Morgunblaðið - 10.03.1998, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.03.1998, Qupperneq 12
SKIÐI Múrarinn sat heima en fagnaði tvöföldum sigri Múrarinn snjalli, Hermann Maier frá Austurríki, sigraði á laugardaginn í heildarstiga- keppni alpagreina á skíðum og varð því heimsbikarmeistari. Maier keppti þó ekki í bruninu eða risa- sviginu í Kvitfjell í Noregi um helgina. Hann sat í hægindastól heima í Flacau og fylgdist með keppninni í sjónvarpi. Hann hefur kvartað undan eymslum í baki að undanförnu og að læknisráði sat hann heima. Það kom ekki að sök því helsti keppinautur hans, landi hans Andreas Schifferer, lauk ekki keppni í Noregi og þar með var Maier öruggur um titilinn. Fyrir mótin i Noregi hafði Maier gott forskot í keppninni, hafði 591 stigi meira en Schifferer en 600 stig voru í pottinum. Schifferer missti annað skíðið af sér snemma í keppninni og gat því ekki lokið henni og þar með var Maier fyrsti Austurríkismaðurinn til að hljóta þennan eftirsótta titil síðan Karl Schranz náði honum árið 1970. Hann hefur hlotið 1.625 stig, en Schifferer 1.054 stig þegar fjögur mót eru eftir. Sigurvegari í bruninu á laugar- dag var Frakkinn Nicolas Burtin og kom það mjög á óvart því þetta var fyrsti sigur hans í heimsbik- arnum. Wemer Perathoner frá Ítalíu varð annar og Josef Strobl, Austurríki, og Lasse Kjus, Noregi, deildu þriðja sætinu. Á sunnudaginn réðust einnig úr- slit í risasvigi og þar sigraði Maier einnig. Stefan Ebenharter, sem einn gat náð honum að stigum, féll úr keppni og þar sem Maier hefur 180 stiga forystu getur enginn náð honum þegar eitt risasvig er eftir. Hans Knauss náði besta tímanum á sunnudag, Svíinn Patrik Jaerbyn varð annar og Didier Cuche, Sviss, þriðji. Konurnar áttu að keppa í risa- svigi í Morzine í frönsku Ölpunum um helgina, en því var aflýst vegna veðurs. Þar með var ljóst að engin kona gat náð þýsku stúlkunni Katju Seizinger að stigum í þeirri grein. Hún gat því fagnað risa- svigstitlinum eins og Maier, án þess að keppa. Lokamót heimsbikarsins í karla- og kvennaflokki fara fram í Crans Montana í Sviss um næstu helgi. Reuters AUSTURRÍKISMAÐURINN Hermann Maier varð um helgina sigurvegari f heildarstigakeppni alpa- greina skíðaíþrótta. Hann keppti þó ekki f bruninu eða risasviginu í Kvitfjell í Noregi, heldur sat heima og fylgdist með keppninni í sjónvarpi og fagnaði heima í stofu. Ármenningar sigursælir Armenningar voru sigursælir í bikar- móti Skíðasambands íslands í svigi sem fram fór í Bláfjöllum á laugardag- inn. Haukur Arnórsson sigraði með yf- irburðum í karlaflokki og Helga Björk Amadóttir í kvennaflokki, en þau eru bæði úr Armanni. Haukur var tæplega fjórum sekúnd- um á undan Amari Gauta Reynissyni úr IR sem varð annar. Armann átti síð- an þrjá næstu keppendur, Pálmar Pét- ursson sem varð þriðji, Sveinbjörn Sveinbjörnsson sem varð fjórði og Ingva Geir Ómarsson sem varð fimmti. 42 hófu keppni en 20 þeirra hættu keppni. Keppnin í kvennaflokki var meira spennandi en í karlaflokknum. Helga Björk var með næst besta tímann í fyrri umferð, á eftir Lilju Rut Kristjánsdótt- ur úr KR. Helga Björk náði síðan lang besta tímanum í síðari umferð og tryggði sér sigurinn, var hálfri sekúndu á undan Lilja Rut samanlagt. Sæunn Ágústa Birgisdóttir, Armanni, varð þriðja. 37 stúlkur vora skráðar til leiks, en aðeins 17 komust klakklaust í gegn- um báðar umferðimar. Einnig átti að keppa i svigi á sunnu- dag, en því var frestað vegna veðurs. Morgunblaðið/V alur Haukur Arnórsson Kristinn æfir í Noregi fyrir loka- mótið KRISTINN Björnsson skíðakappi frá Ólafsfirði er nú í Lillehammer í Noregi þar sem hann er við æfing- ar fram að Iokamóti heimsbikar- keppninnar í svigi sem fram fer í Crans Montana í Sviss á sunnudag- inn. í lokamótinu á sunnudag fá aðeins 30 stigaefstu í hverri grein að vera með. Samkvæmt nýjasta ráslista heimsbikarsins verður Kristinn með rásnúmer 16 í Crans Montana á sunnudag. Norðmenn segja nauð- synlegt að fá HM 2003 NORÐMENN leggja mikið kapp á að fá að halda heimsmeistaramótið í alpagreinum árið 2003. Segja að það sé lífsnauðsyn fyrir skuldsett skíðasvæðin í Kvitíjell og Hafjell sem eru í nágrenni Lillehammer. Þar fóru einmitt alpagreinarnar fram á Ólympíuleikunum 1994. Al- þjóða skíðasambandið, FIS, tekur ákvörðun um staðarval heims- meistaramótsins árið 2003 á fundi sínum í maí. Tveir aðrir skíðastað- ir hafa sótt um HM á þessum tíma, Val Thorens í Frakklandi og Saint Moritz í Sviss. Peterka stökk lengst PRIMOZ Peterka frá Slóveníu var í essinu sínu í stökki af 120 metra palli sem fram fór í Lahti í Finn- landi á sunnudag og var liður í heimsbikarkeppninni. Hann náði lengsta stökkinu í báðum umferð- um, 125 metra og 126 metra. Dag- inn áður setti hann met af pallinum í Lahti, 129 metra, en náði sér hins vegar ekki á strik í síðari umferð- inni og endaði í 11. sæti. Finninn Jani Soininen stökk 120,5 metra og 126 metra og varð annar á sunnudag og Norðmaður- inn Kristian Brenden varð þriðji. Japaninn Kazuyoski Funaki, sem var sjötti á sunnudag, er efstur í stigakeppni heimsbikarsins þegar tvö mót eru eftir. Dieter Thoma, Þýskalandi, kemur næstur og Peterka er þriðji. 30. sigur Smirnovs KASAKINN Vladimir Smirnov sigraði í 30 km skíðagöngu með hefðbundinni aðferð sem fram fór í Lahti í Finnlandi á sunnudag. Hann var rúmlega mínútu á undan ólympíumeistaranum Thomasi Als- gaard, sem varð annar. Þetta var 30. sigur Smirnovs í heimsbikarn- um en hann hélt upp á 34 ára af- mælið sitt á laugardag. Hann hefur ávallt fundið sig vel í keppni í Lahti og varð m.a. heimsmeistari í 30 km göngunni á sama stað fyrir níu árum. Hann hefur lýst því yfir að þetta verði síðasta keppnistíma- bil hans í heimsbikarnum. Alsgaard er nú með nokkuð ör- ugga forystu í stigakeppni heims- bikarsins og nokkuð ljóst að landi hans Björn Dæhlie nær ekki að veija titilinn þetta árið, en hann hafnaði aðeins í sjöunda sæti um helgina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.