Morgunblaðið - 15.02.1998, Page 22

Morgunblaðið - 15.02.1998, Page 22
22 B SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Svertingjar voru lengi að vinna sér sess í Hollywood en taka nú æ meiri þátt í kvik- myndagerð sem leikstjórar, leikarar og framleiðendur segir í grein Arnalds Ind- riðasonar. Samuel L. Jackson og Oprah Winfrey eru að framleiða myndir og nýjar myndir svartra kvikmyndagerðarmanna - njóta vinsælda og hljóta lof gagnrýnenda. ÚR MYNDINNI „Eve’s Bayou“ sem hlotið hefur góða dóma vestra. Svertingjar hafa löngum átt erfitt uppdráttar í drauma; verksmiðjunni Hollywood. í gamla daga voru svartir leikarar notaðir í smáhlutverkum oft vinnu- hjúa en höfðu fá tækifæri þar fyrir utan. Það breyttist nokkuð með Sidney Poitier sem varð fyrsti svarti leikarinn er náði að setja mark sitt á Hollywood kvikmynd- irnar. Hann var útnefndur til Óskarsverðlauna árið 1958 fyrir „The Defiant Ones“ og hreppti Oskarinn árið 1963 fyrir Liljur V.’allarins, Velgengni hans varð til þess að greiða götu annarra svartra leikara, sem urðu áberandi á áttunda áratugnum. Hasarmyndir og myndir með hlutverk Þá urðu einnig til hinar kraft- miklu svertingjahasarmyndir en áttundi áratugurinn var mikill blómatími svartra kvikmyndagerð- armanna í Hollywood, þeirra sem fengust við B-spennumyndir. Leik- arar eins og Pam Grier, sem Qu- entin Tarantino hefur hafið til vegs 'og virðingar á ný í mynd sinni „Jackie Brown“, og Richard Roundtree komu fram á sjónar- sviðið og urðu mörgum fyrirmynd- ir kvenhörku og karlmennsku. Þegar komið var fram á níunda áratuginn urðu svertingjar meira áberandi í kvikmyndaborginni fyr- ir tilstuðlan Spike Lees og þeir tóku að fjalla um oft hættulega til- veru sína í Bandaríkjunum og eink- anlega í fátækrahverfum stórborg- anna. A fyrstu árum þessa áratug- ar náði bylgjan hámarki með fjöld- anum öllum af myndum eftir svert- ingja, sem höfðu ákveðnu hlutverki að gegna. Þær fluttu sterkan boð- skap yfirleitt um hættuna af eitur- lyfjum og glæpum og áhorfendur þurftu oftar en ekki að taka viljann fyrir ver kið. Spike Lee er upphafsmaður hinnar nýju bylgju svertingja- mynda sem urðu til á níunda ára- tugnum. Fyrsta mynd hans, „She’s Gotta Have It“, vakti athygli um heim allan, m.a. hér á Islandi þar sem hún var sýnd á Kvikmyndahá- tíð Listahátíðar, og hleypti af stað skriðu mynda eftir svertingja, með svertingjum og um svertingja. Næsta mynd Lees var „School Daze“, skelfing vont kvikmynda- verk um svarta vitund í háskóla fjármögnuð af Columbia Pictures, en hún var söguleg að því leyti að hún var ein af fyrstu myndunum frá stóru kvikmyndaverunum í Hollywood sem svertingi réð yfir. Lee hélt áfram og gerði betri myndir og m.a. um leiðtoga lífs síns, „Malcolm X“, með Denzel Washington í aðalhutverki en leik- arinn sá hefur náð einna lengst svertingja í Hollywood ásamt Eddie Murphy, Morgan Freeman og Samuel L. Jackson. Fleiri sigldu SAMUEL L. Jackson í hlutverki framleiðandans. í kjölfar Lees m.a. leikstjórinn John Singleton sem gerði „Boy-z the Hood“, frábæra mynd um líf ungra svertingja í úthverfi, og bræðurnir Reginald og Warr- ington Hudlin svo einhverjir séu nefndir. Konur framleiða Því er hlaupið mjög hratt og yf- irborðskennt á þessari sögu hér að nokkrar myndir gerðar af svert- ingjum hafa vakið talsverða at- hygli upp á síðkastið þar sem þær hafa verið sýndar bæði í Banda- ríkjunum og víðar, þó ekki hér á landi enn sem komið er, auk þess sem nokkrar eru væntanlegar. Og OPRAH Winfrey mun framleiða mynd eftir sögu Toni Morrison, Ástkær, en Jonathan Demme leikstýrir. ekki síður hefur það vakið athygli að svartir kvikmyndagerðarmenn láta mun meira að sér kveða en áð- ur. Ein af þessum myndum er „Soul Food“ eftir George Tillman, sem vegnaði ákaflega vel í miða- sölunni vestra í haust og önnur er „Eve’s Bayou“, sem Samuel L. Jackson framleiðir. Svertingjar hafa tekið að sér að