Morgunblaðið - 14.02.1998, Side 31
HALLDÓR KELJAN LAXNESS
LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1998 3JL
Skáldið og
Ríkisútvarpið
Úr fórum Péturs Péturssonar þular
Betri tíð með blóm í haga
Halldór Laxpess og Páll ísólfsson sögðu
frá þátttöku íslendinga í menningarviku
sem haldin var í Stokkhólmi haustið 1932,
þar sem þeir voru fulltrúai’. Þaðan hélt Lax-
ness í austurveg og þar varð hann til þess
fyrstur íslenskra útvarpsmanna að flytja
ræðu sem útvarpað var á stuttbylgjum. Það
var á 15 ára afmæli rússnesku byltingarinn-
ar. Ræðunni vai’ útvarpað frá Moskvu.
Þegar Halldór var spurður um starfið,
sem hann gegndi hjá Ríkisútvarpinu á
fyrstu árum þess, sagði hann: „Þetta var
þægilegasta og besta starf sem hægt var
að fá. Eg þurfti ekki að gera nokkum
skapaðan hlut annað en bjóða góðan dag
helstu snilldarmönnum og höfðingjum og
stjómmálamönnum og músíkmönnum og
allskonar syngjandi dömum sem vora
tignarlegar og miklar dömur. Það vora
konur eins og María Markan. Hún var
glæsileg kona.“
Og um viðmót manna, gesta, sem komu
fram í útvarpi, kvaðst hann ekki hafa orðið
HALLDÓR Laxness mun hafa orð-
ið til þess fyrstur íslenskra rithöf-
unda að róma útvarp og áhrif þess
í ritsmíðum og ljóðum. Löngu fyr-
ir daga íslensks útvarps vakti Halldór at-
hygli alþýðu á yfirburðum nýrrar tækni
sem væri að ryðja sér til rúms, m.a. í grein
í Verði, vikublaði Kristjáns Albertssonar.
Þeir, sem lesið hafa bemskuminningar
Halldórs Kiljans Laxness, minnast þess að
amma Halldórs tekur öllum tækninýjung-
um með fyrirvara. Henni er lítt gefið um
vatn, sem rennur upp í móti og kemur úr
krönum, trúir ekki tíðindum sem berast
símleiðis. Að sama skapi og amman er
fastheldin við forna siði og gefur ekki um
tækni er skáldið unga ákafur fram-
farasinni og nýjungagjam.
Sjálfur færði hann sér tæknina í nyt og
féllst á tilmæli framherja í útvarpsrekstri,
Ottós B. Amar og félaga hans, um að
flytja erindi í útvarpsstöð hlutafélagsins
sumarið 1926. Þar sagði hann þjóð sinni til
syndanna: „íslendingar eru sem stendur
siðspilltir af pólitísku kjaftæði og pólitísku
götuhomaskítkasti," en íslenska þjóðin
hefði „mörg skilyrði til að verða merkileg-
asta þjóðin í Norðurálfu í staðinn fyrir að
nú verðum vér að sætta oss við að vera
ómerkilegasta þjóðin í Norðurálfu."
Dyravörður Ríkisútvarpsins
í upphafi fjórða áratugarins var hart í
ári og skammtað naumt til menningar-
mála, rithöfundum fyrirmunað að draga
fram lífið á ritlaunum eimun. Halldór Lax-
ness mun hafa tekið því feginsamlega er
honum bauðst staða dyravarðar í Ríkisút-
varpinu á fyrsta starfsári þess. Frá þeim
tíma er lag Þórarins Guðmundssonar við
ljóð Halldórs „Vor hinsti dagur er hnig-
inn“, hugljúft lag við tregafullan texta.
