Morgunblaðið - 15.02.1998, Side 6

Morgunblaðið - 15.02.1998, Side 6
6 B SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ • • Orlaga- dómur Titanic Titanic slysið er mönnum hugleikið þessa dagana. Sveinn Guðjónsson litast um á baksviði þessa hildarleiks og rifjar upp sögusagnir og staðreyndir varðandi þetta mesta og umdeildasta sjóslys sögunnar. SUMARKVÖLD eitt árið 1907 sat Sir J. Bruce Is- may, aðalforstjóri White Star Line skipafélagsins, kvöldverðarboð á glæsi- legu heimili James Pirrie lávarðar, Downshire House, við Belgravia í London. Pirrie lávarður var einn aðaleigandi Harland og Wolff skipasmíðastöðvarinnar, sem smíðaði öll skip White Star, og því voru sameiginlegir hagsmunir þess- ara manna augljósir. Þeir hagsmunir fólust meðal annars í því hvemig tryggja mætti White Star-félaginu yf- irburðastöðu í farþegaflutningum yfir Atlantshaf, en helsti keppinauturinn á því sviði var Cunard Line skipafé- lagið. Umræðuefnið þetta kvöld var nýjasta útspil Cunard-félagsins, haf- skipið Lusitania, 32.939 rúmlestir brúttó, 240 metrar að lengd og tæp- lega 27 metra breitt, sem talið var að myndi slá nýtt hraðamet í jómírúr- ferð sinni, en Lusitania átti að geta náð 27,4 sjómílna hraða á klukku- stund. Hraðametið á siglingaleiðinni milli Englands og Ameríku átti syst> urskip Lusitaniu, Mauretania, en það hafði siglt þessa leið með 25 mílna hraða árið 1907. Talið er víst, að í áðurnefndu kvöldverðarboði hafí fæðst sú hug- mynd að smíða tvö risahafskip fyrir White Star, hin stærstu sem siglt hefðu á heimshöfunum, og hið þriðja átti að fylgja í kjölfarið síðar. Höfuð- áhersla skyldi lögð á lúxus og þæg- indi, þótt ganghraði væri auðvitað einnig mikilvægur, enda gerðu far- þegar nú æ meiri kröfur um að vera fljótir í förum yfir hafið. Skömmu síðar var hugmyndin komin á teikni- borðið. Kjölur að fyrsta skipinu var lagð- ur í árslok 1908 og var það Olympic, systurskip Titanic. Það hóf siglingar árið 1911 og sigldi um heimshöfin til ársins 1935. Titanic var hleypt af stokkunum í byrjun sumars 1911 í Harland og Wolff skipasmíðastöð- inni í Belfast á írlandi. Það var rúm- lega 46 þúsund smálestir brúttó og um 270 metra langt, tæplega 30 metrum lengra en Lusitania. Ein túrbínuvél fyrir aðalskrúfu og tvær fjögurra strokka gufuvélar fyrir hlið- arskrúfur, samtals rúmlega 50 þús- und hestöfl. Skipið átti að ná um 22 sjómílna hraða á klukkustund. Þriðja systurskipið, Britannic, hóf siglingar árið 1915 og tekið í þjónustu breska sjóhersins sem sjúkraskip í fyrra strfði, en ári síðar rakst það á þýskt tundurdufl, að því er talið er, og hlaut vota gröf, eins og systurskipið fjórum árum áður. Keppnin um Bláa bandið Vegna útflytjendastraums til Vesturheims margfólduðust sigling- ar yfir Atlantshafið upp úr 1850. Voldug skipafélög voru stofnuð til að annast siglingarnar og varð sam- keppni á þessum markaði afar hörð og óvægin, samfara því sem skrúfu- gufuskip stækkuðu og urðu sífellt fullkomnari. Hraðakeppnin, sem kennd var við „Bláa bandið“, hófst um miðja 19. öld með því að Cunard-skipafélagið aug- lýsti að skip þess Acadia hefði sett met á Atlantshafsleiðinni með 12,5 mflna meðalhraða. Skömmu síðar lýsti bandaríska