Morgunblaðið - 26.03.1998, Síða 5
4 B FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998
=f
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 B 5
URSLIT
Handknattleikur
Fram - ÍBV 29:26
íþróttahús Fram, 8-liða úrslit karla, fyrsti
eða fyrri leikur, miðvikudaginn 25. mars
1998.
Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 5:5, 5:8, 7:10,
9:11, 10:12, 11:13. 13:13, 15:15, 18:15,
19:16, 21:18, 24:20, 24:23, 28:24, 29:26.
Mörk Fram: Oleg Titov 9/1, Daði Hafþórs-
son 6/1, Gunnar Berg Viktorsson 4, Guð-
mundur H. Pálsson 3, Njörður Árnason 3,
Ármann Sigurvinsson 2, Sigurpáll Árni
Aðalsteinsson 1, Magnús A. Arngrímsson 1.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson 12 (þar
af 3 til mótheija).
Utan vallar: 10 mín. (Gunnar Berg fékk
þriðju brottvisun sína þegar tvær mínútur
voru eftir).
Mörk ÍBV: Zoltan Beláný 8/3, Guðfinnur
Kristmannsson 5, Hjörtur Hinriksson 5,
Robert Panzuplic 2, Svavar Vignisson 2,
Haraldur Hannesson 1, Erlingur Richards-
son 1, Sigurður Bragason 1, Sigmar Þröst-
ur Óskarsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson
14/1 (þar af 3 til mótheija).
Utan vallar: 10 mín.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson og
Arnar Kristinsson. Komust þokkalega frá
erfiðum leik.
Áhorfendur: Um 400.
FH-Haukar 28:21
Kaplakriki:
Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 4:2, 6:4, 6.6,
9:8, 13:8, 14:9, 14:10, 15:12, 17:12, 23:13,
27:15, 28:19, 28:21.
Mörk FH: Guðjón Árnason 7, Gunnar Bein-
teinsson 7, Guðmundur Pedersen 4, Hálfdán
Þórðarson 4, Lárus Long 2, Valur Arnarson
2, Knútur Sigurðsson 1, Siguijón Sigurðs-
son 1/1.
Varin skot: Suik Hyung Lee 26 (þaraf 9
til mótheija).
Utan vallar: 8 minútur.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 8/3, Ein-
ar Gunnarsson 3/2, Jón Freyr Egilsson 3,
Gústaf Bjarnason 2, Petr Baumruk 2/1,
Aron Kristjánsson 1, Sigurður Þórðarson
1, Þorkell Magnússon 1.
Varin skot: Bjarni Frostason 16/2 (þaraf
7 tíl mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og Gunnar
yiðarsson, dæmdu af stakri prýði.
Áhorfendur: 2.000.
Þannig
vörðu þeir
Þannig skot vörðu markverð-
irnir í 8-liða úrslitunum í hand-
knattleiknum í gærkvöldi (bolt-
inn aftur til mótheija);
Reynir Þór Reynisson, Fram:
12 (3): 7 langskot, 2(2) úr
horni, 3(1) af línu. ^
Sigmar Þröstur Óskarsson,
ÍBV: 14/1 (3): 5(1) langskot,
1 úr h orni, 3 eftir hraðaupp-
hlaup, 2(1) eftir gegnubrot,
2(1) af línu og 1 víti.
Suik Hyung Lee, FH: 26 (9);
16(4) langskot, 2(2) eftir gegn-
umbrot, 1 eftir hraðaupphlaup,
5 (2) úr horni, 2(1) af línu.
Bjarni Frostason, Haukum;
16/2: 6 (4) langskot, 4 (1) eft-
ir hraðaupphlaup, 2 úr horni,
2 (1) af iínu og 2 vítaköst.
Körfuknattleikur
KR - Tindastóll 82:73
íþróttahúsið á Seitjarnarnesi, úrslitakeppn-
in, 8-liða úrslit DHL-deildarinnar, miðviku-
daginn 25. mars 1998. Oddaleikur:
Gangur leiksins: 3:4, 9:11, 15:18, 29:27,
37:33, 39:41, 46:53, 60:53, 70:64, 78:69,
80:70, 82:73.
Stig KR: Keith Vassell 30, Nökkvi Már
Jónsson 18, Ingvar Ormarsson 14, Baldur
Ólafsson 9, Ósvaidur Knudsen 8, Atli Freyr
Einarsson 2, Óskar Kristjánsson 1.