framleiða myndir meira en áður hefur tíðkast, bæði karlar og konur. Þannig framleiðir Debbie Allen stórmyndina „Amistad", um þrælauppreisn á síðustu öld, sem Steven Spielberg leikstýrir, en hún hefur þegar verið frumsýnd vestra, og sjónvarpsþáttastjarnan Ophra Winfrey framleiðir mynd- Að búa til metsölumyndir Margir vilja ekki að talað sé um svertingjamyndir sérstaklega eða svarta leikstjóra og framleiðendur. Framleiðandi „Soul Food“, Kenn- eth Edmonds, er einn af þeim og hann vill sjá svarta kvikmynda- gerðarmenn róa á önnur mið og takast á við fleiri viðfangsefni. Leikstjórinn Reginald Hudlin segir að svörtum kvikmyndagerðar- mönnum muni varla fjölga fyrr en þeim hefur tekist að búa til svert- ingjamyndir sem hafa víða skírskotun og það sem skiptir öllu máli, verða metsölumyndir. „Það eina sem dugar til þess að fá fólk á þitt band er að myndin þín græði yfir 100 milljónir dollara í miðasöl- unni,“ er haft eftir Reginald. „Þá ertu kominn í þá kjöraðstöðu að þú ert látinn í friði og færð að gera það sem þig langar til.“ MÓÐIR og þijár dætur í „Soul Food“. ina „Beloved" eða Ástkær sem byggist á skáldsögu nóbelsverð- launahöfundarins Toni Morrison en Jonathan Demme leikstýrir myndinni. Greinilega er mikill áhugi á framlagi svertingja til Hollywood- mynda fýrir hendi en spumingin er hvort hann muni vara. „Hollywood tekur við sér á fimm til sjö ára fresti,“ hefur vikuritið „Time“ haft eftir framleiðandan- um Reuben Cannon. „Það hófst allt með „She’s Gotta Have It“ árið 1986. En kvikmyndaverin gleyma því þess á milli að þeir sem sækja mest kvikmyndahúsin eru Bandaríkjamenn af afrísku bergi brotnir. Ef þú gerir myndir munu þeir sækja þær en það verða að vera gæðamyndir." Margar þeirra era það reyndar ekki. „Sumar myndir eftir svert- ingja í dag em ekki djúpar," seg- ir leikstjórinn George Tillman, sem vildi breyta því með „Soul Food“. „Þær eru kynlífskómedí- ur og myndir um glæpagengi. Eg vildi búa eitthvað til um fjöl- skyldulíf sem fólk kynni að meta og muna eftir.“ Myndin hans segir frá sambandi fjöguma kvenna, móður og þriggja dætra og er um framhjáhald, barneign- ir, veikindi, peninga sem hafa týnst og leyndarmál sem koma upp á yfirborðið. En jafnvel þær myndir sem hafa göfugan tilgang og eru gerðar af kunnáttu og tilfinningu falla í miða- sölunni hvort sem þær eru gerðar af hvítum mönnum eða svörtum. Spike Lee tók það mjög nærri sér þegar mynd hans „Get on the Bus“ fékk litla sem enga aðsókn en gat huggað sig við mjög jákvæða gagn- rýni. Og mynd sem var beinlínis stefnt á metsölumarkaðinn, Kona prestsins eða „The Preacher’s Wi- fe“, hlaut litla aðsókn þótt hún væri með Denzel Washington og Whitn- ey Houston í aðalhlutverkum. Svörtum kvikmyndagerðar- mönnum finnst sem þeir eigi erfitt með að fá kvikmyndaverin með sér í bíómyndagerð nema myndir þeirra innihaldi melludólga, skotárásir og þónokkurt kynlíf og helst allt þetta þrennt samanlagt. Það tók t.d. Debbie Allen nokkur ár að finna menn sem áhuga höfðu á að kvikmynda „Amistad”. Kasi Lemmons, sem bæði leikstýrir og skrifar handritið að „Eve’s Ba- you“, er fjallar um fjölskyldu- leyndarmál, systrakærleika og voodoogaldra, fann fyrir sömu stífninni. „Það vildi enginn gera þessa mynd með okkur,“ er haft eftir henni. Mönnum líkaði hand- ritið en þeir sáu ekki áhorfenda- hópinn fyrir myndina. Loks tókst að fjármagna hana þegar Samuel L. Jackson sagðist mundu fram- leiða og fara með eitt hlutverk- anna. Myndin gerist í Louisiana á sjöunda áratugnum og segir af Evu litlu sem er tíu ára gömul. Hún er sögumaður myndarinnar og segir fyrstu setningu hennar: „Sumarið sem ég drap föður minn var ég tíu ára gömul.“ Jackson leikur föður- inn, kvennamann mikinn og synd- ara í augum Evu. Hver glæpur hans er skal ósagt látið en Eva sér um hefndina með göldrum. * Landvinn- ingar í Holly wood l

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.