Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.05.1998, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÞINGHÚS Bosníu stendur uppi en er nánast í rúst, einsog sjá má. Endurbygging stendur yfir á vegum Evrópusambandsins og langt mun komið að gera við neðstu hæðina! Húsið stendur við Leyniskyttutröð - Sniper Alley - en þarna var skotið á íbúa Sarajevo fyrsta sinni, 6. aprfl 1992. Fólkið safnaðist saman til að mótmæla átökum í landinu, en leyniskyttur höfðu komið sér fyrir á þaki Holiday Inn hótelsins handan við götuna. IBÚAR Sarajevo voru í aðal- hlutverkum harmleiksins sem heimsbyggðinni var boðið upp á í sjónvarpi miss- erum saman þar til fyrir tveimur árum, en hefðu helst af öllu viljað sleppa við þá athygli. Fjöllin æptu en fólkið vildi síst af öllu heyra þann söng. Allir hafa heyrt uppsetningar verksins getið, flestir fylgdust með en ég hygg fæstir átti sig á hvað gerðist inni á sviðinu og hvers vegna stykkið var sett upp. Leikritið var nefnilega ekki aðeins í sjónvarpinu; hrylling- urinn var raunverulegur, en hann skynjar varla nokkur maður nema sá sem var á staðnum. Sarajevo er falleg borg, liggur í dalverpi, umlukt fjöllum eða hæð- um á alla vegu og er því ákjósan- leg sviðsmiðja í umsátri. Miljacka áin rennur gegnum borgina og á kafla lá víglínan alveg niður að henni; Serbar hertóku sem sagt hluta borgarinnar þaðan sem auð- velt var fyrir leyniskyttur að at- hafna sig í yfirgefnum húsum. Að öðru leyti lá víglínan utan byggðar og hávaðinn barst úr öllum áttum; öskur úr alls kyns stríðstólum, stórum og smáum. Enginn var óhultur og ýmsir bera merki hlut- verkanna. Hersveitir Serba sátu um borg- ina, sprengjum rigndi dag hvem og leyniskytt- ur myrtu fjölda fólks. Fyrsta árásin var gerð 5. apríl 1992 og tæpum mánuði síðar, 2. maí, höfðu hersveitir Serba umlukt borgina. Umsátrið stóð í tæp fjögur ár; 26. febrúar 1996 var borgin „opnuð“ og 19. mars fékk ríkisstjórn Bosníu-Herzegovínu afhentan síðasta hluta borgarinn- ar, Grbavica, skv. Dayton sam- komulaginu. 10.615 höfðu verið drepnir í Sarajevo, þar af 1.601 bam. Umsátrið hafði staðið yfir í 1.395 daga sem er hið lengsta í sögu nútímamannsins. Astandið er að sumu leyti orðið gott. Hafi menn handbært fé skortir þá ekkert. Sú sorglega staðreynd blasir hins vegar víða við að margir borgarbúa hafa nán- ast ekkert handa á milli. Margar verksmiðjur vom starfræktar í borginni fyrir stríð en engin er komin í gang á ný. Fjöldinn missti vinnuna og veit varla sjálfur hvemig hann fer að því að draga fram lífið. Fólk ypptir öxlum þegar spurt er. Einhverjir fá enn aðstoð frá alþjóðlegum hjálparsamtökum en ekki í miklum mæli, að sögn. Hljóðið í eldra fólki er mun verra en þeim sem yngri em. Roskið fólk virðist einungis sjá svartnætti framundan. Segir lífið ömurlegt þar sem það geti ekki framfleytt sér með vinnu. Unga fólkið, sérstaklega það sem vald hefur á erlendum tungumálum, lít- ur hins vegar björtum augum fram á veginn. Tungumálakunnátta er gulls ígildi. Enska reyndist mörg- um vel í stríðinu; erlendir blaða- og fréttamenn sem dvöldu í Bosm'u meðan á stríðinu stóð þurftu á túlkum að halda og greiddu vel fyrir. Sömu sögu er að segja af stjórnmálamönnum og fulltrúum alþjóðlegra samtaka og stofnana. Þeir sem mæla einnig á frönsku og jafnvel þýsku eða spænsku eru á grænni grein. Allir höfðu nóg „Fyrir stríð höfðu allir nóg og voru ánægðir," segir Sabina, skrif- stofustúlka um þrítugt, sem starfar fyrii- erlent fyrirtæki. Hún er frá Svartfjallalandi en hefur bróðurpart ævinnar búið í þeim hluta fyri-verandi Júgóslavíu sem nú er Bosnía. „Flestir áttu hús- næði, bíl, nóg að borða, höfðu vinnu og áttu nóga peninga. Fóru í frí, bæði sumar og vetur og margir áttu sumarhús. Líf fólksins hér í Sarajevo, einsog annars staðar í Bosníu, var sem sagt mjög gott. Nú er hins vegar allt breytt. Fáir hafa efni á því að fara neitt en fólk reynir þó að vera hamingjusamt þó það sé erfitt.“ Hún staðfestir að mikil upp- bygging hafi átt sér stað á síðustu tveimur árum, síðan stríðinu lauk, „þó líklega sé erfitt fyrir mann sem er að koma hingað í fyrsta skipti, einsog þú, að trúa því, eyði- leggingin er svo mikil. En gífur- lega mikið hefur verið byggt upp. Ástandið verður betra á endanum og ég held fólk átti sig á þvi að þetta tekur tíma. En „stríðinu" - tímabilinu sem fólk talar um sem stríð - lýkur að mínu mati ekki fyrr en flóttafólkið kemur heim aftur. Talað er um að 200 þúsund hafi farið í burtu, langflestir til Þýskalands, og ómögulegt er að koma strax aftur. Fólkið hefur ekkert hingað að gera.