Stig Tindastóls: Nate Taylor 15, Sverrir
Þór Sverrisson 15, Arnar Kárason 14,
Ómar Sigmarsson 11, Hinrik Gunnarsson
9, Skarphéðinn Ingason 4, Óli Barðdal 3,
Lárus Dagur Pálsson 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Sigmund-
ur Herbertsson. Þeir dæmdu vel.
Áhorfendur: Um 400.
Knattspyrna
Deildarbikarkeppnin
Keflavík - Grindavik...........3:1
Ólafur Ingólfsson, Guðmundur Steinarsson,
Gunnar Oddsson - Sinisa Kekic.
FH - Selfoss...................4:1
Hörður Magnússon 3, Friðrik Ellert Jónsson
- Sigurður Fannar Guðmundsson.
Reykjavíkurmótið
Þróttur - Víkingur............ 1:3
Páll Einarsson - Sumarliði Árnason, Sváfn-
ir Gíslason, Gauti Marteinsson.
Vináttulandsleikir
Olomouc, Tékklancli:
Tékkland - frland..............2:1
Vladimir Smicer (50.), Edvard Lasota (76.)
- Gáré Bréen (10.). 14.694.
Moskva, Rússlandi:
Rússland - Frakkland.................1:0
Sergei Yuran (3.).
Rússland: Alexander Filimonov; Igor
Chugainov, Yuri Nikiforov (Yuri Kovtun,
68. ), Igor Yanovsky, Dmitry Khlestov, An-
drei Kanchelskis (Dmitry Khokhlov, 45.),
Viktor Onopko, Dmitry Alenichev, Sergei
Yuran (Yevgeny Kharlachev), Igor Koly-
vanov, Alexei Gerasimenko
Frakkland: Lionel Letizi; Lilian Thuram,
Franck Leboeuf, Marcel Desailly, Christian
Karembeu (Marc Keller 63.), Didier Desc-
hamps (Alain Boghossiann 45.), Emmanuel
Petit (Vincent Candela 45.), Sabri Lamouc-
hi (Robert Pires 74.), Bernard Diomede;
Youri Djorkaeff, Stephane Guivarc’h.
Skopje, Makedóníu:
Makedónía - Búlgaría.................1:0
Gjorgi Hristov (40.). 8.000.
Varsjá, Póllandi:
Póllandi - Slóvenía..................2:0
Wojciech Kowalczyk (36.), Tomasz Iwan
(55.) 4.000 Brussel, Belgíu:
Belgía - Noregur.....................2:2
Franky Van der Elst (7.), Marc Wilmots
(66.) - Vidar Riseth (11.), Ole Gunnar
Solskjaer (71.) 13.371
Bern, Sviss:
Sviss - England......................1:1
Ramon Vega (37.) - Paul Merson (69.)
17.000
Sviss: Joel Corminboef; Murat Yakin; Ram-
on Vega, Sebastian Fournier, Stephane
Henchoz; Johann Vogel, Ciriaco Sforza,
Raphael Wicky (Johann Lonfat 82.), Marco
Grassi; David Sesa (Adrian Kunz 87.), Step-
hane Chapuisat.
England: Tim Flowers; Martin Keown,
Andy Hinchcliffe, Rio Ferdinand, Gareth
Southgate; Paul Ince, Robert Lee, Paul
Merson (David Batty 81.); Steve McMana-
man, Alan Shearer, Michael Owen (Teddy
Sheringham 69.)
Valletta, Möltu:
Malta - Finnland.....................0:2
- Aki Riihilahti (1.), Jarkko Wiss (51.).
Vín, Austurríki:
Austurríki - Ungverjaland............2:3
Ivica Vastic (10.), Martin Amerhauser (21.)
- Ferenc Horvath (4.), Bela Illes 2 (32.,
54.). 21.000.
cardiff, Wales:
Wales - Jamaika......................0:0
13.349.
Belfast, N-írlandi:
N-írland - Slóvakía..................1:0
Steve Lomas (51.).
Stuttgart, Þýskalandi:
Þýskaland - Brasilía.................1:2
Ulf Kirsten (65.) - Cesar Sampaio (27.),
Ronaldo (88.). 52,803.
Rautt spjald: Júregn Kohler, Þýskal. (35.),
Dunga, Brasilíu (57.).
Þýskaland: Andreas Köpke; Olaf Thon,
Thomas Heimer (Markus Babbel 80.), Júrg-
en Kohler, Christian Wörns, Jörg Heinrich,
Dietmar Hamann, Christian Ziege (Michael
Tarnat 67.), Andreas Möller, Júrgen Klins-
mann (Ulf Kirsten 46.), Oliver Bierhoff.
