Morgunblaðið - 10.03.1998, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR10. MARZ 1998 B 9
KNATTSPYRNA
Reuters
BRASILÍSKI framherjinn Sonny Anderson, til vinstri, og varnarmaðurinn Manolo Sanchiz hjá Real
Madrid kljást um knöttinn augabragði áður en sá fyrrnefndi gerði fyrsta mark stórleiks helgarinnar
á Spáni; kom Barcelona í 1:0 á 62. min. á heimavelli sínum Camp Nou.
Barcelona burstaði Real Madríd
Rivaldo var
alltí
Brasilíumaðurinn Rivaldo lagði
upp tvö af þremur mörkum
Barcelona í 3:0 sigri á erkifjendun-
um í Real Madríd á Nou Camp. Þar
með hefur Barcelona náð fimm stiga
forskoti í Madrídarliðið. Leikurinn
þótti hin besta skemmtun • líkt og
fyrri viðureign þessara stórliða fyrr
á leiktíðinni. Eftir markalausan fyrri
hálfleik þar sem leikurinn var í járn-
um urðu sannkölluð kaflaskipti
snemma í síðari hálfleiknum er
Fernando Hierro, leikmaður Real,
var rekinn af leikvelli. Hann braut á
Sonny Anderson og fékk um leið
annað gula spjaldið sitt í leiknum.
Við þetta jukust tök heimamanna
á leiknum og ljóst að eitthvað varð
undan að láta hjá gestunum.
Markvörður Bodo, Illgner, hélt liði
sínu lengi vel á floti með frábærri
mark- vörslu en fékk engum vörnum
viðkomið er Sonny Anderson skoraði
af stuttu færi eftir fyrirgjöf Rivaldo
frá vinstri kanti, eftir að vörn Real
hafði sofið á verðinum. Annað mark-
ið var stórglæsilegt og, það átti
Portúgalinn Luis Figo. Hann fékk
boltann rétt utan vítateigshoms
hægra megin, lék lítið eitt til vinstri
og skaut bogaskoti í fjærhomið efst
án þess að Illgner ætti möguleika á
að koma við vörnum.
Brasilíumaðurinn Giovanni innsigl-
aði sigurinn með þriðja markinu sem
var um margt líkt því fyrsta sem
Anderson landi hans skoraði. Rivaldo
sótti upp vinstri kantinn og fékk góð-
an tíma til að athafna sig áður en
hann sendi fyrir markið þar sem
öllu
Giovanni var réttur maður á réttum
stað til að skora framhjá Illgner.
Barcelona átti góða möguleika á að
bæta við mörkum og m.a. átti Figo
þrumuskot af löngu færi fimm mínút-
um fyrir leikslok, en boltinn hafnaði í
stönginni. Gestirnir reyndu að klóra í
bakkann og Christian Karembeu átti
skalla í stöng og Ruud Hesp, mai’k-
vörður Barcelona, varði glæsilega
skot Davios Bortolinis. Snemma í
leiknum hafði Hesp varið með mikl-
um tilþrifum gríðarfast skot Carlosar
utan af vinstri kanti.
Annars var það Illgner að þakka
að Real tapaði ekki mun stærra, en
hann hefur fengið fá tækifæri í vetur
og mestum tíma eytt á varamanna-
bekknum. En nú þegar hann fékk
sitt tækifæri lét hann það sér ekki úr
greipum ganga. Auk þess sem að
framan er getið varði hann m.a. í
tvígang vel frá Rivaldo.
„Eftir að HieiTO var rekinn af
leikvelli var við ramman reip að
draga og Ijóst að leikurinn í Meist-
ai-adeildinni sagði enn frekar til sín
þegar við vorum orðnir einum
færri,“ sagði Jupp Heynckes, þjálf-
ari Real. I leikjum sem þessum ríður
brottrekstur baggamuninn, en við
verðskulduðum ekki að tapa 3:0.
Félagi hans, Louis van Gaal hjá
Barcelona, var hins vegar mun hress-
ari þrátt fyrir meiðsli á ökkla og virð-
ist loks vera að koma liðinu inn á sig-
urbraut. „Við vorum betri allan tím-
ann, einnig í fyrri hálfleik áður en
brottreksturinn kom til. Við vorum í
marktækifærunum en þeir ekki.“
Lazio nálgast
Juventus hratt
Sigraði í einvígi Rómarliðanna og er fjórum stigum á eftir
meisturunum - Ronaldo klúðraði víti og Inter tapaði
LEIKMENN Lazio eru heldur betur á sigurbraut þessa dagana
og nálgast efsta iið deildarinnar, Juventus, hröðum skrefum á
sama tíma og Internazionale virðist vera að gefa eftir. Lazio
lagði félaga sína í Rómaborg, liðsmenn Roma, 2:0 á ólympíu-
leikvanginum á sunnudag. Þetta var átjándi leikur liðsins í röð
án taps og fjórði sigurinn á Roma í röð. Juventus gerði jafntefli
við Udinese á útivelli, 1:1, en Internazionale varð að bíta í það
súra epli að tapa 1:0 fyrir Parma, þar sem Ronaldo lét verja frá
sér vítaspyrnu rétt áður en heimamenn skoruðu sigurmarkið.
