Morgunblaðið - 15.02.1998, Síða 20

Morgunblaðið - 15.02.1998, Síða 20
20 B SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ MANNLÍFSSTRAUMAR M ATARLIST1Viljum við bara kjötbollurnar hennar mömmu? Óttinn við hið óþekkta ÞEGAR ég fer utan nýt ég þess að soga að mér ólíka strauma, ilm matar- gerðarlistar viðkomandi lands, list þess og menningu, arkitektúr, mannlíf osfrv. Á mörgum sumarleyfisstöðum, þá helst til strandstöðum, fyrirfínnast hins vegar ótrúlegir veitingastaðir, sem sérhæfa sig í matreiðslu þjóðar- rétta túristanna sjáfra. Oft má sjá skilti úti á götu fyrir framan veitinga- ''■'ktaðina, þar sem verið er að bjóða upp á „ekta sænskar kjötbollur", germ- knödel, sauerkraut eða eitthvað annað sem passar afar illa inn í t.d. spænskt landslag og mannlíf. de Finnoise sem er rjóma- og ost kartöflugratín, sem kryddað er með hvítlauk og öðrum kryddjurt- um. Einnig heita veitingastaðirnir oft misjöfnum nöfnum aftitr því hvert þeirra aðalsmerki er. Rotiss- erie er t.d. matsölustaður sem sér- hæfir sig í steiktum réttum. Þetta var bara svona smánasasjón af frönskum gourmetorðum. Að lok- um fylgir hér uppskrift að rétti sem óhætt er að panta sér þó mað- ur skilji ekki matseðilinn, en það eru tómatsneiðar grillaðar með mozzarellaosti, eða Mozzarella grillée a la tomate. Grillaðar tómatsneiðar Uppskrift fyrir 4 ieiði H. Friðriksdóttur Af hverju ætli þetta stafí? Líkleg- ast er það hræðslan við að prófa eitthvað nýtt og misskilningur eða oftúlkun á gestrisnisboðorðinu: Vertu alveg eins og heima hjá þér! mm^mmmmmamm Eitt sinn heyrði ég brandara um mann sem fór á fínt franskt veitingahús og fékk matseðil- inn. Hann skoðaði hann um hríð og sldldi ekki baun bala hvar þar stóð, en lé á engu bera og skoðaði þetta dulmál af mikilli athygli. Eftir nokkra stund kallaði hann á þjóninn og benti á eitt- hvað á mat- seðlinum sem hann hafði jjkveðið að taka sénsinn á. Þjónn- in varð mjög vand- ræðalegur og tókst að segja manninum á sinni fátæklegu ensku að þetta væri nú lagið sem hljómsveitin væri að leika þessa stundina. Kannski er óttinn við slíka uppá- komu ein af ástæðunum fyrir öllum kjötbolluveitingastöðunum, við er- um svo stolt, við viljum ekki vera upp á aðra komin með aðstoð við val á réttum. Ég lenti í atviki af þessu tagi eitt sinn í Austurríki. Ég var mjög svöng og skildi lítið sem stóð á matseðlinum, en pantaði loks rétt sem virtist vera þegar hann birtist eins konar heilastappa (úr hvaða dýri man ég ekki lengur) með heilu fjöllunum af hráum lauk ofan á, sauerkraut og einhverri súrri sósu. Ég varð mjög vand- ræðaleg og fékk að mig minnir Vín- arsnitzel í staðinn. Áður en maður heldur út í heim og ætlar að njóta matarmenningar viðkomandi lands er ekki vitlaust að kynna sér eilítið þann orðaforða sem viðhafður er á matseðlinum og náttúrlega kjörbúðinni. Franska línan í matargerð er margrómuð, en það vill vefjast fyr- ir mörgum að skilja matseðilinn (oft er hann vitanlega þýddur). Hér læt ég samt fylgja að gamni með býðingar að nokkrum algengum í1natarorðum: potées eru réttir sem eiga það sameiginlegt að vera mat- reiddir eða a.m.k. framreiddir í er bökuð í háu fati. Vin délimité de qualité superieure (V.D.Q.S.) - há- gæðavín. Brochette er lítið grill- spjót og broche grillspjót. Sé eitt- hvað a la broche er það eldað og framreitt á grillspjóti. Légumes þýðir grænmeti. Mille feuilles (þús- und blöð) er smjördeig. Pain-mie er samlokubrauð, svona ílangt og pain grillé eru litlar franskbrauð- 4 tómatar 200 g mozzarella (því miður fæst hér ekki enn hinn ítalski mozzarella, en ágæt frönsk tegund) 3 msk ólífúolía 1 egg 2 msk brauðraspur 1 msk niðurrifið ferskt basil salt og pipar sneiðar sem smurðar eru með smjöri og síðan steiktar á pönnu beggja megin. Paté de foie gras er hin rómaða franska gæsalifrarkæfa sem kostar þó