Brasilía: Taffarel; Cafu, Junior Baiano,
Aldair, Roberto Carlos, Rivaldo, Cesar
Sampaio, Dunga, Denilson (Do Riva 80.),
Romario (Bebeto 80.), Ronaldo.
Glasgow, Skotlandi:
Skotland - Danmörk...................0:1
Brian Laudrup (38.). 26.468.
Skotland: Jim Leighton (Andy Goram 46.),
Jackie McNamara (David Weir 60.), Tom
Boyd, Colin Calderwood, Colin Hendry,
Matt Elliott, Scot Gemmill (Stuart McCall
69. ), Billy McKinlay, Scott Booth (Eoin
Jess 60.), Darren Jackson (Simon Donnelly
75. ), Christian Dailly.
Danmörk: Mogens Krogh, Jacob Laursen
(Rene Henriksen 46.), Marc Rieper, Mich-
ael Schjönberg, Jan Heintze, Thomas Hel-
veg, Allan Neilsen, (Per Frandsen 62.),
Morten Wieghorst, Peter Möller (Martin
Jörgensen 75.), Michael Laudrup, Brian
Laudrup (Bjarne Goldbæk 80.).
Vigo, Spini:
Spánn - Svíþjóð......................4:0
Fernando Morientes 2 (1., 5.), Raul (30.),
Joseba Etxeberria (70.). 17.000.
Spánn: Andoni Zubizarreta, Albert Ferrer,
Sergi Baijuan, Ivan Campo (Roberto Rios
76. ), Miguel Angel Nadal, Fernando Hierro
(Santi Denia 45.), Guillermo Amor, Luis
Enrique Martinez, Fernando Morientes (Al-
fonso Perez 46.), Raul Gonzalez (Kiko
Narvaez 46.), Fernando Sanchez (Joseba
Etxeberria 60.)
Svíþjóð: Hakan Svensson, Roland Nilsson,
Patrick Andersson, Joakim Björklund,
Gerry Sundgren (Teddy Lucic 70.), Stefan
Schwarz, Par Zetteberg, Klas Ingesson,
Jörgen Pettersson (Hakan Mild 70.), Hen-
rik Larsson (Yksel Osmanovski), Kennet
Andersson.
Holland
Volendam - NEC Nijmegen .............2:0
Willem II Tilburg - Groningen........4:2
MVV Maastricht - Doetinchem..........2:1
Ikvöld
Handknattleikur
Úrslitakeppni karla, 2. leikur:
Hlíðarendi: Valur - Afturelding.20
Ásagarður: Stjarnan - KA......20
Körfuknattleikur
3. úrslitaleikur kvenna:
Keflavík: Keflavík-KR...........20
Blak
Úrslitakeppni kvenna, 2. leikur:
Nesk.staður: Þróttur- Vikingur..20
Íshokkí
2. úrslitaleikur karla:
Akureyri: SA - SR........ 19.30
IÞROTTIR
HANDKNATTLEIKUR
KORFUKNATTLEIKUR
Hæðarmun-
urinn réð
úrslitum
Borgar Þór
Einarsson
skrifar
KR-INGAR tryggðu sér sæti í
undanúrslitum íslandsmótsins í
körfuknattleik í gærkvöld með
góðum sigri á liði Tindastóls og
munu þeir mæta Skagamönnum
í undanúrslitum. Leikur KR og
Tindastóls var mjög kaflaskiptur
en forysta KR-inga var örugg í
lokin og sigruðu þeir 82:73.
Gríðarleg spenna ríkti fyrir leikinn
í gærkvöld og leikmenn beggja
liða börðust eins og ljón frá fyrstu
mínútu. Leikmenn
Tindastóls lentu
snemma í miklum villu-
vandræðum og varð
þjálfari liðsins að hvíla
hæsta mann þess, Hinrik Gunnars-
son, snemma í fyrri hálfleik, þar sem
hann var kominn með 3 villur. KR-
ingar náðu þó ekki að nýta sér hæð-
armuninn fyrst um sinn og var það
fyrst og fremst feiknarleg barátta
Tindastólsmanna sem kom í veg fyrir
það. Liðin skiptust á að hafa frum-
kvæðið og náðu hvort fyrir sig sjö
stiga forystu um tíma, en staðan var
39:41 í leikhléi.
Síðari hálfleikur var ekki eins
kaflaskiptur og KR-ingar voru sterk-
ari allt til loka. Munaði þar mest um
yfirburði þeirra í loftinu en þar áttu
Tindastólsmenn við ramman reip að
draga. Jafnt og þétt juku KR-ingar
við forskot sitt og á síðustu mínútun-
um var ljóst að sigurinn var þeirra.
