Morgunblaðið - 07.05.1998, Síða 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
1998
■ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ
BLAÐ
IR1 PE |L (U
Zagallo búinn að
tilkynna liðið í
fýrsta leik HM!
MARIO Zagallo, hinn gamalkunni landsliðsþjálfari
heimsmeistara Brasilíu í knattspymu, er vanur að
tilkynna byrjunarlið sitt kvöldi fyrir leik líkt og
margir starfsbræðra hans, en bregður nú út af van-
anum vegna heimsmeistarakeppninnar, sem hefst í
Frakklandi eftir rúman mánuð. Hann hefur nefni-
lega þegar tilkynnt byrjunarlið sitt í fyrsta leik,
gegn Skotum 10. júní.
Zagallo kynnti leikmannahóp sinn á blaðamanna-
fundi í Rio de Janeiro í fyrradag, og gerði sér síðan
lítið fyi-ir og greindi fundamnönnum frá hvaða ellefu
leikmenn yrðu í byrjunarliðinu gegn Skotum.
Taffarell verður í markinu og aðrir eru: Cafu, Ald-
air, Junior Baiano og Roberto Carlos, sem verða í
vöminni, Dunga, Cesai- Sampaio, Giovanni og Ri-
valdo á miðsvæðinu og í fremstu vígh'nu Ronaldo og
Romario. Zagallo, sem greindi frá því að breytingar
yi-ðu ekki gerðar á þessu liði fyrir fyrsta leik, nema
einhver leikmannanna yrði fyrir meiðslum, hefur
aldrei stillt upp nákvæmlega þessu liði á þeim fjór-
um áinm síðan hann tók aftur við, en hann hefur
stýrt því í 63 leikjum á þeim tíma.
„Þjálfai-i hefur nú, í fyrsta skipti, kjark til að til-
kynna hverjir em í liðinu,“ sagði brasilíska knatt-
spyrnugoðið Pele. „Þessa var þörf þannig að nú er
ekki þörf á neinum vangaveltum lengiu- og liðið get-
ur farið að búa sig undir átökin."
Ekld var margt sem kom á óvart við val Zagallos
á liði sínu, nema hvað Edilson, miðvallarleikmaður-
inn frábæri frá Sao Paolo, sem hefur verið fasta-
maður síðustu árin, er ekki í byrjunarliðinu.
Eyjamenn fá
þýskan framherja
í DAG kemur í herbúðir íslandsmeistara Eyja-
manna í knattspymu þýski framherjinn Jens
Pascel, sem leikið hefur með Liibeck. Að sögn Jó-
hannesar Ólafssonai’ fonnanns knattspyrnudeildar
IBV verður hann í Eyjum næstu vikuna til reynslu.
„Eg tel allar líkur á að við gerum við hann samning,
hann er maðurinn sem okkur vantar,“ sagði Jó-
hannes.
Pascel er 24 ára og 190 cm hár, örvfættur og hef-
ur verið markheppinn með liði sínu í vetur. M.a.
gerði hann þrjú mörk í 6:3 sigri Lubeck í gær í 3.
deildinni. „Við höfum verið að leita okkur að fram-
herja í nokkurn tíma til þess að stækka hópinn hjá
okkur fyrir sumarið. Það sýndi sig í fyrrasumar að
það veitir ekki af því að hafa góðan fjölda leikmanna
og samkeppni í hverri stöðu til þess að geta verið
með í baráttunni allt keppnistímabilið. Við höfum
hins vegar tekið okkur góðan tíma til þess að fínna
rétta leikmanninn því við höfum ekki vijjað taka
livei-n sem er.“
Jóhannes sagði það ekki vera dýran kost að fá
Pascal tii liðsins. Hann væri með lausan samning
við félag sitt og því þyrfti ekkert að greiða því fyiir
hann.
