Morgunblaðið - 07.04.1998, Síða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1998 B
SKÍÐAMÓT ÍSLANDS SKÍÐAMÓT ÍSLANDS
Krístinn endaði
með gullið
Kristinn
vinsæll
MARGIR áhorfendur
fylgdust með svigkeppn-
inni í Hlíðarfjalli á sunnu-
dag enda veður frábært.
Það er greinilegt að
frammistaða Kristins
Bjömssonar í heimsbikarn-
um í vetur hefur vakið at-
hygli landans. Fólk kom í
fjallið sérstaklega til að
berja hann augum. Þegar
hann fór niður í síðari um-
ferðinni í sviginu fögnuðu
áhorfendur gríðarlega
enda keyrði hann eins og
meistara sæmir. Hann var
síðan umsetinn af ungum
aðdáendum sem vildu fá
eiginhandaráritun.
Unglinga-
landsmótið
á Akureyri?
ALLT bendir til þess að
unglingalandsmótið á skíð-
um verði í Hlíðarfjalli.
Samkvæmt mótaskrá SKI á
mótið að fara fram í Blá-
fjöllum í umsjón Breiða-
bliks. Vegna þess hve Iítill
snjór er í Bláfjöllum er ver-
ið að skoða þann möguleika
að halda mótið fyrir nor-
aðn. Ákvörðun um þessa
breytingu verður tekin í
dag, þriðjudag.
Það verður annasamt hjá
starfsmönnum sem sjá um
skíðamót í HlíðarQalli allan
þennan mánuð. I gær lauk
þar Skíðamóti íslands, en í
dag og næstu tvo daga
verða þar alþjóðleg mót,
mót sem áttu upphaflega
að fara fram á Olafsfirði og
Dalvík. Helgina eftir páska
verður unglingameistara-
mót íslands og síðan helg-
ina þar á eftir taka Andrés-
ar andar-leikamir við. Það
má því segja að Vetrarí-
þróttamiðstöðin í Hlíðar-
Qalli beri nafn með rentu.
Bakke á
slæmar
minningar
frá íslandi
TRINE Bakke frá Noregi
tekur þátt í alþjóðamótun-
um í Hlíðarljalli í vikunni.
Hún er ein besta skíðakona
Norðmanna og varð m.a. í
öðru sæti á síðasta heims-
bikarmótinu í svigi í Crans
Montana í síðasta mánuði.
Hún á þóekki góðar
minningar frá skíðakeppni
á íslandi því hún fótbrotn-
aði hér á landi fyrir tveim-
ur árum þegar hún tók
þátt í alþjóðamóti. Þessi
meiðsli gerðu það að verk-
um að hún gat ekki tekið
þátt í heimsbikarnum í
fyrra.
Skíðamóti Islands lauk
á Akureyri í gær. Yal-
ur B. Jónatansson var í
Hlíðarfjalli mótsdagana
og fylgdist með spenn-
andi keppni við bestu
hugsanlegar aðstæður.
KRISTINN Bjömsson frá Ólafs-
firði sýndi og sannaði að hann er
besti svigmaður landsins er hann
tryggði sér íslandsmeistaratitilinn
á Skíðalandsmótinu í Hlíðarfjalli í
blíðskaparveðri á sunnudag. Hann
varð að hafa mikið íyrir sigrinum
því Isfirðingurinn Amór Gunnars-
son veitti honum harða keppni.
Kristinn varð einnig Islandsmeist-
ari í alpatvíkeppni, en hreppti silf-
urverðlaun bæði í risasvigi og stór-
svigi.
Arnór var með besta tímann eft-
ir fyrri umferð svigsins, rúmlega
hálfri sekúndu á undan Kristni.
„Þetta er ein besta einstaka ferð í
svigi á ferlinum. Það gekk allt
upp,“ sagði Amór um fyrri umferð-
ina. Haukur Amórsson úr Ar-
manni, íslandsmeistari í stórsvigi,
var með þriðja besta tímann og Jó-
hann Haukur Hafstein fjórða.