Gestirnir gerðu örvæntingarfullar til-
raunir en KR-inga juku enn forskot
sitt og innbyrtu sætan sigur.
Lið Tindastóls barðist af miklum
móð lengi vel en svo virtist sem leik-
menn þreyttust þegar líða tók á leik-
inn og þá varð vömin gisnari. Bestir í
liði Tindastóls voru þeir Amar Kára-
son og Nate Taylor en liðið var ann-
ars mjög jafnt. Sigur KR verður að
teljast sanngjarn. Liðið lék skynsam-
lega og af yfirvegun allan leikinn.
KNATTSPYRNA
Urslitakeppnin
körfuknattleik 1998
Þriðji leikur liðarmaí 8 liðaúrslitum,
leikinn á Seltjamarnesi 25. mars 1998
KR___________TINDASTÓLL
82 Skoruð stig 73
25/40 Vítahittni 11/19
3/14 3ja stiga skot 8/26
24/35 2ja stiga skot 19/43
15 Varnarfráköst 19
5 Sóknarfráköst 13
18 Bolta náð 9
19 Bolta tapað 19
21 ■. X- Stoðsendingar 7
20 Villur 29
Leikmenn nýttu sér líkamlega yfir-
burði sína í síðari hálfleik og þeir
réðu úrslitum. Bestir í jöfnu liði KR
voru þeir Keith Vassell og Nökkvi
Már Jónsson, og einnig sýndu Baldur
Ólafsson og Ingvar Ormarsson góð
tilþrif.
Jón Sigurðsson, þjálfari KR, sagði
leikinn hafa verið erfiðan: „Eg var
ánægður með liðsheildina og baráttu
varnarinnar. Tindastóll er með
sterkasta vamarlið deidarinnar. Þeir
em geysilega baráttuglaðir og því var
það enginn hægðarleikur að sigra þá
hér í kvöld. Það tók okkur langan
tíma að brjóta þá á bak aftur og ég
held að hæðarmunurinn hafi ráðið úr-
slitum." Jóni leist ágætlega á IA sem
andstæðing í undanúrslitunum: „IA
er það lið sem hefur komið mest á
óvart og verið mjög vaxandi. Það
verður geysilega erfið viðureign."
Risinn er
m
vaknaður
Morgunblaðið/Golli
HÁLFDÁN Þórðarson lék mjög vel í vörn og í sókn með FH-liðinu.
Hér skorar hann eitt af fjórum mörkum sínum gegn Haukum i
Kaplakrika í gærkvöldí.
14 25 56 F.h 9 25 36
14 30 47 S.h 12 30 40
28 55 51 Alls 21 55 38
9 Langskot 3
2 Gegnumbrot 3
8 Hraðaupphiaup 3
4 Horn 3
4 Lína 3
1 m 6
HAFNARFJARÐARRISINN er
vaknaður. Því fengu leikmenn
Hauka að finna fyrir er þeir
sóttu „stóra bróður“, FH, heim í
Kaplakrika í fyrsta sinni í 8-liða
úrslitum. Risinn hefur verið að
rumska í síðustu leikjum, en að
þessu sinni gerði hann gott bet-
ur, knýtti skóþveng sinn, reis
upp og gekk hreinlega ber-
serksgang þannig að leikreynd-
ustu mönnum Hauka féll allur
ketill í eld. Rúmlega sjö mínút-
um fyrir leikslok munaði tólf
mörkum, 27:15. Þá dró risinn
sig að mestu í hlé og leyfði „litla
bróður“ að klóra í bakkann,
lokatölur 28:19.
Það ríkti hátíðarstemmning í
Kaplakrika þegar flautað var til
leiks og 2.000 áhorfendur voru vel
með á nótunum. Reikn-
ívarBe- uðu að sjálfsögðu með
nediktsson dæmigerðum ná-
skrifar grannaslag þar sem
barist yrði allt til enda
og hvert mark yrði mikilvægt. Fljót-
lega kom í ljós að brestir voru í leik
Hauka, sóknarleikurinn var óöruggur
gegn 5-1 vöm FH og varnarleikurinn
var ekki eins sannfærandi og oft áður.