Dortmund
■ NEVIO Scala, þjálfari Evrópu-
meistara Dortmund, var nánast orð-
laus eftir tap liðsins, 4:2 fyrir 1860
Miinchen, en staðan var 4:0 eftir
tuttugu og fimm mínútur. „Eg hef
aldrei séð aðra eins útreið á fyrstu
tuttugu og fimm mínútunum í knatt-
spyrnuleik á öllum mínum ferli,“
sagði Scala. „Þess vegna held ég að
mér sér ráðlegast að segja ekki
neitt,“ bætti hann við vonsvikinn.
■ JOHN Spencer framherji QPR
hefur verið lánaður til Everton í einn
mánuð. Þar hittir þessi 27 ára gamli
skoski landsliðsmaður fyrir landa
sinn Duncan Ferguson sem er
reyndar í leikbanni þessa dagana.
■ IAN Wríght verður að öllu
óbreyttu í leikmannahópi Arsenal,
þegar hðið mætir Wimbledon í úr-
valsdeildinni annað kvöld. Framherj-
inn hefur lítið getað leikið undan-
famar vikur vegna meiðsla á hné og
kálfa en er nú gróinn sára sinna.
■ WIMBLEDON hefur keypt varn-
armanninn Andy Roberts frá Crys-
tal Palace á 1,6 milljónir sterl-
ingspunda. Roberts er þó ekki á leið
á ókunnar slóðir þvi félögin leika
heimaleiki sína á sama velli, Selhurst
Park í Lundúnum.
■ GORDON Strachan hjá Coventry
City hefur verið valinn knattspyrnu-
stjóri febrúar-mánaðar í ensku úr-
valsdeildinni. Kom valið fáum á
óvart enda settu lærisveinar
Strachans nýverið félagsmet þegar
þeir unnu sjö leiki í röð.
■ TERRY Venablesimm svara því
kl. 17 í dag hvort hann hyggst þekkj-
ast tilboð Marks Goldbergs, nýbak-
aðs aðaleiganda Crystal Palace, um
að taka við starfi knattspyrnustjóra
hjá félaginu. Geri hann það er talið
að Steve Coppell, núverandi knatt-
spyrnustjóri, taki við starfi knatt-
spymuþróunarstjóra á Selhurst
Park.
Eftir þessa umferð munar nú að-
eins fjórum sitgum á Lazio og
Juventus og virðast lærisveinar
Svens Görans Erikssons hafa alla
burði til þess að veita meisturum
Juventus harða keppni nú á loka-
sprettinum. í byrjun desember
munaði tólf stigum á þessum liðum,
Juventus í hag. Eitthvað virðist
hins vegar vanta upp á hjá Intern-
azionale sem ekki hefur leikið vel
upp á síðkastið og hefur nú orðið
að gera sér þriðja sætið að góðu,
a.m.k. um stundarsakir. Haldi liðs-
menn Lazio uppteknum hætti gæti
orðið hreinn úrslitaleikur á milli
þeima og Juventus á ólympíuleik-
vanginum 4. maí.
Ki-óatinn Alen Boksic kom Lazio
á bragðið á 50. mínútu gegn Roma
og 23 mínútum síðar innsiglaði fé-
lagi hans Nedved sigurinn, en
þetta var 12. sigurleikur liðsins á
heimavelli á þessari leiktíð. Þrátt
fyrir gott gengi bæði í deildinni og
í Evrópukeppni félagsliða er
Eriksson með báða fætur á jörð-
inni sem fyrr og hvetur stuðnings-
menn félagsins til að halda ró sinni.
„Njótum þess að vera í öðru sæti
og stefnum á að halda þeirri
stöðu,“ sagði hann um helgina.
„Næst á dagskrá er síðari leikur-
inn við Juventus á miðvikudaginn
og mikið liggur við að halda ein-
beitingu í þeim leik og byggja ekki
skýjaborgir. En við lékum vel gegn
Roma og ljóst að liðið hefur ekki í
annan tíma leikið betur.“
Brasih'umaðurinn Aldair sagðist
ekki geta afsakað frammistöðu
sína og félaganna, en liðið hefur
verið á sigurbraut upp á síðkastið,
sigraði m.a. Fiorentina 4:1 um síð-
ustu helgi. „Lazio er einfaldlega
betra lið,“ sagði Aldair og var ekki
að flækja málið.
