Morgunblaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.02.1998, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ LUNDINN o FUGLA að grafa fyrir nýrri. Næsta vor kemur lundinn aftur og lýkur við holuna. Gísli segir að jarðvegurinn og þéttleiki byggðarinnar ráði því hvernig holan verður. Inngangar geta verið einn eða fleiri. I gömlum byggðum liggja holuop stundum saman og hefur Gísli fundið „fjöl- býlishús" í berginu í Stórhöfða þar sem margir tugir lunda búa. Þama hefur lundinn höggið sér bústaði á mörkum hrauns og móbergs. Flestir lundar búa í sinni einka- holu. Jaðvegsholurnar eru oft 30- 50 sentímetra undir yfirborðinu og geta verið frá einum og upp í um fjögurra metra djúpar. Innst er hreiðurkimi og nokkuð frá honum grefur lundinn afkima, kamar, allt að hálfs metra langan, þvert á stefnu aðalganganna. Þangað fer pysjan til að drita. Holur hrynja og skemmast yfír veturinn og fyrsta verk lundanna á vorin er að taka til og hreinsa hol- una. í fyrravetur voru settir hitamæl- ar í nokkrar holur og fylgst með hitastiginu frá því síðla vetrar og fram yfir að pysjan var farin. Gísli sagði að það þyrfti að venja lundana við mælana til að þeir samþykktu þessa aðskotahluti. Best var að vera búinn að koma mælinum fyrir áður en lundinn kom um vorið. Ef mælir var settur í holu eftir að lundinn var sestur upp unni hann sér ekki hvíldar fyrr en mælirinn var kominn út með öllu tilheyrandi. Að sögn Gísla gátu lundarnir verið marga klukkutíma að bjástra við þetta verk. Þar sem mælar voru fyrir þegar lundinn kom gengu mælingarnar ágætlega. „Það kemur áberandi hitatoppur þegar lundinn kemur í holuna,“ segir Gísli. „Hitinn í hol- unum fór í 11 stig að meðaltali í júlí en hækkaði um tvær gráður í hvert skipti sem fullorðni lundinn var inni.“ Gísli segir að þótt lundinn amist við því að fá óvænt hitamæli í hol- una gegni öðru máli þegar pysja er sett í holu hjá lunda sem ekki á eig- in unga. Lundinn tekur pysjuna að sér og fer að bera í hana mat en hendir henni ekki út. Næstum mannlegur „Lundinn er furðufugl. Eftir að hafa fylgst með honum finnst mér hann stundum næstum mannleg- ur,“ segir Gísli. Eftir að lundinn hefur parast er talið að hann haldi tryggð við makann meðan báðir lifa. Álitið er að pörin haldi ekki saman yfir veturinn heldur hittist á sjónum framan við lundabyggðina að vori. „Ef karlinn finnur ekki kerling- una nær hann sér í nýja. Ef sú Ljósmynd/Gísli J. Óskarsson PYSJAN í þessari holu fór að fiðrast um sama leyti og ætisframboðið í sjónum virtist minnka. Foreldrarnir komu sjaldan í holuna og með lítinn feng. Meðan fjaðrahamurinn er að myndast þyngist unginn lítið, orkan fer í fiðrið. Ljósmynd/Gísli J. Óskarsson PYSJAN gekk tinandi fram og aftur holugöngin og þegar hungrið svarf að fór hún að éta mold. GÍSLIJ. Óskarsson lfffræðiken: Sýktar lundalýs Morgunblaðið/Golli ÆVAR Petersen, fuglafræðingur, segir að lundinn haldi sig úti á reginhafi að vetri til. ÆVAR Petersen fuglafræðingur á Náttúrufræðistofnun Islands segir að til þessa hafi íslendingar rannsakað lundann tiltölulega lít- ið. Sjálfur hefur hann unnið að rannsóknum sem tengjast fugla- merkingum. Fyrir allmörgum ár- um athugaði Einar Árnason pró- fessor ásamt útlendum vísinda- mönnum afrán hjá lunda og fleira í Vík í Mýrdal. Nýlega rannsakaði Erpur Snær Hansen líffræðingur búsvæðaval lunda og fæðuval lundans, líkt og ann- arra sjófugla, var kannað í fjöl- stofnarannsókn Hafrannsókna- stofnunar. Búið er að merkja 60 þúsund lunda á landinu, aðallega í Vest- mannaeyjum, en einnig í Breiða- fjarðareyjum og víðar. Á fyrsta vetri virðist lundinn úr þeim byggðum halda sig við Nýfundnaland og færa sig út á Miklabanka þegar líður á vetur- inn. Aðeins hafa fundist tveir fugl- ar að vetrarlagi