Það eina sem stóð undir væntingum
hjá Haukum í leik sem þessum var
markvarslan. Bjami Frostason hélt
Víkingar mættu til að hvetja
Framara gegn Eyjamönnum
NOKKRIR Vfkingar, með Gunnlaug Helgason útvarpsmann í broddi fylking-
ar, mættu í iþróttahús Fram í gær sérstaklega til að hvetja Framara á móti
ÍBV. Þeir kiæddust Víkingsbúningum, börðu bumbur og öskruðu sig hása.
Ástæðan fyrir því að þeir mættu til að halda með Fram var sú að ÍBV tapaði
fyrir ÍR í lokaleik íslandsmótsins sem varð til þess að Vfldngur féll í 2. deild.
Framarar laun-
uðu lambið gráa
Ronaldo færði Brasilíu sigur
Framherjinn Ronaldo tryggði
heimsmeisturum Brasilíu sigur á
Evrópumeisturum Þjóðverja, 2:1, í
vináttuleik í knattspymu í Stuttgart í
gærkvöldi. Fjöldi vináttuleikja fór
fram í Evrópu og var þessa beðið með
mestri eftirvæntingu, eins og nærri
má geta því liðin talið verða meðal
þeirra bestu á HM í sumar.
Þjóðverjar höfðu verið taplausir í
22 leikjum þar til Ronaldo og félagar
sigruðu þá í gær. Þessi frægasti
framherji heimsins um þessar mund-
ir var lítt áberandi í leiknum en fór
illa með miðherja Þýskalands og
markvörðinn þegar hann skoraði eftir
glæsilega sendingu Robertos Carlos
- aðeins tveimur mín. fyrir leikslok.
Brasilíumenn náði forystu á 27.
mín. er miðjumaðurinn Cesar
Sampaio skallaði í netið eftir horn-
spyrnu Carlos frá hægri. Átta mín-
útum síðar var þýski miðvörðurinn
Jiirgen Kohler rekinn af velli fyrir
ljótt brot á varnarmanninum Cafu.
Brasilíumenn voru því einum fleiri
um stund, en á 57. mín. var fyrirliði
þeirra, Dunga, einnig rekinn af velli
er dómarinn áminnti hann öðru
sinni.
Ulf Kirsten lék seinni hálfleikinn í
stað Júrgens fyrirliða Klinsmanns og
jafnaði fyrir Þjóðverja af harðfylgi á
65. mín. en Ronaldo gerði svo sigur-
markið undir lokin sem fyrr segir.
„Lið mitt lék frábærlega og leik-
mennirnir lögðu sig alla fram,“ sagði
Berti Vogts, þjálfari Þjóðverja á eftir.
„Ég er heldur súr því við töpuðum
vegna kjánalegra mistaka og hefðum
átt skilið jafntefli. En ég tel okkur á
réttri leið.“ Mario Zagallo, hinn gam-
alkunni brasilíski starfsbróðir Vogts,
var einnig ánægður með leikinn.
„Þetta var mjög góður vináttuleikur;
boðið var upp á sýnishorn af þeim
veisluréttum sem verða á boðstólnum
á HM í surnar."
Þjóðverjar og Brasilíumenn hafa
mæst 16 sinnum í.knattspymulands-
leik, Brasilíumenn sigrað níu sinnum,
fjórum sinnum orðið jafntefli og Þjóð-
verjar hafa þrívegis fagnað sigri.
Þjóðirnar hafa aldrei mæst í HM.
Þýska landsliðið tapaði síðast í júní
1996, gegn Frökkum, á sama velli;
Gottlieb Daimler leikvanginum í
Stuttgart. Besti árangur Þjóðverja
eru 23 leikir í röð án taps, undir
stjórn Jupps Derwalls frá 1978 til
1981, þannig að Berti Vogts og læri-
sveinar hans voru nálægt því að jafna
metið. Vogts ætti því að geta litið
björtum augum til HM þrátt fyrir
tapið; eftir áðurnefndan leik gegn
Frökkum, sem hann kallar „uppá-
halds tap“ sitt héidu Þjóðverjar
nefnilega á EM í Englandi þar sem
þeir fögnuðu Evrópumeistaratitlin-
unj.
Brian Laudrup tryggði Dönum sig-
ur á Skotum, 1:0, í Glasgow er hann
gerði eina markið á 38. mín. Leikið
var á heimavelli Rangers, Ibrox, þar
sem Daninn frábæri hefur margoft
farið á kostum síðustu árin í liði
heimamanna og því var vel við hæfi
að hann réði úrslitum. Laudrup sagði
Skotum samt sem áður, þrátt fyrir
tapið, að hafa ekki neinar áhyggjur.
