Morgunblaðið - 31.05.1998, Síða 12
12 B SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógrækt-
arferð í
Hafnarfirði
ÁRLEG ferð í gróðurreit Banda-
lags kvenna í Hafnarfirði verður
farin fimmtudaginn 4. júní. Mæt-
ing er kl. 19. Reiturinn, sem er
rétt við Kaldárselsveg, er merkt-
ur. Farið er á eigin bílum. Að
gróðursetningu lokinni verður í
boði hressing.
Háskóli íslands
Dagbók
Háskóla
Islands
DAGBÓK Háskóla íslands 4. til
6. júní 1998. Allt áhugafólk er vel-
komið á fyrirlestra í boði Háskóla Is-
lands. Dagbókin er uppfærð reglu-
lega á heimasíðu Háskólans:
http://www.hi.is
Fimmtudagurinn 4. júm':
Skólaþróun og listir. Ráðstefna
haldin í Háskólabíói. 9.30-9.45 Setn-
ing Björn Bjamason menntamála-
ráðherra. 9.45-10.00 Opnun ráð-
stefnustjóra, kynning á ráðstefnu-
innihaldi og aðalfyrirlesara.
10.00-11.40 Fyrirlestur Dr. Elliot
Eisner The Educational Uses of As-
sessment and Evaluation.
11.00-12.00 Dr. Ingólfur Á. Jóhann-
esson. Samantekt úr fyrirlestri
Eisners. Fyrirspumir og umræður.
13.00-13.20 Guðrún Geirsdóttir. Af
ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.
13.20-13.40 Sigurjón Mýrdal. Ný
sýn og ný tækni í menntun.
13.40-14.00 Guðríður Adda Ragnars-
dóttir. Geta fallgreining og símat
reynst skilvirk kennslu- og stjóm-
tæki í skólum? 14.20-14.40 Dóra S.
Bjamason. I spy with my en-
' lightened eye. Changes in Reykjavík
preschools. 14.40-15.00 Anna
Jeppesen og Lilja Jónsdóttir. Þema-
nám er líka alvömnám. Námsmat í
skapandi starfi. 15.20-15.40 Unnur
G. Kristjánsdóttir. Mat á gildi mynd-
mennta. 15.40-16.00 Guðrún Geirs-
dóttir og Dr. Ingólfur Á. Jóhannes-
son samantekt og umræður.
Föstudagurinn 5. júní:
Skólaþróun og listir. Ráðstefna
haldin í Háskólabíói. 9.30-9.45
Blokkflautusveit Tónlistarskólans í
Kópavogi. 9.45-10.00 Opnun ráð-
stefnustjóra, kynning á ráðstefnu-
innihaldi. 10.00-11.00 Fyrirlestur
Dr. Elliot Eisners. What do the Arts
teach? 11.00-12.00 Dr. Guðrún
Helgadóttir. Samantekt úr fyrir-
lestri Eisners. Fyrirspurnir og um-
ræður. 13.00-13.20 Rósa Júlíusdótt-
ir. Að vinna með kenningar Eisners.
13.20-13.40 Gréta Mjöll Bjarnadóttir
og Sigfríður Bjömsdóttir. Ný öld -
Norræn framtíðarsýn. 13.40-14.00
Soffía Vagnsdóttir. 14.20-14.40
Bryndís Gunnarsdóttir. Barnamenn-
ing. 14.40-15.00 Ásta Vigdís Jóns-
dóttir og Guðrún Halldóra Sigurðar-
dóttir. Drög að námsefni og skipu-
lagi fyrir tveggja eininga sjónlistaá-
fanga í brautarkjarna framhalds-
skóla. 15.00-15.20 Marteinn Sigur-
geirsson og Anna Flosadóttir. Hvert
liggur mín leið? 15.20-15.40 Dr. Guð-
rún Helgadóttir og Rósa Júlíusdóttir
samantekt og umræður.
Laugardagurinn 6. júní:
Málvísindastofnun Háskóla ís-
lands hefur tekið að sér að halda The
Tenth Conference of Nordic and
General Linguistics í Reykjavík dag-
ana 6.-8. júní 1998.
Á dagskrá ráðstefnunnar í ár, sem
fer fram í Odda, era þrír gestafyrir-
lestrar. Anders Holmberg (Tromso),
fjallar um setningafræði, Inge Lise
Pedersen (Kaupmannahöfn) um fé-
lagsleg málvísindi og Tomas Riad
(Stokkhólmi) um hljóðkerfísfræði.
