Morgunblaðið - 31.05.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 31.05.1998, Qupperneq 10
10 B SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ „Jú jú, en ég þótti skrýtin að öllu leyti hvort sem var! Það var svo margt sem mig dreymdi um að verða á þessum ár- um. Eg hugsaði með mér að ef ég yrði ekki söngkona og leikkona gæti ég orðið myndlistarkona, og ef ég yrði það ekki gæti ég orðið rithöfund- ur, nú og ef það gengi ekki gæti ég bara orðið hæfileikalaus listakona, sem ég er líklega, svo að draumurinn hefur ræst.“ í tíma lijá Frökkum Una Margrét lét ekki sitja við orð- in tóm, að minnsta kosti ekki framan af, og fór sextán ára gömul í einka- tíma til Guðrnundu Elíasdóttur til að læra söng. Ari síðar komst hún inn í Söngskólann og var í tvo vetur í und- irbúningsdeild og tvo í almennri deild. „Eg hafði gaman af náminu og tók þriðja stig, en ákvað þá að hætta. Eg hafði áhuga á svo mörgu og vissi að ef ég héldi áfram mundi ég þurfa að gefa allt í þetta, enda er söngnám bæði dýrt og tímafrekt." Eftir stúdentspróf úr MR, forn- máladeild I, lá leiðin í Háskóla Is- lands. Hún varð B.A í frönsku árið 1990 og hóf skömmu síðar störf á tónlistardeild Ríkisútvarpsins. „Ég kunni frá byrjun ákaflega vel við mig þar, því auk tónlistarinnar koma bók- menntir, mannkynssaga og tungumál mikið við sögu í starfinu. Eg var búin að vera í eitt ár á tónlistardeildinni þegar ég fór til Parísar í nám. Faðir minn hafði heillast af borginni þegar hann bjó þar um tíma, svo ég ákvað að fara þangað og rifja upp söng og tónlistarsögu. Ég var hálft ár í Schola Cantorum og lærði þar tón- listarsögu, söng og tónheyi-n. Þegar ég byrjaði var verið að fjalla um tón- list Grikkja til foma, og mér skildist að þeir ætluðu að komast allt fram til ársins 1600 í tónlistinni á þessum vetri, en þar sem kennarinn vildi ræða öll atriði mjög vandlega var hann rétt byrjaður að tala um tónlist frumkristninnai’ þegar ég hætti.“ Það fór því kannski ekki mikið fyr- ir óperuíræðslu í Frakklandi, en hvaða óperur voru annars í uppá- haldi? „Mér þótti vænst um La Bohéme, Carmen og svo auðvitað La Traviata. Ég átti mér enga uppáhaldssöng- konu, en þóttu aríurnar best sungnar eins ég heyrði þær fyrst. Tónlistin og sagan í ópemnum skipta mig mestu máli. Ef sagan er leiðinleg er óperan ekki í eins miklu uppáhaldi hjá mér. Foreldrar mínir gáfu mér bók um óp- erur þar sem sagan er rakin í þeim mörgum og hana las ég með ánægju. Ég hef alltaf haft svo gaman af sög- um. Ljóðasöngur þótti mér ekki eins dramatískur og aríur í fyrstu, en það breyttist og nú hef ég mikla ánægju af honum líka,“ Þegar hún er spurð hvaða tónskáld og verk séu í mesta uppáhaldi núna lendir hún í nokkrum vandræðum. „Ég get ekki nefnt einstök tón- skáld og verk. Það er til stórkostleg tónlist frá öllum tímabilum. Ég er þó dáh'tið gefin fyrir tónlist frá róman- tíska tímabilinu, 19. öldin hefur alltaf heillað mig. Oft þykir mér vænt um píanóverk og einnig óperur 20. aldar, eins og til að mynda eftir Benjamin Britten. En svo er ég líka hrifin af mörgum tónskáldum sem eru minna þekkt." Með skrekk á æfingu I apríl fyrii- ári ákvað Una Mar- grét að vera með í keppninni og þá hófst undirbúningurinn. „Ég skrifaði hjá mér tónskáld í tímaröð, æviatriði, helstu verk og á hvaða tíma þau voru samin. Það gengur ekki að hlusta á allt sem samið hefur verið, en auðvii> að hlustar maður á margt. Keppnin byggist upp á því að reyna að rekja sig fram, reyna að þekkja stíl höf- undar og svo framvegis. Við Ríkarð- ur og Jóhannes skiptum með okkur Norðurlöndum og kom Svíþjóð í minn hlut. Sum tónskáld Svía þekkti ég áður, önnur ekki. Við komum þrjú saman og æfðum okkui’ með því að leggja tóndæmi hvert fyrir annað. Trausti Jónsson veðurfræðingur lagði líka tóndæmi fyrir okkur. Þegar nær dró keppninni fóru næstum allar frístundii- mínar í undirbúning." Fyrstu tíu þættii-nir voru teknir upp á tíu dögum í óperuhúsinu í Helsinki í janúar síðastliðnum, og í apiál voru tveir síðustu þættirnir, sem eru öllu lengri, teknir upp. Út- sendingar hófust svo í maí. UNA MARGRÉT á tónlistardeildinni: „Ég óttaðist mest að ég mundi ekki muna neitt, vita neitt eða „skandalisera“ með því að segja ekki neitt.