Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KÖRFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD
Yngsti
leikmað-
urinn
11 ára
PAVEL Ermolinskij er yngsti
Ieikmaður úrvaisdeildarinnar í
körfuknattleik, aðeins 11 ára.
Pavel var á Ieikskýrslu með IA
gegn Njarðvíkingum á dögunum.
Hann tók ekki beinan þátt í
leiknum, en að vera á leikskýrslu
nægir til að fá leikinn skráðan.
Sigurður Valgeirsson í Keflavík,
sem veit sínu viti um körfubolta,
sagði að Pavel væri áreiðanlega
þar með yngsti leikmaðurinn til
að leika opinberlega með meist-
araflokki hér á landi og þó víða
væri leitað.
Faðir Pavels er hinn kunni
körfúknattleiksmaður Alexander
Ermolinskij, sem um árabil lék
með Skallagrími frá Borgarnesi
við góðan orðstír. Hann er nú
þjálfari og Ieikmaður Skaga-
manna, býr á Akranesi ásamt
fjölskyldu sinni. Hann varð ís-
lenskur ríkisborgari fyrir tveim-
ur árum og sagði Andri, eldri
sonurinn, sem er 16 ára, í samtali
við Morgunblaðið að fjölskyldan
yndi hag sínum afar vel á Islandi.
Hann sagði að yngri bróðirinn
væri mikill áhugamaður um
íþróttir og auk þess að leika
körfubolta væri hann vel liðtæk-
ur í badminton og knattspyrnu.
Þess má geta að engar reglur
eru um það í körfuknattleiknum
hversu ungir menn mega vera til
að leika í meistaraflokki, en slík-
ar reglur eru hins vegar bæði í
handknattleik og knattspyrnu.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
FEÐGARNIR Alexander og Pavel Ermolinskij fyrir ieikinn f
Njarðvik á dögunum.
Enn fellur
ísland
Islenska landsliðið í knattspymu
fellur enn á styrkleikalista Alþjóða
knattspyrnusambandsins, en nýr
listi var kynntur í gær. Að þessu
sinni er ísland í 78. sæti og hefur
fallið um eitt sæti frá listanum sem
gefmn var út í febrúar og um sex
sæti frá því í desember. Á listanum
eru nú 190 þjóðir og sem fyrr eru
heimsmeistarar Brasilíu efstir á
blaði, Þjóðverjar í 2. sæti og Tékk-
lendingar í því þriðja sem er sama
staða og síðast.
Athyglisverðustu breytingarnar
eru þær að Hollendingar taka risa-
stökk upp á við, flytjast úr 25. sæti í
6. sæti og Argentínumenn eru í 7.
sæti en sátu í 17. sæti fyrir mánuði.
Þá falla Frakkar úr 6. sæti í það 14.
S-Afríkumenn eru nú í 20. sæti eftir
að hafa tekið stórt stökk, eða úr því
36. fyrir mánuði.
Næsta þjóð á undan Islendingum
á listanum eru Litháar sem einnig
falla um eitt sæti frá síðasta lista.
Næstir á eftir eru hins vegar Kýpur-
búar, því næst Namibía, Tógó og
Ungverjaland sem greinilega má
muna sinn fífil fegri í heimi knatt-
spymunnar.
HANDKNATTLEIKUR
Bjorgvin til
Hameln?
Börg\dn Björgvinsson, horna-
maður KA og landsliðsins, er
líklega á förum til Þýskalands
næsta vetur til að spila hand-
knattleik með Hameln, sem Al-
freð Gíslason þjálfar. Hameln
hefur ekki gengið sem skyldi í
þýsku deildinni í vetur og segir
að Alfreð meiðsl lykilmanna eins
og Vassili Kudinovs hafí sett
strik í reikninginn.
Hann sagðist vera farinn að
huga að liðinu næsta tímabil og
vissulega væri Björgvin inni í
myndinni hjá honum. „Við höfum
verið í vandræðum með vinstra
hornið í vetur og þui-ft að notast
við leikmann sem hefur leikið í 4.
deildinni þýsku. Ég hef rætt við
Björgvin, en það er ekki búið að
ganga frá neinu og því of
snemmt að segja til um hvort
hann komi hingað eða fari eitt-
hvert annað,“ sagði Alfreð.
Hameln er nú í þriðja neðsta
sæti deildarinnar með 14 stig,
Gummersbach er næst neðst
með 12 stig og Bayer Dormagen
rekur lestina með 11 stig. Sem
kunnugt er voru dæmd fjögur
stig af Hameln fyril• að nota Finn
Jóhannsson, sem var í leikbanni,
en Hameln hefur fengið þau stig
aftur. Alfreð sagði að liðið sitt
ætti eftir þrjá heimaleiki og mik-
ilvægt að rínna þá. „Ef við vinn-
um þessa þrjá leiki erum við
sloppnir við fall og ég er bjart-
sýnn á að við gerum það,“ sagði
hann.
Úrslit á föstudag
Dómstóll ISÍ komst að þeirri
niðurstöðu á fundi sínum í
gær að honum bæri að taka fyrir
áfrýjun handknattleiksdeildar Vals
þess efnis hvort dómstóll HSI sé
hæfur til að taka fyrir áfrýjun
handknattleiksdeilar Fram á nið-
urstöðu Handknattleiksráðs
Reykjavíkur. Á dögunum komst
dómstóll HKRR að þeirri niður-
stöðu að úrslit bikarúrslitaleiks
Vals og Fram í liðnum mánuði
skyldu standa. Þeirri niðurstöðu
áfrýjuðu Framarar til dómstóls
HSI, en Valsmenn eru ekki sáttir
við að núverandi dómstóll taki
málið fyrir þar sem hann hefur áð-
ur tekið málið fyrir og birt niður-
stöðu.
Eftir að dómstóll ÍSÍ hafði kom-
ist að þeirri niðurstöðu að honum
bæri að fjalla um áfrýjun Vals kall-
aði hann eftir gögnum með og á
móti frá Fram og Val. Eftir að fé-
lögin höfðu gert svo frestaði dóm-
stóllinn fundi sínum og ákvað að
koma saman á ný á föstudaginn kl.
17 og fella þá úrskurð sinn um
hvort núverandi dómstóli HSÍ sé
stætt á að taka málið fyrir á ný eða
hvort skipa verði aðra menn í dóm-
stólinn.
KNATTSPYRNA / HEIMSLISTINN
1
KNATTSPYRNA: KVENNAFAR OG PENINGABRUÐL í HERBÚÐUM NEWCASTLE / C4