„Ég er viss um að við hefðum líka
verið í vandræðum án sex bestu leik-
manna okkar,“ sagði hann, en mikil
forföll urðu úr leikmannahópi Skot-
anna vegna meiðsla.
Rússar sigruðu Frakka í Moskvu,
1:0, með marki Sergejs Jurans. Hann
skoraði strax á 3. mín. eftir slæm mis-
tök Lionels Letizis, sem stóð í marki
gestanna. Leikurinn var slakur og
þóttu Frakkar, sem léku m.a. án
Zinedins Zidans, besta leikmanns
síns, algjörlega bitlausir.
Fernando Morientes, framherji
frá Real Madrid, var í spænska
landsliðinu í fyrsta skipti og hélt upp
á daginn með því að skora tvívegis
þegar Spánverjar burstuðu Svía 4:0 í
Vigo. Hann skoraði tvö mörk á
fyrstu fimm mínútunum og Raúl og
Joseba Etxeberria gerðu hin mörk-
in.
Svisslendingar og Englendingar
skildu jafnir, 1:1, í Bern. Raymon
Vega, sem leikur með Tottenham í
Englandi, kom heimaliðinu yfir á 37.
mín. með skalla - með fyrsta marki
sínu fyrir Sviss - en Paul Merson
jafnaði á 69. mín. eftir slæm mistök
Joels Corminboeufs markvarðar.
Merson hafði aðeins gert eitt mark
fyrir England fram að þessu; fyrir
nákvæmlega sex árum, 25. mars 1992
gegn Tékkum.
Svisslendingar voru miklu betri í
fyrri hálfleiknum, réðu þá algjörlega
gangi mála, en gestimir komu tví-
efldir eftir að hafa sötrað teið sitt í
hálfleik og jafnteflið var sanngjamt.
Leikurinn var
reyndar talinn
heldur slakur.
Norðmenn
hafa staðið
sig vel á
knattspyrnu-
vellinum síð-
ustu misseri
og í gær
gerðu þeir
jafntefli, 2:2,
við Belgíu í
Brussel.
Norðmenn
hafa ekki tap-
að landsleik í
14 mánuði;
töpuðu síðast
í janúar 1997,
fyrir Ástralíu.
SOKNARWYTING
Fyrsti leikur liðanna í 8 liða úrsiitum,
leikinn i Reykjavík 25. mars 1998
Fram
Mðrk Sóknir
11 26 42 F.h 13 28 46
18 28 64 S.h 13 26 50
29 54 54 Ails 26 54 48
8 Langskot 8
5 Gegnumbrot 2
8 Hraðaupphlaup 5
1 Hom 3
4 Lfna 5
Vfti
Framarar sýndu mikinn styrk með
því að vinna Eyjamenn 29:26 eftir
að hafa verið tveimur mörkum undir í
hálfleik í fyrsta eða fyrri
leik liðanna í 8-liða úr-
slitum í Safamýrinni í
gærkvöldi. Framarar
sneru leiknum sér í hag
með frábæmm kafla á upphafsmínút-
um síðari hálfleiks - gerðu sjö mörk á
móti tveimur á aðeins átta mínútum
og lögðu þannig gmnninn að sigrin-
um. Rússinn Oleg Titov fór mikinn
hjá Fram og gerði níu mörk í öllum
regnbogans litum.
Það var mikil taugaspenna íyrstu
mínúturnar sem einkenndist af mis-
tökum. Liðin gerðu aðeins þrjú mörk
hvort úr fyrstu níu sóknum sínum. En
síðan fór að koma meira lag á sóknar-
leikinn, sérstaklega hjá Eyjamönnum
sem náðu mest þriggja marka for-
skoti í hálfleiknum 8:5 og 12:9 og síð-
an 13:11 í hálfleik.
Framarar komu inn
á völlinn eftir hlé fullir
eldmóði, minnugir þess
að hafa tapað stórt fyr-
ir ÍBV á heimavelli í
deildinni fyrr í vetur.
Eftir aðeins átta mín-
útna leik voru þeir bún-
ir að snúa leiknum sér í
hag, 18:15. Þeir gerðu
átta mörk úr fyrstu níu
sóknum sínum í hálf-
leiknum og það var
meira en Eyjamenn
réðu við. Eftir þetta
létu Framarar foryst-
una ekld af hendi þó
svo að ÍBV næði að
minnka muninn í eitt
mark, 25:24. Njörður
Árnason gerði þá
„sirkusmark" 26:24.