sem eru eldri en á fyrsta vetri. Þeir komu fram við Suðvestur-Grænland. Ævar telur að það styðji þá kenningu sína að lundar, eldri en eins árs, frá sunnan- og vestanverðu land- inu, haldi sig aðallega á hafsvæð- inu suðvestur af Islandi og aust- ur af Hvarfi. Þarna eru mikil straumaskil og væntanlega tals- vert æti fyrir lundann. „Þeir halda sig úti á reginhafi og þó að einhverja dauða fugla ræki á land þá er engin byggð þarna og því engar endurheimtur," sagði Ævar. Ekki er vitað hvort lundar frá Norðurlandi og Austurlandi hafa sama farmunstur og lundar frá Suðurlandi og Vesturlandi. Hugsanlegt er talið að norður- landslundinn leiti í átt til Færeyja að vetrarlagi. Vitað er að norskir lundar halda sig á hafsvæðinu norðaustur af Langa- nesi að vetrarlagi. Fyrir nokkrum árum fóru Færeyingar að stunda veiðar á þeim slóðum sem síldarsmugan er og urðu þá varir við töluvert af lunda. Lundalúsin rannsökuð Ævar tók nýverið þátt í rann- sókn sænskra vísindamanna á lundalús, sem í raun er áttfætt maurategund. Safnað var lundalúsum í Vestmannaeyjum, Flatey á Breiðafirði, Grímsey og víðar hér á landi. Einnig var safnað lundalúsum í Færeyjum, Noregi, Bretlandi og í fleiri lönd- um. Þessi athugun beindist sérstak- lega að sýkingu í lundalúsum sem talin er geta haft áhrif á menn sem þær bíta. Ævar segir að sýkillinn sé af sama toga og sá sem veldur sjúkdómi sem kallað- ur er Lyme Disease í Bandaríkj- unum og er litið á sem meirihátt- ar vandamál þar í landi. í Bandaríkjunum er skaðvald- urinn ekki sníkjudýr sjófugla heldur áttfætlumaur, sem er ná- skyldur lundalúsinni, og lifir í skógum. Þessi maur lætur sig detta á menn og spendýr sem eiga leið undir tré þar sem kvik- indið heldur sig. Það sýgur blóð úr fórnarlambinu og sýkillinn á greiða leið inn í mannslíkamann. Ævar segir að af þessum sýkli séu til mismunandi stofnar sem hafa mismunandi áhrif. Þótt sýklar af þessu kyni finnist í lundalúsum þá sé ekki víst hvort eða hvaða áhrif þeir hafa á manninn. „Ein af athyglisverðustu niður- stöðunum úr þessari rannsókn var að það var hvergi hærra hlutfall af sýktum lundalúsum en úr Flatey á Breiðafirði," sagði Ævar. LUNDINN sætti sig ekki viðað hitamælir væri settur í holuna eftir að hann var látum fyrr en hann var búinn að ryðja aðskotah! gamla skilar sér þá lætur hann þá nýju róa,“ segir Gísli. Lundinn verpir einu stóru eggi, svo stóru að hann getur illa legið á því. Margir fuglar hafa hitablett á kviðnum sem leggst að eggjum við útungun. Lundinn leggst ekki á heldur breiðir hann vænginn yfir eggið líkt og hann faðmi það að sér. Gísli telur að fyrsta varp mis- farist oft vegna þess að ungfugl- arnir vandi ekki nóg til hreiður- gerðar. „Við höfum séð þetta í hol- unum sem við höfum opnað,“ sagði Gísli. „Það er algengara í útjaðri byggðanna að hreiðurgerð sé áfátt og moldargólfið látið duga. Reynd- ir varpfuglar safna sinu, þurru þangi og fíðri og nota það til að ein- angra eggið frá köldu gólfinu." Gísla þótti athyglisvert að sjá að ef egg klaktist ekki, eða ef nýklak- in pysja drapst, þá jarðaði lundinn eggið eða pysjuna í holunni í stað þess að henda því út. Kristján Egilsson sá þess dæmi að lundi át egg sem ekki klaktist. I fyrravor var mjög kalt og fram eftir sumri. Það skipti miklu að lundinn væri til staðar þegar unginn skreið úr egg- inu til að hlýja honum fyrstu stund- imar og flýta fyrir þurrkun. Hegðun lundans vekur margar spurningar. Til dæmis nefnir Gísli að hann sá lunda koma að holu með gogginn fullan af síli. Annar lundi kom út og hristi hausinn, þá át sá nýkomni sílin sjálfur líkt og hinn hefði sagt að pysjan væri búin að fá nóg! Ef styggð kemur að lunda sting- ur hann sér í næstu holu. Gísli sá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.