Morgunblaðið - 07.04.1998, Page 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1998
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Ivar
Benediktsson
skrifar
ÖNNUR viðureign FH og Fram
í úrslitakeppninni var eins ólík
fyrsta leiknum, að flestu leyti,
og hugsast gat. í fyrsta leikn-
um var FH nær allan tímann í
hlutverki músarinnar og Fram
í hlutverki kattarins. Á sunnu-
dagskvöldið breyttist köttur-
inn í mús og músin í kött. FH-
ingar kjöldrógu Framara
hreinlega svo að Safamýrar-
piltar fengu ekkert við ráðið
og verða að bíta í það súra
epli að mæta Hafnfirðingum
þriðja sinni í kvöld á heima-
velli. Lokatölur 25:19, eftir að
staðan í hálfleik var 13:10
heimamönnum í vil.
w
Ifyrsta leiknum komu leikmenn
Fram einbeittir til leiks og gengu
hreint til verks, 6-0 vöm þeirra vai-
sterk og sóknarleikur-
inn hreyfanlegur og
fjölbreyttur. A sama
tíma var sem FH-ing-
ar væru með hugann
við annað og náðu sér ekki á strik
fyrr en rétt undir lokin. Á sunnudag-
inn var þessu þveröfugt farið. FH-
ingar komu, sáu og sigruðu. Þeir
vængstýfðu sóknarleik Fram strax í
upphafi með því að leika 5-1 vörn þar
sem þeir tóku einn leikmann Fram
úr umferð frá upphafí og héldu
þeirri stefnu allt til enda. Þessari
vamaraðferð FH-inga brá einnig
fyrir síðasta stundarfjórðunginn í
fyrsta leiknum og hafði þá, líkt og
nú, deyfandi áhrif á sókndirfsku leik-
manna Fram. Má segja að þetta sé
eina atriðið sem líkt sé með leikjun-
um tveimur. Við þessari vamarað-
ferð FH-inga áttu
Guðmundur Guð-
mundsson, þjálfari
Fram, og lærisvein-
ar hans ekkert svar
nú frekar en áður.
Sóknarmennimir
vora mjög staðir og
sterk vöm FH með
frábæran markvörð,
Suik Hyung Lee, sér
að baki, hafði tögl og
hagldir frá upphafi
til enda. Vöm og góð
markvarsla, sem
hefur verið aðal
Fram í vetur, var
ekki svipur hjá sjón
gegn öguðum sókn-
araðgerðum FH.
Skemmst er frá
SOKNARNYTING
Annar leikur liðanna í undanúrslitum,
leikinn í Hafnarfirði 5. apríl 1998
Fram
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
13 26 50 F.h 10 27 37
12 26 46 S.h 9 25 36
25 52 48 AIIs 19 52 37
Langskot
Gegnumbrot
Hraóaupphlaup
Horn
Lína
Víti
Þannig
vörðu þeir
Suik Hyung Lee, FH: 25/2
(10/1): 17(6) langskot, 3(2)
eftir gegnumbrot, 1(1) úr
hraðaupphlaupi, 2 úr
homi, 2(1) vítakast.
Reynir Þór Reynisson,
Fram: 11 (4): 5(1) langskot,
1(1) eftir gegnumbrot, 2(1)
úr hraðaupphlaupi, 2(1) úr
homi, 1(0) af línu.
Þór Björnsson, Fram: 3
(1): 1 langskot, 2(1) eftir
gegnumbrot.
því að segja að FH-ingar höfðu tögl
og hagldir nær allan leikinn. Ef und-
an er skilinn stuttur kafli rétt eftir
miðjan fyrri hálfleik þar sem Fram
var í tvígang marki yfir voru það
FH-ingar sem voru yfir. Þeir vora
þremur mörkum yfir í hálfleik og
héldu sínu striki í þeim síðari án þess
að ráðalausir leikmenn Fram gætu
nokkra björg sér veitt.