Intemazionale sótti ekki gull í
greipar Parma, eins og vonir stóðu
til, en með sigri hefðu liðið náð að
minnka forskot Juventus í tvö stig.
Það var svo sem ekki neinn glæsi-
bragur yfir leik Juventus er það
gerði jafntefli við Udinese.
Alessandro Del Piero jafnaði leik-
inn rétt íýrir leikslok og náði
þannig að tryggja annað stigið.
Crespo var hetja Parma en hann
gerði eina mark leiksins um miðjan
síðari hálfleik. Skömmu áður hafði
snillingurinn Ronaldo látið Buffon,
markvörð Parma, verja frá sér illa
tekna vítaspyrnu hinum megin á
vellinum. Þótti réttlætinu fullnægt
er vítaspyman fór í vaskinn því
hún var dæmd á hæpnum forsend-
um. Fram að markinu hafði lið
Intemazionale verið heldur líflegi’i
aðilinn í frekar daufum leik, eink-
um í fyrri hálfleik. Þá hafði Diego
Simeone skoraði mai’k tíu mínútum
fyrir leikhlé, en markið var dæmt
af vegna rangstöðu.
Strax og Buffon hafði varið
vítapsyrnuna komu leikmenn
Parma knettinum fram þar sem
þeir hófu stórsókn en gestirnir
gátu bjargað sér úr klípunni á ell-
eftu stundu. En vöm Intem-
azionale var oft slök og einkum átti
hún í vandræðum með að verjast
háum sendingum leikmanna
Parma inn í vítateiginn. Upp úr
hornspyrnu á 74. mínútu þar sem
heimamenn unnu skallaeinvígi
barst knötturinn til Crespo sem
skaut með vinstri fæti af mark-
teigslínu efst í vinstra hornið og
tryggði sigur. Gestimir höfðu ekki
uppi mikla tilburði til að jafna það
sem eftir var leiks.
Evrópumeistarar Borussia Dort-
mund voru teknir í kennslustund
af 1860 Munchen um helgina í þýsku
1. deildinni. Munhenarliðið er að
berjast við að halda sæti sínu í deild-
inni og er útlitið ekkert allt of bjart.
Leikmenn þess byrjuðu leikinn af
miklum krafti og voru komnir í 4:0
eftir 25 mínútur og eftir það var fátt
annað fyrir Evrópumeistarana að
gera en reyna að klóra í bakkann.
Það tókst en lítil reisn var yfir leik-
mönnum Dortmund sem skoruðu tvö
mörk á lokakaflanum, Andreas Möll-
er það fyrra á 81. mín og Rene
Schneider það síðara þremur mín.
fyrir leikslok.
Urslitin urðu því 4:2.
Bayer Leverkusen heldur þriðja
sæti deildarinnar eftir 2:1 sigur á
Hansa Rostock. Ulf Kirsten og
Króatinn Boris Zivkovski skoruðu
mörkin í fyrri hálfleik á 13. og 39.
mínútu. Stefan Studer minnkaði
muninn fyrir Rostock eftir hlé og
þar við sat. Leverkusen er nú aðeins
tveimur stigum á eftir Bayem
Múnchen sem tapaði 1:0 fyrir Schal-
ke á sunnudaginn.
„Ég er ánægður með að leikmenn
mínir skyldu ná sér á strik eftir erf-
iðan leik í Meistaradeildinni í vik-
unni,“ sagði Christoph Daum, þjálf-
ari Leverkusen. „Liðsmenn mính-
sýndu festu og vilja.“
Norbert Meier, þjálfari Gladbach,
var að vonum glaður eftir stórsigur,
5:2, á Karlsruhe, en hann hafði sagt
fyrir leikinn að ef lið sitt myndi tapa
þeim leik yrði hann að taka föggur
sínar og leita að starfí hjá öðru fé-
lagi. Leikmenn Gladbach léku við
hvum sinn fingur í leiknum en engin
þó betur en fyrh’liðinn, Stefan Effen-
berger, sem skoraði tvisvar. Félagi
hans, Stephan Passlack, fann einnig
leiðina að mai’ki í tvígang.
Kaiserslautem gerði jafntefli við
Werden Bremen á föstudagskvöldið
og nú sjö stigum á undan Bayem
Munchen í efsta sæti deildarinnar og
stefnir hraðbyri að meistaratitli.