Hann kom fljúgandi inn úr hægra
horninu, fékk boltann í loftinu og
skoraði við mikinn fögnuð heima-
manna. Það þarf sjálfstraust í lið sem
reynir slíkt á svo örlagríku augnabliki
og það höfðu Framarar. Þetta mark
sló Eyjamenn, sem höfðu barist hart
til að jafna, endanlega út af laginu og
eftirleikurinn var auðveldur fyrir
Safamýrarpilta.
Rússinn Oleg Titov lék frábærlega
fyrir Fram. Hann átti reyndar erfitt
uppdráttar í sókninni í fyrri hálfleik
en bætti það svo sannarlega upp í síð-
ari hálfleik. Hann var líka sem klettur
í vörninni allan leikinn. Daði Hafþórs-
son fann sig alls ekki í fyrri hálfleik
og komst þá ekki á blað. Hann fékk
sjálfstraustið eftir hlé og gerði þá 6
mörk. Gunnar Berg og Guðmundur
Helgi voru einnig góðir. Liðsheildin
var góð hjá Fram í síðari hálfleik og
sýndi þá best hvað býr í liðinu.
Eyjamenn fóru vel af stað í fyrri
háfleik og gerðu þá góða hluti og lok-
uðu vel á línuspil Framara. En í síðari
hálfleik réðu þeir ekki við baráttu-
glaða Framara. Guðfinnur, Hjörtur
og Beláný voru bestir og Sigmar
Þröstur varði einnig ágætlega. Lithá-
inn Panzuplic fann sig hins vegar ekki
og munar um minna. Eyjamenn
sýndu í fyrri hálfleik að þeir eru til
alls líklegir og munu ekki gefa neitt
eftir annað kvöld í Eyjum.
Afmælisdagur
ZOLTÁN Beláný, hornamaðurinn
knái hjá ÍBV, hélt upp á þrítugsaf-
mælið sitt í gær með því að gera 8
mörk fyrir ÍBV á móti Fram. Hann
var sem kunnugt er markahæsti leik-
maður deildarkeppninnar, með 165
mörk.
lífinu í sínum mönnum fram eftir hálf-
leiknum, stóð vakt sína af árvekni,
varði m.a. tvö vítaköst og síðan þrjú
dauðafæri með skömmu millibili. En
það dugði skammt, leikmenn FH voru
einfaldlega mun einbeittari. Vörnin
var feikisterk með Kristján Arason
sem kjölfestu og reynslumennina
Gunnar Beinteinsson og Hálfdán
Þórðarson hvorn til sinnar handar. Þá
má ekki gleyma markverðinum Suik
Hyung Lee sem varði allt hvað af tók,
tólf skot í fyrri hálfleik og 16 í þeim
síðar. FH nærðist framan af á mis-
tækum sóknarleik gestana, fengu
fjölda hraðaupphlaupa, sem gekk
reyndar upp og ofan að nýta. Er á leið
batnaði sóknarleikurinn og þá fyrst
skildu leiðir „bræðranna" fyrir fullt
og fast að þessu sinni. Staðan í hálf-
leik, 14:9.
í upphafi síðari hálfleiks var sem
Haukar ætluðu veita FH-ingum
ski'áveifu, þeir minnkuðu muninn í
þrjú mörk, 15:12, en tilraunin var
máttlaus. FH-ingar læstu vörn sinni
á ný og Lee varði allt hvað af tók.
Haukar skoruðu ekki í tólf mínútur
eða úr 11 upphlaupum, staðan breytt-
ist úr 17:13 í 23:13. Haukar voru
gjörsigraðir, þeir lögðu árar í bát
enda ráðleysi þeirra algjört. Þeim
tókst örlítið að klóra í bakkann undir
lokin, en það var fyrir náð og mis-
kunn FH-inga.
FH-liðið kom einbeitt til leiks,
ákveðið í að nýta heimavöllinn til hins
ýtrasta og það tókst. Grunnurinn var
lagður með sterkum varnarleik og
góðri markvörslu en ekki má heldur
gleyma sóknarleiknum sem borinn
var uppi af Guðjóni Árnasyni sem
hefur líklega ekki átt eins góðan leik í
langan tíma. Hann skoraði með
hverju þrumuskotinu á fætur öðru og
mataði félaga sína á frábærum send-
ingum. En þessi leikur telst ekki í
næsta leik í Strandgötunni annað
kvöld, þá hefst annar kafli, þá mætir
risinn á fornar slóðir, hvort honum
tekst að halda uppteknum hætti kem-
ur í ljós, en enginn skyldi líta á það
sem sjálfsagðan hlut.