Þessir fjórir voru í nokkrum sér-
flokki.
Margir keppendur féllu í síðari
umferð og komust aðeins 7 af
fyrstu 15 í mark. Meðal þeirra sem
fóra út úr vora Armenningarnir
Haukur Amórsson og Jóhann
Haukur. Kristinn fór síðari um-
ferðina af miklum glæsibrag og var
þá rúmlega sekúndu á undan Arn-
óri og tryggði sér sigur. KR-ingur-
inn Jóhann Friðrik Haraldsson
varð þriðji, en hann var aðeins með
11. besta tímann eftir fyrri umferð.
Hann var tæpum fimm sekúndum
á eftir Kristni.
„Það var sætt að fá gullið í svig-
inu. Það var smápressa á mér eftir
fyrri umferðina sem ég keyrði af
nokkra öryggi. Ég vissi að ég átti
meira inni og gaf því allt í botn í
síðari umferðinni og það dugði.
Amór átti góða fyrri umferð og ég
bjóst við að hann gæti líka gert það
sama í síðari umferðinni," sagði
Kristinn. Hann sagði að svigbraut-
irnar hefðu verið mjög skemmti-
legar, hraðar og krefjandi. „Ég er
mjög sáttur við uppskeruna hér á
landsmótinu. Tveir íslandsmeist-
aratitlar í safnið og tvenn silfur-
verðlaun. Það var mjög gaman að
taka þátt í landsmótinu enda veður
og færi eins það gerist best. Eins
var mikil og góð stemmning hér.
Það var skemmtilegt að fá tæki-
færi til að keppa í Stromp-
brekkunni," sagði Kristinn.
Sérðu einhverja efnilega sem
gætu átt eftir að spjara sig í heims-
bikarnum á næstu árum?
„Já, ég hef trú á þvi. Það eru
nokkrir ungir strákar sem hafa
bætt sig veralega í vetur og er það
mjög jákvætt fyrir skíðaíþróttina á
íslandi. Því meiri breidd, því betra.
en þeir era enn ungir og eiga tölu-
vert eftir ólært. Ef þeir halda
áfram af sama krafti og hingað til
og fá góða æfingaaðstöðu og þjálf-
ara geta þeir náð langt.“
Hvað tekur nú við hjá þér?
„Ég keppi á alþjóðamótunum
hér heima í vikunni og síðan tek ég
mér smáfrí í mánuð. Síðan byrjar
undirbúningurinn fyrir næsta
keppnistímabil. Ég byrja á skíða-
æfingum með finnska lands-
liðinu um miðjan júlí. Við
verðum í Hintertux í Austur-
ríki. Ég ætla mér að koma
sterkur til leiks næsta vetur,
ég á mikið inni hvað varðar
líkamlegan styrk. Ég hef
ekki getað æft þrekið eins og
ég hefði kosið undanfarin ár
vegna meiðsla. Nú í vetur
hef ég hins vegar sloppið við
meiðsli og því ætti ég að geta
bætt þrekið til muna fyrir
næsta tímabil.“
Viss vonbrigði
Ai-nór sagði það auðvitað
viss vonbrigði að hafa ekki
náð eins góðri síðari umferð
og sú fyrri var í sviginu. „Ég
er þokkalega sáttur við ár-
angurinn hér, en ég hefði
auðvitað viljað vinna svigið.
Ég náði mér ekki alveg
nægilega vel á strik í efri
hluta brautarinnar í síðari
umferð. Ég var ekki taugaó-
styrkur áður en ég fór niður,
nema þá kannski aðeins
innst inni. Ég vissi að ég yrði
að keyra eins vel og ég
mögulega gæti til að sigra.
Kristinn fer mjög hratt í
svigi eins og hann hefur
sannað í heimsbikamum í
vetur,“ sagði Amór.
