Morgunblaðið - 10.03.1998, Page 8

Morgunblaðið - 10.03.1998, Page 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Sjötta tap meist- aranna í deildinni ÞEGAR Manchester United varð Englandsmeistari í fyrra tapaði liðið einungis fimm úrvalsdeildarleikjum - tapið gegn Sheffield Wednesday á laugardag var það sjötta á þessari leiktíð. Lítil ástæða er þó fyrir Alex Ferguson og menn hans að örvænta því meistaramir hafa níu stiga forskot á Liverpool og ellefu stig skilja þá frá Arsenal og Blackburn, sem að vísu eiga leiki til góða. Ogrizovic hélt andlitinu... Reuters LEIKMENN Newcastle, Andreas Andersson frá Svíþjóð og Georgíumaðurinn Temur Kets- baia, fagna marki þess síðarnefnda í sigrinum á Barnsley. „Kóngurmn" og Ulf- 8-liða úr- slit ensku bikar- keppn- innar Það voru Peter Atherton og ítal- inn Paolo di Canio sem tryggðu Sheffield Wednesday verðskuldað- an sigur á United, 2-0. Di Canio og landi hans Benito Carbone reynd- ust United-vöminni óþægur ljár í þúfu á meðan sóknarleikur meistar- anna var hugmyndasnauður og bit- laus. Sennilega hefur viðureignin við Mónakó í Meistardeild Evrópu setið í liðinu, auk þess sem lykil- menn á borð við Schmeichel, Pall- ister og Giggs, eru meiddir. Bolton kom Liverpool í opna skjöldu á Anfield Road - Al- an Thompson skoraði glæsimark fyrir gestina á 7. mínútu og Amar Gunnlaugsson, sem var í byrjunarliði Bolton, var nálægt því að bæta öðru við strax eftir hlé. Við það vaknaði risinn af værum blundi og tók leikinn í sínar hendur; Paul Ince jafn- aði og Michael Owen tryggði sig- urinn um miðjan síðari hálfleik, 2-1. Oft hefur Liverpool þó leikið betur. Amar Gunnlaugsson var beittur í framlínu gestanna og átti meðal annars tvö góð skot, annað úr auka- spymu, sem Brad Friedel varði, auk færisins góða sem hann misnot- aði. Þrautaganga Chelsea í úrvals- deildinni hélt áfram á sunnudag, þegar liðið beið lægri hlut fyrir Aston Villa, 0-1. Markið gerði Juli- an Joachim en Chelsea hefur nú tapað fjóram úrvalsdeildarleikjum í röð og Gianluca Vialli ekki tekist að innbyrða stig eftir að hann tók við liðinu. Draumur Chelsea um 2. sæt- ið fjarlægist nú ört. Enn er þess ógetið að Everton laut í gras í Southampton, 1-2. Le Tissier og Ostenstad skoraðu fyrir heimamenn en Tiler svaraði fyrir Everton - en um seinan. arnir stefna á Wembley NEWCASTLE United þykir nú líklegast til að lyfta bikar enska knattspyrnusambandsins á Wembley í vor eftir að hafa lagt bar- áttuglaða Bamsley-menn í fjórðungsúrslitum á sunnudag. Félag- ið lék síðast í undanúrslitum keppninnar árið 1974 og knatt- spyrnustjórinn, Kenny Dalglish, oft nefndur „Kóngurinn“, er far- inn að brosa á ný eftir að hafa verið fölur og fár síðustu vikurn- ar. Hið fornfræga félag Wolverhampton Wanderers, betur þekkt sem „Úlfarnir“ hér á landi, tryggði sér einnig þátttökurétt í und- anúrslitum keppninnar með sigri á Leeds United um helgina. Bræðrabylta varð hjá Arsenal og West Ham og Sheffield United stöðvaði sigurgöngu Coventry City. Þurfa þessi félög að mætast að nýju í næstu viku. Leikmenn Newcastle voru í mikl- um vígamóð í stuttu vetrarfríi á Irlandi á dögunum, svo miklum að orðspor félagsins beið hnekki og að minnsta kosti einn leikmaður, Keith Gillespie, sneri sár heim - eftir meinta rimmu við fyrirliðann Alan Shearer. Gillespie var hvergi að sjá þegar leikur Newcastle og Bamsley hófst á St. James’ Park á sunnudag en baráttuandinn hafði augljóslega fylgt liðinu frá strætum Dyflinnar því Newcastle, sem verið hefur heillum horfið að undanfómu, lék Bamsley oft grátt í fyrri hálfleik og var komið í 2-0 eftir 27 mínútur. Fyrst skoraði Georgíumaðurinn Temur Ketsbaia, sem tók stöðu Gil- lespies, og síðan Gary Speed, sem þar með gerði sitt fyrsta mark fyrir félagið eftir komuna frá Everton á dögunum. Leikmenn Bamsley vora aftur á móti ekki á þeim buxunum að upp- lifa enn einn kjöldráttinn og þegar Andy Liddell minnkaði muninn á 56. mínútu fór skjálfti um hina trygglyndu stuðningsmenn Newcastle, Toon-herinn. Heima- menn héldu þó framkvæðinu með Shearer og Ketsbaia sem bestu menn. Sá síðamefndi var meira að segja í þvílíkum ham að útsendari dagblaðsins Daily Mail á vellinum líkti honum við urrandi tígur. Að þessu sinni hlífði kappinn þó auglýs- ingaskiltunum við vöUinn. Bamsley lifði engu að síður í von- inni - að minnsta kosti þangað til