“ Morgunblaðið/Golli KONTRAPUNKTI KONUR hafa ekki verið mjög áberandi í spurn- ingaþáttum í sjónvarpi, og síst af öllu í samnorrænum þáttum eins og Kontrapunkti, þar sem keppendur þurfa helst að þekkja hvern einasta konsert, aríu og sinfóníu sem samin hafa verið síðustu aldirnar. En í þáttaröðinni sem nú er nýhafin tefla íslendingar fram ungri konu, Unu Margréti Jónsdóttur, og það er ekki laust við að menn fyllist stolti, einkum kven- þjóðin eins og gefur að skilja, þegar hún birtist á skjánum ásamt helstu tónlistarvitringum Norðurlanda. Una Margrét er þar í traustum fé- lagsskap, þeirra Ríkarðs Arnar Pálssonar tónlistargagnrýnanda og Jóhannesar Jónassonar lögreglu- manns, sem báðir eru landskunnir fyrir tónlistarþekkingu sína. Ríkarð- ur Örn tekur nú þátt í keppninni í sjötta sinn, en Jóhannes mætir til leiks í fyrsta sinn eins og Una Mar- grét, Kontrapunktur hóf göngu sína á Norðurlöndum fyrir nær þremur áratugum en Islendingar tóku fyrst þátt í keppninni árið 1990. Keppend- ur eru þrír frá hverju landi og af þeim fímmtán keppendum sem nú taka þátt eru fjórar konur, frá Is- landi, Finnlandi, Svíþjóð og Dan- mörku. Aðeins einu sinni áður hefur íslensk kona tekið þátt í keppninni en það var árið 1996 þegar Anna Magnúsdóttir keppti ásamt löndum sínum. Halda uppi merkinu Una Margrét hefur starfað sem dagskrárgerðarmaður á tónhstar- deild Ríkisútvarpsins í tæp átta ár og er því enginn nýgræðingur í tónlist- inni. Hún sér til að mynda um óperu- kvöld Ríkisútvarpsins og einnig þátt> inn Tónstigann ásamt öðrum. En hver var aðdragandi þess að hún tók þátt í keppninni? „Það var víst Anna Magnúsdóttir Með blóm í barmi Sígild tónlist var leikin á heimili Unu Margi-étar og hún á ekki langt að sækja áhugann á því sviði. Faðir hennar, Jón Oskar rithöfundur, var í Tónlistarskólanum og vann fyrir sér um tíma sem píanóleikari í dans- hljómsveitum, og móðir hennar Kristín Jónsdóttir myndlistarkona frá Munkaþverá, leikur á gítar. Jón Óskar tók að sér nemendur í píanó- leik og var dóttirin sex ára þegar hún hóf nám hjá honum. „Ég hafði alltaf gaman af tónlist en það má segja að heimur tónlistarinn- ar hafi opnast fyrir mér þegar ég var tólf ára. Og það gerðist fyrir tOviijun. Eitt sinn þegar ég var ein heima fór ég að spila plöturnar hans pabba, sem ég hafði aldrei gert áður. Pabbi lék gjarnan sömu plötumar með Bach og Beethoven, en ég lét þær nú eiga sig. Aftur á móti fann ég plötu sem mér leist vel á því að á umslagi hennar var mynd af konu í gamal- dags kjól með blóm í barmi. Þetta var óperan La Traviata eftir Verdi. Ég hlustaði á skemmtilegan diykkju- söng úr fyrsta þætti, en á eftir hon- um komu svo aríuiyog dúettar sem mér leist síður á. Ég fór að skoða umslagið og reyna að stauta mig áfram í enskunni og komst að þvi að óperan fjallaði um einhverja Violettu. Pabbi sagði mér svo að óperan væri byggð á sögunni um Kamelíufrúna eftir Dumas, sem ég þekkti vel, svo ekki dró sú vitneskja úr áhuganum. Ég hélt mig við þessa plötu næstu daga og fór svo að finnast aríurnar og dúettarnir fallegri en drykkju- söngurinn. Ég uppgötvaði að góð tónlist verður betri eftir því sem oftr ar er hiustað á hana. Ég fékk óperu- dellu þama tólf ára gömul og ákvað að gerast leikkona og óperusöngkona þegar ég yrði stór.“ - Óperuunnendur eru nú yfirleitt eldri en tólf ára, fannst jafnöldrum þínum þú ekkert vera skrýtin? Una Margrét Jónsdóttir sem varð óperu- punkti. Hún leiðir Kristínu Marju Baldurs- dóttur inn í tónlistarlíf sitt og segir frá veru sinni meðal vitringa á því sviði. „ÞÚ verður þá eins og Freyja milli jötnanna í Niflungahringnum," sagði Jóhannes, þegar talað var um að ég sæti á milli hans og Ríkarðs. sem stakk upp á því við Ríkarð að fá mig í keppnina,“ segir Una Margrét. „Hann var þá búinn að tala við nokkrar konur, því nóg eigum við af vel menntuðum konum á tónlistar- sviði, en þær áttu annaðhvort ekki heimangengt eða treystu sér ekki. Ég sat svo inni á safni tónlistar- deildarinnar þegar Ríkarður kom aðvífandi og spurði hvort mér hefði nokkuð dottið i hug að keppa í Kontrapunkti? „Kontrapunkti? Ertu frá þér!“ sagði ég og faldi mig svo á bak við dagblað. Starfsfélagi minn kvenkyns sem hafði heyrt á tal okkar, gat þá ekki stillt sig og bað mig endilega að taka nú þátt í keppninni til að halda uppi merki íslenskra kvenna. Mér fannst nú tilhugsunin ein alveg frá- leit. Ríkarður bað mig ítrekað að hugsa málið, en það var ekki fyrr en ég fór að heyra að hann talaði um mig sem væntanlegan keppanda að ég ákvað að slá til. Mér fannst það dálítið leiðinlegt ef engin kona tæki þátt í keppninni fyrir Islands hönd. Og ég hugsaði með mér: Jæja, í versta falli geri ég mig að fífli á öil- um Norðurlöndum.“ KONANI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.