Collins-félagið því yfir að skip þess, Pacific, hefði farið leiðina með 13,2 mína meðalhraða. Bresk og bandarísk skip skiptust síðan á um að slá metið þar til Þjóð- verjar skárust í leikinn undir aldar- lok. Engar opinberar reglur voru um þessa keppni, en smám saman var henni mörkuð skeiðlengd milli Wight-eyju við Suður-England til Sandrifs við New York og methafar máluðu bláa rönd í kringum skips- skrokkinn. Arið 1907 lauk Cunard-skipafélag- ið við smíði tveggja 32 þúsund lesta systurskipa, Mauretaniu og Lusit- aniu, sem áður er getið og vann Mauretania Bláa bandið af Þjóðverj- um árið 1907, en síðan skiptust hún og Lusitania á um að halda bandinu þangað til Þjóðverjar sökktu Lusit- aniu í fyrri heimsstyrjöldinni. Með henni fórust tæplega 1.200 manns, þar á meðal margir þekktir Banda- ríkjamenn, og stuðlaði atburður þessi mjög að því að Bandaríkja- menn létu af hlutleysisstefnu sinni og snerust á sveif með Bandamönn- um í styrjöldinni. Harðasti keppinautur Cunard-fé- lagsins var White Star-félagið, eins og áður segir, og það var því íyrst og fremst þessi harða samkeppni, ásamt miklum metnaði, sem leiddi síðamefnda félagið út í smíði risa- skipanna þriggja, sem þá vora lang staerstu og glæsilegustu skip í heimi. I mörgum heimildum er kappæð- inu um Bláa bandið að hluta til kennt um hvers vegna ekki var slegið af ferð Titanic, eftir að það var komið inn á hættusvæði út af Nýfundna- landi þessa örlagaríku nótt í aprfl 1912. Varasamt er þó að slá nokkru föstu í þeim efnum og raunar afar ólíklegt að forsvarsmenn skipafé- lagsins og stjórnendur Titanic hafi gert sér nokkra von um að slá hraða- metið, sem Mauretania hafði sett 1909 með 26,5 sjómflna meðalhraða á þessari leið. Stærð Mauretaniu var aðeins tveir þriðju af stærð Titanic, en vélarorkan var 70 þúsund hestöfi. Vélarorka Titanic var rúmlega 50 þúsund hestöfl, og hámarkshraði þess með fullri hleðslu var um 21,5 mílur. Til að hnekkja hraðametinu hefði vélarorka Titanic þurft að vera a.m.k. 120 þúsund hestöfl. Þetta var einfalt reikningsdæmi og öllum Ijóst sem hlut áttu að máli, en engu að síð- ur hafa menn, allt til þessa dags, klif- að á því að í jómfrúrferðinni hafi Tit- anic átt að vinna Bláa bandið. Hitt er þó alveg Ijóst, að því hraðskreiðara sem skipið myndi reynast í jómfrúr- ferðinni, þeim mun betri auglýsing fyrir White Star skipafélagið og því afar mikilvægt fjárhagslegt atriði fyrir útgerðina. Stærsta og glæsilegasta skipið Þegar Titanic lagði úr höfn í Sout- hampton var straumiðan frá þessu fljótandi bákni svo öflug að landfest- ar nærliggjandi skips, New York, slitnuðu, skipin tvö soguðust hvort að öðru og engu munaði að þau rækjust saman. Sumar heimildir fullyrða að slitnir stálvírarnir hafi kastast upp á bryggjuna og yfir mannfjöldann, sem þar hafði safnast saman til að horfa á Titanic leggja frá, og hafi nokkrir látist, en aðrir stórslasast. Þótti þetta að sjálfsögðu illur fyrirboði. Frásögn þessi er ef tfl vill dæmi- gerð fyrir þær þjóðsagnakenndu sögur og staðhæfingar, sem haldið hefur verið á lofti um Titanic, allt til okkar daga, sumar sannar, aðrar hálfsannar, margar ýktar og enn OMINNINGARKORT, sem gefið var út vegna