vamarmanninum Adie Moses var vikið af velli stundarfjórðungi fyrir leikslok fyrir annað bókunarvert brot á Shearer. Þeir börðust að vísu hetjulega fram í rauðan dauðann en tókst ekki að koma í veg fyrir að David Batty bætti þriðja markinu við fyrir heimamenn, þegar venju- legur leiktími var úti. Var þetta ein- ungis í þriðja sinn í vetur sem Newcastle vinnur leik með meiri mun en einu marki. Kenny Dalglish var léttur í lund að leik loknum, brosti og varðist spumingum um Dyflinnar-reisuna alræmdu af fimi: „Strákamir léku vel og ef ferðin til Dyflinnar hefur komið okkur í undanúrslitin, getur vel verið að við skellum okkur þang- að aftur, ef það eykur líkumar á því að við komumst á Wembley!" Segers hetja „Úlfanna" Hans Segers, markvörður Wol- verhampton Wanderers, hefur varið Þegar Steve Ogrizovic, hinn gam- alreyndi markvörður Coventry City, færði Petr Katchouro, sóknar- manni Shefíield United, dauðafæri á silfurfati, á lokasekúndum leiks lið- anna í bikarkeppni enska knatt- spymusambandsins á laugardag, héldu margir að 1. deildar liðið væri á leið í undanúrslit. Hik kom hins vegar Katchouro og Ogrizovic komst á undraverðan hátt fyrir skotið. Nið- urstaðan jafntefli, 1-1. Sigur Sheffield United hefði kom- ið sem þruma úr heiðskíra lofti. Coventry hafði unnið sjö næstu leiki á undan og um miðja síðustu viku gekk knattspymustjóri United, Nigel Spackman, út - hættur, far- inn. Flestir bjuggust því við auð- veldum sigri Coventry, sem lék aukinheldur á heimavelli. Fáum brá því þegar Dion Dubhn, sem lék sem miðvörður í leiknum, kom heimamönnum yfir með marki úr vítaspymu á 32. mínútu. Portú- galinn Marcelo jafnaði hins vegar óvænt fyrir gestina laust fyrir leik- hlé eftir að hafa leikið Dublin grátt. Þar við sat, fyrst og fremst vegna vaskrar framgöngu Alans Kellys í marki United - og vitaskuld Ogga gamla í lokin. Leikur Arsenal og West Ham United á Highbury var prúðmann- lega leikinn, allt þar til dómarinn hafði flautað hann afl John Moncur, miðjumaður gestanna, veittist þá að starfsbróður sínum, Patrick Vieira, hjá Arsenal, sem svaraði fyrir sig með því að reyna að slá Moncur kaldan og spym’onum síðan á spor- baug um jörðu. Hvoragt tókst! Dómarinn Mike Reed sá ekki atvik- ið en Arsene Wenger, knattspymu- stjóri Arsenal, hyggst skoða það betur á myndbandi og sekta Vieira, sé ástæða til. Misheppnuð tilraun Vieiras til að koma höggi á Moncur endurspeglaði misheppnaðar tilraunir Arsenal til að koma höggi á West Ham, sem lék án fjölmargra fastamanna. Þrátt fyr- ir að ráða gangi leiksins tókst heima- mönnum aðeins einu sinni að finna leiðina í netið, þegar Dennis Bergkamp skoraði úr vítaspymu á 26. mínútu. Aður hafði Ian Pearce á hinn bóginn komið knettinum fram hjá Alex Manninger í Arsenal-markinu. Miðvörðurinn Rio Ferdin- and og markvörðurinn Bem- ard Lama vora áberandi í West Ham-liði sem verð- skuldaði jafnteflið fyllilega. Sér- staklega var sá síðamefndi í essinu sínu þegar hann sveif ítrekað á milli stanganna að hætti listdansarans Rúd- olfs Núrejevs - í teygju- buxum og með taglhnýtt hár. meiri tíma í réttarsalnum en á knattspymuvellinum undanfarin þrjú ár. Hann var á sínum tíma sak- aður um að hafa hagrætt úrslitum leikja, þegar hann lék með Wimbledon, en var sýknaður síðast- liðið haust eftir mikla þrautagöngu. Síðan hefur Segers vermt vara- mannabekkinn hjá „Úlfunum" en fékk á laugardag tækifæri til að spreyta sig, þar sem aðalmarkvörð- urinn, Mike Stowell, var með maga- kveisu. Og Hollendingurinn, sem orðinn er 36 ára gamall, lét tæki- færið sér sannarlega ekki úr greip- um ganga - varði að hætti ber- serkja. Hafi Segers farið í taugamar á stuðningsmönnum Leeds framan af leik hryggbraut hann þá tveimur mínútum fyrir leikslok, þegar hann sló vítaspymu Jimmys Floyd Hasselbainks í horn. Markvarsla sem þýddi að leikurinn sem George Graham, knattspymustjóri Leeds, kallaði þann mikilvægasta frá því hann tók við stjórntaumunum á El- land Road haustið 1996 var tapaður. 1-0 vora lokatölur og sigurmarkið gerði framherjinn Don Goodman, sem í eina tíð var boltadrengur á Elland Road, á 82. mínútu. Talandi um að strá salti í sárin! Newcastle leikur gegn Sheffield United eða Coventry í undanúrslit- um og „Úlfarnir" mæta Arsenal eða West Ham. Leikið er á hlutlausum velli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.