Að auki verða haldnir 44 almennir
fyrirlestrar og tvær smiðjur (works:
hops) með um 15 erindum samtals. I
annairi smiðjunni verður fjallað um
„bestunarmálfræði" og hinni um
merkingarfræði. Fyrirlestrahaldið
stendur í 2 daga. Dagskrá ráðstefn-
unnar er kynnt á heimasíðu hennar.
Netfang ráðstefnunnar er nordcon-
fErhi.hi.is og veffang
http://www.rhi.hi.is/Inordconf
Sýningar
Stofnun Árna Magnússonar,
Ámagarði við Suðurgötu Handrita-
sýning „Þorlákstíðir og önnur Skál-
holtshandrit" er opin daglega kl.
13-17 frá 1. júní til 31. ágúst 1998.
Unnt er að panta sýningu utan
reglulegs sýningartíma sé það gert
með dags fyrirvara.
Landsbókasafn íslands - Há-
skólabókasafn Trú og tónlist í ís-
lenskum handritum íyrri alda. 30.
maí til 31. ágúst 1998. Sýningin
tengist Listahátíð og verður opnuð
með dagskrá um íslenska kirkju- og
trúartónlist. Haraldur Sigurðsson
og kortafræðin. 4. maí til 30. ágúst
1998. Sýning var opnuð á fæðingar-
degi Haralds, en hann hefði þá orðið
níræður.
Orðabankar og gagnasöfn. Ollum
er heimill aðgangur að eftirtöldum
orðabönkum og gagnsöfnum á veg-
um Háskóla Islands og stofnana
hans. Islensk málstöð. Orðabanki.
Hefur að geyma fjölmörg orðasöfn í
sérgreinum:
http://www.ismal.hi.is/ob/ Lands-
bókasafn íslands - Háskólabóka-
safn. Gegnir og Greinir. http://
www.bok.hi.is/gegnir.html Orðabók
Háskólans. Ritmálsskrá: http:/
/www.lexis.hi.is/
Námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar Háskóla
íslands vikuna 1.-5. júní:
4. júní kl. 8.45-16.15. Langvinnir
verkir: Áhrif og afleiðingar lang-
vinnra verkja og meðferðarmögu-
leikar. * Sérstakir gestafyrirlesarar
eru hjónin Basil og Birgitta Finer
frá Uppsölum í Svíþjóð. Þau era
læknir og hjúkrunarfræðingur að
mennt og hafa sérhæft sig m.a. í
notkun nálastungna, dáleiðslu og
„psychodrama" við meðferð lang-
vinnra verkja hjá einstaklingum og
hópum í um tvo áratugi. Þau eru vel
þekktir fyrirlesarar á sínu sviði og
verður flutningur þeirra á ensku.
Auk þeirra; Torfí Magnússon, lækn-
ir, sérfræðingur í heila- og tauga-
sjúkdómum, Sigurður Árnason
læknir, sérfræðingur í krabbameins-
sjúkdómum og Anna Kristín Krist-
jánsdóttir, sjúkraþjálfari.
5. júní kl. 8.45-17.00. Langvinnir
verkir: Vinnusmiðja Sálfræðileg
meðferð langvinnra verkja og dá-
leiðsla. Basil og Birgitta Finer frá
Uppsölum í Svíþjóð.
.4
Hrossaræktendur
Toppur
frá Eyjðlfsstöðum
Litur ► 2500 Brúnn
Núverandi eig. ► Snorri Rafn Snorrason,
sími 555 4218
F. ► 802 Hrafn 68 frá Holtsmúla
F.F. ► 663 Snæfaxi 63 frá Páfastöðum
F.M. ► 3781 Jörp 54 frá Holtsmúla
M. ► 5017 Sera 76 frá Eyjólfsstöðum
M.F. ► 587 Neisti 59 frá Skollagróf
M.M> 4886 Perla 71 frá Eyjólfsstöðum
Hæsti dómur 1990
Mál: 145 155 30,0 19,0
Sköpulag: 8,5 - 8,5 - 9,0 - 9,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 = 8,53
Hæfileikar: 8,5 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 8,5 = 8,39
AðaL: 8,46
Kynbótamat:
Hæð Prð 6r% Höf Hál Bak Sam Fót Rét HÓf Töl Brk Skð Stö Vil Geð Feg Aðe Fv Afk AfD
0.8 90 81% 124 115 128 133 110 111 107 125 122 111 119 118 124 127 127 0 222 21
Öry%
93%
Notkunarstaðir
Húsnotkun ►Gunnarsholt
símar 482 1611
og 897 6247
Fyrra gangmál ► Hrossaræktarsamtök Suðurlands
Hrunamannahreppur, sími 486 6596 og 482 1611
Seinna gangmál ► Ketilsstaðir, Austurland,
sími 471 1769 og 471 1703
FRÁ opnun í Norðurá. Þar hefst veiði í fyrramálið og má búast við því
að menn setji þar í ‘ann.
