Morgunblaðið - 31.05.1998, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 31.05.1998, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 B 5 Á NOKKRUM stöðum starfrækir fólk „bókahúðir" undir berum himni. ÞESSI maður hefur líklega ekki kíkt oft út um gluggann í stríðinu. Kúlnagötin í veggnum bera þess merki hver hættan var þá, en nú er hún engin - að- eins sól, ferskt loft og ferða- menn, í mesta lagi vopnaðir myndavél, fyrir utan. MINJAGRIPAVERSLANIR bjóða ýmiskonar varning, sums staðar eru t.d. seld skothylki úr stríðinu, útskorin, en í þessari búð voru þau ekki á boðstólum. „Ég vil ekki hagnast á einhverju sem hefur orðið fólki að fjörtjóni," sagði afgreiðslumaðurinn. BEÐIÐ í röð til að borga rafmagnsreikninginn. frá hjálparstofnunum. Hún, einsog fleiri, var óánægð. „Sumir hafa vinnu og þurfa lítið að kvarta en fæstir hafa vinnu. Líf þein’a er ömurlegt." Athyglisvert er að bera saman verð á hlutum, annars vegar á markaðnum sem áður er nefndur, hins vegar í verslunum í miðborg- inni. Eg rakst til að mynda á háls- bindi á markaðnum sem föl voru fyrir 5 þýsk mörk, en samskonar hálstau kostaði 45 mörk í verslunarmiðstöð við miðbæinn. I stórverslun sem ég kom inn í fyrir hálfum öðrum áratug í gömlu Júgóslavíu, ekki ýkja langt frá Sarajevo, var boðið upp á lítið annað en risa- stóra ísskápa sem stóðu í löngum röðum. Og gúmmískó. Nú svigna hillur i ákveðnum búðum í Sara- jevo undan nýmóðins tækjum; Philips, Moulinex, Siemens, Boss. Alls kyns matarvinnsluvélar og hvað þessar græjur heita. Verðið sýndist mér reyndar ekki sérlega hagstætt en úi'valið var mikið. Levis’ gallabuxur kosta 130 mörk í verslunarmiðstöðinni, sem eru um 5.400 krónur, en 90 mörk, um 3600 kr., i gamla bænum; tyrkneska hlutanum einsog heimamenn kalla hann, en Tyrkir réðu borginni fyr- ir margt löngu. Allt var fáanlegt - á svarta markaðnum Tungumálakunnátta er dýr- mætasta eign unga fólksins; gulls ígildi, einsog framar er getið. „Svona var þetta líka í stríðinu því allir útlendingarnir sem tengdust því með einhverjum hætti þurftu túlka. Fyrir þau störf var gríðar- lega vel greitt og fólk naut jafn- framt þeirra forréttinda að geta keypt mat í sérstökum búðum sem settar vora upp meðan á stríðinu stóð. Besta vinkona mín vann til dæmis fyrir [bandarísku sjónvarps- stöðina] NBC, hafði mjög há laun og sömu- leiðis aðgang að um- i’æddum verslunum: Þær voru ætlaðar starfsfólki Sam- einuðu þjóðanna en fulltrúar fjöl- miðla höfðu einnig aðgang. Gætu menn sýnt skilríki á þeirra vegum voru þeir á grænni grein; gátu keypt allt sem hugurinn girntist. Við fengum baunir, mjöl og hrís- gi-jón en í þessum búðum átti her- aflinn gnóttir alls. Heimsbyggðin hélt að hingað væri stanslaust flogið með mat í mannúðarskyni, en málið var ekki svo einfalt; rétt er að hingað kom gríðarlega mikill matur en stór hluti hans var fyrir herafla Sameinuðu þjóðanna. Heimamönnum var þetta kunnugt og öfunduðu þá sem nutu þeirra forréttinda að komast í birgðirnar. Mikið var um að hermenn á vegum SÞ laumuðu varningi út og seldu á svörtum markaði. Sömuleiðis heimamenn sem höfðu aðgang að búðunum og mögulegt var að þéna vel á viðskiptunum. Dós af Coca Cola, sem keypt var á hálft eða eitt þýskt mark, var til að mynda seld á svarta markaðn- um á 10 eða jafnvel 15 mörk. Sama var með súkkulaði og sykur; kílóið af sykri fékkst á 80 mörk, kíló kaffis á 120 til 180, en braskar- arnir höfðu jafnvel ekki keypt þetta nema á 10 mörk.“ Eitt þýskt mark er í dag andvirði 40 íslenskra króna. Og hún þekkti dæmi þess að fólk eyddi öllu sparifé sínu til matar- kaupa á svarta markaðnum. „Já, það er hárrétt og það finnst mér hi’eint ekki mannúðlegt! Eg man að einu sinni skömmu fyrir eina hátíð múslíma áttum við eng- an sykur, en þá er hefð fyrir því að búa til mikið af smákökum. Faðir minn fór því með síðustu 150 mörkin sem við áttum [6.000 krón- ur] og keypti tvö kíló af sykri. Við fengum því smákökurnar einsog við voram vön. Svona smáatriði glöddu óskaplega mikið - og þau gleymast seint. En við reynum að gleyma því slæma.“ Hún segir erfitt að meta hve langur tími líði þar til fólk telur ástandið orðið eðlilegt. „Fólk hefur mikinn áhuga á þeim málum og helsta umræðuefni hér um slóðir eru stjórnmálin. Þegar vinir koma saman hefjast samræður líklega á spjalli um daginn og veginn en enda alltaf í pólítík, því enginn er sáttur. Hlutirnir hafa breyst og ég tel breyt- ingar hafa orðið mjög hratt miðað við hvernig ástandið var fyrir aðeins tveimur árum - en fólki finnst umbætur þó ekki verða nægilega hratt. For- eldrar mínir, sem eru um fimm- tugt, telja sig til dæmis hafa glatað öllu; telja sig ekki hafa nægan tíma til að byrja algjörlega upp á nýtt. Mér, aftur á móti, finnst ég hafa nógan tíma. Þetta held ég sé lýsandi fyrir ástandið; yngi-a fólk er ánægt en þeir eldri svartsýnir. Því miður.“ Tungumála- kunnátta er dýrmætasta eignin Þénar mánað- arlaun beggja foreldra á fimm dögum Samhjálp um hvítasurmu Dorkassamkoma á hvítasunnudag í Þríbúðum kl. 16.00. Samhjálparsamkoma í Fíladelfíu á annan í hvítasunnu kl. 11.00. Hvítasunnudagur í Þríbúðum: Dorkaskonur annast samkomuna með fjölbreyttum söng og vitnisburðum. Stjórnandi Ásta Jónsdóttir. Annar í hvítasunnu í Fíladelfíu: Fjölbreytt dagskrá með miklum söng. Samhjálparkórinn syngur. Samhjálparvinir segja frá reynslu sinni. Skírnarathöfn. Ræðumaður Óli Ágústsson. Samhjálp ara Allir em velkomnir. Samkomunni í Ffladelfíu verður útvarpað hjá RUV, rás 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.