Amór meiddist aðeins í
stórsvigskeppninni á laugar-
dag. Hann fékk stöng fram-
an á hnéð og það blæddi að-
eins inn á það. „Ég fór tví-
vegis til sjúkraþjálfara fyrir
svigið og fann ekki fyrir
eymslum þegar ég fór niður
enda ekki mikið að hugsa um
það.“ Hann sagðist reikna
með að halda áfram að æfa
næsta vetur og vonaðist til
að komast með Kristni inn í
finnska landsliðið. „Ég ætla
að halda áfram ef ég fæ að
æfa með finnska svigliðinu.
Ég veit að það er verið að
vinna í því að koma mér inn,
en ef það verður ekki sam-
þykkt legg ég skíðin á hill-
una,“ sagði Amór.
Þrjár
bestu
Morgunblaðið/Golli
DANÍEL Jakobsson, sem gekk síðasta hluta boðgöngunnar fyrir Ólafsfirðinga, örmagna f markinu eftir árangurslausa tilraun til
að ná Hauki Eiríkssyni. Það tókst ekki; Haukur kom fyrstur í mark og fyrir aftan Daníel fagna sigursveit Akureyringa.
Sigrún fýrsti
meistari
Önfirdinga
SIGRÚN S. Halldórsdóttir frá Önundarfirði
varð íslandsmeistari í 7,5 km göngu kvenna
með frjálsri aðferð á Skíðamóti Islands í
Hh'ðarfjalli í gær. Hún varð um leið fyrsti
Önfirðingurinn til að sigra á landsmóti.
Svava Jónsdóttir frá Ólafsfirði, sem varð
önnur í 5 km göngunni á föstudag, varð önn-
ur og íslandsmeistarinn í 5 km göngunni,
Hanna Dögg Maronsdóttir, þriðja.
„Ég átti ekki von á sigri og því var þetta
óvænt,“ sagði Sigrún, sem er 18 ára. „Ég hef
æft skíðagöngu í fjögur ár og nú er árangur
erfiðisins að koma í ljós. Þetta var gaman.
Ég er staðráðin í að halda áfram af fullum
krafti.“ Hún segist hlaupa mikið á sumrin til
að halda sér í æfingu og hafi gert mikið af
því síðasta sumar.
Stóri bróðir hafði það
Þóroddur Ingvarsson sigraði í 15 km
göngu pilta 17-19 ára. Hann gekk á 40,02
mínútum, en yngri bróðir hans, Baldur
Helgi, sem sigraði í 10 km göngunni á föstu-
dag, var aðeins sjö sekúndum á eftir. Helgi
Heiðar Jóhannesson varð þriðji. Þeir era all-
ir frá Akureyri. T
Varð þrefaldur íslandsmeistari eins og fyrir tveimur árum
Þorsteinsdóttur frá Akureyr sem varð
önnur. Theódóra Mathiesen úr KR, sem
átti afmæli á sunnudag, varð þriðja. Sama
röð var því á stúlkunum eins og í stórsvig-
inu daginn áður. Þessar þrjár vora í
nokkrum sérflokki. Það var aðeins Dagný
Linda Kristjánsdóttir frá Akureyri sem
gat hugsanlega veitt þeim keppni, en hún
féll úr keppni í fyrri umferð svigsins.
„Það er gott að vera búin að endur-
heimta titlana frá 1996,“ sagði Sigríður
sem missti af landsmótinu í fyrra vegna
þess að hún rifbeinsbrotnaði nokkrum
dögum fyrir mótið. „Ég var ekki alveg
nægilega ánægð með fyrri umferðina. Ég
fékk stöng í andlitið og lenti í smá basli.
