Morgunblaðið - 07.04.1998, Page 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1998
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Urvalsdeildarliðin mörðu sigur
McCoist
Mýsnar
stríddu
köttunum
kom Rang-
ersá
bragðið
Ally McCoist sýndi á sunnudaginn
að hann er siður en svo dauður úr
ölluin æðum og hefur enn gott þef-
skyn fyrir góðum marktækifærum.
Hann kom Rangers á bragðið á
sunnudaginn er liðið tók á móti
Celtic í undanúrslitum skosku bik-
arkeppninnar. Eftir að hvorki
hafði gengið né rekið hjá leik-
mönnum að skora fann McCoist
ekki að jafna.
Kenny Dalglish, knattspyrstjóri
Newcastle, var að vonum ánægður
með að koma liðinu í bikarúrslit í
fyrsta sinn í 24 ár, en lítið hefur
gengið hjá félaginu í vetur. „Ég er
mjög ánægður, sérstaklega fyrir
hönd stuðningsmanna okkar því
við höfum sagt um hríð að þeir eigi
meira og betra skilið en það sem
við höfum verið að sýna í vetur,“
sagði Daiglish. Hann sagðist einnig
ánægður með að félagið yrði með í
Evrópukeppninni næsta vetur:
„Gerist ekkert óvænt fer Arsenal
Meistaradeildina og við í Evrópu-
keppni bikarhafa, sama hvemig
bikarúrslitaleikurinn fer,“ sagði
hann.
ÚRVALSDEILDARLIÐIN Arsenal og Newcastle leika til úrslita í
ensku bikarkeppninni á Wembley laugardaginn 16. maí, en liðin
sigruðu bæði 1:0 í undanúrslitum á sunnudaginn. Arsenal lagði
Wolves og Newcastle lið Sheffleld United. Þetta verður í þriðja
sinn sem liðin mætast í bikarúrslitum, Newcastle vann bæði
1932 og 1952.
Eins og oft vill verða í bikar-
leikjum áttu Hðin i efri deild í
hinum mestu vandræðum með Hðin
sem leika í neðri deild. Arsenal og
Wolves léku á ViUa Park og það
var Líberíumaðurinn Christopher
Wreh sem gerði eina mark leiksins
á 13. mínútu. Hans Segers, mark-
vörður Wolves, spymti frá marki
sínu beint til Frakkans Patricks
Vieira, sem var um 30 metra frá
marki. Hann þakkaði fyrir sig, lék
á tvo leikmenn Wolves á leið sinni
að vítateignum og renndi síðan
boltanum út til hægri þar sem
Wreh kom og sendi boltann í
vinstra homið með viðstöðulausu
skoti. Hann fagnaði markinu á sinn
sérstaka hátt, með miklu heljar-
stökki.
Arsenal liflr enn í voninni um að
vinna bæði deild og bikar og þess
má geta að þetta verður í 13. sinn
sem félagið leikur til úrsHta í bik-
amum. Arsenal hafði undirtökin í
fyrri hálfleik en í þeim síðari voru
það leikmenn Wolves sem réðu
gangi mála. Don Goodman og
Steve Claridge fengu fín færi til að
jafna en hin illvíga vöm Arsenal
stóðst álagið, en það var Vieira sem
var hugsuðurinn í sóknaraðgerðum
Arsenal.
Arsene Wenger, knattspymu-
stjóri Arsenal, var ánægður með
sigurinn og hann bar lofsorð á hinn
22 ára gamla Wreh og sagði hann
feikmann framtíðarinnar. „Menn
verða að hafa í huga að hann er
ungur að áram og var svo til
óþekktur fyrir tveimur mánuðum.
Hann hefur gert þrjú mikilvæg
mörk fyrir okkur í síðustu leikjum
og ég held hann eigi eftir að verða
mjög góður,“ sagði Wenger. Hann
keypti Wreh til Mónakó þegar
hann var 15 ára og þegar Wenger
heyrði í fyrravetur að hann væri á
lausu keypti hann kappann án þess
að hugsa sig um tvisvar.
Wenger var spurður hvenær Ian
Wright yrði klár í slaginn á ný, en
hann hefur verið meiddur. „Ég
ætla ekki að segja neitt um það því
alltaf þegar ég segi eitthvað í þessu
sambandi hef ég rangt fyrir mér.
Það er þó ljóst að hann verður ekki
með fym en hann hefur náð sér að
fuUu,“ sagði Wenger.
Hafí Arsenal verið heppið að
komast í úrsUy má segja að
Newcastle hafí verið enn heppnara
því Sheffíeld United gaf úrvals-
deildarliðinu ekkert eftir. Eina
mark leiksins gerði Alan Shearer á
60. mínútu. Hann skaUaði að marki
eftir fyrirgjöf en Alan Kelly, mark-
vörður Sheffield, varði vel en náði
ekki að halda boltanum og Shearer
náði sjálfur knettinum rétt utan við
marklínuna og þrumaði honum í
netið. Þetta var sjötta mark Shear-
ers á leiktíðinni.
Newcastle var miklu betra Hðið á
velHnum, en leikmenn vora klaufar
þegar nálgaðist mark mótherjanna
og því varð sigurinn ekki stærri.
Leikmenn Sheffíeld fengu einnig
sín færi og þá sérstaklega undir
lok leiksins þegar þeir gerðu harða
hríð að marki Newcastle en tókst
Reuters
KENNY Dalglish, knattspyrnustjóri Newcastle, til hægri, fagnar
Alan Shearer, eftir sigurinn á Sheffield United.