“ Þrátt fyrir mikla uppbyggingu er gríðarlegt starf óunnið. „Verk- smiðjur, vegir, rafveita, vatnsveita, íbúðarhúsnæði - allt er þetta meira og minna í ólagi," segir einn viðmælandi minn. „Rafmagnið er reyndar komið í lag, við fáum notið þess allan sólarhringinn en vatn er Hljóðið í eldra fólki er mun verra en þeim sem yngri eru ÁHRIFAMIKIÐ var að koma í þennan kirkjuarð í grennd Ólympíu- mannvirkjanna frá vetrarleikunum 1984. Þetta var knattspyrnuvöllur, sem breytt var í kirkjuarð í striðinu. í baksýn er skautahöllin frá vetr- arleikunum, sem er í rúst. Á myndinni eru íslenskir landsliðsmenn í körfuknattleik, Helgi Jónas Guðfinnsson og Teitur Örlygsson. EIN nokkurra glæsilegra verslana þar sem nýjasta tískan er í boði. Fatnaðurinn er dýr og flestir láta sér nægja að kíkja í gluggana. MEÐAL þess sem bannað er að koma með inn í Skenderija-verslana- miðstöðina, sem er neðanjarðar, eru skammbyssur; slíkt þykir líklega sjálfsagt víðast hvar, en rétt að taka það fram í Sarajevo! skammtað; við höfum rennandi vatn í tvær klukkustundir tvisvar á dag. Vatnsveitukerfið skemmdist skiljanlega ákaflega mikið í sprengjuárásunum, og afar kostn- aðarsamt verður að koma því í samt lag á ný.“ Ánægð og bjartsýn Emina er hálfþrítug háskóla- stúlka. Ekki er annað að heyra en hún sé bæði ánægð og bjartsýn. Fullyrðir það raunar. Emina, sem er múslimi, starfar sem túlkur samhliða námi. Hún getur unnið að vild og launin eru 200 þýsk mörk á dag. Um 8.000 krónur. „Ég vinn yfirleitt 5 daga í mánuði og hef því 1.000 mörk í laun [um 40 þúsund krónur]. Pabbi er fram- kvæmdastjóri í fyrirtæki hér í borginni og fær 600 mörk í mánað- arlaun en mamma vinnur í háskól- anum og hefur 400 mörk.“ Stúlkan fær sem sagt jafnmikið fyrii- fimm daga vinnu og foreldrarnir samtals fyrir fulla vinnu hvort. „Mér finnst þetta fínt; ég vinn í fimm daga en annars get ég haft það huggulegt, verið í skólanum og svoleiðis. Besta starfið hér er að vera túlkur. Mestu máli skiptir að kunna er- lend tungumál og ég er mjög ánægð með að ég skyldi læra ensku á sínum tíma. Ég tók það upp hjá sjálfri mér fyrir nokkrum árum.“ Þegar hún hugsar til baka segir Emina fyrstu mánuði stríðsins hafa verið skelfilega. „Þá voru allir mjög hræddir. Fólk hírðist niðri í kjallara meðan fallbyssuskotunum rigndi yfir borgina. En ekki var allt neikvætt. Allar máltíðir voru sameiginlegar; fólk var reyndar meira og minna saman og tengslin urðu gríðarlega sterk. Þetta var hið jákvæða og það reyni ég ætíð að tala um þegar stríðið ber á góma. Það er mjög sérstakt að vera svona saman öllum stundum og fólk hafði í sjálfu sér gaman af því að fá tækifæri til þess, þó kringumstæðurnar væru auðvitað skelfilegar. Að nokkrum mánuðum liðnum verða menn hins vegar hundleiðir á því að hanga ofan í kjallara, fara því bara út og hugsa sem svo að engu máli skipti hvort þeir verði drepnir eða ekki. Við veltum því ekki lengur fyrir okkur; það hljóm- ar ef til vill undarlega en við vönd- umst því að lifa við stríðsástandið. Ekkert skipti máli; erfitt var að vera óhultur fyrir leyniskyttum, fólk sem hafði orðið fyrir skoti lá á víðavangi, en við gengum bara framhjá, eða hlupum; en höfðum engar áhyggjur. í sannleika sagt skipti ekkert máli lengur. Svona var þetta öll fjögur árin. Sprengjuhríðin stóð stundum lengi yfir og á meðan fór auðvitað enginn út, en þegar fjöldamorðin áttu sér stað hafði hríðinni slotað og allt var með kyrrum kjörum. Þá fór fólk vitaskuld út, til að ná sér í mat eða í öðrum erindagjörðum, jafnvel einungis að viðra sig því menn verða brjálaðir á því að hanga lengi í kjallaranum. Þegar fólkið hafði verið úti góða stund og átti sér einskis ills von hófst sprengjuhríðin skyndilega aftur.“ Henni var orðið sama um líf sitt, einsog að framan er getið, „en mamma var mjög hrædd þegar ég fór út að heimsækja vini mína. Þeir sem urðu eftir inni voru miklu hræddari en ég sjálf, en stað- reyndin er sú að þó ég væri ein- hvers staðar inni gat ég alveg eins átt von á að verða drepin; félli sprengja á húsið einsog algengt var.“ Móðirin skipaði svo fyrir að börnin tvö, Emina og bróðir henn- ar, væru aldrei saman á ferð ut- andyra; „ætti það fyrir okkur að liggja að deyja ættum við ekki að vera saman svo hún missti okkur ekki bæði.“ Ég sem var nýbúin að þvo mér um hárið... Vert er að velta því fyrir sér hvort sinnuleysi um eigið líf sé eðlilegt við aðstæður einsog fólkið í Sarajevo bjó við. Það var í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.