Haukar voru hreinlega niðurlægðir
að þessu sinni og koma vafalaust
reynslunni ríkari til næsta leiks, nota
þessa útreið örugglega til þess að
snúa bökum saman og snúa vörn í
sókn.
Lee slær og
slær met
Guðmundar
SUIK uik Hyung Lee markvörð-
ur FH sló tvö met Guðmundar
Hrafnkelssonar landsliðsmark-
varðai' úr Val í viðureigninni við
Hauka i gær. Það fyrra var að
hann varði alls 26 skot í leiknum,
þar af fóru 9 til mótherja. Er
Guðmundur setti met sitt í
fyrsta lokaleik Vals og Hauka
um íslandsmeistaratitilinn vorið
1994 varði hann 25 skot, þar af
fóru 9 til mótherja. Síðara metið
sem Lee sló var að hann varði 16
langskot, þar af fóru aðeins fjög-
ur aftur til mótherja. Guðmund-
ur varði 15 langskot, þar af fóru
7 þeirra aftir til Haukamanna í
umræddum leik.
Ekkert hrif-
inn af yfir-
burðunum
„VIÐ vorum ákveðnir í að nýta
heimavöllinn og sigra, en ég er
ekki alltof hrifinn af því að hafa
þessa yfirburði, þeir geta hjálp-
að Haukunum við að undirbúa
sig fyrir næsta leik,“ sagði
Gunnar Beinteinsson einn
burðarása FH í leikslok. „Vöm-
in hefur verið að batna hjá okk-
ur í síðustu leikjum en í þessum
leik breyttum við aðeins útaf
vananum. Lékum 5-1 vöm í stað
6-0 og það gekk upp auk þess
. sem Lee var að verja frábær-
lega í markinu.“
Gunnar sagði ennfremur að
sóknarleikurinn hefði verið góð-
ur og mestu hefði munað um að
Guðjón Árnason hefði náð sér
vel á strik. „En leikurinn á
föstudaginn verður á öðrum for-
sendum og þá teljast úrslitin í
kvöld ekki. Þá munu þeir mæta
með öðm hugarfari til leiksins,
en við ætlum ekki að gefa neitt
eftir, en vitum jafnframt að við
verðum að vera vel einbeittir frá
upphafi til enda.“
Þeir voru betri
„Þeir voru betri, það er ekkert
annað um það að segja,“ sagði
Sigurður Gunnarsson þjálfari
Hauka, þurr á manninn í leiks-
lok. „Við vorum ekki að leika
eins og við best getum. Þeir vora
einfaldlega betri, það er ekkert
annað um það að segja,“ ítrekaði
hann er hann var spurður nánar
út í afhroð síns liðs.
Stoltur af
strákunum
GUÐMUNDUR Þ. Guðmundsson,
þjálfari Fram, var ánægður með sína
menn eftir sigurinn á ÍBV. „Ég er
stoltur af strákunum. Þeir léku allir
mjög vel í síðari hálfleik. í fyrri hálf-
leik var taugaspenna í liðinu og það
lék ekki vel. Við fóram yfir þetta í
leikhléi og vorum sannfærðir um að
við gætum gert mun betur og sýndum
það. Við náðum að snúa leiknum okk-
ur í hag strax í upphafi síðari hálfleiks
og slógum þannig ÍBV út af laginu.
Eyjamenn verða erfiðir heim að
sækja, en ég hlakka til að fara þang-
að. Stefnan er að vinna einnig í Eyj-
um á föstudag og tryggja okkur sæti í
undanúrslitum," sagði Guðmundur.
Þorbergur Aðalsteinsson, þjálfari
ÍBV, sagðist ætla að mæta aftur í Safa-
mýrina á sunnudaginn og til þess þyrfti
lið hans að vinna í Eyjum. „Eg er ekki
kominn í frí og mun mæta hér í Safa-
mýrina á sunnudaginn til að leika odda-
leik í þessari rimmu. Þetta var baráttu-
leikur en við vorum of værukærir í
upphafi síðari hálfleiks. Dómaramir
gerðu einnig mistök á örlagaríku
augnabliki þegar staðan var 24:23 fyrir
Fram. Þeir dæmdu þá Fram vítí í stað
þess að dæma ruðning á Guðmund
Helga. Þetta var vendipunkturinn í
leiknum. En við getum líka kennt sjálf-
um okkur um hvemig fór. Það setti
einnig leik okkar niður að Litháinn
gengur ekki alveg heill tíl skógar og'
náði sér ekki á ^rik,“ sagði Þorbergur.