Morgunblaðið - 15.02.1998, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 B 11
Morgunblaðið/RAX
ÓSKAR J. Sigurðsson, vitavörður á Stórhöfða, með merk-
ingartöngina. Hann er búinn að merkja 47 þúsund lunda,
17 þúsund fyla auk annarra tegunda, frá því hann byrjaði
fuglamerkingar 1953.
Þykir vænt
um lundann
Á ÍSLANDI hefur verið merkt
meira af lunda en víðast hvar
annars staðar í heiminum og er
það ekki síst að þakka Óskari J.
Sigurðssyni, vitaverði á Stór-
höfða í Vestmannaeyjum. Óskar
hóf fúglamerkingar árið 1953
og hefur merkt alls um 47 þús-
und lunda, um 17 þúsund fýla og
minna af öðrum tegundum.
Óskar segir að af endurheimt-
um á merktum lundum megi
ráða að lundapysjumar fari
héðan að hausti til Nýfunda-
lands og haldi sig við ströndina
þar frá því í október og fram
undir áramót. „Svo hverfur
lundinn og það em hér um bil
engar endurheimtur á ársgöml-
um fuglum,“ sagði Óskar. Hann
segir að veiðst hafi lundi við
Vestur-Grænland um miðjan
desember, sem merktur var í
Flatey á Breiðafirði átján ámm
fyrr. Það hafi þótt tíðindum
sæta og mjög óvanalegt.
Langförulir lundar
Lundar merktir í Vestmanna-
eyjum hafa margir endurheimst
í Faxaflóa og á Breiðafirði. Utan
lands má nefna Lófót í Noregi
og töluvert marga lunda í
Færeyjum. Ein pysja á 1. ári
fannst í Biskayaflóa í Frakk-
landi og einn fullorðinn á Azor-
eyjum. Þá hafa veiðst hér lund-
ar merktir í Skotlandi. Ungfugl-
inn virðist flækjast víða áður en
hann verður kynþroska, fimm
ára.
Líklegast er talið að fuglinn
haldi sig fyrsta árið langt úti á
hafinu suðvestan íslands og
Grænlands. Sumarið sem lund-
inn er á þriðja ári kemur hann
aftur hingað til lands og yfirleitt
í byrjun júlí. Ekki er vitað hvað
lundinn getur orðið gamall en
elsti lundi sem endurheimst hef-
ur hér var að minnsta kosti 35
ára gamall.
Pysjan fer þegar hún vill
Aðspurður sagði Óskar það
vel geta verið að lundapörin
haldi tryggð alla ævi. Honum
finnst það styðja þessa kenningu
að einu sinni náði hann tveimur
lundum f sömu holu og merkti.
Löngu seinna, að hann minnir
eftir ellefu ár, náði hann sömu
lundum saman f holu á sömu
slóðum.
Því hefur verið haldið fram
að lundinn hætti að bera æti f
pysjuna þegar hún er fullvaxta
og svelti hana til að fara að
heiman. Óskar segist aldrei hafa
trúað þessu né séð þessi merki
að pysjan sé svelt. „Ég þykist
vera búinn að sjá að hún fari
þegar hún er fullgerð,“ sagði
Óskar. „Hafi maður tekið að sér
pysju sem er eitthvað vanþroska
fer hún að óróast þegar hún er
fullgerð. Það er innbyggt."
Oskar taldi að pysjan hefði
verið seinni til í fyrrasumar og
lélegri en oft áður. Hann sagði
þetta ekkert nýtt. En hvað um
það að ungfuglinn hafi ekki skil-
að sér? „Eg held að þegar lítið
er um æti þá vanti ungfuglinn,
mér hefur alltaf sýnst það vera
þannig,“ sagði Óskar. „Ég held
að það hljóti að vera sflið sem
bregst. Það getur alveg orðið
gott næst, þetta þarf ekki að
vera varanlegt."
Óskar segir að sér þyki vænt
um Iundann. En veiðir hann sér
til matar? „Já, mér finnst ekkert
betra að láta aðra drepa hann
fyrir mig. En ekki finnst mér
það skemmtilegt," sagði Óskar.
Ljósmynd/Gísli J. Óskarsson
LUNDAPYSJURNAR una sér vel við sundæfingar í sækerjum
Náttúrugripasafnsins.
höfða. Brekkurnar eru margar
brattar og 50-70 metra þverhnípi í
sjó fyrir neðan. Alls reyndist lund-
inn hafa helgað sér um 85 þúsund
fermetra svæði í Stórhöfða.
Þá voru valdir reitir af handahófi
og holur innan þeirra taldar. Nið-
urstöðumar voru notaðar til að
reikna út fjölda lundahola. Gísli
segir að byggðimar séu misþéttar,
allt ftá um hálfri holu á fermetra
upp í tæplega tvær holur. Hann
áætlar að um 105 þúsund lundahol-
ur séu í Stórhöfða og fjöldi lunda
þar, að meðtöldum geldfiiglum, því
töluvert meiri en mannskepna á ís-
landi.
Gísli telur að lundabyggðin í
Stórhöfða sé að stækka. Hann
dregur þá ályktun af því að margar
nýjar holur em bætast við í útjaðri
byggðanna, auk nýrra holna sem
teknar era inni í byggðunum. Sam-
kvæmt talningu á nýjum holum
sem byijað var á í haust var áætlað
að um 17 þúsund nýjar holur væra
í undirbúningi.
Athugunarholur
Athugunarhópurinn fór um
lundabyggðimar og leitaði að
heppilegum lundaholum til rann-
sókna. Holugöngin þurftu að vera
bein og hægt að sjá inn í botn án
þess að athugandinn traflaði lund-
ann.
Nokkrar holur vora þannig að
hægt var að koma fyrir lýsingu og
lítilli stafrænni myndbandsvél.
