Morgunblaðið - 10.03.1998, Blaðsíða 1
t
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
\
i
I
il
I
1998
■ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ
BLAÐ
Enn heimsmet:
Heimsmetið í stangarstökki kvenna innanhúss
var enn og aftur bætt á móti í Sindelfingen í
Þýskalandi á sunnudaginn, þegar Stacy Dragila
frá Bandaríkjunum og tékkneska stúlkan Dani-
ela Bartova fóru báðar yfir 4,48.
Bartova hafði stokkið 4,46 m á móti í Þýska-
landi á fóstudaginn, sem þá var heimsmet. Eins
og kom fram kom í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins stóð það ekki lengi þvi Emma George
setti met á móti í heimalandi sínu, Ástralíu, að-
faranótt laugardagsins að íslenskum tíma, er hún
stökk 4,47 m, en hún á einnig heimsmetið utan-
húss, sem er 4,57 m.
Á mótinu í Sindelfmgen var það bandaríski
meistarinn, Dragila, sem fyrst fór yfir 4,48 m.
Síðar í keppninni í Sindelfingen fór Bartova svo
yfir sömu hæð.
„Það hefur orðið algjör sprenging undanfarið;
allar stelpumai' greinilega komnar í stuð,“ sagði
Vala Flosadóttir, Islands- og Norðurlandamethafi,
og fyrrum heimsmethafi, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Það var vitað mál að allar þessar
stelpur, sem hafa verið að setja heimsmet undan-
farið, hefðu getuna til þess þannig að árangurinn
kemur mér ekki á óvart. Allar hafa verið á svipuðu
róli, en þetta hefur þau áhrif á mig að ég set mér
ný markmið. Þetta er mér hvatning," sagði Vala.
Keppnistimabilinu innanhúss er um það bil að
ljúka, nú tekur æfíngatímabil við hjá stúlkunum
fyrir keppnistímabilið utanhúss. Vala lýsti því yf-
ir á dögunum að ÍR-mótið í síðustu viku væri það
síðasta hjá sér innanhúss í vetur, og hún kvaðst í
gær ekki breyta þeirri ákvörðun í þeirri von um
að ná heimsmetinu aftur. „Ég er þreytt eftir
4,48 m
þessa viku heima á íslandi. Ég hef haft nóg að
gera,“ sagði Vala, sem heldur utan til Svíþjóðar
árla í dag.
Þróun heimsmetsins í stangarstökki kvenna
innanhúss hefur verið hröð síðustu misseri; Stacy
Dragila varð heimsmeistari í París sl. vetur, stökk
þá 4,40 m, sem var nýtt heimsmet, en Emma Ge-
orge varð önnur með 4,35 m. Sá árangur hefði
ekki einu sinni dugað til að komast á verðlauna-
pall á Evrópumeistaramótinu í Valencia á dögun-
um, þar sem Vala varð í þriðja sæti.
I apríllok í fyrra, við lok keppnistímabilsins
innanhúss, dugði stökk upp á 4,06 m til að ná 20.
sæti heimslistans en nú þarf að stökkva 4,21 m til
að ná sama sæti á listanum.
■ Þróun metsins / B2
HANDKNATTLEIKUR
Róbert lék vel
Morgunblaðið/Golli
RÓBERT Sighvatsson lék lengst af á línunni hjá íslenska landsliðinu á alþjóðlega Olís-mótinu sem fram fór í Laugardalshöll um helgina, því Geir
Sveinsson meiddist í fyrsta leiknum. Stóð Róbert sig vel og sýndi að hann hefur tekið miklum framförum í Þýskalandi. Hér er Róbert að kljást við
Moemen Sherif leikmann Egypta í síðasta leik mótsins, en þeim leik tapaði ísland stórt.
■ Egyptar skutu ísland í kaf / B6
KAPPAKSTUR: SILFURFLAUGAR MCLAREN STUNGU AF / B5
VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN
07.03.1998
spH Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö
1.5af 5 0 7.061.350
1 562.570
i 3. *•<« 97 10.000
BE| 4.3at5 3.336 670
[i;|Samtals: 3.434 10.829.040
HEILDARVINNINGSUPPHÆÐ:
10.829.040
FJORFALDUR
1. VINNINGUR Á
LAUGARDAGINN
LWijm:
| VINNINGSTÖLUR MIÐVIKUDAGINN
04.03.1998
AÐALTOLUR
Vinningar
Fjöldi
vinninga
vinnings-
upphœð
85.269.000
3.
92.940
4. 4 af 6
491
1.178
430
1.680
5.289.080
2.400
178.255.540
HEILDARVINNINGSUPPHÆÐ:
178.255.540
Á ÍSLANDI:
7.717.540
|* Lottómiðinn með bónus-
vinningnum í Víkingalottóinu
sl. miðvikudag var keyptur í
Blönduskálanum á Blönduósi.
í laugardagslottóinu var
miðinn með bónusvinningnum
keyptur hjá K.Á. á Hellu.
TVEIR ÚTDRÆTTIR
Á SAMA MIÐANN!
í Víkingalottóinu á morgun
verður dregið TVISVAR í
tilefni af 5 ára afmæli
leiksins. í síðari útdrættinum
verður dregið um það bil
70 milljón króna vinning
fyrir 6 réttar aðaitölur.
SÍMAR:
UPPLÝSINGAR ISÍMA: 588-1511
TEXTAVARP: 451 OG 453
h