Það er ljóst að leikmenn Fram
verða að fara vel yfir þennan leik
ætli þeir sér lengra í keppninni. Allt
fór úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis
og með hreinum ólíkindum að þeir
væra ekki betur búnir undir að
mæta vamarleik FH en raun bai’
vitni. Átti sterk vörnin þó ekki að
koma á óvart og þjálfari liðsins sagði
eftir fyrsta leikinn að leikmenn sínir
væra við henni búnir. Greinilegt er
að sá undirbúning-
ur hefur eitthvað
skolast til. Njörður
Amason var eini
leikmaður Fram
sem reyndi hvað
hann gat til að klóra
í bakkann.
Nú reynir á
margumtalaða
reynslu FH-inga er
þeir mæta í Safa-
mýrina og sýna
fram á að þeir geta
leikið vel á útivelli í
úrslitakeppninni.
Viðureignir þeirra
við Hauka og Fram
á útivelli benda til
þess að jafnvægið
skorti.
Morgunblaðið/Ásdís
HAUKASTÚLKUR eru komnar í úrslit íslandsmótsins eftir sigur á Víkingum í Hafnarfirði á sunnudag-
inn. Hér þakka þær áhorfendum fyrir stuðninginn, talið frá vinstri: Hanna G. Stefánsdóttir, Alma
Hallgrímsdóttir, Heiðrún L. Karlsdóttir, Ásbjörg Geirsdóttir, Tinna Björk Halldórsdóttir, Guðný Agla
Jónsdóttir, Hulda Bjarnadóttir, Thelma Björk Árnadóttir og Judit Esztergal.
Endurtekið efni
Stefan
Stefansson
skrifar
HAUKAR og Stjarnan mætast í
úrslitum íslandsmótsins í
handknattleik kvenna þriðja
árið í röð. Haukar sigruðu Vík-
inga í þriðju viðureign liðanna
á sunnudag og Stjarnan lagði
Val, einnig í oddaieik, á laug-
ardag. Haukar hafa orðið ís-
landsmeistarar síðustu tvö ár,
í bæði skiptin eftir sigur í síð-
asta leik í Garðabæ, þannig að
Stjörnustúlkur eiga harma að
hefna.
Við bjuggumst við hörkuleik, þar
sem bragðið gæti til beggja vona
og þar sem við náðum ekki að vinna
þær í deildinni voram
við orðnar reiðar,“
sagði Harpa Melsteð
fyrirliði Haukastúlkna
eftir 23:19 sigur á Vík-
ingum í Hafnarfirði. „Við höfum of
oft verið að glopra niður góðum
leikjum á síðustu sekúndunum í vet-
ur og það mátti ekki gerast í þessum
leik. Við voram allar að leika vel og
unnum vel saman, Judit og Auður
era að koma til og það var gott að ná
að fagna vel í lokin - sjálfstraustið er
að koma,“ bætti Harpa við.
Gestirnir úr Fossvoginum náðu
fljótlega forystunni en Guðný Agla
Jónsdóttir í marki Hauka kom í veg
fyrir að hún yrði of mikil. Haukar
lokuðu fyrir sendingar inná Heiðu
Erlingsdóttur í hominu og tóku um
tíma Höllu Maríu Helgadóttur úr
umferð en þá losnaði um Kristínu
Guðmundsdóttur, sem opnaði vörn
Hauka ítrekað. En hægt og rólega
kom sjálfstraustið hjá Hafnfirðing-
um - ekki síst þegar Harpa Melsteð
braut sér leið í gegnum vörn Vík-
inga.
Síðari hálfleikur var sveiflukennd-
ur. Víkingar náðu forystu en þá varði
Guðný í marki Hauka þrisvar í röð
Ahættan þess virði
„VIÐ fundum að sóknarleikur Fram
hikstaði á fóstudaginn þegar við
skiptum yfir í fimm plús einn vöm og
því ákvað ég að halda uppteknum
hætti,“ sagði Kristján Arason, þjálf-
ari FH. „Eg hafði ekki mikla trú á að
þeir gætu fundið lausn við þessari
vörn á þeim stutta tíma sem leið milli
leikjana. Þess vegna tók ég þessa
áhættu og hún gekk upp.“
Kristján sagðist ennfremur vera
mjög ánægður með þann aga sem
leikmenn sýndu að þessu sinni. Þeir
hafi aldrei gefið eftir og leikið af
mikilli einbeitingu frá upphafi til
enda. „Einnig fengu allir leikmenn
að spreyta sig þannig álagið dreifðist
vel á milli allra í liðinu. Það er í sam-
ræmi við það sem við höfum verið að
gera í vetur og er væntanlega að
skila sér í því að allir era reiðubúnir í
slaginn."