Halldór hefir minnst bræðranna Þórarins
og Eggerts Gilfers lofsamlega í endur-
minningum sínum. „Þessir bræður nutu
mikils álits í höfuðborginni sem kennarar
og listamenn.“ Halldór er sendur að spila
á orgelharmóníum og nema undirstöðuat-
riði í píanói hjá Eggert Gilfer en verður
„afhuga tónlist“ um skeið. _Um tvítugt
sækir hann tíma hjá Páli ísólfssyni að
„frasera Bach“. „Þessir tímar
hjá Páli léðu mér lykil að meist-
aranum," segir Halldór er hann
minnist daganna. „Eins og aðrir
hændist ég að Páli, þeim töfra-
manni,“ bætir hann við.
Halldór mætir hvarvetna
góðvinum og kunningjum í fá-
brotnum salarkynnum Útvarps-
ins. Þar finnur hann á ný forn-
vin sinn og herbergisfélaga frá
Menntaskólaáram, séra Sigurð
Einarsson, sem nú er frétta-
stjóri Ríkisútvarpsins.
Um ráðningu Halldórs Lax-
ness til útvarpsins segir Þórar-
inn Guðmundsson fiðluleikari:
„En þetta er líka frægasti dyra-
vörður sem Útvarpið hefir
haft.“ Þórarinn segir frá kynn-
um þeirra í Útvarpinu. „Ég
gleymi aldrei hvað ég misreikn-
aði mig á þessum manni áður en
ég kynntist honum. Ég hafði
náttúralega lesið eitthvað af
bókum hans, sem þá vora
komnar út, og það var alls ekki
allt ákaflega fallegt sem stóð í
þessum bókum. Sumir hötuðu
jafnvel Laxness á þessum áram
fyrir hispursleysi hans og hrein-
skilni.“ Síðan lýsir Þórarinn
hvatvíslegri framgöngu sinni og
„orðbragði sem auðvitað hæfði
ekki hvítum manni“ er hann
hugðist ganga fram af Halldóri
með óhefluðu tali. „Ég sá strax
að ég hafði skotið yfir markið,
enda hef ég varla nokkum tíma
kynnst kurteisari og siðfágaðri
manni en Halldóri Laxness. HALLDÓR KILJAN Laxness við flygilinn að Gljúfrasteini.
HALLDÓR LAXNESS að störfum á heimili sínu við Vesturgötuna um 1940. Li°sm.vmi/Jon Kaldal
ÞESSA MYND tók óþekktur ljósmyndari í Leith í Skotlandi 1930 af þeim Þórbergi Þórðar-
syni, Eggerti Stefánssyni, Sigurði Skagfield og Halldóri Kiljan Laxness. Þórbergur og Hall-
dór voru nýkomnir af rithöfundaþingi í Noregi.
var andúðar, en vissi þó að „margir vora á
móti skáldskaparhætti mínum“.
Segja má að þótt oft hafi fyrrum blikað
á sverð og glampað á skildi í Rauðuskrið-
um í samskiptum Halldórs og Ríkisút-
varpsins, hetjur stokkið hæð sína og mörg
sé fótskriðan á Markarfljóti þá kom jafnan
betri tíð með blóm í haga.
Og engum starfsmanni sínum hefir Út-
varpið fagnað betur en Halldóri Laxness
er hann gekk úr „svítu Ásbjarnar“ á
heillaskipinu Gullfossi að hlýða á mál for-
seta Alþýðusambands Islands þegar þjóð-
in samfagnaði skáldi sínu af tilefni Nóbels-
verðlauna. Skáldið, útvarpsmaðurinn, sem
áður bar ræðumönnum svaladrykk, var nú
kominn heim og „hafði sungið fyrir heim-
inn“, eins og Nonni litli í Sumarhúsum.
Og íslensk þjóð mun áfram fagna, er
hún heyrir um hetjur skáldsins, Sölku
Völku, Bjart í Sumarhúsum, Ólaf Kárason
Ljósvíking og Ástu Sóllilju. Svo lifandi era
þær í huga hlustenda að búast mætti við
því að sjálf innheimtudeild Ríkisútvarps-
ins hefði þær á skrá um útvarpsgiöld.