fengið atvinnu-
tilboð frá stóru félagi á meginlandíi-
Evrópu, sem hann afþakkaði. Sagð-
ist hann ánægður í starfi sínu hjá
Arsenal.
■ EVERTON fékk tilboð í Gary
Speed, sem var fyrirliði liðsins áður
en hann neitaði að fara með liðinu
til leiks við West Ham um helgina.
Tilboðið var frá Newcastle og
hljóðaði upp á fimm milljónir
punda.
■ FÉLAGIÐ hafnaði tilboðinu með
þeim skilaboðum að Newcastle yrði
að bjóða hálfa milljón punda til við-
bótar til að fá Speed, sem sagðist
einmitt vilja fara til Newcastle þeg-
ar hann fór fram á sölu á dögunum.
Fótboltaferð
SAMVINNUFERÐIR-LANDSÝN
efnir til hópferðar til Manchester um
páskana en fyrirhugað er að sjá leik
Manchester Únited og Liverpool á Old
Trafford föstudaginn 10. apríl. Eins er
möguleiki á að fai'a á viðureign
Everton og Leeds eða leik Bolton
gegn Blackburn. Um er að ræða fjög-
urra nátta ferð og verður gist í Liver-
pool.
23. febrúar verður nágrannaslagur
Liverpool og Everton á Anfield Road
og geta Samvinnuferðir-Landsýn út-
vegað miða á leikinn og skipulagt ferð
héðan.
Bikarúrslit -
FORSALA aðgöngumiða á bikarúr-
slitaleik Fram og Vals í handknattleik
í Laugardalshöll á laugardag, hefst kl.
16 á fimmtudag í íþróttahúsi Fram. Þá
gefst rétthöfum frímiða á vegum HSÍ
kostur á að sækja miða sína, en eigi
síðar en kl. 20 á fimmtudag.
New York
sýndí klærnar
LARRY Johnson gerði 35 stig fyrh- New
York Knicks, sem vann Miami Heat á sunnu-
dagskvöld, 89:83. Rígur er á milli þessara
liða, eins og sást í úrslitakeppninni síðasta
vor og svo virtist sem leikmenn ætluðu að
halda uppteknum hætti um helgina, en engu
munaði að slagsmál brytust út efth- ruddalegt
brot Alonzos Moumings, miðherja Miami, á
Johnson, en þeir léku eitt sinn saman í
Charlotte. í kjölfarið fór P.J. Brown, fram-
herji Miami, af varamannabekknum og inn á
völlinn í leyfisleysi. í gær vai- hann síðan úr-
skurðaður í eins leiks bann fyrir uppátækið.
Bandaríkjamanninum David Bevis líkar lífið á ísafirði
David Bevis, Bandaríkjamaðurinn
sem gekk til liðs við KFÍ í ágúst á
síðasta ári, hefur leikið mjög vel í
vetur og verið ein styrkasta stoð
ísafjarðarliðsins, sem er á öðru
tímabili sínu í efstu deild. Bevis er
24 ára og lék með körfuknatt-
leiksliði Arkansas Tech-háskólans
í 1. deild NAIA-deildakeppninnar
og útskrifaðist þaðan vorið 1995,
en að því loknu fékk hann sig
fullsaddan af körfuknattleik - eða
svo hélt hann. „Það leið ekki á
löngu þar til ég fór að sakna
körfuknattleiksins. Þá varð ég al-
veg sjúkur í að spila á nýjan leik
og hér er ég nú,“ segir Bevis, en
hann lék ekkert í um tvö ár eftir
útskriftina.
„A lokaári mínu í skólanum
komust við í undanúrslit NAIA-
deildarinnar og vorum hársbreidd
frá þ\ú að leika til úrslita. Þegar ég
kom hingað vildi ég stíga skrefi
lengra og vinna til verðlauna. Við
fáum nú að spila bikarúrslitaleik
við Grindavík og ég er vitaskuld
mjög ánægður með það.“
„Taldi feril minn á enda“
Hvað varð til þess að þú komst
hingað?