Hjólin farin
að snúast
STAN GAVEIÐIFÉ L AG Reykja-
víkur gengst fyrir árlegum barna-
og unglingaveiðidegi sínum við El-
liðavatn laugardaginn 6. júní næst-
komandi. Gengur uppákoman undir
nafninu „Veiðimót barna og ung-
linga 16 ára og yngri“ og er þátt-
taka ókeypis.
Stefán Ágúst Magnússon, stjóm-
armaður hjá SVFR og einn umsjón-
armanna barna- og unglingastarfs-
ins, sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að dagar þessir hefðu ávallt verið
vel sóttir og starfíð verið þakklátt.
„Krakkarnir hafa skemmt sér vel
og augljóst að í hópnum eru margir
upprennandi veiðisnillingar,“ sagði
Stefán.
Skráning hefst klukkan 9 að
morgni í þjónustuskálanum sem
stendur skammt frá brúnni milli El-
liðavatns og Helluvatns. Mótinu
lýkur klukkan 12 og verður afli
þátttakenda þá veginn, mældur og
skráður. Keppt er til verðlauna í
ýmsum flokkum og verða verðlaun
afhent á uppskerahátíð þessa ald-
urshóps hjá SVFR sem haldin verð-
ur í vertíðarlok í haust.
Sumarskilyrði
Laxveiðiárnar era ekki opnar enn
sem komið er, en eigi að síður era
margir laxveiðimenn farnir að hafa
áhyggjur af vatnsbúskap í ánum í
sumar. Snjór er víðast lítill eða eng-
inn og eigi árnar ekki að seytla
„niðri í grjóti“, eins og stéttin kallar
það, þá þarf að rigna vel og ræki-
lega með jöfnu millibili. Annað eins
hefur svo sem gerst.
En til marks um ástandið í ánum,
þá sagði Ingvi Hrafn Jónsson,
leigutaki Langár, í samtali við blað-
ið á fímmtudag, að á þriðjudags-
kvöldið hefði áin verið 12 gráðu heit.
„Hún er „hitch“-heit,“ sagði Ingvi
og átti við að kjörhita fyrir gáru-
hnút er náð. Er með ólíkindum að
því sé að fagna svo snemma á ver-
tíð, eða beinlínis áður en hún hefst.
Þá sagði Ásgeir Heiðar, fulltrúi
leigutaka Laxár í Kjós, að áin væri
um þessar mundir í „venjulegu
sumarvatni" sem væri veralega
óvenjulegt svo snemma. Þó er það
ekki án dæma.
Laxinn sést nú víða
Það hefur bæst í laxahópinn í
Laxá í Kjós. Á föstudagskvöldið
sáu menn til þó nokkurs af físki, en
á fimmtudaginn hafði aðeins tekist
að telja sjö. Aftur á móti virðist
vera talsverð ferð á laxinum, því
nokkru eftfr að 20-30 fiskar sáust í
Kvíslafossi að sunnan voru þeir
flestir á bak og burt. Áin er hlý og
fiskurinn líklega þegar byi-jaður að
dreifa sér.
Sést hefur lax á Breiðunni í El-
liðaánum og lax var að stökkva þar
fyrir neðan á háflóði á föstudags-
kvöld. Þá hefur lax orðið vart í
Norðurá sem vonlegt er, enda geng-
ur hann jafnan í hana upp úr miðj-
um maí og þó ekki hafí sést lax í
Þverá svo vitað sé þá má heita ör-
uggt að hann sé einnig kominn í
hana. Það eru Norðurá og Þverá
sem eiga snemmgengustu laxa-
stofna landsins. í engar aðrar ár á
íslandi gengur lax í jafnmiklum
mæli jafnsnemma.
Lax hefur sést stökkva af og til í
Straumunum, ármótum Norðurár
og Hvítár og einhvers staðar í hér-
aðinu nærri þeim stað missti sil-
ungsveiðimaður agnið óvart upp í 10
punda hrygnu fyrir fáum dögum.
20%
afsláttur
af lego
sumarjökkum
þessa viku
barnafatnaður
í miklu úrvali