Kristján segir að reynslan geti
vegið þungt í oddaleiknum. „í FH-
liðinu era margir leikmenn sem hafa
leikið úrslitaleiki og ég hef fulla trú á
mínum leikmönnum í þeim leik.“
Förum rækilega yfir leikinn
„Leikur okkar í heild er slakur.
Varnarleikurinn var lélegur þar sem
engin barátta er og við erum ekki
reknir út af í vöminni fyrir að leika
fasta og góða vörn. Þar með var tón-
inn gefinn fyrir sóknarleikinn þar
sem leikmenn eru staðir, hlutirnir
era gerðir of hægt og á vitlausum
tíma,“ sagði Guðmundur Þór Guð-
mundsson, þjálfari Fram. „Leikur-
inn var bara virkilega slakur. Nú
verðum við að fara rækilega yfir
okkar mál og munum svo sannarlega
gera það þótt tíminn sé ekki langur."
Hvernig stendur á þessum miklu
sveiflum milli leikja?
„I úrslitakeppni sem þessarí skipt-
ir stemmningin og einbeitingin innan
liðsins öllu máli. Á föstudaginn vor-
um það við sem komum vel einbeittir
til leiks en að þessu sinni voru það
FH-ingar. Þetta ræður miklu máli.“
Voru þínir menn of öruggir eftir
sigurinn á fostudaginn, tókst þér
ekki að koma þeim í skilning um að
sá leikur var einungis upphafíð?
„Þessu er erfitt að svara, a.m.k.
vora þeir ekki eins og við ætlum að
vera. Þeir voru bara einfaldlega ekki
reiðubúnir til þess að takast á við
FH-inga af þeirri grimmd sem þurfti
til, það er alveg ljóst.“
Þið eigið þá eftir að liggja yfír
þessum leik og leita svara við því
sem miður fór?
„Það er alveg ljóst, við þurfum að
skoða þennan leik til hlítar og koma
með svör jafnt í vöm sem sókn. Á
það verður síðan að reyna í næsta
leik hvort okkur tekst það.“
Morgunblaðið/Ásdís
HERDÍS Sigurbergsdóttir og Inga Fríða Tryggvadóttir fagna
innilega eftir 19:13 sigur á Val f oddaleik á laugardaginn.
og Haukar komust yfir. Þá var kom-
ið að Kristínu Maríu Guðjónsdóttur í
marki Víkinga, að verja vel auk þess
sem stangirnar flæktust fyrir skytt-
um Hauka svo að Víkingar komust
inn í leikinn á ný. En þá skildu leiðir
þvi Harpa Melsteð tók aftur að
brjótast í gegnum vörn Víkinga og
við það efldist lið hennar til muna,
sem reyndist Víkingum um megn.
Vörn Hauka var sterk og stúlk-
urnar börðust allan leikinn en er á
leið mátti sjá að þokunni létti því all-
ar aðgerðfr urðu þraggari. „Við höf-
um ekki leikið eftir getu í vetur en
það er ekki hægt að fara í sumarfrí
án titils - ekki eftir tvo í fyrra,“ sagði
Guðný Agla eftir leikinn en Hauka-
stúlkur geta þakkað henni fyrir að
halda þeim á floti lengi vel. „Eg fékk
mitt tækifæri núna í vetur og þá er
bara að standa sig. Ég hef æft vel og
svo er það þrjóskan." Guðný Agla,
Harpa og Auður Hermannsdóttir
vora bestar af Haukastúlkum.