„Umboðsmaður minn hefur
sambönd hér og sá til þess að mér
var boðinn samningur. Eg fékk
nokkur tilboð í fyrra frá ýmsum
Evrópulöndum, en hafnaði þeim
því ég hafði einfaldlega ekki áhuga
á að leika körfuknattleik - taldi
feril minn á enda. En löngunin var
greinilega innra með mér og ég
sagði umboðsmanni mínum að mig
langaði til að spila aftur. Hann
svipaðist um og við fengum tilboð
frá ísafirði. Hann sagði mér að
þetta væri mjög vinaleg borg, eða
bær . . . ég á alltaf erfitt með að
segja „bær“, því ég er vanur að
segja „borg“,“ segir Bandaríkja-
maðurinn og hlær.
„Ég jgæti ekki beðið um neitt
meira. I fyrsta lagi er þetta undur-
fagur staður og í öðru lagi er
stuðningur bæjarbúa hreint lygi-
legur. Þeir eru langbestu stuðn-
ingsmenn landsins. Við erum nær
allstaðar á heimavelli - það er al-
veg ótrúlegt," segir Bevis, sem lék
jafnan frammi fyrir rúmlega þús-
und áhorfendum í íþróttahöll, þar
sem rými var fyrir um fjögur þús-
und manns í sæti. „Maður finnur
mun meira fyrir nærveru tæplega
þúsund áhorfenda í litlu íþrótta-
húsi, eins og leikið er í hér á landi,
alltaf frekar að við sigrum. Og ef
ég stend mig vel í sigurleik, er
ekkert annað en gott um það að
segja. Svo fremi sem við vinnum,
skiptir annað ekki máli.
Mér skilst að þetta sé annað ár
KFÍ í úrvalsdeild. Mig langar bara
til að láta gott af mér leiða, leika
með hag liðsins fyrir brjósti og
hjálpa því að ná eins góðum ár-
angri og það mögulega getur,“
segir Bevis.
„Ég held að forráðamenn liðsins
hafi viljað fá mig hingað snemma
til að sjá hvort ég myndi ná mér á
strik, því ég hafði ekki leikið í tvö
ár. Þeir héldu sig við mig, en ég
var lengi að aðlagast leikaðferð-
inni, sem hér tíðkast, og dómgæsl-
unni.“
„Besta liðið í deildinni“
Hvert er markmið liðsins á
þessu tímabiii?
„Þegar ég sá fullmyndaðan leik-
mannahóp okkar í haust, vissi ég
að við gætum staðið okkur vel og
tel okkur nú vera með besta liðið í
deildinni. Ég efast ekki um það.
Þegar við leikum eins og við eigum
að okkur, tel ég að ekkert íslenskt
lið geti sigrað okkur. En stundum
kemur fyrir að við leikum undir
getu og til þess að bæta úr því
þurfum við að vera stöðugri.
Ég held að markmiðið hér hafi
einungis verið að komast í úrslita-
keppnina, því liðið var einum sigri
frá því í fyrra. Vitaskuld var það
mitt markmið líka, en frekar lítil-
fjörlegt. Ég vil komast eins langt
og mögulegt er með þann mann-
skap sem við höfum. Við erum
mjög góðir þegar við vinnum sam-
an - og það hefur komið á daginn.
Sú varð rauninn í síðari hálfleik
[viðureignar KFÍ og Njarðvíkur í
undanúrslitum bikarkeppninnar sl.
sunnudag, sem KFI vann, 99:70].
Það sama var upp á teningnum í
Grindavík [15. janúar sl„ er KFI
hafði betur, 112:96, í framleng-
ingu]. Þá komum við mjög ákveðn-
ir til leiks í síðari hálfleik og lékum
vel. Sá leikur var „stríð“, en það
var þannig leikur, sem allir vilja
sjá. Ég hef heyrt frá fleiri en ein-
um aðila að það hafi verið einn
besti leikur í sögu úrvalsdeildar-
innar, einkum síðari hálfleikurinn,
og ég er ánægður með að hafa átt
þátt í honum.
Hefurðu nokkuð hugleitt hvað
þú gerir eftir þetta tímabil?