En síðari umferðin var betri. Það var
mjög gott skíðafæri og gaman að keppa
hér.“
Spilar með Breiðabliki í sumar
Hún sagðist ætla að fara utan í næstu
viku og keppa á nokkrum jóðlegum mót-
um áður en skíðin yrðu lögð til hliðar í
sumar. „Ég mun taka knattspyrnuskóna
fram í maí og spila með Breiðabliki í sum-
ar. Ég var með Stjörnunni í fyrra en skipti
yfir í Breiðablik síðastliðið vor. Næsta
haust taka svo skíðin við aftur. Ég reikna
með að vera í Lillehammer næsta vetur
eins og í vetur við æfingar. Ég stefni að
þátttöku í næstu Ólympíuleikum eftir
fjögur ár. Ég er enn ung og á mörg ár eft-
ir í þessu,“ sagði Sigríður.
ÞRJÁR bestu
skíðakonur
landsins í
alpagreinum.
Frá vinstri:
Sigríður Þor-
láksdóttir,
Theódóra
Mathiesen og
Brynja Þor-
steinsdóttir.
Morgunblaðið/Golli
slóð
orðin
SIGRÍÐUR Þorláksdóttfr frá ísafirði
sagði við Morgunblaðið eftir að hún sigr-
aði í stórsviginu á laugardag, að hún ætl-
aði sér að vinna svigið líka eins og hún
gerði árið 1996. Hún stóð við stóra orðin
og náði besta tímanum í báðum umferðum
svigsins á sunnudag. Þar með var sigur í
alpatvíkeppninni einnig í höfn. „Ég sagði
að ég myndi vinna þrefalt og það gekk eft-
ir. Eg er ekki vön að segja eitthvað sem
ég get ekki staðið við,“ sagði Sigríður sigri
hrósandi eftir svigið.
Sigríður, sem er tvítug, var öryggið
uppmálað í sviginu, sjálfstraustið í lagi.
Hún sýndi svo ekki verður um villst að
hún er besta skíðakona landsins. Hún var
rúmlega hálfri sekúndu á undan Brynju
Morgunblaðið/Golli
KRISTINN Björnsson í svigbrautinni á sunnudag. Ólafsfirðingurinn undirstrikaði hversu frábær svigmaður hann er, eins og í Ijós
kom í heimsbikarkeppninni í vetur. „Það var smápressa á mér eftir fyrri umferðina sem ég keyrði af nokkru öryggi. Ég vissi að ég
átti meira inni og gaf þvf allt í botn í síðari umferðinni og það dugði.“
Rögnvaldur
nældi í gullið
RÖGNVALDUR Ingþórsson, sem keppir
fyrir Fljótamenn, varð Islandsmeistari í 30
km göngu karla með hefðbundinni aðferð í
gær. Hann gekk vegalengdina á 80,08 mín-
útum og var 38 sekúndum á undan Daníel
Jakobssyni, sem varð annar. Ólafur Björns-
son frá Olafsfirði nældi síðan í bronsið eftir
spennandi keppni við Hauk Eiríksson.
„Það var frábært að ná í síðasta gullið
sem í boði var,“ sagði Rögnvaldur Ingþórs-
son sem náði sér ekki á strik í 15 km göng-
unni á föstudag. „Ég var ekki með réttan
áburð í 15 km göngunni og átti því aldrei
möguleika þar. Hún olli mér miklum von-
brigðum. Nú var hins vegar allt annað upp
á teningnum. Ég náði mér vel á strik og var
nokkuð öraggur með sigur eftir að ég náði
Daníel,“ sagði hann.
Rögnvaldur var ræstur út síðastur, næst-
ur á eftir Daníel. Hann náði honum fljót-
lega og þeir gengu saman nokkra kílómetra
og ljóst að Daníel, sem hefur lítið sem ekk-
ert æft í vetur, hafði ekki kraft til að fara
framúr og gerði sér annað sætið að góðu.
Rögnvaldur býr í Svíþjóð og segist hafa
æft þokkalega í vetur. „Ég kom hingað til
að sigra og er þvi sáttur við 30 kíló-
metrana."