nokkurn skildinginn, enda leggja ansi margar gæsir hönd á plóg til að hægt sé að fylla eina svona pínulitla dós af herleg- heitunum. Kartöflur eru eldaðar á óteljandi vegu í Frakklandi og dæmi eru smjörsteiktu, þunnu kartöflubátarnir sem kallast pommes chateau og pommes gratin Sjóðið tómatana í um 5 mínútur, afhýðið þá og stappið saman við olíuna. Saltið og piprið. Skerið mozzarelluna í sneiðar. Veltið henni upp úr egginu, síð- an upp úr raspin- um og steikið sneiðarnar því næst í olíunni þar til þær hafa fengið á sig gulbrún- an lit og eru orðnar stökk- ar, en passið að osturinn sé ekki farinn að leka út úr raspfeldinum. Raðið síðan ostsneið- unum ofan á tómat- maukið og dreifið basil yfír. Þetta er sniðugur hádegisverð- ur, eða sem forréttur. Önnur sniðug samsetning með tómötum og mozzarella eru svokallðar brúskett- ur, litlar ítalskar gi-illbrauðsneiðar. Best er að nota snittubrauð. Maður sneiðir það niður og gerir það sama við tómatana og í uppskriftinni að framan. Síðan nuggar maður tómat- maukinu inn í brauðsneiðarnar og setur mozzarellasneið ofan á hverja sneið og skreytir með nokkrum laufum af basiliku. Síðan bakar maður sneiðarnar þar til osturinn er orðinn vel bráðinn. TÆKNI /Er hægt að spara í rekstri hússins? Um rekstrarhag- kvœmni hússins JÁ! En ekki svo mikið að það ráði úrslitum um nokkuð. Sá sem eyðir í það verulegum tíma á dag til að velta fyrír sér þeirri hagkvæmni ætti heldur að nota tímann til annars. leirpottum. pommes sautées eru kartöflur (soðnar) sem eru ristaðar í smjöri. Plat de ménage er þetta „kitt“ sem bæði ítalir, Spánverjar og Frakkar hafa ætíð til staðar á matborðinu. Þetta er einhvers kon- ar grind eða statíf fyrir salt, pipar, edik og olíu. Hors d’oeuvre er lítill og nettur forréttur. Garbure er kröftug súpa, sem hægt er að búa til úr svínakjöti, gæs eða einhverju Jeitu kjöti að viðbættum ristuðum brauðteningum. Beurre maitre d|hotel er smjör sem búið er að hræra saman við salti, pipar, hakk- aðri steinselju og sítrónusafa. A point er kjöt sem er steikt aðeins meira en rare (saignant). Soufflé er eins konar omeletta að viðbættum stífþeyttum eggjahvítum sem síðan Meðalstórt einbýlishús eyðir orku fyrir um 260 kr. á dag miðað við reykvískt verðlag. Þetta er minna en kostar einn duglegan reykingamann að reykja. Það fer nærri að húsið noti að jafnaði yfir árið tæpt kílóvatt af raf- magni og fimm til sex kílóvött af varmaorku frá hita- veitunni. Samtals gerir þetta um 4.000 kr. á mánuði fyrir hvort um sig, rafmagnið og hitann, eða tæpar hundrað þúsundir yfir árið. Vert er að taka fram að þessar tölur eru af- ar breytilegar frá húsi til húss. Einkum er varmareikningurinn breytilegur, semsé miklu hærrí úti á landi, en allmiklu lægri hjá þeim sem búa í fjölbýlishúsum á Reykja- víkursvæðinu. Sá sem leggur sig fram um að spara nær einhverjum prósentum af þessum hundrað þús- undum. Væri hann að hugsa um efnahag sinn, ætti hann heldur að eyða sömu orku í að leggja heilann í bleyti til að hugsa eitthvað upp. Hann getur líka sparað með að aka rétt, dæla bensíni á bíl sjálfur, ef hann býr nálægt Orku-bensínstöð. Það gefur af sér í fljótu bragði séð um kr. 12.000 á ári. Allar tölur eru vitaskuld áætlaðar á hinn reykvíska meðaljón. Vert er að hafa í huga að orkueiningin er um sjö sinnum ódýrari ef hún er komin frá hitaveitu en frá raf- eflir Egil Egilsson LÆKNISFRÆÐI /Getur hver sem er fengið þennan augnsjúkdóm sem stundum veldur blindu? GLAKA GLÁKA (glaucoma) er safn sjúkdóma sem einkennast af minnkandi sjón og blindu ef ekkert er að gert. Algengasti sjúkdómurinn af þessum flokki er gleiðhomsgláka. Þessir sjúkdómar einkennast af of háum þrýstingi inni í auganu, þessi þrýstingur skemmir smám saman taugafrumur sjón- taugarinnar og getur á löngum tíma valdið sjónskerðingu og að lokum al- gerri