Morgunblaðið - 06.02.1998, Side 1

Morgunblaðið - 06.02.1998, Side 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA | Birkir í stað Ólafs BIRKIR Krístinsson markvörður Norrköping- í Svíþjóð sem er með liði sínu í æfingabúðum á Spáni kemur til Kýpur í kvöld. Hann var valinn í íslenska lands- liðshópinn í staðinn fyrir Ólaf Gottskálkssson sem fékk þær fréttir frá Skotlandi að hann yrði i byrjunarliði Hibernian í úrvalsdeildinni á morgun, ef hann kæmi til Skotlands. Ólafur hefúr ekki verið í liði Hibernian upp á síðkastið og vildi þvi helst ekki sleppa þessu tækifæri. Vert er að geta þess að Árni Gautur Arason var fyrsti vara- markvörður inn í landsliðshóp- inn en hann er nú í æfingabúð- um með liði sínu, Rosenborg frá Noregi, í Suður-Afríku og KSÍ- mönnum þótti of langt að fá hann þaðan til Kýpur. Arnar í bann ARNAR Gunnlaugsson leikur ekki með fslenska landsliðinu í knattspyrnu á móti Slóvakíu á morgun á Kýpurmótinu. Arnar var rekinn af leikvelli gegn Sló- veníu í gær, fyrir ljótin munn- söfnuð í garð dómarans. Hann fékk eins leiks bann fyrir að vera vikið af velli í gær. ■ Háspenna / D3 BLAÐ Morgunblaðið/Golli 1998 U FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR Efstu og neðstu liðin sigmðu EFSTU og neðstu lið úrvalsdeild- arinnar í körfuknattleik sigruðu öll í gærkvöldi, þegar fimm leikir fóru fram í 17. umferð. Grindvíkingar héldu efsta sætinu með sigri á Njarðvík í æsispennandi leik í Gr- indavík, 83:80 og hafa nú 30 stig. Haukar eru í öðru sæti, fjórum stigum á eftir, eftir sigur á Keflvík- ingum, 68:67 í leik sem einnig bauð upp á mikla spennu. Hér til hliðar fer Sigfús Gizurar- son, leikmaður Hauka, framhjá Fannari Ólafssyni og þrátt fyrir góða tilburði Fals Harðarsonar, sem var stigahæstur Keflvíkinga með 28 stig, tókst honum ekki að stöðva Sigfús frekar en lið Hauka. Vert er að geta þess að Banda- ríkjamaðurinn í liði Keflvíkinga, Dana Dingle, er meiddur. Hann var því illa fjarri góðu gamni í gær og munar vitaskuld um minna. ÍR og Þór eru enn neðst í deild- inni, en sigruðu bæði í gær; Þórs- arar lögðu ÍA á Akureyri og ÍR lagði Valsmenn að Hlíðarenda. Þau hafa nú bæði 6 stig en Valsmenn eru næstir fyrir ofan með tíu. i i ! ! ' fl íf *i i Björn meðal bestu fimleikadómara heims BJÖRN Magnús Tómasson, fimleikadómari og þjálfari Ár- manns, fékk mjög góða umsögn frá tækninefnd Alþjóða fim- leikasambandinu, FIG, vegna frammistöðu hans á heims- meistaramótinu sem fram fór í Lausanne í Sviss sl. sumar. 70 dómarar dæmdu í mótinu og voru tveir þeirra íslenskir. Tækninefnd FIG heiðraði 15 þeirra fyrir frábær störf fyrir skömmu og var Björn einn þeirra. Menn innan FimJeika- sambandsins segja að þetta sé ein mesta viðurkenning sem ís- lenskum fimleikum hefur hlotnast. Fimmtán íslendingar og þar af íjórir karlar hafa alþjóðleg dómararéttindi i fimleikum. Þetta er í fyrsta sinn sem ís- Ienskur dómari fær slíka viðurkemi- ingu. í bréfi sem Björn fékk frá Hardy Fink, for- manni tækninefnd- ar FIG í karla- greinum, ein hon- um þökkuð frábær störf - dómgæsla í hæsta gæðaflokki. „Við væntum þess að fá að vinna með þér aftur í framtíð- inni í mótum á veg- um FIG,“ segir meðal annar í bréfi Fink. Björn sagði þetta mikla við- urkenningu og hvatningu fyrir sig. „Þetta ætti að opna fleiri dyr fyrir íslenska dómara á er- lendum vettvangi í framtíðinni. Þetta var í fyrsta sinn sem ég dæmdi á heiinsmeistaramóti og því jákvætt að fá slíka viðukenn- ingu,“ sagði Björn sem tók dómara- próf fyrst 1993 og síðan aftur 1997, en dómarar þurfa að endurtaka próf á Ijcgurra ára fresti til að halda réttindum sínum. Björn hefur verið fimleikaþjálfari hjá Ármanni í tíu ár og segir að mikill uppgangur sé í fim- leikum á íslandi um þessar mundir. BJÖRN Mjög ósátt- ur við tapið Ísland tapaði, 2:3, fyrir Slóvenum í fyrsta leik Kýpurmótsins í knatt- spymu í gær og Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfari í Steirþór knattspymu, vai- að Guðbjartsson vonum ekki ánægður með úrslitin. „Ég er Kypur mjög ósáttur við tap- ið,“ sagði hann við Morgunblaðið. „Við yfirspiluðum mótherja okkar í fyrri hálfleik og fengum fjögur eða fimm dauðafæri sem hefði að minsta kosti átt að gefa okkur tvö til þrjú mörk. En við vomm ekld nógu skynsamir, hik var á mönnum og svo var völlurinn afleitur." Guðjón sagði að fátt hefði komð sér á óvart. „Við þurfum meiri aga í leikinn. Við duttum niður í um stundarfjórðung í seinni hálfleik og fengum þá tvö ódýr mörk á okkur. Fyrra markið var ákvörðun dómar- ans en maðurinn átti auðvitað ekki að vera laus í seinna markinu." Slóvenar fógnuðu innilega í lokin en Guðjón sagði að það hefði eldd átt að vera hlutskipti þeirra. „Þeir náðu aðeins einu sinni að opna vöm- ina hjá okkur og náðu þá fyrirgjöf. Að öðru leyti hélt vörnin. Það segir líka margt að þeir gera tvö mörk úr vafasömum vítaspymum. En við sóttum oft vel og sköpuðum okkur góð marktækifæri. Þórður [sonur þjálfarans] hefði getað verið með þrennu, Arnar Gunnlaugsson eitt eða tvö mörk, Pétur [Marteinsson] eitt og Bjarni [Guðjónsson, yngri sonur þjálfarans í landsliðinu] eitt. Með þessi atriði í huga er mjög nið- urdrepandi að tapa en við verðum að taka því.“ ■ Ekkl nóg / B3 GLÍMA: ANDRI LEÓ EGILSSON SIGRAÐI Á ÞORRAMÓTINU / D4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.