Lengi vel virtust Víkingsstúlkur
ætla að þrauka út leikinn en það
gekk ekki eftir. Vörnin var ágæt og
markvarslan enn betri en varnar-
menn hefðu mátt vera mun betur á
varðbergi þegar boltinn hrökk af
markverði þeirra. Kristín María,
Halla María og Kristín voru bestar
hjá Víkingum. „Ef við spilum ekki
betur en þetta eigum við ekki skilið
að vinna. Það var vendipunktur þeg-
ar við hættum að spila agað í sókn-
inni því það má ekki sýna Hauka-
stelpum veiku hliðarnar, þær era
fljótar að nýta sér þær,“ sagði Inga
Lára Þórisdóttir þjálfari Víkings-
stúlkna eftir leikinn.
Tvö mörk eftir hlé
Stjörnustúlkur sneru heldur betur
við blaðinu í oddaleiknum við Val í
Ásgarði. Eftir að sprækar Valsstúlk-
ur höfðu ráðið ferðinni fyrir hlé tókst
þeim ekki að skora nema tvö mörk
eftir hlé á meðan Garðbæingar skor-
uðu tólf og tryggðu sér sigur 19:13.
Miklu fargi var létt af Aðalsteini
Jónssyni, þjálfara Stjörnustúlkna,
eftir leikinn. „Ég er ofboðslega feg-
inn að þetta gekk upp hjá okkur,“
sagði hann. „Eg vissi að við gætum
unnið svo að málið sneríst um hvort
við teldum nóg komið í vetur. I fyrri
hálfleik voram við ekki að spila eins
og við eigum að gera því ég held að
innst inni hafi mínar stelpur verið
smeykar við ungar Valsstelpur. Þær
áttuðu sig síðan í hálfleik á því að
það væri ekki nema hálftími eftir, ég
öskraði ekki mikið í búningsherberg-
inu en spurði hvort þær vildu láta
staðar numið eða fara og berjast um
hvem bolta.“
Útlitið var ekki bjart fyrir Garð-
bæinga er leið á fyrri hálfleik því
Valsstelpur vora mun grimmari og
náðu sanngjarnri 8:4 forystu. Garð-
bæingar voru alls ekki með á nótun-
um - virtust bíða eftir að allt færi að
ganga þeim í haginn og leiknum lyki.
I leikhléinu náðu bikar- og deildar-
meistararnir áttum. Þeir byrjuðu
strax að taka Brynju Steinsen úr
umferð og það dró vígtennurnar úr
Valsstúlkum því sóknarleikurinn
vai’ð bitlaus. Það fundu Stjörnu-
stúlkur, þær lokuðu vörninni, sjálfs-
traustið komst í samt lag og Valur sá
aldrei til sólar.
Lijana Sadzon vai’ði vel í Stjörnu-
markinu en Herdís Sigurbergsdótt-
ir, Ragnheiður Stephensen og
Hrund Grétarsdóttir voru bestar.
Valsstúlkur vora mun sterkari
fyrir hlé en eflaust hefur pressan
orðið þessum ungum stúlkum um
megn, sérstaklega eftfr að lykilleik-
maðurinn, Brynja Steinsen, var tek-
inn úr umferð. Þær geta samt sem
áður verið sáttar við veturinn því
þær hafa tekið stórstígum framfór-
um og eru til alls líklegar, reynslunni
ríkari, eftir tímabilið. Larissa Luber
í markinu var góð eins og Brynja og
Gerður Beta Jóhannsdóttir. „Við
ætluðum að leggja áherslu á að
halda uppi hraðanum en liðið virtist
ekki þola pressuna - að vera yfir og
svona stutt frá því að komast alla
leið,“ sagði Ragnar Hermannsson,
þjálfari Vals, eftir leikinn. „Brynja
hefur áður í vetur verið tekin úr um-
ferð en núna tókst stelpunum ekki
að leysa það vandamál, þær þorðu
eiginlega ekki að gera neitt. Annai’s
er ég ánægður með veturinn því búið
er að byggja upp ágætislið og koma
því á flot. Samt er ég ekki ánægður
með úrslitin og taldi að við ættum
frekar skilið að komast áfram.“
Svarl
og hvítl