blindu. Taugafrumur geta aldrei endurnýjað sig og skemmdir á sjóntaug eru þess vegna varanlegar. Af þessu leiðir að mikilvægt er að finna sjúkdóminn snemma og hindra, með lyfjum eða aðgerð, að hann valdi varanlegri sjónskerðingu. Blinda af völdum gláku er sjaldgæfari hér á landi en víða í nágrannalöndunum og má sennilega þakka það góðri og skilvirkri augnlæknaþjónustu um land allt. Augasteinninn og lithimnan skipta auganu í tvo hluta, stórt afturhólf og lítið framhólf. í fram- hólfi augans mynd- ast tær vökvi í sér- stökum kirtlum, streymir um fram- hólfið og tæmist úr auganu í horninu sem myndast milli eftir Magnús lithimnu að aftan Jóhannsson og hornhimnu að framan. í þessu horni er þéttriðið net sem augnvök- vinn rennur í gegnum og út í sér- stök göng sem liggja út úr auganu. Milli myndunar augnvökvans og frárennslis hans er jafnvægi sem ákvarðar þrýstinginn í auganu. Ef frárennslið er hindrað, hækkar augnþrýstingurinn, en með viðeig- andi ráðstöfunum er hægt að lækka þrýstinginn með því að minnka myndun augnvökvans eða auðvelda frárennsli hans. Við gláku raskast þetta jafnvægi og augnþrýstingur- inn verður of hár fyi-ir viðkomandi einstakling, en það er nokkuð ein- staklingsbundið hvaða augnþrýst- ingur er hæfílegur. Algengasta form gláku er gleiðhornsgláka sem heitir svo vegna þess að áðurnefnt magnsveitu. Vinnsla orku úr jarð- varma er einhver virkasta og ódýrasta orkuvinnsluaðferð sem völ er á. Hitaveitur landsins eru risa- orkuver og standa undir verulegri bót á efnalegum staðli landsmanna. En áður en heimilisbúskapur er orðinn tölvustýrður, borgar sig ekki að velta stórkostlega fyrir sér hvernig spara megi af hinum 100.000 kr. árlega orkureikningi. Vitaskuld eru vissar grundvallar- reglur í umgengni við hús sem ber að hafa í huga. Sírennsli heits vatns úr krana ætti ekki að koma fyrir, ekki einu sinni í uppþvotti. Það er fljótt að safnast í verulegan hluta hinnar tveggja tonna notkunar á sólarhring. Heitt vatn má spara með að nota steypiböð í stað baðs í keri. Vatnsnotkun er miklu minni, baðið jafnheilnæmt og það er fljót- legra. Virkasta leiðin til sparnaðar heita vatnsins er að hafa lægri meðalhita í húsinu. Meðalhitamun- ur úti og inni yfir árið er um sext- án gráður (20-4). Af því heldur „óvirk“ hitun (varmi frá fólki, raf- magnsnotkun, geislun inn um glugga) uppi um fimm gi-áðu hita- mun. Eftir er um ellefu gráðu hita- munur, sem Hitaveitan sér um. Sé hitareikningurinn kr. 50.000 á ári sparast níundi partur af því, eða kr. 6.000 við að lækka hitann í hús- inu úr 20 í 19 gráður. Auk þess er talið heilnæmara að hafa hita lægri en að jafnaði er í íslenskum hús- um. Vilji menn spara svipað í raf- notkun er af minna að taka. Orkan sem inn kemur þar er um sjö sinn- um minni og sjö sinnum dýrari. Rafmagnið stendur undir mestum parti hinnar „óvirku" hitunar sem minnst var á áður, ef sleppt er geislun inn um glugga um sumar- tímann, sem er veruleg. Hver pera tekur að vísu 10-20 sinnum minni orku en varmahella eldavélar, en fjöldi pera og tíminn sem kveikt er á þeim verður til að ljósanotkun er verulegur þáttur raforkureikn- ingsins. En allt fram til þess að heimilistölvan verður tengd hita- og loftnemum í hverju herbergi og nemur hvort það er tómt eða mannað, verður erilsamt að eltast við að slökkva ljós. Einfalt sparn- aðarráð sem munar ofurlítið um felst 1 að opna uppþvottavélina er hún hefur þurrkun, og leyfa leir- taui að ryðja sig í stað þess að hita það. Verulegur hluti rafhitunar heimilisins fer í upphitun upp- þvottavélar og þvottavélar, og slæmt að ekki séu lengur (mér vit- anlega) vélar þessarar tegundar á markaðinum sem taka inn heitt vatn. En hinn íslenski markaður virðist ekki nógu stór til að fluttar séu inn vélar með slíkan sérútbún- að.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.