„Nei, ég einbeiti mér bara að
þessu tímabili um þessar mundir.
Ég spái ekkert í framhaldið fyrr
en við höfum spilað síðasta leikinn
í vor. Núna vil ég bara beita mér
fyrir því að við vinnum eins marga
leiki og unnt er og náum meiri
stöðugleika. Það er það sem ég ít-
rekaði við félaga mína í liðinu, að
gefa allt sem við eigum í hvern ein-
asta leik, sama hver andstæðing-
urinn er. Meira get ég ekki farið
fram á. Við höfum gert þetta hing-
að til og vona að svo verði áfram,“
segir David Bevis.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
ins í vetur, voru í vígahug er þeir héldu
if biðu þeirra.
heldur en þegar jafnmargir sitja á
víð og dreif um áhorfendastæðin í
stórum íþróttahöllum, eins og í
skólanum heima.“
Hafði aldrei komið
til útlanda
En hvað fór í gegnum huga þinn
þegar þú komst fyrst til ísafjarð-
ar?
„Ég vissi áður en ég fór að
heiman, að þetta yrði mér mikil
lífsreynsla, því ég hafði aldrei farið
til útlanda áður - ekki einu sinni til
Mexíkó eða Kanada. Ég vissi í
raun _ekki við hverju ég átti að bú-
ast. Ég leitaði upplýsinga á alnet-
inu, las um Island og gerði árang-
urslausa tilraun til að finna bæinn,
sem ég átti að búa í, á korti. Hann
reyndist síðan svo fallegur. Ég hef
aldrei áður hrifist jafn mikið af
náttúrufegurð. Ég kom hingað 1.
ágúst og held að ég hafi verið
fyrsti nýi Bandaríkjamaðurinn,
sem kom til úrvalsdeildarliðs fyrir
tímabilið. Ég hafði því nægan tíma
til að undirbúa mig og margir voru
fúsir til að sýna mér bæinn og um-
hverfið. Vegna þess hve lítill bær-
inn er, er ekki hægt að gera mjög
margt, en það er ef til vill af hinu
góða,“ segir Bevis.
Aldrei séð neitt verra
Þú hefur ekki enn kynnst al-
vöruvetri á þessum slóðum.
„Það er víst rétt, fólkið hefur
verið að segja mér að bíða rólegur.
Ég veit ekki hvað gengur að veðr-
inu. Ég hef séð mjög slæmt veður
hér suma daga, aldrei séð neitt
verra á ævinni, en mér skilst að
það sé ekkert í líkingu við það sem
gengur og gerist hér í meðalári.
Þú berð mikla baráttu- og leik-
gleði með þér á vellinum.
„Ég hef setið nær aðgerðalaus í
tvö ár og hugsað um körfubolta, en
núna þegar ég er loks byrjaður að
spila aftur vil ég leggja mig allan
fram. Þetta er fyrsta árið mitt og
ég vil sanna að ég eigi heima hér
eða hvar sem mig langar til að
leika. Margir virðast líta á
körfuknattleik sem hálfgerða ein-
staklingsíþrótt, en hafa verður í
huga að fjórir samherjar eru með
manni á vellinum, fimm aðrir á
varamannabekknum - og auk þess
allur þessi fjöldi áhorfenda. Ég hef
alltaf borið hag liðsins fyrir
brjósti, í stað aðeins eigin árang-
urs. Vitaskuld er mjög gaman að
eiga góðan leik, en ég óska þess
+jjjP Sundþjálfari
Sundfélagið Ægir óskar eftir að ráða aðalþjálfara frá og með næsta
keppnistímabili. Æskilegt er að hann hafi íþróttakennaramenntun
og hafi lokið C-stigs þjálfaranámi.
Umsóknir, með upplýsingum um nám og fyrri þjálfarastörf, sendist
sundfélaginu Ægi (þróttamiðstöðinni Laugardal, Engjavegi 6,
106 Reykjavík, netfang: sfaegir@mmedia.is, fyrir 12. febrúar nk.
Sundfélagið Ægir.
+