Þannig var hægt að festa á mynd-
band atferli lundanna og pysjanna í
holunum. Gísli á orðið margra
klukkustunda efni á myndbandi
sem sýnir hegðun lundans og pysj-
unnar í holunni.
í fyrra útbjuggu nemendurnir
sérstaka myndatökuholu þar sem
hægt er að opna hreiðurstæðið og
auðvelt að koma fyrir myndavél
og lýsingu. Vonast er til að
lundapar velji holuna til búsetu
næsta vor. Það er ekki fráleitt því
í haust mátti sjá spor eftir lunda
Morgunblaðið/RAX
Lundagoggurinn
EIN HELSTA prýði lundans er
skrautlegur goggurinn.Þegar
fuglinn er í sárum á vetuma losna
homplötur af nefinu og goggur-
inn dökknar. Að vori prýðist lund-
inn nýjum sumarbúningi og nýjar
grópir myndast í gogginn.
Ævar Petersen fuglafræðingur
greindi breytingar á goggi lund-
ans með því að rannsakaða endur-
heimta fugla sem Óskar J. Sig-
urðsson í Stórhöfða hafði merkt
unga. Þess vegna var nákvæmlega
vitað um aldur fuglanna. Lögun
goggsins breytist og grópunum
fjölgar þar til lundinn er fimm til
sex ára gamall. Eftir það er lund-
inn yfírleitt með þijár grópir.
Þórður Óskarsson líffræðingur
kannaði hlutfall ungfugls í veiði
lundaveiðimanna í Vestmannaeyj-
um sumarið 1996. Hann aldurs-
greindi lundana með því að mæla
á þeim gogginn og greina ein-
kenni samkvæmt niðurstöðum
Ævars um goggbreytingar eftir
aldri.
Alls kannaði Þórður aldur 733
lunda auk 29 lundapysja. Sam-
kvæmt niðurstöðum hans var
langmest af þessari veiði þriggja
ára fugl. Hlutfall ungfugls, það er
að fimm ára aldri, var 83-89%.
Ekki var hægt að greina nákvæm-
lega hvort nokkrir fuglar voru
orðnir kynþroska eða ekki. Þórði
þótti athyglisvert að sjá hvemig
tveggja ára fugli fjölgaði eftir 13.
júlí þetta sumar. Það samræmist
niðurstöðum Ævars um að yngsti
fiiglinn komi sfðastur í sumarbúð-
ir lundans.
sem hafði verið að skoða húsnæð-
ið.
Sérstaklega var fylgst með varp-
inu í 18 lundaholum. I hverjar vai'
orpið, hvar komst upp pysja og
hvort hún lifði. Einungis fimm af
þessum 18 holum skiluðu fullgerðri
og lifandi pysju í sumar. Gísli telur
að óvenju mikill pysjudauði hafi
orðið vegna ætisskorts er leið á
sumarið.
Snyrtilegur fugl
Lundinn verður kynþroska fimm
ára og sumarið áður fara ungfuglar
að svipast um eftir eigin holu. Ef
ekki finnst yfirgefin hola er byijað
SJÁ SÍÐU 12
Eftirtaldar snyrtistofur selja Guinot snyrtivörur:
Snyrtistofa
Ágústu Guðnadóttur
Hilmisgötu 2a, Vestmanna-
eyjum, slmi 481 2268
Snyrtistofa
Ulju Guðnadóttur
Dynskógar 6,
Hveragerði, slmi 483 4535
Snyrtistofa Undu
Hafnargötu 29, Keflavlk
slmi 421 4068
Snyrtistofan Saloon Ritz
Laugavegi 66, Reykjavfk
slmi 552 2460/552 2622
Snyrtistofan Gyðjan
Skipholti 70, Reykjavík
simi 553 5044.
Snyrtistofa Halldóru
Kringlunni 7, Reykjavík
sfmi 5881990
Snyrtistofa
Ulju Högnadóttur
Stilholti 14, Akranesi
sfmi 431 3644
Snyrtistofan Tara
Digranesheiði 15, Kópavogi,
sfmi 5641011
Snyrtistofan Ásýnd
Starmýri 2, Reykjavik
Sfmi 588 7550
Snyrtistofan Þema
Reykjavikurvegi 64
Hafnarfirði, sfmi 555 1938
Snyrtistofa Ólafar Ingólfs
Gljúfraseli 8, Reykjavfk
sfmi 5871644
Snyrtistofan La Rosa
Garðatorgi, Garðabæ
sími 565 9120
Snyrtistofan Fatima
Þverholti 2, Mosfellsbæ
sfmi 5666161
Snyrtistofan Ársól
Grímsbæ v/Bústaðaveg
Reykjavik, sfmi 553 1262
Snyrtistofan Birta
Grensásvegi 50, Reykjavík
slmi 568 9916
Hvdradermie
, . .-r
(Cathiodermie)
- fullkomin djúphreinsi- og rakameðferð
Frábært tilboð í febrúar þar sem þessi
glæsilega taska með vörum frá G UINOT
(að verðmæti 1.800 kr.) fylgir með hverju
„lúxus Hydradermie“.
Hydradermie er mjög árangursrík djúphreinsi- og
rakameðferð fyrir andlit, háls og hina viðkvæmu húð
umhverfis augun.
Hydradermie örvar endurnýjun húðífuma, húðin fær
aukinn raka og mýkt, verður þéttari og fær fállegri áferð.
GUINOT
Andlits- háls og augnmeð-
ferð er nú sameinuð í eitt
og nefnist „lúxus Hydra-
dermie“.
Eftirtaldar snyrtistofur
bjóða upp á þessa
árangursríku meðferð.
Hafðu samband oj
nánari upplýsingar!