Inter
UEFA-
meistari
INTER sigraði Lazio 3:0 í úr-
slitum UEFA-keppninnar í
París í gærkvöldi. Brasiliumað-
urinn Ronaldo gerði þriðja
mark Inter og var það frábær-
lega vel gert. Öll mörkin voru
gerð af Suður-Ameríkumönn-
um, það fyrsta gerði Chilebúinn
Ivan Zamorano á upphafsmín-
útunum og Argentínumaðurinn
Javier Zanetti bætti öðru við
með skoti af 20 metra færi. Á
myndinni hér fyrir ofan fagnar
Ivan Zamorano sem kom Inter
á bragðið með því að gera
fyrsta mark liðsins í gær.
■ Leikurinn / C4
AFREKSMANNASJÓÐUR ÍSÍ
Menntamálaráðherra hyggst leggja fram árlegan styrk í Afreksmannasjóð
„Miklar gleðifréttir“
Menntamálaráðherra vonar að
gengi verði frá samkomulagi
við íþrótta- og ólympíusamband
íslands á næstu dögum þess efnis
að ráðuneytið leggi fé í Afreks-
mannasjóð ÍSÍ, en hann er nú ein-
göngu fjármagnaður með hlutdeild
af hagnaði af Lottóinu.
Bjöm Bjarnason ráðherra lagði
til á fundi ríkisstjómarinnar í gær
að ríkið taki ásamt Iþrótta- og
ólympíusambandi íslands þátt í að
fjármagna afreksmannasjóð til að
efla árangur íslensks afreksfólks í
íþróttum á alþjóðavettvangi og var
tillaga hans samþykkt.
„Eg fékk umboð ríkisstjómar-
innar til að ganga til samninga við
ISI um þetta samstarf. Um að við
legðum sjóðnum til fé á grundvelli
samkomulags sem gert yrði. Ég
vonast til að hægt verði að ganga
formlega frá samkomulagi þess
efnis við ÍSÍ á næstu dögum,“
sagði Bjöm Bjarnason í samtali við
fréttavef Morgunblaðsins.
Afreksmannasjóður ÍSÍ er nú
fjármagnaður með 8% hlutdeild af
Lottóhagnaði sambandsins, u.þ.b.
12 milljónir króna á ári. Verði af
samkomulagi við menntamálaráðu-
neytið um mótframlag af hálfu
þess stefnir í að sjóðurinn hafi úr
meiri fjármunum að spila til að
styðja við bakið á íslensku íþrótta-
fólki í fremstu röð.
í skýrslu nefndar menntamála-
ráðherra um eflingu íþróttastarfs,
sem lögð var fram í desember sl., er
m.a. lagt til að ríkið taki ásamt ISÍ
og e.t.v. íleiri aðilum þátt í að fjár-
magna afreksmannasjóð til að efla
árangui- afreksfólks í íþróttum á al-
þjóðavettvangi og Stefán Konráðs-
son, framkvæmdastjóri ÍSÍ, fagnaði
samþykkt ríkisstjómarinnar í gær.
„Þetta eru miklar gleðifréttir og
stórtíðindi fyrir íþróttahreyfinguna;
það er sannarlega ánægjuleg
stefnubreyting að ríkisvaldið vilji
koma með formlegum hætti inn í af-
reksíþróttimar," sagði Stefán. „Mér
finnst Bjöm einn allra besti íþrótta-
málaráðherra i langan tíma, hann
hefur sýnt hreyfingunni mikinn
skilning, bæði með auknum stuðn-
ingi og með úttektum sem varða
starfsemi okkar. Við hjá íþrótta- og
ólympíusambandinu emm honum
þakklát fyrir að hafa unnið vel að
þessu máli og einnig ríkisstjórninni
fyrir að sýna afi-eksstarfinu þennan
skilning. Með tilkomu þessa fram-
lags breytist algjörlega umhverfi
styrkja til afreksíþróttamanna því
fleiri eiga möguleika á að fá stuðn-
ing,“ sagði framkvæmdastjórinn við
Morgunblaðið.
KNATTSPYRNA: FLJÚGANDI HOLLENDINGUR SÁ BESTI í ENGLANDI / C3