Ieiðina á 75. mfnútu með skalla-
marki. Þetta var 27. markið sem
hann gerir á ferlinum gegn erkió-
vininum, Celtic.
Þrettán mfnútum síðar innsigl-
aði félagi hans, Jörg Albertz, sig-
urinn með laglegu marki eftir ein-
leik. Engu breytti mark Craigs
Burleys nokkrum andartökum áð-
ur en dómarinn flautaði til
leiksloka.
Rangers mætir Hearts í úrslitum
bikarkeppninnar, en Edinborgar-
liðið lagði Falkirk í hinum leik
undanúrslitanna, 3:1. Kevin
McAlUster náði að jafna fyrir
Falkirk á 85. mín. og marg-
ir fóru að búa sig undir
annan leik en leikmann
Hearts voru ekki á þeim
buxunum; skoruðu tvívegis
á sfðustu tveimur mfnútun-
um. Stephane Adam gerði
fyrra markið á 89. mín. og Neil
McCann gulltryggði sigurinn þeg-
ar komið var fram yfir venjulegan
Ieiktíma.
Bayern dregur á Kaiserslautern
Reutere
CRISTOPHER Wreh fagnar með tilþrifum - fer heljarstökk - eftlr
að gera sigurmarkið Arsenal i bikarleiknum gegn Wolves.
ayern Múnchen minnkaði for-
ystu Kaiserslautem í þrjú stig
á toppi þýsku deildarinnar um
helgina, en meistaramir frá
Múnehen hafa leikið einum leik
meira. Mehmet Scholl skoraði tví-
vegis fyrir Bayem er liðið lagði
Werder Bremen 3:0 og Carsten
Jancker gerði þriðja markið.
Sigurinn var svo sannarlega
kærkominn því Bayem hefur ekki
sigrað í Bremen síðan 1980 og þar
sem Kaiserslautem gerði jafntefli á
föstudaginn við Duisburg minnkar
bilið á milli liðanna í toppbarátt-
unni. Hvort sem Bayem nær að ná
Kaiserslautern eða ekki styrkir sig-
urinn um helgina stöðu liðsins
veralega og stefnan er að ná a.m.k.
öðra sæti og um leið sæti í Meist-
aradeild Evrópu. Leverkusen, sem
er í þriðja sæti deildarinnar, varð
að sætta sig við jafntefli, rétt eins
og forystuliðið, og því vænkast hag-
ur Bayem enn.
„Við eigum enn von um sigur í
deildinni. Ég bað strákana að leika
eins og þeir gerðu í Stuttgart [þar
Bergkamp valinn sá besti
DENNIS Bergkamp, framheiji
Arsenal, var á sunnudaginn út-
nefndur besti leikmaður ensku
knattspyrnunnar af ieikmönn-
um deildarinnar. Bergkamp er
aðeins annar erlendi leikmað-
urinn hreppir nafnbótina frá
því valið fór fyrst fram fyrir 25
árum, hinn er Eric Cantona
sem valinn var 1994. Hinn
skæði framherji Liverpool,
Michael Owen, var valinn efni-
legasti leikmaður deildarinnar.
Kom þessi niðurstaða fáum á
óvart.
Bergkamp hefur leikið vel í
vetur, einkum á fyrri hluta
tfmabilsins þar sem hann fór
oft og tfðum á kostum. Alls hef-
ur hann skorað 13 mörk í
deildinni og verið lykilmaður í
liði Arsenal sem nú sækir hart
fram á tvennum vígstöðvum - í
deildinni og í bikarnum.
sem Bayern vann 3:0 fyrir hálfúm
mánuði] og þeir urðu við því. Ég
ætlaðist til að þeir léku betur en um
síðustu helgi og þeir gerðu það,“
sagði Trapattoni, þjálfari Bayern.
Ulf Kirsten, markahæsti maður
þýsku deildarinnar, kom Leverku-
sen yfir í upphafí síðari hálfleiks er
liðið tók á móti Gladbach og var
þetta 20. mark kappans í deildinni í
vetur. En heimamenn vora enn að
fagna á áhorfendapöllunum þegar
Jörgen Pettersson jafnaði fyrir
gestina. „Ef við höldum áfram að
spila svona verðum við að láta okk-
ur nægja að leika í Evrópukeppni
félagsliða næsta vetur,“ sagði
Christoph Daum, þjálfari Leverku-
sen, og var allt annað en ánægður
með framgang sinna manna. „Ég
hef samt fulla trú á að við getum
náð öðra sætinu og ég mun gera
leikmönnum Ijóst hvað er í húfi,“
bætti hann við.
Það má víst með sanni segja að
heppnin sé ekki á bandi Dortmund í
deildinni. Svisslendingurinn Stef-
hane Chapuisat kom liðinu yfir
gegn Hansa Rostock, en leikmenn
Rostock skoruðu þrívegis og Dort-
mund var að sætta sig við enn eitt
tapið. „Við hefðum getað gert tvö
eða þrjú mörk í fyrri hálfleik,"
sagði Nevio Scala, þjálfari Dort-
mund. „I síðari hálfleik vora leik-
menn þreyttir og það er skiljanlegt
eftir það sem gerðist í Madrid á
miðvikudaginn, það var erfíður
leikur. Þetta var síðasta tækifæri
okkar til að tryggja okkur fimmta
sætið,“ bætti hann við og því verður
Dortmund að tryggja sér sæti í
Evrópukeppninni að ári með því að
verða Evrópumeistari.
„Við eigum
ennþá von“