Titanic slyssins, með myndum af E.J. Smith skipstjóra og J.G. Phillips loftskeytamanni. ÞEGAR Titanic lagði úr höfní Southampton var straumiðan frá þessu fljötandi bákni svo öflug að landfestar nærliggjandi skips, New York, slitnuðu, skipin tvö soguðust- hvort að öðru og engu munaði að þau rækjust saman. TYRKNESKT bað, með sérstakri nuddkonu, var meðal þeirra þæginda sem boð- ið var upp á um borð í Titanic. aðrar ósannar. Verður sjálfsagt seint unnt að greina á milli með fullri vissu hvað rétt er eða rangt í þessum efnum. Víst er að áður en skipið lagði upp í sína fyrstu og síðustu för mátti lesa í heimsblöðunum hástemmdar lýs- ingar um ágæti skipsins, stærð þess og stöðugleika og viðkvæðið var ávallt: „Skipið sem getur ekki sokk- ið“, og þessu trúðu flestir. Forsvars- menn White Star og skipstjórnar- menn virðast einnig hafa trúað þessu og ef til vill var það einmitt þessi of- urtrú á „ósökkvanleika" skipsins sem gerði það að verkum, að svo fór sem fór í hinni örlagaríku jómfrúr- siglingu. Hitt er engu að síður stað- reynd, að þegar hinn reyndi skip- stjóri Edward J. Smith stóð uppi í brú á skipi sínu og horfði vítt yfír í upphafi farar hafði hann undir fótum sér stærsta, glæsilegasta og örugg- asta skip, sem smíðað hafði verið til þess dags. Vatnshelda skilrúmakerfíð var það sem athyglisverðast þótti við smíði skipsins. Fimmtán þverskilrúm skiptu skipinu stafna á milli í örygg- isskyni. Botninn var tvöfaldur að endilöngu og bilið á milli þeirra næstum mannhæð. Þessu rúmi á milli botnanna var skipt í 60 vatns- þétt hólf. Járnhurðum á milli hólfa var hægt að loka frá stjórnpalli, með sérstöku þrýstikerfi. Þegar það hafði verið gert átti skipinu ekki að vera hætta búin þó að sjór kæmist í eitt hólf eða nokkur til viðbótar. Á þessa tíma mælikvarða markaði því smíði Titanic tímamót hvað allt öryggi snerti. Þó var ekki allt sem sýndist í þess- um efnum. Við smíði skipsins hafði ekki að öllu leyti verið farið eftir nýj- um reglum Lloyds tryggingafélags- ins um skipasmíðar heldur farið eftir löngu úreltum reglum frá 1885, væntanlega í þeirri góðu trú að gömlu reglurnar væru fullnægjandi. Eru þessi mistök rakin til þrjósku og óráðþægni skipaverkfræðinganna, og gerð með vitund og vilja forsvars- manna White Star skipafélagsins. Fyrir bragðið voru skilrúm vatns- þéttu hólfanna of veigalítil til að þola þann þrýsting sem varð á þeim. Þar við bættist að öryggishólfum frammi í skipinu var ekki unnt að loka nema í rúmlega hálfa hæð, vegna þess að hitastokkar höfðu verið lagðir þar af einhverjum óskiljanlegum ástæðum. Getum hefur verið leitt að því að stálið, sem skrokkur Titanic var smíðað úr, hafi verið gallað. Það mun að vísu hafa verið prófað eftir þeirra tíma kúnstarinnar reglum, en á það hefur verið bent, að sú prófun hafi fai-ið fram við stofuhita, en ekki reynt á eiginleika stálsins við slíkan fimbulkulda, sem var í sjónum út af Nýfundnalandi hina örlagaríku nótt. í maíhefti National Geographic 1996 segir að rannsóknir á flaki Titanic á hafsbotni hafi leitt í Ijós að stálið í skipinu hafi verið til muna stökkara, en það stál sem notað er nú á dögum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.