Sigríður keppti ristar-
brotin á ÓL í Nagano
SIGRÍÐUR Þorláksdóttir, sem varð þrefaldur islandsmeistari ó Skíðamóti ís-
lands um helgina, keppti ristarbrotin á Ólympíuleikunum í Nagano. „Ég
missteig mig á opnunarhátíðinni með þeim afleiðingum að ég ristarbrotnaði.
Ég átti erfitt með komast í skíðaskóinn, en mér var hjálpað í hann. Ég gat
því lítið sem ekkert æft allan febrúar,“ sagði hún. Hún sagði að þessi meiðsli
hefðu komið sér illa, en það hefði ekki mátt fara með þetta í fjölmiðla.
„Þetta var leyndarmál, enda var búið að ganga á ýmsu hjá okkur í Nagano.
Fréttir af frammistöðu okkar á leikunum voru ekki mjög jókvæðar og því var
ákveðið að vera ekki að sverta ímynd skíðaíþróttarinnar enn frekar."
Tólf íslands-
meistaratitlar
KRISTINN Björnsson nældi sér
í tvo íslandsmeistaratitla, í svigi
og alpatvíkeppni, á skíðalands-
mótinu á Akureyri. Hann hefur
nú unnið tólf titla á ferlinum,
sigraði fyrst 1992 og þá í svigi.
Hann er þar með orðinn sigur-
sælasti skíðamaður Islands í
alpagreinum karla á landsmóti.
Ornólfur Valdimarsson úr
Reykjavík kemur næstur með
níu titla. Ornólfur keppti á
Iandsmótinu um helgina eftir
sjö ára íjarveru.
Sigursælasta konan í alpa-
greinum er Ásta S. Halldórs-
dóttir frá Isafirði, en hún vann
samtals 20 titla á árunum 1987-
1995.
Æsispennandi
boðganga
SPENNANDI keppni var í boð-
göngu karla á Skíðamóti Islands á
laugardag milli Akureyrar og Ólafs-
fjarðar. Haukur Eiríksson gekk síð-
asta sprett fyrfr Akureyri og Daníel
Jakobsson fyrir Ólafsfjörð. Haukur
hafði 39 sekúndna forskot á Daníel
við skiptinguna. Þegar þeir voru
hálfnaðir með sinn sprett var Daníel
búinn að minnka forskotið niður í 15
sekúndur. Þá sagði Haukur, hingað
og ekki lengra, gaf allt sem hann átti
og hélt Daníel vel fyrir aftan sig og
var 10 sekúndum á undan í mark.
Haukur var gjörsamlega búinn
þegar hann kom yfir marklínuna
enda ætlaði hann ekki að missa nið-
ur það sem bræðurnir, Baldur og
Þóroddur Ingvarssynir, höfðu unnið
upp. „Ég var staðráðinn í að gefa
allt sem ég átti. Það kom ekki til
greina að tapa fyrfr Daníel og láta
hann stela af okkur sigrinum,“ sagði
Haukur.
Sveit Ólafsfjarðar sigraði í boð-
göngu kvenna, var rúmum tveimur
mínútum á undan sveit Önundar-
fjarðar. í sigursveit Ólafsfjarðai-
voru Svava Jónsdóttir, Hanna Dögg
Maronsdóttir og Lísebet Hauksdótt-
ir.
Níu sveitir tóku þátt í boðgöngu
karla, þar af þrjár frá Ólafsfirði. í
boðgöngu kvenna voru hins vegar
aðeins tvær sveitir.
Arnar og
Lilja bikar-
meistarar
ARNAR G. Reynisson úr ÍR og
Liija R. Kristjánsdóttir úr KR
urðu bikarmeistarar SKÍ í alpa-
greinum 1998. Þau fengu afhenta
bikara frá SKÍ af því tilefni eftir
skíðalandsmótið. Bikarmeistari
SKÍ hlýtur sá er bestum árangri
nær í punktamótum vetrarins.
Sigvíður
við stóru